Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1998, Qupperneq 4
4
MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 1998
Fréttir
Maður dæmdur - krafðist afsökunarbeiðni eftir að vagnstjóri neitaði að taka bamamiða sonar hans:
Greiðir 150 þúsund vegna
árásar á strætóbílstjóra
Faðir 12 ára drengs, 32 ára Garð-
bæingur, var í gær dæmdur til að
greiða strætisvagnabílstjóra 50
þúsund krónur í bætur og 100 þús-
und í málskostnað fyrir að hafa
ráðist á bílstjórann eftir að hann
hafði meinað drengnum inngöngu
í vagninn á bamafargjaldi. Dóm-
urinn komst jafnframt að þeirri
niðurstöðu að þau ummæli að
hegðun bílstjórans gagnvart
drengnum hefði verið „lúaleg og
lítilmannleg" væru lögmanni árás-
armannsins til vansa.
Drengurinn kom inn í strætis-
vagninn við Furugrund í Kópavogi
að kvöldi 4. apríl síðastliðinn. Hann
setti bamamiða í stauk við hlið
vagnstjórans. Bílstjórinn krafði
drenginn ítrekað um fullorðins-
gjald, 130 krónur, og lét sem vind
um eyru þjóta mótbárur hans og
annarra drengja í strætisvagninum
um að hann væri aðeins 12 ára og
bæri því aðeins að greiða 50 króna
bamagjald. Fór svo að drengurinn
hrökklaðist út úr vagninum og
gekk heim til sín.
Þegar heim kom reiddist faðir-
inn og ákvað að fara með son sinn
á fund vagnstjórans og krefja hann
um endurgreiðslu og afsökunar-
beiðni. Fóm þeir að kaffistofu
vagnstjóra við Digranesveg þar
sem bílstjórinn var. Hann neitaði
að biðjast afsökunar. Faðirinn
missti þá stjórn á skapi sínu og
réðst á bílstjórann. Dómurinn
taldi sannað að hann hefði tekið
báðum höndum um vesti hans og
ýtt honum upp að dyrastaf og það-
an ofan í bekk eða stól við borð á
kafflstofunni. Bílstjórinn var frá
vinnu í 2 daga vegna meiðsla.
í dóminum segir eftirfarandi:
„Framganga stefnda var harkaleg,
ótilhlýðileg og niðurlægjandi gagn-
vart stefnda þar sem hann var
staddur vegna atvinnu sinnar inni í
kafíistofunni ásamt öðmm vagn-
stjóra. Verður hún ekki réttlætt
með því að stefnandi hafi vísað syni
stefnda út úr strætisvagni fyrr um
kvöldið enda þótt það hafi verið að
ósekju en upplýst var undir rekstri
málsins að drengurinn átti að
greiða barnafargjald umrætt sinn.
Bílstjórinn kærði atvikið til lög-
reglu. Að lokinni rannsókn var ekki
talin ástæða til opinberrar málshöfð-
unar gegn árásarmanninum. Hann
ákvað því að fara í einkamál enda
hefði verið um að ræða árás á per-
sónu sína og frið, auk þess sem hann
hefði haft hræðslutilfinningu eftir
hina ólögmætu meingerð árás-
armannsins. Jónas Jóhannsson hér-
aðsdómari kvað upp dóminn. -Ótt
Hrólfur Jónsson, slökkviliösstjóri í Reykjavík, um eldvarnir:
Gott eftirlit á skemmtistöðum
- mest afskipti höfö af Tunglinu sem brann sl. sumar
„Aö okkar mati er eldvamaeftir-
lit á veitingastöðum hér á landi
mjög gott. Sá veitingastaður sem
var hvað erfiðastur í þessu sam-
bandi og við þurftum að hafa mest
afskipti af var Tunglið sem brann
síðastliðið sumar. Hér á landi höf-
um við öflugri leið en í nágranna-
löndunum því ef þessi mál eru ekki
í lagi þá getum við svipt viökom-
andi stað leyfinu á örskömmum
tíma. Það gerir það að verkum að
veitingamenn passa sig betur að
uppfylla öll skilyröi, m.a. eldvama-
mál. Ég vil meina að við þetta kerfi
hafi ástandið hér lagast mikið,“ seg-
ir Hrólfur Jónsson, slökkviliðsstjóri
í Reykjavík.
Hrólfur segir að óeinkennis-
klæddir slökkviliðsmenn kanni
ástand skemmtistaða nokkmm
sinnum á ári og fari þá gaumgæfi-
lega yfir útganga og ljósabúnað á
viðkomandi stöðum.
Auðvitað höfrnn við meira eftirlit
með sumum stöðum en öörum. Það
em oft eldri hús sem em þannig
byggð að þau em i takt við reglu-
Mest afskipti þurfti slökkviiið og eldvarnaeftirlit að hafa af skemmtistaðnum
Tunglinu sem brann sl. sumar. DV-mynd S
gerðir nútímans, t.d. timburklædd
hús. Á þessum stöðum em útgangar
i lagi. Sumir staðir em þannig að
það myndast stappa á annarri hæð-
inni meðan neðri hæðin er kannski
tóm. Og svo er auðvitað alltaf troðið
við barina. Það er auðvitað ekki
hægt að loka þessum stöðum en við
fylgjumst betiir með þeim. Ef staður
tekur yfir 50 manns þá þurfa að
vera lágmark tveir útgangar á
staðnum. Að mínu mati er því öfl-
ugt eftirlitskerfi hér,“ segir Hrólfúr.
Hann segir að erfiðast sé að fylgj-
ast með salarkynnum sem em leigð
út fyrir skemmtanir og samkvæmi.
Hrólfur minnir á að bruninn í
Gautaborg hafi komið upp í sal sem
tekinn var á leigu og leigjendur
bára ábyrgð á honum.
„Hús sem er leigt svona út leggur
ekki til neitt starfslið. Þeir sem
leigja staðinn bera því ábyrgðina.
Hér em þessir útleigusalir nokkrir
og það hefur verið nokkuð um þetta,
sérstaklega hjá skólafólki og öðm
ungu fólki,“ segir Hrólfur.
-RR
Framboðsjafnrétti kvenna
Jafnréttisbarátta
Kvennalistans hefur
smám saman verið að
taka á sig nýja mynd.
Eftir að Kvennalistinn
fékk innan við fimm
prósent atkvæða í síð-
ustu kosningum hafa
þær örfáu kvennalista-
konur sem enn þá sitja
á alþingi einbeitt sér
að því að tryggja
áframhaldandi setu
sína á þingi. Jafnréttis-
baráttan hefur sem
sagt færst frá því að
höfða til kvenna um að
kjósa Kvennalistann í
þágu kvenréttinda yfir
í það að berjast fyrir
þingsætum í þágu
þeirra kvenna sem
hlutu kosningu síðast.
Þessi barátta er miklu
mun torsóttari heldur
en sú barátta sem
lengst hefur verið háð um atkvæði kjósenda. Nú
snýst hún um atkvæði þeirra flokka sem
Kvennalistinn treystir á að færi þeim þingsæt-
in. Ekki með því að tala til kjósenda heldur með
því að tala til samstarfsflokkanna. Sem er auð-
vitað miklu erfiðari barátta að því leyti að nú
þurfa þær kvennalistakonur að stilla samtarfs-
flokkunum upp við vegg og krefjast kvóta á
framboðslistum án tillits til þess hvort kjósend-
ur verða fleiri eða færri. Svo framarlega sem
sætin em trygg til að þær sjálfar komist á þing,
kemur þeim kvennalistakonum ekki við hvort
framboðslistamir fái einhver atkvæði. Kvenna-
listakonur hafa ekkert með það að gera, heldur
hinir flokkamir, sem verða að tryggja þeim sæt-
in, hvað sem líður öllu fylgi. Jafnréttisbarátta
kvenna á íslandi er líka háð undir þeim for-
merkjum að sumar konur em meiri konur og
að minnsta kosti öðmvísi konur heldur en þær
konur sem tilheyra öðmm hópi kvenna en
þeirra sem em starfandi hjá Kvennalistanum.
Það þýðir að þær konur sem A-flokkamir
kunna að stilla upp til framboðs em ómark og
teljast ekki með þegar stillt er upp á lista vegna
þess að þær konur em ekki fullgildar konur í
augum Kvennalistans og þess vegna ekkert rétt-
læti eða jafnrétti í því ef konur úr öðrum flokk-
um em teknar fram yfir konur frá Kvennalist-
anum. Kvennalistakonur gera sér og grein fyrir
því að prófkosningar innan samstarfsflokkanna
em ekki nægileg trygging fyrir því að jafnrétt-
ið njóti sín og þess vegna verður að túlka jafn-
réttið með þeim hætti að réttar konur fái ömgg
sæti á listum til að því jafnrétti sé náð sem jafn-
réttiskonur berjast fyrir eftir að kvennabarátt-
an tók á sig þá mynd að Kvennalistinn fær ekki
nægilegt fylgi í kosningum. Ekki er enn þá víst
að A-flokkamir samþykki þessar kröfur, en það
er þá sönnun fyrir því að A-flokkamir skilja
ekki nútímalega jafnréttisbaráttu, sem felst í
því að allir séu jafnir, hvort sem þeir era jafnir
eða ekki. Annað væri ójafnt í jafnréttisbarátt-
unni.
Dagfari
Stuttar fréttir ðv
Hugmyndum mótmælt
Á aðalfúndi
LÍÚ var mót-
mælt öllum hug-
myndum um að
fjölga sóknardög-
mm krókabáta og
auka þannig
aflahlutdeild
þeirra á kostnað
annarra. Það þykir mikilvægt að
óheftum veiðum þorskaflahá-
marksbáta á öðrum tegundum en
þorski verði hætt og þessir aðilar
settir undir sömu reglur og aðrir.
í fangelsi
Ríkisútvarpið greindi frá þvi að
á undanfómum þremur árum hafi
fjórir geðsjúklingar verið fluttir af
geðdeild sjúkrahúsa í fangageymsl-
ur.
Vilja sjálfseignarstofhun
Aðalfundur LÍÚ 1998 felur stjóm
samtakanna að setja á stofn starfs-
hóp til þess að undirbúa stofriun á
sjálfseignarstofhun sem hefði það
að markmiði að mennta starfsfólk í
sjávarútvegi.
Ekki tekin
Kæra Ágústs
Guðmundsson-
ar kvikmynda-
gerðarmanns
var ekki tekin
til greina en
hann kærði að
kvikmynd Ara
Kristinssonar,
Stikkfrí, var valin til aö keppa
um Óskarinn. Mynd Ágústs,
Dansinn, er þvi úr leik hvað
Óskarinn varðar.
til greina
Ný reglugerö
Ríkisútvarpið greindi frá því að
umhverfisráðuneytið hafi sett
reglugerð um akstur í óbyggðum. í
fréttinni sagði að með reglugerðina
að vopni geti Náttúmvemd rikis-
ins takmarkað umferð í óbyggðum
tímabundið eða lokað þar svæðum.
Enn ffernur verður hægt að beita
sektrnn og jafhvel dæma fólk í allt
að tveggja ára fangelsi fyrir að
valda náttúruspjöllum.
Veröi lagt niöur
Á 59. aðaifúndi LÍÚ var lagt til
að Kvótaþing verði lagt niður, ella
þurfi að breyta starfsemi þess
þannig að augljósir vankantar á
starfseminni verði sniðnir af hið
fyrsta. Sjá þarf til þess að upplýs-
ingar um viðskipti verði birtar eft-
ir að þau hafa farið ffarn. Einnig
þarf að vinna að þvi að tilboðsgerö
verði auðveldari i meðförum og að
skrifræðið í kringum Kvótaþingið
verði einfaldað.
Er óþolandi
Rafiðnaðarsamband íslands tek-
m heilshugar undir þau sjónarmið
sem fram hafa komið hjá samtök-
um sjómanna að það sé óþolandi
fyrir íslenska launamenn að sam-
tök atvinnurekenda skuli mark-
visst vinna að því að bijóta niður
löglega gerða kjarasamninga og
þeir sjálfir hafa átt aðild að gera.
(iuumcnm aciaiwu uiyiKJa
Aðalfúndur ———-——
Öryrkjabanda-
lags íslands,
sem haldinn var
31. október,
skorar á Alþingi
að aflétta því
neyðarástandi
sem ríkir í
tryggingamálum öryrkja og bú
svo um hnúta að bætur dragis
aldrei aftur úr þróun launavísitölu
Þá skorar fúndurinn á Alþingi ai
viðurkenna hina margvíslegu sér
stöðu öryrkja með því að hækki
grunnlífeyri sérstaklega og mes
hjá þeim sem verða fyrir varan
legri örorku á æskuárum.
Vefjast fyrir mönnum
Ömefhastofnun hefur verið að
fjalla um og koma til skila niður-
stöðum sínum um ný nöfn hinna
ýmsu sameinuðu sveitarfélaga.
Austri greinir frá því að nöfnin
Hornafjörður og Austurríki vefj-
ist enn fyrir mönnum en búið er
að samþykkja þau nöfh. -SJ