Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1998, Síða 6
6
MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 1998
Fréttir
Dýrara aö fljúga frá Ósló til Keflavíkur en alla leið til New York:
Hafa fé af fólki í
skjóli einokunar
- segir Friörik Ö. Friðriksson sem barist hefur fyrir lægri fargjöldum
Dy Ósló:
„Ég hef aldrei skilið rök Flug-
leiða í þessum máli, og það stríðir
gegn heilbrigðri skynsemi að halda
því fram að það sé dýrara að fljúga
bara þriðjung að leiðinni en að
fara alla leið. Upp á þessu flnna
þeir hjá Flugleiðum á hverju ári,“
segir Friðrik Ö. Friðriksson, náms-
maður og arkitekt i Ósló, í samtali
við DV. Fyrir hönd námsmanna og
íslendinga á Norðurlöndunum hef-
ur Friðrik um árabil staðið í stappi
við Flugleiðir vegna þess að flug-
fargjöldin rjúka upp úr öllu valdi
þegar kemur að jólum og öðrum
hátíðum. Núna er staðan sú að það
kostar 10 þúsund íslenskum krón-
um minna að fara til New York
milli jóla og nýárs en að fara bara
tO Keflavíkur. Farið til New York
kostar 35 þúsund en ferð í sömu
flugvél og sama sæti bara til Kefla-
víkur kostar 45 þúsund. „Til að
koma í veg fyrir að fólk kaupi
miða alla leið til New York og
stökkvi af í Keflavík takmarka
Flugleiðir tímann sem heimilt er
að staldra við þar við þrjá daga.
Flestir vilja lengra jólafrí. Ef menn
kaupa hins vegar þennan sama
flugmiða hjá SAS eða Lufthansa er
viðdvölin í Keflavík ótakmörkuð,"
sagði Friðrik. „Það sem hér er að
gerast er gömul stefna Flugleiða. í
skjóli einokunar getur flugfélagið
tvöfaldað verðið fyrir flugmiðana
til íslands þegar fiestir vilja fara.
Þetta bitnar auðvitað harðast á
násmönnum, sem hafa úr minnstu
að spila, en kemur líka illa við allt
fjölskyldufólk," sagði Friðrik.
Hann sagði að um langt árabil
hefðu bæði félög íslenskra náms-
manna og annarra íslendinga á
Norðurlöndunum reynt að fá Flug-
leiðir til að taka upp nýja stefnu og
auka framboð á sætum í stað þess
að sprengja upp verðið þegar
mesta væri að gera. „Þeir hjá Flug-
leiðum sjá að þeir græða meira á
að hækka verðið en að auka fram-
boðið. Þeir hugsa bara um að geta
keypt sér ný jakkaföt og stærri
vindla og komast upp með það
vegna þess að þeir hafa einokim á
flugleiðunum milli Norðurland-
anna og íslands,“ sagði Friðrik. Á
undanförnum árum hefur það
gerst að íslendingafélögin hafa
reynt að fá leiguflugvélar og enn í
ár er verið að spá í að hafa samtök
um flug til einhverrar borgar í
Evrópu og fá svo leiguflug þaðan
heim. Friðrik sagði þó að íslend-
ingafélögin væri alls ekki í stakk
búin að standa í flugrekstri og því
hefðu þessar tilraunir ekki borið
góðan árangur á síðustu ánun.
-GK
Björn Bjarnason um varaformannsslag:
Barátta ótímabær
Bjöm Bjamason
menntamálaráð-
herra útilokar ekki
að hann gefl kost á
sér til varafor-
manns Sjálfstæðis-
flokksins en segist
telja ótímabært að
heQa kosningabar-
áttu.
DV sendi Birni
Bjarnasyni fyrir-
spurnina í tölvu-
pósti inn á netfang hans sl. sunnu-
dagskvöld. Hann segir í svarinu að
landsfundur verði ekki fyrr en í mars
en það sé mikilvægt að menn nýti tím-
ann vel og einbeiti sér að málefnalegu
starfl vegna stefnumótunar og með
hliðsjón af þingkosningum næsta vor.
„Ég tel hins vegar alveg ótímabært að
hefja kosningabaráttu vegna varafor-
mannskjörs,“ svaraði Bjöm.
DV sendi Geir H. Haarde fjármála-
ráðherra sams konar fyrirspum, en
hann hefur ekki séð ástæðu til að
svara. Fram hefur komið að Sólveig
Pétursdóttir er að íhuga framboð
vegna þrýstings frá landssamtökum
sjálfstæðiskvenna. -SÁ
Björn Bjarna-
son mennta-
málaráðherra.
Aðeins 10 herbergi á sértilboði!
Helgarferð
.London
19. nóv.
frá
Við höfum nú tryggt okkur 10 herbergi á Regent
Palace hótelinu þann 19.nóvember á frábærum
kjörum. Fjöldi íslending a gisti á okkar vegum í
fyrra á Regent Palace, enda um frábæra
staðsetningu að ræða, við Piccadilly Circus, í
hjarta London. Herbergin eru snyrtileg en ekki
með baði á herbergjum, heldur á göngum hótelsins.
Og að sjálfsögðu nýtur þú þjónustu fararstjóra
Heimsferða á meðan á dvölinni stendur.
Bókaðu meðan enn er laust.
2 fyrir 1 til London
Verð kr. 14.550
Flugsœti til London með
flugvallarsköttum.
Ferðfrá mánudegi tilfimmtudags 9.
og 16. nóv.
Flugsœti kr. 21.900
Skattur kr. 3.600 x 3 = 7.200
Samtals kr. 29.100. Á mann kr. 14.550
www.heimsferoir.is
Flug og hótel í 4 nætur,
helgarferð 12. nóv.
Kr. 29.990
Sértilboð 19. og 26. nóvember, Regent
Palace hótelið, 4 nœtur í 2ja manna
herbergi.
Austurstræti 17, 2. hæð, sími 562 4600
Vel hefur veiðst af kolmunna. Hér er áhöfnin á Þorsteini EA að afgreiða
flottrollið. DV-mynd Þorsteinn Gunnar
Kolmunninn mok-
veiðist fýrir austan
Mikil kolmunnaveiði hefur ver-
ið í Rósagarðinu út af Austfjörðum
síðan í ágúst. Nótaskipið Þor-
steinn EA hefur fengið yfir 10 þús-
und tonn af kolmunna síðan 1.
ágúst sem er algjört aflamet. Skip-
ið veiðir í flotvörpu og fékk allt
upp í 180 tonn í hali i veiðiferðinni
sem lauk í síðustu viku þegar
landað var 980 tonnum á Neskaup-
stað.
-rt
Læknafélagið vill fresta frumvarpi:
Skref í rétta átt
Aðalfundur Læknafélags íslands
telur fyrirliggjandi frumvarp um
gagnagrunna á heilbrigðissviði óá-
sættanlegt. Kári Stefánsson, forstjóri
íslenskrar erfðagreiningar, segir að
ef litið sé á ályktun Læknafélagsins
þá sé í henni ekki lagst gegn gagna-
gnmnsfrumvarpinu heldur séu
ákveðnir fyrirvarar settir.
„Aðalfundur fer fram á að ákveðin
atriði séu könnuð betur. í ályktun-
inni er ekki sagt að Læknafélagið
leggist gegn frumvarpinu. Hins veg-
ar eru ýmsir fyrirvarar settir. Þetta
er skref í rétta átt
og breyting frá
fyrri ályktunartil-
lögu sem lögð var
fyrir aðalfund
stjómar í síðasta
mánuði. Ég hafði
þó sannarlega von-
ast til þess að
Læknafélagið gæti
séð sér fært að fall-
ast á frumvarpið
eins og það er í núverandi mynd.“
-SJ
Stefáns-
Siv í slaginn
Fullvíst er talið að Siv Friðleifsdótt-
ir, alþingismaður Reyknesinga, gefi
kost á sér sem varaformaður Framsókn-
arQokksins. Þegar hefur Finnur Ing-
ólfsson viöskiptaráð-
herra lýst yfir framboði
sínu. Undanfarnar vik-
ur hefur hann farið
víða ogplottað í hinum
ýmsu kjördæmum til
að tryggja sér stuðn-
ing sem fle$tra flokks-
manna. Smðnings-
menn Sivjar segja
flokknum nauðsynlegt að styrkja
ímynd sína á mölinni með því að kjósa
konu sem þar að auki sýndi að flokkur-
inn, sem aldrei hefur átt konu á stóli
formanns eða varaformanns, sé með af-
brigðum fijálslyndur. Það er því ljóst að
steöiir í hörkuslag milli flokkssystkin-
anna tveggja ...
Gul, blá og marin
Gamanleikurinn Sex í sveit gengur
fyrir troðfuilu húsi í Borgarleikhúsinu.
Um síðustu helgi fóru leikaraþjónin
Gísli Rúnar Jónsson og Edda Björg-
vinsdóttir á kostum
sem endranær ásamt
öðrum leikurum. Litlu
munaði að þessi gam-
anleikur fengi
dramatískan endi
þegar verið var að
klappa leikarana upp
öðru sinni. Hall-
dóra Geirharðs-
dóttir, sem fer með hlutverk sýningar-
stúlku og viðhalds, skutlaði sér á mag-
anum inn á sviðið en ekki „vildi betur
til“ en svo að hún sveif fram af sviðinu
og út í sal, áhorfendum til ómældrar
skelfingar. Það var mörgum léttir þeg-
ar hún reis upp óbrotin og fékk aðstoö
hinna leikaranna við að klöngrast upp
á sviðið aftur. Þetta mun ekki vera í
fyrsta sinn sem Halldóra flýgur en í
fyrsta sinn sem það gerðist var það fyr-
ir slysni. Síöan hefur hún látiö sig
gossa af og til og er fyrir vikið gul, blá
og marin að jafnaði...
Kvikuhlaup
Innan Norrænu eldfjallastöðvarinn-
ar hafa undanfarin misseri verið
kvikuhlaup án þess að upp úr hafi gos-
ið. Guðmundur Sigvaldason, sem
var lengi forstöðumað-
ur hennar við góðan
orðstir, hætti form-
lega fyrir nokkru en
gegndi stöðunni
áfram uns hún var
auglýst. Þá átti að
ráða Harald Sig-
urðsson, prófessor
í Bandarikjunum,
en honum snerist hugur þegar hann
sá launin í boði. Talið er að sá sem
hreppi hnossið verði Axel Björnsson
sem starfar sem sérfræðingur á stofn-
uninni og var á sínum tima næstrnn
búinn að hreppa forstjórastöðu
Rannis sem Vilhjálmur Lúðviksson
hlaut að lokum ...
Geðþekk kona
Hinn vestfirski ritstjóri Séð og
heyrt, Bjarni Brynjólfsson, fer
mikinn í leiðara hins samnorræna
blaðs síns í gær. DV á ekki upp á
pallborðið hjá honum
og hann segir blaðið
bæði ljótt og leiðin-
legt. Það má merkja
að lífið á þessu móð-
urskipi Fróða er
ekki með skemmti-
legra móti þessa
dagana þrátt fyrir __
hvatningu í hverjum leiðara.
Bjarni er með geðþekkari mönnum
þótt hann eigi misjafna daga og
sandkornum barst til eyma ágæt
saga af honum nýverið. Ritstjórinn
var í teiti í borginni þegar þjóð-
þekktur maður á ellefta glasi vatt
sér að honum og tók um axlir hans.
„Hvað er svona falleg kona að gera
hér?“ spurði hann drafandi röddu.
Hinn vestfirski harðjaxl brást
ókvæða við þótt ekki hafi enn verið
skrifaður leiðari um atvikiö ...
Umsjón Reynir Traustason
Netfang: sandkom @ff. is