Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1998, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1998, Síða 28
44 MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 1998 H>"V _!■ > Ógurlegur dauðdagi að deyja úr hrósi „Þegar gagnrýnendur og lesendur sjá að ekki er hægt að drepa höfund með skömmum þá byrja þeir að reyna að drepa hann með hrósi. Það er ógurlegur dauðdagi að deyja úr hrósi.“ Guðbergur Bergsson rithöf- undur, í Degi. Tónlistarhús Reykjavíkur Hljómskálinn stendur enn og er enn í dag eina húsið sem byggt hefur verið yfir tónlist í höfuðborginni sem þó ætlar að verða ein af menningar- borgum Evrópu árið 2000.“ Árni Björnsson læknir, í DV. Enginn málstaður „Útvegsmenn eiga engan mál- stað en þeir eiga næga peninga." Bárður Halldórs- son, form. Sam- taka um þjóðar- eign, í DV. Öllum brögðum beitt „Samtök eins og þessi neyta auðvitað allra bragða til að vekja á sér athygli." Bjarni Hafþór Helgason, framkvæmdastj. Útvegs- mannafél. Norðurlands, um Samtök um þjóðareign, í DV. Þrælahald „Þrælahald um borð í leigu- skipum Eim- skips sem hér eru í fóstum áætlunarsigl- ingum er af nákvæmlega sama toga og landsmenn fylgdust með að reynt var að stunda af rússnesku verktakafyrir- tæki hér við virkjunarfram- kvæmdir." Jónas Garðarsson, form. Sjómannafél. Reykjavíkur, í DV. Skilaboð frá hvalveiðimanni „Ég hef aðeins ein og mjög einfold skilaboð til íslendinga. Gerið sem Norðmenn og hefjið hvalveiðar." Steinar Bastesen stórþings- maður, í Morgunblaðinu. Jörundur Guðmundsson, tívolíhaldari og varaþingmaður: Geng ekki með þing- manninn í maganum „Ég hef eiginlega aldrei gert mér ljóst að ég gæti þurft að fara inn á Al- þingi, enda enginn metnaður til þess hjá mér, og að ég skyldi lenda á þingi núna var mjög óvænt. Ég var þriðji maður á lista hjá Þjóðvaka fyrir síð- ustu kosningar og satt best að segja var ég settur í það sæti frekar en að ég bæði um það, menn vildu hafa Suðurnesja- mann i þriðja sæt- inu og ég fyllti upp í þann flokk. Þótt ég fylgist vel með pólitík og hef áhuga á henni sem slíkri þá var ég satt best að segja búinn að gleyma því að sú staða gæti komið upp að ég færi á þing þegar Ágúst Einarsson hringdi í mig og bað mig um að vera fyrir sig á þingi. Mig setti hljóðan svona á meðan hann var að koma beiðn- inni frá sér en sló svo til. Þegar ég var búinn að jafna mig á því sem Ágúst var að segja setti Maður dagsins ég svona símann aðeins frá mér og kallaði svo Ágúst heyrði: „Guðrún, taktu til trúðabúninginn minn og rauða nefið, ég er að fara á þing,“ segir hinn kunni tívolí- haldari, rak- ari og skemmtikraft- ur, Jörundur Guðmunds- son, sem situr á Alþingi í tvær vikur. Jörundur segir að þetta verði örugglega góð reynsla að vera á Alþingi í tvær vik- ur en ætlar sér þó ekki að gera það að aðalstarfi: „Ég geng ekkert með þingmanninn i mag- anum, stend í nógu mörgu öðru en það er gaman að standa í þessu í smátíma. Ég hafði það að atvinnu að herma eft- ir þingmönnum í tuttugu ár, en það er svo langt síðan ég gerði það að þeir þingmann eru annaðhvort hætt- ir eða fallnir frá enda hefði það verið einkennileg uppákoma hefði ég þurft að sitja við hlið þingmanns sem ég hafði haft atvinnu af að herma eftir." Jörundur stendur í mörgu: „Það má segja að aðalstarf mitt sé sirkus og tívolí. Tívolíið flyt ég inn til lands- ins á hverju sumri og er með það á hafnarbakkanum, það fer svo eftir veðri og tækjum hvernig til tekst. Sirkusinn er passlegt að flytja inn á tveggja til þriggja ára fresti og í sum- ar fæ ég stóran sirkus í kjölfar á tívolíinu. Nú, ég tók mig til í júní og seldi rakarastofuna sem ég hef rekið við Hlemm i fjölda ára og tók til við aö aðstoða eiginkonu mína, Guðrúnu Kolbeinsdóttur, í veitingarekstrinum í Vogum. Jörundur hefur búið í tólf ár í Vog- um: „Hér er fint að vera, aðeins tutt- ugu mínútna keyrsla í bæinn og hér þrífst lítið og rólegt sveitarfélag sem gott er að búa í. „Ég hef svo staðið i ýmsu hér í Vogum, hef haft gaman af að spila golf svo ég og vinur minn, Andrés Guðmundsson, réðumst í að gera golfvöll sem nú er búið að stofna klúbb í kringum og þó ég hafi mjög gaman af golfi þá hef ég aðeins tíma til að leika það á vorin og haustin, tívolíið og sirkusinn kemur inn á milli." Jörundur Guömundsson. -HK Stjarnan og Valur sem hér eigast viö veröa í eldlínunni í kvöld. Fimm leikir í kvennahand- boltanum í kvöld fer fram heil umferð 11. deild kvenna en flestir eru sam- mála um það að deildin sé mun jafnari nú en undanfarin ár og nokkur lið komi til með að berjast um íslandsmeistaratitilinn. Tveir leikir fara fram í Hafnarfirði: í Kaplakrikanum leika FH-ÍBV og í íþróttahúsinu við Strandgötu Haukar-ÍR, í KA-heimilinu á Ak- ureyri KA-Fram, á Seltjamarnesi munu Grótta KR-Stjaman leika og í Víkinni leika Vikingur-Val- ur. Allir leikimir í 1. deild kvenna hefjast kl. 20. íþróttir Enginn leikur er í körfuboltan- um í kvöld en annað kvöld era á dagskrá fjórir leikir í Úrvalsdeild- inni og þar er aðalleikurinn grannaslagur á milli Keflavíkur og Grindavíkur og eiga Keflvík- ingar heimaleik, á Sauðárkróki leika Tindastóll-ÍA, á Seltjarnar- nesi KR-Haukar og í Stykkis- hólmi leika Snæfell-Skallagrímur. Leikimir hefjast kl. 20. Bridge Sigurður Sverrisson og Aðal- steinn Jörgensen urðu um síðustu helgi næsta öruggir íslandsmeistar- ar í tvímenningi. Þeir skoruðu 384 stig yfir meðcdskor en næstir komu Ásmundur Pálsson og Jakob Krist- insson með 288 stig í plús. Kristján Blöndal og Ragnar Magnússon höfn- uðu í þriðja sæti með 279 stig. Sig- urður og Aðalsteinn era ekki alls ókunnugir þessum titli því þeir voru einnig íslandsmeistarar árið 1992. Sigurður hafði þá reyndar einu sinni áður unnið til þessa tit- ils, árið 1978 með Skúla Einarssyni. Sigri þeirra félaga var aldrei ógnað að ráði, þeir náðu forystunni í 15. umferð og létu hana ekki af hendi eftir það. Hér er spil úr 37. umferð mótsins þar sem þeir félagarnir fengu góða skor. Norður var gjafari og allir á hættu: 4 9 44 Á976 ♦ D9862 * ÁK3 N V A S 4 G73 44 K ♦ K10743 * D987 4 AK8Ö4 44 G108532 4 5 * 5 4 D1052 44 D4 ♦ ÁG * G10642 Máttarstólpar þjóðfélagsins Leikfélag Keflavikur framsýndi um síðustu helgi Máttarstólpa þjóðfélagsins eftir Henrik Ibsen. Leik- stjóri er Hulda Ólafsdóttir og er hún einnig þýðandi verksins. Tónlist samdi Sig- urður Guðmundsson, ljósa- hönnun gerði Árni Bald- vinsson og Sveindís Valdi- marsdóttir sér um búninga. Alls taka um tuttugu leikar- ar þátt í sýningunni auk íjölda fólks sem hefur að- stoðað við smíðar, hár-- greiðslu, förðun og fleira. Hulda Ólafsdóttir er vel 'T- kunnug hjá Leikfélagi Keflavíkur og er þetta ní- unda uppsetning hennar með félaginu. Önnur verk- efni hennar hafa verið Skemmtiferð á vígvöllinn, Leikhús Eram við svona?, Við kynntumst fyrst í Keflavík, Hjónabönd, Lína langsokk- ur, Stígvélaði kötturinn, Stöndum saman og Leik- húslíf. Næsta sýning á Máttarstólpum þjóðfélags- ins er annað kvöld kl. 20.30. Myndgátan Niðurskurður. Myndgátan hér aö ofan lýsir oröasambandi. Norður Austur Suður Vestur Sig.Sv. ísak Aðalst. Helgi 1 4 pass 2 * pass 34 4 4 dobl 44 pass pass 54 pass pass dobl p/h Tígulopnunin sýnir 11-15 punkta ójafnskipta hendi og tveggja laufa sögn Aðalsteins sýnir 5-9 punkta og a.m.k. 7 spil í ■láglitum (3-4). Þriggja tígla sögn Sigurðar var til hindrunar og austur tók út í há- lit með fjögurra tígla sögn sinni. Fjórir spaðar S|9uröur standa á spil AV en Sverrisson. Aðalsteinn, sem átti algjört hámark miðað við sagnir, hafði ekki sagt sitt síðasta orð. Fyrir fimm tígla do- blaða og staðna fengust 33 stig af 38 mögulegum. ísak Öm Sigurðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.