Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1998, Blaðsíða 8
8
MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 1998
Utlönd
Iranir rannsaka
sjálfir brunann
í Gautaborg
Hópur rúmlega 10 írana hefur
hafið einkarannsókn á brunanum
á diskóteki í Gautaborg í síðustu
viku. Ætlar hópurinn að safna
upplýsingum sem leitt geta til
þess að orsök brunans verði ljós.
„Við fullyrðum ekki að við
treystum ekki yfirvöldum," sagði
Saied Taghavi, talsmaður sam-
taka írana í Svíþjóð. „En reynsl-
an af Estoníuslysinu og morðinu
á Palme sýnir að það er þörf á
einkarannsókn."
Sænska lögreglan er lítt hrifin
af framtakinu og segir að það geti
truflað rannsókn hennar. íran-
amir segjast ætla að láta lögregl-
una fá þær upplýsingar sem þeir
komast yfir.
ígær fundust líkamsleifar 15
ára íranskrar stúlku í brunarúst-
unum. Sjónarvottar kváðust hafa
séð hana á göngum sjúkrahúss
eftir brunann. Var taliö að hún
hefði fengið taugaáfall og væri
einhvers staðar á flakki. Fómar-
lömb eldsvoðans á diskótekinu í
húsi félags Makedóníumanna á
Hisingen í Gautaborg em nú orð-
in 63.
Bush-bræður bjarga heiðri repúblikana í kosningunum vestra:
Demókratar vinna á
- konur, blökkumenn og spænskumælandi í lið með Clinton
Demókratar í Bandarikjunum
komu svo sannarlega á óvart í kosn-
ingunum í gær þegar þeir fóra með
sigur af hólmi í lykilorrustum í
Kaliforníu, New York og Suðurrikj-
unum. Konur, blökkumenn og
spænskumælandi flykktust til
stuðnings Bill Clinton forseta sem á
yfir höfði sér málshöfðun til emb-
ættismissis.
Demókratinn Gray Davis batt
enda á sextán ára valdaferil
repúblikana í Kalifomíu. Þaö var
stærsti einstaki sigur
demókratanna. í New York sigraði
demókratinn Charles Schumer frá-
farandi öldungadeildarþingmann
repúblikana, Alfonse D’Amato.
í morgun benti allt til að
demókratar mundu bæta við sig
tveimur til fimm þingsætum í full-
trúadeildinni. Það hefur ekki gerst
síðan 1934 að flokkur sitjandi for-
seta hafi bætt við sig í kosningum á
miðju kjörtímabili.
Demókratar héldu sínu í öldunga-
Fundarboð
Framhaldsaðalfundur Þroskaþjálfafélags Islands verður haldinn
fimmtudaginn 5. nóvember 1998 kl. 20 í Litlubrekku, Bankastræti 2.
Dagskrá fundarins:
1. Aðalfundarstörf
2. Önnur mál
Athugið breyttan fundarstaö!
deildinni. Það voru repúblikönum
mikil vonbrigði þar sem þeir höfðu
gert sér vonir um að vinna tvö sæti
af demókrötum.
En þótt repúblikanar hafi víðast
hvar orðið að bíta í súra eplið í gær-
kvöld hafði ein fjölskylda þó æma
ástæðu til að fagna. George Bush,
fyrram Bandaríkjaforseti, og Bar-
bara eiginkona hans gátu glaðst yf-
ir því að tveir synir þeirra voru
kjörnir ríkisstjórar í fjölmennum og
mikilvægum ríkjum.
George W. Bush yngri, sem marg-
ir veðja á að verði forsetaframbjóð-
andi repúblikana árið 2000, var end-
urkjörinn með miklum meirihluta
atkvæða í Texas og yngri bróðir
hans, Jeb, var kjörinn rikisstjóri í
Flórída. Þetta var önnur tilraun
Jebs til að komast i ríkisstjórastól-
inn.
„Vel gert, bróðir,“ sagði George
yngri við litla bróður þegar þeir
fögnuðu sigrinum.
George yngri hefur ekki enn gert
það upp við sig hvort hann ætli að
sækjast eftir forsetaembættinu. Fari
svo ætti honum að veitast það auð-
veldara nú þar sem bróðir hans get-
ur beitt sér í Flórída, mikilvægu
riki í prófkjörum beggja flokkanna
og ekki síður í kosningunum sjálf-
um.
George yngri sagði þá bræður
geta þakkað pabba gamla að miklu
leyti sigurinn í gærkvöld. „Það er
gott að eiga góðan pabba og góða
mörnmu," sagði hann.
George eldri og Barbara voru að
vonum í sjöunda himni.
Jeb Bush, sonur Georges Bush, fyrrum Bandaríkjaforseta, fagnar sigri sín-
um í ríkisstjórakosningunum í Flórtda í gær. Stóri bróðir hans, George yngri,
var endurkjörinn ríkisstjóri í Texas.
Jólagjafahandbók DV er fyrir löngu búin aö festa sér sess í
jólaundirbúningi landsmanna enda er þar aö finna hundruö hugmynda
aö gjöfum fyrir jólin.
í fyrsta sinn veröur jólagjafahandbókin prentuö á hvítari og vandaðri
pappír sem veröurtil þess aö allar auglýsingar og myndir skila sér
mun betur. Lögö verður áhersla á skemmtilega umfjöllun um
jólaundirbúning, hugmyndir aö föndri, uppskriftir og margt fleira.
Auglýsendur, athugið að skiiafrestur auglýsinga er til 20. nóvember
en meö tilliti til reynslu undanfarinna ára er auglýsendum bent á
aö hafa samband viö Selmu Rut Magnúsdóttur í síma 550 5720
eöa Ásu Arnaldsdóttur í síma 550 5729, sem allra fyrst, svo unnt
reynist aö veita öllum sem besta þjónustu.
Ath. Bréfsími auglýsingadeildar
IDV
er 550 5727.