Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1998, Side 9
MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 1998
9
i>v Stuttar fréttir
Utlönd
Vara íraka við
Bandaríkin og Bretland vöruðu
í gær írak við aö deila frekar við
Sameinuðu þjóðimar.
Njósnaði fyrir Serba
Yflrmaður í franska hemum
hefur viðurkennt að hafa greint
Serbum frá fyrirhuguðum áætl-
unum NATO um loftárásir vegna
Kosovodeilunnar.
Biður um framsal
Spænski dómarinn, sem bað
um handtöku Pinochets í
London, bað i
gær spænsku
stjómina form-
lega um að krefj-
ast framsals
harðstjórans frá
Chile. Isabel
Allende, dóttir
Salvadors
Allendes, fyrrverandi forseta
Chile, sagði í London í gær að þó
svo að Pinochet yrði ekki fram-
seldur hefðu fómarlömb hans
unnið siðferðislegan sigur. Pin-
ochet kæmi niðurlægður heim.
Viðræður við ETA
Spænska stjómin ákvað í gær
að kanna hvort ETA, aðskilnaðar-
hreyfingu Baska, væri alvara þeg-
ar samtökin gáfu í skyn að þau
væra reiðubúin til vopnahlés.
Bjóða Rússum mat
Bandarísk stjómvöld era reiðu-
búin að bjóða Rússum 3,1 milljón
tonna af hveiti og öðram matvælum
vegna yfirvofandi matvælaskorts.
Samþykki frestað
ísraelsk yfirvöld neituðu í gær að
bera friðarsamkomulagið við
Palestínumenn undir þingið þar
sem Palestínumenn hefðu enn ekki
orðið við kröfum um öryggismál.
Bíll Díönu ók greitt
Bíllinn, sem Díönu prinsessu
var ekið í er hún lést í París í
fyrra, var á 118
km hraða er
hann lenti á
stólpa í undir-
göngum. Bíllinn
var á milli 126
*og 155 km hraða
er honum var
ekið niöur í
göngin, að því er rannsókn á
bremsuforum sýndi. Þetta kemur
fram í skýrslu sem rannsóknar-
dómara var afhent i gær.
52 konum nauðgað
Opinber rannsóknarnefnd
sagði í gær að 52 konum hefði ver-
ið nauðgað í óeirðum í Indónesíu
er Suharto forseta var bolað frá.
Snöruðu gervihnött
Áhöfn geimskutlunnar
Discovery endurheimti í gær
gervihnött sem hafði svifið um
geiminn í tvo daga við rannsókn-
ir á sólinni. Notaður var róbóta-
armur geimskutlunnar við verk-
ið.
Enga karlrembu
Kjell Magne Bondevik, forsætis-
ráðherra Noregs, hvatti norska karl-
menn í gær til að
láta af öllum karl-
rembustælum og
lagði til að fleiri
karlar fengju sér
vinnu á leikskól-
um. Bondevik
sagði að tímamir
hefðu breyst og
kynin yrðu að skipta verkunum
með sér betur en hingað til.
Sex í ESB
Búist er við að framkvæmda-
stjóm Evrópusambandsins leggi
til að sex ný ríki fái inngöngu í
sambandið í næstu umferð. Lett-
land á þó séns á að komast i
fyrstu deildina ef áfram veröur
haldið á leið umbóta.
ísraelar vilja tefja
Sendiherra ísraels í Páfagarði
hvatti til þess að því yrði frestað
um hálfa öld að gera Píus páfa XII
að dýrlingi.
BMW 73511992, Shadowline m/öllu.
Verð 2.450.000
Á níunda þúsund látin af völdum Mitch:
Þrettán þúsund
manna saknað
Nú er ljóst að vel á níunda
þúsund manns hafa þegar lát-
ist í gífurlegum flóðum af
völdum fellibylsins Mitch í
Mið-Ameríku siðustu daga.
Milljónir manna era stranda-
glópar og allt að þrettán þús-
und er enn saknað. Mitch er
mannskæðasti Atlantshafs-
fellibylurinn í manna minn-
um. Og til að bæta gráu ofan
á svart fór eldfjall i Nikara-
gva að gjósa.
Hondúras hefúr orðið verst
úti í hamfórunum. Efnahagur
landsins og uppskera eru
nánast í rúst eftir flóðin og
þar hafa fundist meira en sjö
þúsund lík.
„Við teljum núna að tala
Játinna sé komin í sjö þúsund
og hún gæti jafhvel hækkað,“
sagði Rene Osorio, ofursti í
almannavamaráði Hondúras.
í Níkaragva er staðfest að
1350 manns að minnsta kosti
hafi látist. Þar birtist reiði
náttúrunnar einnig í formi
eldgoss í Cerro Negro eldfjallinu í
gær. Sennilegt er talið að aÚt að tvö
þúsund manns hafi grafist undir
Fullorðin kona í Gvatemalaborg grætur yfir missi
fjölskyldu sinnar í hamförunum af völdum Mitch.
aurskriðum í hlíðum fiallsins fyrir
nokkrum dögum.
Mitch, sem er fiórði öflugasti Atl-
antshafsfellibylurinn á þess-
ari öld, var kominn nærri
borginni Campeche í suðaust-
urhluta Mexíkós í gær, að
sögn bandarísku fellibylja-
miðstöðvarinnar í Miami.
Hann hafði safnað í sig
kröftum og var aftur orðinn
að hitabeltislægð. Vindhrað-
inn var kominn upp í 65 kíló-
metra á klúkkustund sem er
þó ekkert miðað við það sem
áður var. Vindhraðinn fór
mest í 295 kílómetra á
klukkustund í síðustu viku.
Cerro Negro eldfiallið í
Nikaragva raddi úr sér
hrauni og ösku í gær. Óttast
er að sagan frá 1995 endur-
taki sig þegar aska úr fiallinu
dreifðist yfir 240 ferkílómetra
af frjósömu akurlendi.
Reiður múgur lét reiði sína
bitna á Amaldo Aleman, for-
seta Níkaragva, þegar hann
kom til að kynna sér ástandið
í borginni Leon.
Hjálparstarfið í Hondúras
hefur gengið erfiðlega vegna mikils
fiölda þeirra sem eiga um sárt að
binda. Þar var fólk enn uppi á hús-
þökum í gær og beið eftir aðstoð.
Vegir eru í sundur og brýr hafa
eyðilagst, svo og ræktarland á stór-
um svæðiun.
í öðram ríkjum Mið-Ameríku
hafa orðið mun færri dauðsföll.
Svarta ekkjan
dæmd í 29 ára
fangelsi
Patrizia Reggiani Gucci var í
gær dæmd í 29 ára fangelsi fyrir
að hafa fyrirskipað morð á fyrr-
verandi eiginmanni sínum, tísku-
kónginum Maurizo Gucci. Pat-
rizia, sem hlaut viðurnefniö
Svarta ekkjan, neitaði sakargift-
um en viðurkenndi samtímis að
hafa óskað þess að eiginmaðurinn
fyrrverandi væri allur.
Maurizio var skotinn til bana
fyrir utan skrifstofu sína í Mílanó
í mars 1995. Patrizia var sökuð
um að hafa beðið spákonu sína
um að finna leigumorðingja fyrir
sig. Patrizia viðurkenndi að hafa
greitt spákonunni fé en hélt því
fram að spákonan hafi kúgað
hana til að greiða peningana.
öndu
jól
99
úrvali
miklu
fy
érmerkt
nr
'9
víddí
y/ar
utga
onnun
°g
Lachian Murdoch, erfingi ástralska fjölmiölakóngsins Ruperts Murdochs,
opinberaöi trúlofun sína og hinnar fögru Söruh O’Hare á kappreiöavelli í
heimalandinu í gær. Sarah er fyrrum sýningarstulka fyrir Wonderbra.
Sonur Milosevics:
Smyglar sígarettum
til Svíþjóðar
Marko Milosevic, sonur Slobodans
Milosevics Júgóslavíuforseta, var í
sænskum sjónvarpsþætti í gær sak-
aður um að standa á bak við smygl á
sígarettum til Svíþjóðar. Fullyrt var
að með smyglinu hefðu Serbar greitt
stríðið gegn uppreisnarmönnum Al-
bana í Kosovo.
Carl Bildt, leiðtogi Hægriflokks-
ins í Svíþjóð og fyrrverandi sátta-
semjari í Bosníu, og sænski stjóm-
málamaðurinn Anita Gradin, sem
starfar hjá Evrópusambandinu, stað-
festa í viðtali við Svenska Dagbladet
að leyniþjónustur á Balkanskaga
séu oft á bak við kerfisbundna
glæpastarfsemi.
Sænsku sjónvarpsmennimir
greindu frá því í þætti sínum að þeim
hefðu borist hótanir á meðan þeir
rannsökuðu tengsl glæpahópa við
stjómina í Belgrad, höfuðborg Serbíu.
Suzuki Grand Vitara 1999.
Nýr,6cyl, 155 hestöfl.
Plymouth Grand Voyager 1993,
4x4, 7 manna, ek. 87 þús. km, m/2
innbyggðum bamastólum. Verð 1.630.000
Plymouth Neon 1996, hvltur, e!
mflur, ssk.
Verð 1.190.000
smaSi
ek. 212 þús. km,
Verð 1.040.000
-
Visa-/Euro
raögreiöslur
Skuldabréf