Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1998, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1998, Side 32
c0„vinna F > o □ xO UJ s o FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 5505555 MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 1998 Metro-flugvélar: Hægt verði á flughraða Eigendur Metro-flugvélanna sem notaðar eru í innanlandsfluginu CÝhafa fengið í hendur Service Bullet- in, fréttabréf frá framleiðanda vél- anna. Þar er farið fram á að há- marksflughraði verði minnkaður úr 245 hnútum í 180 hnúta eða ca 440 kílómetrum í 325 km á klukku- stund. Ellert Eggertsson hjá íslandsflugi kannaðist við í morgun að þessi ósk hefði borist frá verksmiðjunni fyrir nokkru. íslandsflug ræki eina Metro-vél af eldri gerð sem er í notkun erlendis. Þessi takmörkun ætti ekki við um þá. Ekki náðist í talsmenn Flugfélags íslands í morg- un, en tilmælin munu eiga við um þeirra vélar, sem eru af nýlegri gerð, Metro 23. Samkvæmt fréttabréfi Metro hafði komið upp atvik þar sem flug- maður „keyrði stýrisflötinn í botn“ eins og flugmenn kalla það. í flug- hermi kom í ljós að flugmenn réðu illa við þennan mikla hraða og telur verksmiðjan að vélinni verði best stjórnað á 180 hnúta hraða. -JBP Ingibjörg Pálmadóttir: Innanfélagsmál „Geðlæknirinn segir að heilsufars- upplýsingar sem fari inn í gagna- - ♦grunninn séu persónugreinanlegar. Okkar færustu sérfræðingar hafa sýnt fram á að þær eru ekki persónugrein- anlegar og þá rengi ég ekki,“ sagði Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráð- herra vegna fram kominnar þungrar gagnrýni Ernis Snorrasonar geðlækn- is á frumvarpi um gagnagrunn á heil- brigðissviði. Ernir, sem er einn stofnenda ÍE, hefur m.a. látið þá skoð- un í ljós að lagasetning um miðlægan gagnagrunn sé skrípaleikur og að draga eigi frumvarpið til baka. „Þetta hlýtur að vera innanfélagsmál," sagði hún. -JSS Guömundur Guðjónsson: - Ég er sáttur „Já, ég er sáttur við þetta. Ég mun nú takast á við ný verkefni og vænti þess að reynsla min héð- an muni þannig nýtast á lands- visu,“ sagði Guð- mundur Guðjóns- son, annar yfir- lögregluþjóna Reykjavíkurlög- reglunnar sem nú eru á förum til embættis ríkislögreglustjóra. Hinn er Jónmundur Kjartansson. Það verður síðan Hörður Jóhannesson, annar núverandi yfirlögregluþjóna hjá ríkislögreglustjóra, sem tekur -^'ið starfi yfirlögregluþjóns í Reykja- vík. -Ótt í gær hélt forseti íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson, í opinbera heimsókn til Ítalíu. Með honum í för er m.a. dóttir hans, Guðrún Tinna. í dag heimsækir Ólafur Ragnar Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna, FAO, þar sem hann mun halda ræðu um fiskveiðistefnu íslendinga. DV- mynd Pjetur Feröagleði Islendinga slær met og haustferðir að seljast upp: Uppselt er í skipu- lagðar ferðir til jóla - en hægt að finna göt fyrir einn og einn farþega Uppselt er í nær allar skipulagð- ar hópferðir ferðaskrifstofanna sem farnar verða fram að jólum. Hjá Samvinnuferðum-Landsýn fengust þær upplýsingar að þaö væri meira og minna fullt í allar haustferðir fyrirtækisins, svo sem til Dublinar og Kanaríeyja. Guðbjörg Sandholt, sölustjóri hjá Heimsferöum, sagði að nær uppbókað væri til Kanaríeyja fram að jólum og að helgarferðirn- ar til London væru meira og minna fullbókaðar en til væru sæti í ferðir sem farnar væru á virkum dögum. Ásóknin i þessar ferðir hefur aukist ár frá ári. „Ég ímynda mér að ástæðan sé sú að fólk sé farið að breyta sínu fríi. Það fer kannski til sólarlanda á sumrin i tvær vikur og svo í haustferð. Áður fór fólk yfirleitt til sólarlanda í fjórar til fimm vikur á sumrin. Það vantar hins vegar þessa tilbreytingu og það vill kom- ast út. Lífsstandardinn hjá fólki hefur breyst. Það veitir sér ferða- lög þótt það sé ekki endilega að fara til að versla." Laufey Jóhannsdóttir, fram- kvæmdastjóri Plúsferða, sagði að mikið væri bókað hjá fyrirtækinu en það væri afltaf einhvers staðar hægt að finna göt fyrir einn og einn farþega. „Það er hins vegar uppselt í skipulagðar ferðir, svo sem til Kanaríeyja og Newcastle." Laufey sagði að salan væri meiri í ár en í fyrra. „Ætli það sé ekki meiri tiltrú á efnahagsástand- ið í landinu." Hún sagði augljóst að fólk væri ekki að fara í verslun- arferöir heldur til að skemmta sér. Goði Sveinsson, sölu- og mark- aðsstjóri hjá Úrval-Útsýn, sagði að Edinborg væri aðalstaður fyrir- tækisins á haustin. „Það er laust 3. og 4. desember en það er allt fufl- bókað fram að þeim tíma.“ Úrval-Útsýn er með ferðir til Kanaríeyja og enn er hægt að fá sæti í sólina. Ein skýringin er hve mörg sæti fyrirtækið er með á sín- um vegum. Jólaferðin er þó upppöntuð. „Við erum að selja um 40% meira til Kanaríeyja en á sama tima í fyrra. Við rúmlega tvöföld- uðúm sætafjöldann á milli ára en við erum með 5.500 sæti í vetur.“ Goði sagði að mun meira af yngra fólki færi til Kanaríeyja nú en áður á veturna. „Það eiga orðið svo margir vetrarfrí og tíma kannski ekki að fara til útlanda yfir hásumarið." -SJ Guðbjörg Sveinsdóttir er meina- tæknir við Landspítalann. Starfandi meinatæknar: Höldum ekki út mikið lengur Landspítalinn, hátæknistofnun í flársvelti, er að tapa starfsfólki sínu út um allar jarðir, þegar nóg er af miklu betur launuðum störfum í þjóð- félaginu. Meinatæknar, þeir fáu sem enn starfa innan Ríkisspítala, sendu í gær frá sér yfirlýsingu. Þeim þykir sárt hvernig komið er þegar atgervis- flóttinn er í algleymingi. „Við sem sögðum ekki upp starfi höfðum mis- munandi ástæður fyrir því. Við erum óánægðar með úrvinnslu kjarasamn- ings,“ segja meinatæknarnir. „Við trúum að stjóm spítalans leysi þau mál sem snúa að henni við gerð kjarasamningsins. Það sjá og vita all- ir sem vilja að Landspítalinn er í fiársvelti og að mikill atgervisflótti er í öllum starfsstéttum sem þar vinna. -JBP Veðrið á morgun: Él fyrir norðan og austan Á morgun verður norðan- og norðaustankaldi eða stinnings- kaldi á landinu. É1 verða norðan- og austanlands en víða bjart um sunnan- og vestanvert landið. Frost verður á bilinu 0 til 5 stig. Veörið í dag er á bls. 45. Li' * SYLVANIA 8j § Sii cc I s8 Tosieroni' 'ffdtindur ánægjunncu'-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.