Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1998, Side 2
22
MÁNUDAGUR 28. SEPTEMBER 1998
íþróttir
Margir knattspyrnumenn á faraldsfæti:
Þrír úr KR til
Wimbledon
- Guðmundur Benediktsson til PAOK Saloniki
Fjórir knattspymumenn í KR
eru á leiðinni til sterkra atvinnu-
mannaliða á Englandi og Grikk-
landi.
Þeir Sigurður Örn Jónsson,
Bjarni Þorsteinsson og markvörð-
urinn Gunnleifur Gunnleifsson
fara allir til enska A-deildarliðsins
Wimbledon sem er í þriðja sæti
deildarinnar. Enska liðið er að
leita að leikmönnum um þessar
mundir i þær stöður sem þessir
leikmenn leika í með KR. Dvelja
þeir hjá Wimbledon í 10-14 daga.
Fjórði KR-ingurinn sem er á leið
utan til að kanna aðstæður og æfa
með erlendu liði er Guðmundur
Benediktsson. Hann fer í byrjun
október til griska liðsins PAOK
Saloniki. Allir fara KR-ingarnir
utan á vegum Ólafs Garðarssonar
umboðsmanns.
Fimm fóru erlendis um
helgina
Fimm íslenskir knattspyrnu-
menn héldu út um helgina til að
líta á aðstæður og æfa með erlend-
um liðum.
Fjalar Þorgeirsson, hinn snjalli
markvörður Þróttar, fór til Bristol
Rovers, sem leikur í C-deildinni
ensku. Valsmaðurinn Sigurbjöm
Hreiðarsson fór að skoða málin hjá
Walsall sem leikur í C-deildinni.
Ólafur Gunnarsson, markvörður
ÍR, fór til enska liðsins Bristol City
eins og Eyjamaðurinn ívar Ingi-
marsson. Loks er Skagamaðurinn
Steinar Adolfsson við æfingar hjá
norska liðinu Stabæk. Þar er Helgi
Sigurðsson fyrir. -SK/-VS
Evrópumót landsmeistara í keilu:
Ásgeir í áttunda sæti
Evrópumeistaramóti landsmeistara í keilu lauk í Óðisvéum um helg-
ina. íslensku keppendumir stóðu sig vel. Ásgeir Þóröarson lenti í átt-
unda sæti í karlaflokki, sigraði í 17 leikjum, tapaði átta og gerði eitt jafn-
tefli. Achim Grabowski frá Þýskalandi sigraði, skor hans var 5432 en
skor Ásgeirs var 5147.
Elín Óskarsdóttir hafnaði í níunda sæti eftir að hafa leitt keppnina í
byrjun. Skor Elínar var 4636 en skor sigurvegarans var 4895 og heitir
hún Annemiek van den Boogaart frá Hollandi. -JKS
Islandsmeistarar í ralli
Páll Halldór Halldórsson og Jóhannes Jóhannesson á Mitsubishi Lancer
Evo IV tryggðu sér um helgina íslandsmeistaratitilinn i rallakstri 1998.
ER-haustrallið, síðasta keppni ársins, fór fram um helgina og urðu þeir
Páll Halldór og Jóhannes í þriðja sæti en aðalkeppinautar þeirra,
Sigurður Bragi Guðmundsson og Rögnvaldur Pálmason, á Metró, í fjórða
sæti. Rúnar Jónsson og Jón E. Ragnarsson sigruðu á Subaru Legacy og
Hjörtur P. Jónsson og Isak Guðjónsson á Corolla urðu í öðru sæti. -SK
Skotinn Colin Montgomerie
vann nauman sigur á þýska
meistaramótinu í golfi sem lauk
i gær. Montgomerie lék á 266
höggum, 22 höggum undir pari.
Útför bandarísku hlaupadrottn-
ingarinnar Florence Griffith
Joyner var gerð í gær. Jarðarför-
in tók þrjár klukkustundir.
Bikarmeistarar
Breiðabliks fögnuðu
sigri, 4-1, í morgun-
slag gegn íslands-
meisturum KR í
meistarakeppni KSÍ
sem fram fór á laug-
ardaginn.
Erla Hendriks-
dóttir, Kristrún L.
Daðadóttir, Sigríður
Þorláksdóttir og
Helga Ósk Hannes-
dóttir skoraðu mörk
Blika en Guðlaaug
Jónsdóttir mark KR.
Sigfús Sigurðs-
son og samherjar
hans í Caja Canta-
bria sigruðu Bidasoa, 27-23, í
spænska handboltanum í gær.
Barcelona vann Chapela, 34-20,
og Prosesa Ademar sigraði
Valladolid, 33-23. Barcelona og
Prosesa Ademar eru efst og jöfn
með 11 stig eftir 6 umferðir.
Cantabria er í þriðja sæti með 10
stig.
-SK/-JKS
Finninn stóðst álagsprófið
- Hakkinen hefur naumt forskot á Michael Schumacher
Finninn Mika Hakkinen náði að endurheimta forystu
sína í stigakeppni ökumanna í Formúla 1, með öruggum
sigri á Nurburgring-brautinni í Þýskalandi í gær, og er því
kominn með fjögurra stiga forystu á Michael Schiunacher,
sem kom annar í mark, rúmlega tveim sekúndum á eftir.
Hakkinen hefur þvi þvert á spár manna staðist pressuna i
baráttunni um heimsmeistaratitilinn sem tekur ekki enda
fyrr en eftir rúmlega ijórar vikur í Japan.
Michael Schumacher sem ræsti á fremsta rásstað með fé-
laga sinn Eddie Irvine sér við hlið, náði ekki að halda í við
hraða McLaren-bíl Mika Hakkinen, og eftir fyrsta viðgerð-
arhléið af tveimur, náði Hakkinen fram úr Ferrari
Schumachers eftir frábæra frammistöðu viðgeröarmanna
hans. „Ég ók bara á útopnu allan tímann, því við vissum
auðvitað ekki á hvaða áætlun Ferrari var, en ég beið eftir
tækifæri til að fara fram úr Irvine og síðan náði ég
Schumacher í viðgerðarhléinu," sagði Hakkinen sem var i
þriðja sæti fyrstu tólf hringina. „Við vorum einfaldlega
ekki nægilega hraðskreiðir í dag til að hafa í við McLaren,"
sagði Schumacher sem var auðsjáanlega ekki ánægður með
annað sætið. „Það að vinna þessa keppni gefur okkur mik-
ið forskot, og styrk í undirbúninginn fyrir lokakeppnina í
Japan,“ sagði Hakkinen sem er greinilega fullur sjáifs-
trausts. Bridgestone-hjólbarðarnir voru greinilega betri en
amerisku Goodyear-hjólbarðarnir og var augljóst að
minnkandi frammistaða hjólbarðanna, þegar nær dró við-
gerðarhléum, drógu verulega úr hraða Schumachers á með-
an Hakkinen hélt sínu striki og setti hraðasta hring rétt
fyrir viðgerðarhlé. David Coulthard kom svo þriðji í mark
rúmlega 35 sek. á eftir félaga sínum, og eru þeir félagar
nánast búnir að tryggja liði sinu sinn fyrsta meistaratitil
keppnisliða síðan 1991. í Japan dugar það Hakkinen að
koma annar í mark til að skáka Schumacher, þó svo að
hann vinni, vegna hagstæðari úrslita í sumar, og er ljóst að
Hakkinen lætur ekki svo auðveldlega af hendi titilinn sem
hann er í raun kominn með aðra höndina á. -ÓSG
I>V
Kristinn Lárusson skorar sfðara mark ÍBV gegn KR og innsiglar meistara-
titilinn.
Eyjamenn fögnuðu íslandsmeistaratitlinum innilega á KR-vellinum.
Glæsilegu keppnistímabili var lokið og ÍBV með besta liðið.
Þessi mynd segir allt sem segja þarf um ástand KR-inga strax eftir leikinn,
vonbrigði og aftur vonbrigði.
Sigurhringurinn. íslandsbikarinn var í höfn annað árið í röð.
Mikil stemmning var á meðal áhangenda ÍBV eins og þessi mynd ber með
sér.