Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1998, Side 23
Gunnar Helgason leikari er ekki par
hrifinn af Soffíu Auði Birgisdóttur,
leiklistargagnrýnanda Moggans.
Hann er hins vegar ánægður með
Hafnarfjarðarleikhúsið sitt, leikritið
Við feðgarnir og hlutverk sitt í Dansinum.
Alíslenskasti
leikari í heimi
Vikan er búin aö vera brjáluð
hjá Gunnari Helgasyni leikara.
Það var frumsýning á Við feðgarn-
ir í Hafnarfjarðarleikhúsinu síð-
astliðinn fóstudag, frumsýning á
Dansinum á miðvikudag, áfram-
haldandi sýningar á Síðasta bæn-
um í dalnum og svo er hann að
fara að leikstýra Vírus eftir Hug-
leiksgæjana Ármann, Sævar og
Þorgeir.
„Hafnarfjarðarleikhúsið er alís-
lenskasta leikhús í heimi. Við
erum bara að sýna íslensk verk og
ef við tökum verk eftir erlendan
rithöfund þá búum við til íslenska
leikgerð og styðjumst að engu leyti
við útlensku leikgerðirnar. Við
erum til dæmis miklu íslenskari
en Þjóðleikhúsið og Borgarleik-
húsið. Ég held að við séum að
frumsýna einu færra verk, alís-
lensk, en Þjóðleikhúsið og jafn-
mörg og Borgarleikhúsið."
Hvað er máliö meö þessa ótrú-
legu grósku í islenskri leiklist?
„Það breyttist bara allt með öll-
um frjálsu leikhópunum og gerjun-
in varð síðan að staðreynd þegar
hópamir breyttust í leikhús. Núna
er bara svo komið að frjálsu hóp-
arnir eru að frumsýna fleiri ís-
lensk verk en stofnanirnar. En
ástæðan fyrir þessum látum er að
Leiklistarskólinn hefúr verið dug-
legur að útskrifa fólk og það fá
ekki allir fastráðningu hjá stóru
leikhúsunum. Þannig að þeir sem
nenna ekki að bíða í röð fyrir utan
Þjóðleikhúsið gera bara það sem
þeim sýnist."
Gunnar Helgason er alveg ör-
ugglega með óútreiknanlegustu
leikurum landsins. Hann fór frá
því að vera bamahetja í allsberan
sprautufíkil, svo er hann rithöf-
undur, leikstjóri, dramaleikari og
er hreint út sagt ótrúlega góður í
Dansinum hans Ágústs Guð-
mundssonar.
Var gaman í tökum í Fœreyjum?
„Já, það var fint. Myndin er
samt ekki öll tekin í Færeyjum.
Við vorum þarna í tvær vikur á
Austurey og lítilli eyju sem heit-
ir Koltur. Þeir eru alveg frábær-
ir, Færeyingamir. Það er einmitt
færeysk stelpa sem leikur
stelpuna sem persónan mín í
myndinni er eitthvað að slá sér
upp með. Hún heitir Kristína
Sundan Hansen og lærði einmitt
í Leiklistarskóla íslands. En það
er mjög gaman að sjá að það er
sama gróskan í Færeyjum og á ís-
landi. Unga fólkið þar er að rífa
upp leikhúsið og er bara að gera
það sem það vill, rétt eins og við
á klakanum.“
Samstarfiö viö Ágúst Guó-
mundsson?
„Gústi er flottur. Áður en við
byrjuðum að taka upp var ég svo-
lítiið hræddur um að maður fengi
bara handritið og yrði bara látinn
fara með sitt í mynd. En það var
mikil samvinna og hann var alltaf
tilbúinn til að hlusta á það sem
leikararnir höfðu að segja. Tók
mark á manni og gaf líka mikið af
sér. Hann var samt enginn heigull
og stopp ef hann var ósammála.
Hafði síðasta orðið.“
Hvað fmnst þér um dómana á
Ykkur feögana?
„Ég hef nú ekki mikið álit á
þessari konu í Mogganum sem
gagnrýnanda. Hún hefur aldrei,
finnst mér, hitt naglann á höfuðið.
Eins og einu sinni þegar hún gagn-
rýndi Himnaríki eftir Árna Ibsen
var hún ekki ýkja hrifin en þegar
hún gagnrýndi næsta leikrit eftir
Árna þá minnti hún lesendur á
hvað hún hefði verið stórhrifm af
Himnaríki. Það er því ekki mikið
að marka dóma frá henni.“
En hvaö um viötökur áhorfenda?
„Mjög góðar, fólk er að skemmta
sér mjög vel. Leikritið er stofu-
drami en um leið pínulítið farsa-
kennt. Það skapar skemmtilega
blöndu á öllum þessum formum og
plúsinn er að blandan gengur full-
komlega upp. Ég leik Steingrím,
son Ásgeirs, sem er leikinn af Egg-
erti Þorleifssyni og verkið fjallar
um sambúðina á milli þessara
feðga. Ég á von á því að það verði
enginn svikinn af þessari sýn-
ingu.“ -MT
*
#•
Fókus og Mono kynna:
Ifókus
RISADANSLEIKUR
á Broadway, Hótel íslandi, í kvöld. Miðaverð aðeins kr. 800,-
ÓTRÚLEGT!!!
Gegn framvísun þessa miða
geta lesendur fókuss fengið
miða á ballið á Hótel íslandi J\
á milli 16 og 18 í dag,
föstudaginn 26. september.
Aðeins 300 miðar, fyrstir koma fyrstir fá!
25. september 1998 f Ókus
23