Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1998, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1998, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 1998 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjóran JÓNAS KRISTJÁNSSON og ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON Ritstiórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI11, 105 RVÍK, SÍMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Vísir, netútgáfa Frjálsrar flölmiðlunar: http://www.visir.is Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaöam.: 462 6613, fax: 4611605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerð: ISAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuði 1900 kr. m. vsk. Lausasöluverð 170 kr. m. vsk., Helgarblað 230 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaösins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Sátt um kjördæmaskipan Núverandi kjördæmaskipan er bæði úrelt og óréttlát. Hún veldur því að landsmenn hafa ekki allir sama at- kvæðavægi. Þeir sem búa í þéttbýli hafa aðeins brot af atkvæðavægi sumra í kjördæmmn landsbyggðarinnar. Þetta er brot á einföldum mannréttindum. Nýleg tiilaga nefndar forsætisráðherra um breytingar á skipan kjördæma féll ekki í nægilega frjóan jarðveg. Sterkir þingmenn kjördæma sem átti að skera sundur og sameina öðrum lögðust harkalega gegn henni. Vafa- lítið hefði hún því mætt harðri mótspyrnu á þingi. Nefnd forsætisráðherra brá hins vegar skjótt við og skaust á nýjan leik undir feld sinn. í framhaldi af því lagði hún tillöguna fram í breyttri mynd. Eins og DV greindi frá í gær virðast nú yfirgnæfandi líkur á að til- lagan í breyttu formi njóti góðs stuðnings þingheims. í stað þess að rista Norðurland vestra í sundur og tæta af Austurlandskjördæmi drjúgan bita, líkt og gert var í upphaflegu tillögunni, er ekki lengur lagt til að nein kjördæmi verði bútuð sundur. í staðinn eru kjör- dæmin sameinuð öðrum í heilu lagi. Samkvæmt breyttu tillögunni verður búið til nýtt, víðfeðmt kjördæmi sem nær yfir Vesturland, Vestfirði og Norðurland vestra. Staða Siglufjarðar er þó óráðin. Austfirðir verða ekki lengur skornir um Djúpavog held- ur renna saman við Norðurland eystra. Reykjavík er skipt upp í tvö kjördæmi, eins og í upp- haflegu tiUögunni, og Suðurnes flutt úr Reykjaneskjör- dæmi og sameinuð Suðurlandi. Forsenda síðarnefndu hugmyndarinnar hlýtur þó að vera að Suðurland og Suðurnes verði tengd með Suðurstrandarvegi. Viðbrögð Alþingis munu vitaskuld ráða örlögum hinnar breyttu tillögu. Viðbrögð þingmanna í DV í gær, ekki síst Páls Péturssonar félagsmálaráðherra, sem harðast andæfði upphaflegum hugmyndum nefndarinn- ar, benda þó til að hún muni hljóta víðtækt samþykki á þinginu. Þessi niðurstaða er mikið fagnaðarefni. í dag njóta íbúar sumra kjördæma allt að ferfalt þyngra atkvæða- vægis en þeir sem búa í þéttbýli suðvesturhornsins. Endanleg tillaga felur í sér að mesti munur verði aldrei meira en 1,8 á móti 1. Það er að sönnu veruleg framfór. Endanlegt takmark hlýtur þó að vera að jafna at- kvæðavægið algerlega. Það er erfitt að sætta sig við að búseta ráði hversu mikið vægi þegnarnir hafa þegar þeir kjósa fulltrúa sína á löggjafarsamkomuna. Besta leiðin til þess væri að gera ísland að einu kjördæmi. Rígur milli kjördæma hefur gegnum öldina leitt til óráðsíu og fjármálasukks, þar sem einstakir valdamikl- ir þingmenn hafa skarað eld að köku kjördæmis síns. Rangar ákvarðanir á grundvelli kjördæmaskipulagsins hafa raunar verið teknar allt fram á þennan dag. Væri landið gert að einu kjördæmi ynnist tvennt: Kjördæmarígurinn hyrfi og í kjölfarið er líklegt að auk- innar samheldni gætti meðal þjóðarinnar. Jafnframt væri tryggt að allir þegnamir hefðu nákvæmlega sömu áhrif á landsstjórnina. Það eru mannréttindi. Sú tillaga sem nú liggur fyrir er þó stórt framfaraspor. Um hana ríkir sátt. Allar líkur eru því til að forsætis- ráðherra leggi hana fram á Alþingi á næstu dögum. Þrátt fyrir annir ætti því þinginu að veitast ráðrúm til að afgreiða hana áður en það lýkur störfum í vor. í fr amhaldi af vorkosningunum er svo eðlilegt að boða skjótt til nýrra kosninga til að hrinda kjördæmabreyt- ingunni endanlega í framkvæmd. Össur Skarphéðinsson „Menn ná ekki settu marki og hrapa niður í mykriö þar sem gelta aö þeim svartir hundar." Ekki hlátur í hug ursuðuhláturinn í sjón- varpsþáttunum svo í taugamar á þeim að þeir fyllast gagnsefjun: þetta er ekkert fyndið! Kannski eru öll sniðug- heit svo rækilega of- brúkuð að mönnum flnnst alltaf að þeir hafi heyrt djókið áður? Máliö er erfiðara Hláturskorturinn teng- ist því að menn eru tíu sinnum líklegri nú en fyrir hálfri öld til að falla í dapurleika og þunglyndi. Eða svo sögðu þeir í Basel á dög- unum. Þynglyndið vex . „Litlir sigrar og meiri háttar sigr- ar verða að tapi í samanburði við sigurinn stóra, ævintýrið sjálft. Svo til allir eru aumir lúserar og það er skelfílegasti dómur sem samtíðin fellir. Ekki hlæjandi að honum.“ Kjallarinn Árni Bergmann rithöfundur Oftar en ekki sitjum við vönkuð í þversögninni miðri. Heimur skánar, heimur versnandi fer - hvorutveggja er rétt. Á hálfri öld hafa lífskjör sem mælast í neyslu batnað stórlega hér og í næstu heims- hlutum. Menn geta leyft sér meira, eins og sagt er. En á hinn bóginn sýn- ist allt orðið mun dapurlegra en var. Eða svo sögðu fróöir menn sem komu saman á al- þjóðlegri ráðstefnu um hiátur sem haldin var í Basel í Sviss. Þeir þóttust vita að hláturinn sem splundrar streitu, blæs út úr myrkum hugarskot- um og lengir lífið væri að skreppa saman. Náttúrlega vitnuðu þeir í tölur eins og alltaf er gert. Á sjötta ára- tugnum hló hver meðalmaður átján mínútur á dag en nú er hann kominn niður í sex mínútur. Hláturframleiösla og þunglyndi Hvemig gæti staðið á þessu? Það er geipilegt framboð á skemmtikröftum og trúðum sem keppast við að framleiöa hlátur á samkomum, krám og í sjónvarpi. Fyrir utan atvinnumenn í faginu hamast stjórnmálamenn, skáld, prófessorar og auglýsendur við að vera fyndnir og sniðugir. Kannski er hláturframleiðslan orðin of yfir- þyrmandi? Kannski fá menn of stóran skammt? Kannski fer nið- og vex, hvað sem velmegun líður eða neyslu. Kannski vex það einmitt með vaxandi neyslu. Því sá sem metur sjálfan sig og stöðu sína í heiminum út frá því hvað hann hefur efni á að kaupa sér, hann hefur vitanlega alltaf miklu minna en nóg. Allt í kringum hann dansar útsmoginn óánægju- iðnaður sem minnir á það sem hann á eftir að fá sér eða hefur ekki ráð á að kaupa og hvíslar því stöðugt að honum að hann sé lítill karl og ómerkilegur. Allir eru aö tapa Þetta hafa menn lengi vitað: ætli það sé ekki einmitt nær hálf öld síðan Vance Packard skrifaði skæðar bækur um útsmogna slægð auglýsingaiðnaðar. En svo bætist samkeppnin við. Hún er ekki ný bóla heldur. En nú sem aldrei fýrr er því troðið inn í hvem haus að allir séu í grimmri og endalausri samkeppni við alla. Ekki nóg með það: aðeins sá besti er sigursæll. Hver og einn er ekki aðeins í samkeppni og samanburði við næsta mann, við Jón granna, heldur og við alla kollega og svo allar stórstjörnur á öllum sviðum. Svo grimm áhersla er lögð á framgang og uppgang og vel- gengni, að flestir eru gabbaðir til að setja sér markmið sem þeir munu sannarlega aldrei ráða við. Menn ná ekki settu marki og hrapa niður í mykrið þar sem gelta að þeim svartir hundar. Lífs- hættir era þannig, öflug fjöldadá- leiðsla eða innræting stefnir öll í þessa átt. Niðurstaðan er sú að allir eru hundóánægðir með sjálfan sig og heiminn. Líka þeir sem hafa í rauninni verið að bæta sinn hag eða sitt ráð. Það dugir ekki til. Litlir sigrar og meiri háttar sigr- ar verða að tapi í samanburði við sigurinn stóra, ævintýrið sjálft. Svo til allir eru aumir lúserar og það er skelfilegasti dómur sem samtíðin fellir. Ekki hlæjandi að honum. Ekki hlæjandi að neinu yfirleitt. Hlt er það allt og bölvað og skítt. Sumir stinga af úr kapphlaup- inu. Leita sér að friði og ró í ein- hverjum afkima sem þeir smíða sér, einir eða meö öðrum. En hvergi er í heimi hæli tryggt. Það er eins víst að samanburðarandinn grimmi elti þá þangað líka: Hver er mestur og snjallastur í íhugun og hófstillingu? Hver smíðar aöferð til að skapa hugarró fljótar og ræki- legar en aðrir - og getur selt hana hundrað þúsimd manns sjálfum sér til auðs og frægðar? Árni Bergmann Skoðanir aimaxra Olían hér líka? „Leynist olía og/eða gas í setlögum við Island? Þessi spurning hefúr skotið upp kolli af og til síðustu áratugi. Hún hefur fengið byr 1 segl undanfarið. Tvennt kemur til: Erlend olíufélög hafa lýst áhuga á að kanna til hlítar líkur á því að olía finnist í ís- lenzkri lögsögu. Nefnd, sem starfað hefur á vegum iðnaðarráðuneytisins, skilar þessa dagana skýrslu um mat á stöðu olíuleitar við landið...01ían hefur fært frændum okkar, Norðmönnum, ærinn auð. Næstu grannar okkar og frændur, Færeyingar, binda og rök- studdar vonir um bættan hag við olíu í landgrunni eyjanna. Sjálfgefið er að huga vel að olíulíkum í ís- lenskum setlögum, einkum fyrir Norðurlandi, þótt þær séu ekki taldar nema 10-12% í dag.“ Úr forystugreinum Mbl. 3. nóv. Nýtt skipurit lögreglunnar „í heildina fela hugmyndimar í sér skýrari línur varðandi stjómun innan Lögreglunnar í Reykjavík. Þó finnst mér álitamál að svo fáir yfirmenn eigi að stýra 300 manna lögregluliði Reykjavikur. Hins vegar er nokkuð sérkennilega staðið að þessari stefnumótunar- vinnu þar sem gengið var fram hjá lögreglustjóranum í Reykjavík, Böðvari Bragasyni, og hann ekki hafður með í ráðum um þessar umfangsmiklu breytingar." Siv Friðleifsdóttir í Degi 3. nóv. Umhverfi Fjárfestingarbankans „Við höfum komist nær því hvar verðmæti okkar liggja. Við ræðum um útdeilingu aflaheimilda, ráð- stöfun hálendisins og þann fjölda hámenntaðs fólks sem vinnur á þessum litla markaði. Á íslandi er efst á baugi hvemig eigi að ráðstafa þessum og öðrum auðæfum okkar. Almenningur tekur ekki lengur verðlagsákvörðunum sjömannanefnda eða öðrum miðlægum ákvöröunum um hvemig haga beri ein- hveiju, sem hann skiptir, þegjandi og hljóðalaust. Þetta er það umhverfi, það upplýsingasamfélag, sem Fjárfestingarbanki atvinnulífsins haslar sér völl á.“ Bjarni Ármannsson í Mbl. 1. nóv.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.