Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1998, Síða 22
22
Fréttir
MÁNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1998
BIFREIÐASTILLINGAR
NICOLAI
Meiríhattar
Húfur
Mörkinni 6, sími 588 5518
mummmmm
■USAKLÆÐNINGP
Sími: 555 1947
Símatími milli 10-14
Framboösmálin á Vesturlandi:
Verða Borgfirðingar
með sérframboð?
DV, Vestnrlandi:
Framboðsmálin fyrir alþingis-
kosningamar næsta sumar eru að
komast á skrið á Vesturlandi og litl-
ar líkur em taldar á því að breyt-
ingar verði á efstu sætum flokk-
anna. Á kjördæmisþingi Sjálfstæðis-
flokksins, sem haldið var fyrir
skömmu, kom fram almennur vilji
að alþingismennirnir Sturla Böðv-
arsson og Guðjón Guðmundsson
verði áfram í tveimur efstu sætun-
um. Á þinginu var skipuð kjömefnd
sem mun gera tillögu að framboðs-
lista sem lagður verður fyrir auka-
kjördæmisþing.
Framsóknarmenn héldu kjör-
dæmisþing sitt á Akranesi
25. október. Þar var samþykkt að
halda aukakjördæmisþing
14. nóvember með þrefóldum
fulltrúafjölda. Fastlega er búist við
því að alþingismennirnir Ingibjörg
Pálmadóttir og Magnús Stefánsson
verði áfram í tveimur efstu sætun-
um en Þorvaldur T. Jónsson, sem
skipaði þriðja sætið, ætlar ekki að
gefa kost á sér áfram.
Þá hafa verið skipaðar nefndir á
vegum Alþýðuflokks, Alþýðubanda-
lags og Kvennalista og munu þær
gera tillögur um hvernig verður
staðiö að því að raða á lista. Fast-
lega er búist við að baráttan um
efsta sætið verði á milli Gísli S. Ein-
arssonar og Jóhanns Ársælssonar
en Jóhann hefur ekki staðfest enn
að hann gefi kost á sér. Þó telja
heimildarmenn DV að meiri líkur
séu á að Gísli verði i fyrsta sæti.
Þá hafa heyrst nöfn þeirra Rík-
harðs Brynjólfssonar, kennara á
Hvanneyri og oddvita Borgarfjarð-
ar, og Runólfs Ágústssonar, aðstoð-
arrektors á Bifröst, í sambandi við
annað sætið. Önnur nöfn sem hafa
heyrst um hugsanlega frambjóðend-
ur á listann eru Sigrún Jóhannes-
dóttir kennari, Inga Sigurðardóttir,
Erling Garðar Jónasson, Guðbjart-
ur Hannesson og Sveinn Elinbergs-
son.
Ekki hefur mikið heyrst af fram-
boðsmálum Sverris Hermannssonar
né hins nýja umhverfisvæna vinstri
flokks.
DV hefur heimildir fyrir því að
ef Borgfírðingar verði ekki í bar-
áttusætum á listunum muni þeir
þjóða sérlista fram á Vesturlandi.
Þeir munu ekki hrifnir af að eiga
ekki einn einasta þingman meðan
Akurnesingar eiga þrjá og Snæfell-
ingar tvo. Auk þess spila deilur um
vegamálin í Borgarfirði inn í fram-
boðsmál Borgfirðinga.
-DVÓ
Búlandshöfðavegur:
Egilsstaðamenn
lægstir
DVVesturlandi:
Tilboð í vegkaflann milli Ólafsvíkur
og Grundarfjarðar um Búlandshöfða
voru opnuðl3. október sl. Kostnaðará-
ætlun Vegagerðarinnar hljóðaði upp á
tæpar 294 milljónir króna. Alls bárust
17 tilboð í lagningu vegarins og var að-
eins eitt þeirra yfir kostnaðaráætlun.
Það var tilboð Jörva hf. á Hvanneyri,
310 milljónir. Héraðsverk á Egilsstöð-
um bauð tæpar 185 milljónir i verkið
sem er um 63% af kostnaðaráætlun.
Næstlægsta tilboð áttu Hjarðames-
bræður, Homafirði. Þeirra tilboð var
upp á 199 milljónir eða 67% af kostnað-
aráætlun.
Verið er að yfirfara tilboðin en að
því loknu verður gengið til samninga
við verktaka. Stefnt er að því að fram-
kvæmdir við lagningu vegarins hefjist
þegar í haust en þeim á að vera lokið
að fullu í október árið 2000. Hinn nýi
vegur verður mun ömggari en sá sem
nú liggur um Höfðann með tiiliti til
grjóthmns og snjóflóða þar sem fyrir
ofan hann verður svokölluð gijótrenna
sem taka mun við hruni og snjóspýjum
úr höfðanum. Vegagerð um Búlands-
höfðann er fjármögnuð af svokölluðum
stórframkvæmdasjóði. -DVÓ
Fimm þusund heimsóttu
Síldarminjasafniö
DV, Siglufiröi:
í sumar komu fimm þúsund gestir
í Sildarminjasafiiið á Siglufirði og er
það svipuð aðsókn og árin 1995 og
1997. Árið 1996 sker sig enn úr með
aðsókn því þá komu um átta þúsund
manns í safnið. Þá var líka hvað
mesta aösókn að Síldarævintýrinu
sem orðið hefur.
Að sögn Örlygs Kristfmnssonar
safnstjóra voru um 20% gestanna út-
lendingar. Færri komu nú í skipu-
lögðum hópferðum en árið á undan og
því voru fleiri á „eigin vegum".
Safniö var opnað í byijun júní og
lokað síðari hluta september. Hins
vegar er opnað utan hefðbundins opn-
unartíma fyrir hópa sem boða komu
sína með sæmilegum fyrirvara. -ÖÞ
Ögmundur Kristjánsson að rífa mót utan af brúnni yfir Svaðbælisá
áður en umferð var hleypt á hana. DV-mynd Njörður
Þrjár tvíbreiðar
undir Eyjafjöllum
Nú er að ljúka framkvæmdum
við breikkun brúnna yfir Bakka-
kotsá og Svaðbælisá og hafa þá ver-
ið breikkaðar þrjár brýr í ár á þjóð-
vegi 1 undir Eyjafjöllum. Auk fyrr-
nefndra brúa var brúin yfir Holtsá
breikkuð. Brúarsmiðir við Bakka-
kotsá og Svaðbælisá fengu að kenna
á náttúruöflunum við framkvæmd-
irnar þvi í stórrigningunum fyrr í
haust flæddu árnar yfir bakka sína
og skemmdu mót og fyllingar hjá
brúnum.
-NH
3 d., 5 g., ek. 66 þús. km,
rauður. Verð 760.000.
Nissan Primera SLX 1996,
5 d., 5 g., ek. 124 þús. km,
vínrauður. Verð 1.090.000.
Tovota Corolla GLi 1.6 1994. VW Transporter 1996._________VW Polo 1993,
5 d., 5 g., ek. 43 þús. km, 2,4 dísil, 4 d., 5 g., ek. 91 þús. 3 d., 5 g., ek. 80 þús. km, hvítur.
rauður. Verð 1.020.000. km. hvítur. Verð 1.400.000. Verð 340.000.
Boigartúni 26, símcn: 561 7510 & 561 7511
Honda Civic GL 1988,
3 d., 5 g., ek. 150 þús. km,
rauður. Verð 290.000.
Skoda Ferlicia 1,6 GLX1997,
5 d., 5 g., grár.
Verð 730.000.
MMC Lancer GLXi 4x41993,
5 d., 5 g., ek. 88 þús. km, blár.
Verð 1.050.000.
úrval no-fa^ra bíla af öllom s-f-ærSo^ og ger&ow /
Margai bifreiðar á söluskrá
okkar er hœgt að greiða með
Visa- eða Euro- raðgreiðslum