Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1998, Síða 26
* 42
MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 1998
Afmæli______________________
Sigurgeir Jónasson
Sigurgeir Jónasson bryti, Mána-
braut 8, Kópavogi, er sjötugur í dag.
Starfsferill
Sigurgeir fæddist að Hólabrekku
í Miðneshreppi og ólst upp á Garðs-
skaga í Gerðahreppi. Að loknu
gagnfræðaprófi var hann um
tveggja ára skeið á togurunum
Snorra goða og Hilmari gamla.
Sigurgeir lærði matreiðslu á Hót-
el Borg og Restaurant Viviex í
Kaupmannahöfn 1945-48 og lauk
meistaraprófl 1955.
Sigurgeir starfaði á Goðafossi og
Gullfossi 1948-54, var eigandi Silfur-
tunglsins við Snorrabraut 1954-63
og sigldi á ms. Esju og fleiri skipum
til 1971. Hann sá um rekstur mötu-
neytis stúdenta í Reykjavík 1971-76
en frá 1976 hefur hann verið bryti
hjá Eimskipafélagi íslands.
Fjölskylda
Eiginkona Sigurgeirs var Mar-
grét Bjömsdóttir, f. 25.2.1930, d. 4.6.
1993, starfsleiðbeinandi. Hún var
dóttir Bjöms M. Björnssonar, f.
1900, bókbindara, og Ágústu H.
Hjartar, f. 1898, húsmóður.
Böm Sigurgeirs og Margrétar eru
Ágústa Rut, f. 1951, ritari, búsett í
Reykjavík en sambýlismaður henn-
ar er Úlfar Ámason rafvélavirki og
er dóttir hennar Margrét Hugrún
Gústavsdóttir, f. 1970; Sigrún Mar-
grét, f. 1953, gjaldkeri, bú-
sett á Suðureyri við Súg-
andafjörð, gift Guðna Al-
bert Einarssyni fram-
kvæmdastjóra og eru
börn þeirra Guðný Erla, f.
1976, Sólveig Kristin, f.
1979, og Auður Birna, f.
1983; Halla, f. 1961, kenn-
ari, búsett í Hafnarfirði
en sambýlismaður henn-
ar er Rúnar Gíslason lög-
fræðingur og er sonur
hennar Emil Örn Sigurð-
arsson, f. 1981, en böm
hennar og Rúnars eru Rúnar
Steinn, f. 1991, og Hrólfur Sturla, f.
1995; Sigurgeir Orri, f. 1967, bók-
menntafræðingur, búsettur í
Reykjavík en sambýliskona hans er
Heiðrún Ragnarsdóttir verkfræð-
ingur; Jónas Bjöm, f. 1968, sagn-
fræðingur, búsettur í Hafnarfirði,
kvæntur Rósu Guðbjartsdóttur
blaðamanni og eru böm þeirra Sig-
urgeir, f. 1995, og Bjartmar, f. 1998.
Systur Sigurgeirs: Sólveig Jó-
hanna, f. 1926, búsett í Reykjavík,
var hún gift Línberg Hjálmarssyni
en þau skildu og eiga þau þrjú böm;
Erla Jónasdóttir, f. 1927, d. 1976, en
eftirlifandi maður hennar er Sigfús
Ingimundarson og eignuðust þau
sex syni.
Foreldrar Sigurgeirs: Jónas
Bjami Bjamason, f. 1898, bygginga-
meistari, og Sigrún Sig-
urjónsdóttir, f. 1896, d.
1974, húsmóðir.
Ætt
Jónas Bjami var sonur
hjónanna Sólveigar Jóns-
dóttur frá Kálfholti og
Bjarna skútusjómanns í
Vallholti hjá Sandgerði
Runólfssonar, b. í Kólgu
og Landakoti í Sand-
gerði, Runólfssonar, úr
Norðurárdal í Borgar-
firði Þorsteinssonar.
Runólfur yngri varð úti en hann er
sá er mikið kom við sögu á miðils-
fundum Hafsteins miðils. Móðir
hans var Guðrún Magnúsdóttir úr
Melasveit. Kona Runólfs og móðir
Bjama var Guðrún Bjamadóttir, b.
á Löndum á Rosmhvalanesi, Bjama-
sonar og k.h., Auðbjargar Guð-
mundsdóttur.
Sigrún, móðir Sigurgeirs, var
dóttir Sigurjóns, b. á Kringlu í
Grímsnesi, Gíslasonar, á Heima-
landi í Flóa, Gunnarssonar. Bróðir
Sigurjóns var Stefán héraðslæknir i
Mýrdal. Móðir þeirra var Halla
Jónsdóttir, á Galtafelli í Ytrihrepp,
Bjömssonar, í Vorsabæ á Skeiðum,
Högnasonar.
Móðir Höllu var Guðrún, systir
Ragnhildar, konu séra Torfa í
Hrana og ömmu Torfhildar Hólm
skáldkonu og séra Richards Torfa-
sonar, afa Þórs þjóðminjavarðar.
Ragnhildur var einnig amma Finns
Guðmundssonar náttúrufræðings.
Sonarsonur Ragnhildar var Guðni
Magnússon á Forsæti í Landeyjum,
afi Brynjólfs Bjamasonar, heim-
spekings og ráðherra, og langa-
langafa Daviðs Oddssonar forsætis-
ráðherra. Faðir Guðrúnar og Ragn-
hildar var sr. Guðmundur á Kálfa-
tjöm, Magnússon, pr. á Þingvöllum,
Sæmundssonar, en móðir þeirra var
Ingibjörg Brynjólfsdóttir, sýslu-
manns í Hjálmholti, Sigurðssonar.
Móðir Sigrúnar var Jódís, dóttir
Sigmundar Jóhannssonar á Kambi í
Flóa, og k.h., Þorbjargar Ámunda-
dóttur, b. í Vatnsholti, Oddssonar.
Bróðir Ámunda var Þorvaldur
skipasmiður, faðir Áma hrepp-
stjóra á Meiðastöðum, afa Gunnars
M. Magnúss rithöfundar og ísleifs
Guðmundssonar, afa Birgis ísleifs
Gunnarssonar seðlabankastjóra.
Móðir Þorbjargar var Jódís Vigfús-
dóttir, systir Sólveigar, langömmu
Guðnýjar, móðm- Guðlaugs Tryggva
Karlssonar. Bróðir Jódísar var
Ófeigur ríki á Fjalli á Skeiðum,
langafi Jóns Ófeigssonar mennta-
skólakennara, Grétars Fells rithöf-
undar og Tryggva Ófeigssonar út-
gerðarmanns.
Sigurgeir dvelur nú á Hótel Los-
Tilos á Kanarieyjum.
Sigurgeir Jónasson.
Valgerður Ólöf Jónsdóttir
Valgerður Ólöf Jónsdóttir hús-
móðir, Héðinshöfða 2b, Tjömesi,
varð sjötug á sunnudaginn var.
Starfsferill
Valgerður fæddist að Geitafelli í
Reykjahverfi en ólst upp í Ysta-
hvammi í Aðaldal. Hún var í barna-
skóla í Aðaldal 1938-42 og stundaði
nám við Húsmæðraskólann á Laug-
um 1948-49.
Valgerður var tvo vetur í vist i
Vestmannaeyjum, starfaði í mjólk-
ursamlagi Kaupfélags Þingeyinga á
Húsavík í þrjú ár og á Sjúkrahúsi
Húsavíkur í eitt og hálft ár auk þess
sem hún hefur stundað húsmóður-
störf frá því hún gifti sig.
Hún hefur verið félagi í kvenfé-
laginu Aldan á Tjömesi frá 1963.
Fjölskylda
Valgerður giftist 25.6. 1960 Jónasi
Bjamasyni, f. 17.3. 1932, bónda á
Héðinshöfða. Hann er sonur Bjama
Stefánssonar, bónda á Héðinshöfða,
f. 17.10. 1884, d. 17.9. 1968. og Hólm-
fríðar Jónasdóttur, f: 16.05.1895. d.
15.12.1975, húsfreyju á Héðinshöfða.
Dóttir Valgerðar frá því fyrir
hjónaband er Guðrún Guðmunds-
dóttir, f. 7.5. 1951, verslunarmaður,
gift Gísla Halldórssyni og eiga þau
þrjú böm og eitt bamabam.
Börn Valgerðar og Jónasar era
Stefán, f. 26.12. 1960, trésmiður;
Jónas, f. 26.7. 1962. bóndi, kvæntur
Rósu Guðbjörgu Kjartansdóttur og
eiga þau þrjú börn; Héðinn, f. 1.2.
1964, sjómaður, kvæntur Sigríði
Hörn Lárasdóttur og eiga þau þijár
dætur; Hólmfríður, f. 10.6. 1966,
verslunarmaður, gift Bjarka Sig-
urðssyni og eiga þau tvær dætur en
fyrir átti Hólmfríður einn son.
Systkini Valgerðar: Ásta, f. 29.3.
1926, d. 22.9. 1997, húsmóðir á Húsa-
vík; Oddný, f. 9.4. 1927, húsmóðir í
Reykjavík; Aðalbjörg, f. 8.3. 1930,
húsmóðir á Litlu-Reykjum í Reykja-
hverfi; Helga, f. 9.1. 1932, húsmóðir
í Lækjarhvammi í Aðaldal; Baldur,
f. 18.11. 1934, bóndi í Ystahvammi í
Aðaldal; Þórólfur, f. 4.5. 1941, húsa-
smiður, búsettur á Hánefsstöðum í
Svarfaðardal.
Foreldrar Valgerðar voru Jón
Gunnlaugsson, f. 7.10.1901, í Geita-
felli, d. 22.3. 1974, bóndi í Ysta-
hvammi, og Guðrún Gísladóttir, f.
8.6.1903 í Presthvammi, d. 12.3.1998,
húsfreyja í Ystahvammi.
Ætt
Jón var sonur Gunnlaugs Snorra-
sonar, b. í Geitafelli í Reykjahverfi
og k.h., Oddnýjar Sigurbjömsdótt-
ur.
Guðrún var dóttir Gísla Sigur-
björnssonar, b. i Presthvammi í Að-
aldal og k.h., Helgu Sigurveigar
Helgadóttur.
Steini Þorvaldsson
Steini Þorvaldsson verslunar-
stjóri, Vallargerði 4, Kópavogi, varð
fimmtugur sl. mánudag.
Starfsferill
Steini fæddist á Akranesi og ólst
þar upp og í Melasveitinni. Hann
stundaði nám við Samvinnuháskól-
ann á Bifröst og lauk þaðan prófum
sem rekstrarfræðingur.
Steini stundaði verslunar-,
kennslu- og skrifstofustörf á árun-
um 1967-95, lengst af á Selfossi.
Hann var kaupfélagsstjóri á Þórs-
höfh 1995-96 og framkvæmdastjóri
þar 1996-98.
Steini er félagi í Þroskahjálp á
Suðurlandi frá stofhun félagsins og
sat í stjóm félagsins í nokkur ár.
Hann hefur verið félagi í Verslunar-
mannafélagi Árnessýslu í tuttugu og
þrjú ár, sat í stjóm þess um skeið og
var formaður þess í nokkur ár. Þá
var hann félagi í Karlakór Selfoss i
tíu ár og i Samkór Þórshafnar í þrjú
ár.
Fjölskylda
Steini kvæntist 4.4. 1992 Ástu
Baldvinsdóttur, f. 27.2. 1951, leið-
beinanda. Hún er dóttir Baldvins
Helgasonar sem er látinn, og Sig-
rúnar Jóhannsdóttur, húsmóður á
Akureyri.
Sonur Steina og Ástu er Elfar
Tjörfi, f. 19.8. 1990.
Böm Steina og Sigríðar Ólafsdótt-
ur eru Ólafur, f. 6.11. 1967; Þorvald-
ur Ingi, 2.5. 1972; Kristín Laufey, f.
16.2. 1980.
Börn Ástu og Jónbjamar Pálsson-
ar eru Sigrún, 22.1. 1969, gift Þresti
Áma Gunnarssyni en synir þeirra
eru Gunnar Björn, f. 19.10. 1992, og
Birkir Már, f. 11.2. 1995; Páll, f. 10.9.
1975; Baldvin, f. 18.1. 1980.
Systkini Steina era Ólöf Þorvalds-
dóttir, f. 24.5. 1945, framkvæmda-
stjóri Auglýsingastofunnar Hér og
Nú, búsett í Kópavogi en maður
hennar er Logi Kristjánsson verk-
fræðingur; Lilja Guðrún Þorvalds-
dóttir, f. 7.7. 1950, leikari hjá Þjóð-
leikhúsinu, búsett í Reykjavík;
Hilmar Harðarson, f. 15.4.1938, véla-
maður hjá Varnarliðinu, búsettur í
Keflavík en kona hans er Guðrún
Gunnarsdóttir.
Foreldrar Steina voru Þorvaldur
Steinason, f. 6.4. 1907. d. 15.1. 1973,
sjómaður, verkamaður og bóndi á
Akranesi, Narfastöðum og í Kópa-
vogi, og Ingunn Valgerður Hjartar-
dóttir, f. 30.9. 1909, d. 15.9. 1980, hús-
móðir.
Raftæki
Þann 11. nóvember mun aukablað
um raftæki fylgja DV
í blaöinu verður fjallað vítt og breitt um flest allt sem hægt er að
.stinga í samband" og nýjustu tækni þar að lútandi:
-Sjónvörp, myndbandstækl og almenn heimllisraftækl
-Farsímar
-Spáð í framtíðlna
-Spjall vlð þekkta íslendlnga og
Umsjón efnis:
Haukur Hauksson,
sími 553 2672
og 897 4672.
Umsjón auglýsinga:
Gústaf Kristinsson, sími 550 5731.
Kristinn Pálsson, sími 550 5722.
Auglýsendur, athugið!
erflmmtudagurinn
5. nóvember.
DV
Til hamingju með
afmælið 4. nóvember
90 ára_______________________
Guðríður Þorleifsdóttir,
Mýrargötu 18, Neskaupstað.
85 ára
Þórhallur Friðriksson,
Lambhaga 24, Selfossi.
80 ára
Hallbera Pálsdóttir,
Birkiteigi 4a, Keflavík.
75 ára
Guðlaug
Stefánsdóttir,
Bakkastíg 2,
Eskifirði.
Eiginmaður
hennar er
Aðalsteinn Jónsson forstjóri.
Guðlaug fagnar tímamótunum
með fjölskyldu sinni á Eskifiröi.
70 ára
Garðar
Halldórsson
pípulagningar-
meistari,
Mávahrauni 12,
Hafnarfirði. Kona
hans er Sigrún Stefánsdóttir.
Garðar tekur á móti gestum í
Haukahúsinu við Flatahraun,
sunnudaginn 8.11. kl. 15.00.
Lovísa Sveinsdóttir,
Austurvegi 24a, Grindavík.
Bergþóra Bergsdóttir,
Byggöavegi 149, Akureyri.
60 ára
Víðir Hafberg Kristinsson
sálfræðingur,
Skaftahlíð 22, Reykjavík.
Kona hans er Hulda Guö-
mundsdóttir félagsráðgjafi.
Fjölskyldan er aö heiman í dag.
Steinunn E. Jónsdóttir,
Lækjarási 9, Reykjavík.
Kristinn Viðar Pálsson,
Hólagötu 37, Vestm.eyjum.
50 ára
Sigurgeir Sigurjónsson,
Báragötu 18, Reykjavík.
María Halldórsdóttir,
Gullengi 1, Reykjavík.
Bjarnfríður Hlöðversdóttir,
Brekkuhjalla 9, Kópavogi.
Helga Björnsdóttir,
Digranesvegi 52, Kópavogi.
Eyjólfur Vilbergsson,
Heiðarhrauni 16, Grindavík.
Hálfdán Guðröðarson,
Aðalgötu 10, Suðureyri.
Lucyna Janiszewska,
Gilsbakka 1, Bildudal.
Úlfhildur Gunnarsdóttir,
Huldugili 13, Akureyri.
40 ára
Guðjóna
Ásgrímsdóttir
veitingamaður
Neðstaleiti 7,
Reykjavík.
Maður hennar er
Jón Magni Sigurðsson. Hún er
að heiman á afmælisdaginn en
heldur upp á afmæliö síðar.
Marinó Flóvent Birgisson,
Bugðulæk 13, Reykjavík.
Kristján Steingrímsson,
Kleifarseli 19, Reykjavík.
Páll HaUdórsson,
Stekkjarflöt 23, Garðabæ.
Jón Páll Haraldsson,
Fögruhlíð 5, Hafnarfirði.
Steinar Þór Þórisson,
Vesturholti 3, Hafnarfirði.
Bjami Óskarsson,
Hjarðarlandi 5, Mosfellsbæ.
Elínborg Gunnarsdóttir,
Lágengi 6, Selfossi.
Guðbjörg Guðmundsdóttir,
Bárustíg 14 B, Vestm.eyjum.
Inga Hrönn Guðlaugsdóttir,
Bröttugötu 25, Vestm.eyjum.