Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1998, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1998, Blaðsíða 11
The Eels Electro Shock Blues Sorgmæddir álar með til- finningaþrungna og hæga plötu sem fer víða og er ekk- ert væl þrátt fyrir þungann. Belle & Sebastians The Boy wlth the Arab Strap Dularfull skosk poppsveit með ferskar áherslur og góða texta. Vinnur á við hverja hlustun. John Spencer Blues Exploslon Acme Groddarokk og blús í bland við hipphopp- takta og gegnheilan töffaraskap. Slípaðri en fyrri plötur en ekki verri fyrir það. Beck Muta- tlons Bekkurinn í fínu kántrí- og poppstuði. Mörg mögn- uð lög og góður og líf- legur filingur í gangi. The Bor Radley Klngslze Þessi enska sveit rifur sig upp úr lægð síðustu plötu með massífa rokk- plötu sem fer víða og kemur glettilega oft á óvart. The Wiseguys The Antidote Frískt biggbít frá The Wiseguys, sem er eins manns band DJ Touche. Einfalt stuð fyrir lappirnar við blaut tækifæri. Radiohe r-l ii JeikriT I Los Angeles er þessa dagana verið að sýna leikrit- ið „The untitled radiohead project", sem eingöngu er byggt upp með textum Radi- ohead og aðalsöguhetjan heitir Thom. Bandinu er ekkert vel við þetta og Wamer Brothers eru farnir að íhuga málsókn. í fréttatil- kynningu frá Radiohead seg- ir: „Bandið vissi ekkert af þessu leikriti fyrr en það var frumsýnt og fékk gagnrýni. Hvorki var talað við okkur né WB til að fá leyfi fyrir textunum. Okkur er brugðið því það hefði verið sjálfsögð kurteisi að biðja um leyfi áður en leikritið var sett upp. Samt sem áður ætlum við að ekki að heimta að sýningin verði bönnuð, enda skilst okkur að ágóði af henni renni til góð- geröarmála." Sjálfir eru Radiohead að vinna að kvikmynd þessa dagana en lít- ið hefur spurst út um innihald hennar. plötudómur Sóldögg: ★★ Góo lög og pirrandi miðiuvnoð Strákamir fimm í Sóldögg hafa löngum verið áttavilltir í poppinu, með annan fótinn í léttmeti ball- bransans og hinn í þungmeti rokk- deildarinnar. Þeir kunna ágætlega við sig á þessu gráa svæði og á þessum öðrum breiðdiski halda þeir áfram að tvístíga á línunni. Gaman væri þó ef þeir tækju nú næst af skarið, gerðu virkilega góða plötu án þess að pæla of mik- ið í því hvað gengur i ballgesti. Þessi plata er ekki eins góð og ég bjóst við því maður hefur heyrt nokkur frábær lög með bandinu og haft á tilfinningunni að það gæti haldið dampi á heilli plötu. Líkt og á fyrri plötunni eru hér 2, 3 verulega góð lög en fyllt upp í með frekar mollulegu efhi. Á fyrri plötunni var „Friður" áberandi besta lagið, en hér er það „Fínt lag“, sem í poppuðum einfaldleika sínum ber af. Nokkur önnur, eins og „Hundrað dalir“, „Englasalsa" og „Rökkvar í bænum“ eru einnig ágæt, en annars vill poppið einum 13 (3 „Þessi einhæfni í lagasmíðum fer í pirrurnar, enda diskurinn rúm- ar 40 mínútur og sum lögin bein- línis leiðinleg; miðjumoðs- þunnildi og tros.“ of oft pirra frekar en skemmta. Uppskrift Sóldaggar að lagi er borðleggjandi og strákarnir nota sama hráefnið ítrekað. Versið er einfaldur frasi, yfirleitt haldið gangandi með höktandi bassa, síð- an kemur uppbygging í brúnni og svo fá allir sáðlát í viðlaginu, mest melódíska kaflanum, og þá fara flöskur væntanlega í loft upp á böllum og sönglað er með. Stund- um er hnýtt í lagið svokölluðum „aumingja" (úr orðabók Sálarinn- ar), þar sem bandið slappar af áður en hringur lagsins er endur- tekinn. Viðlögin eru aldrei endur- tekin sjaldnar en fjórum sinnum, enda góð vísa aldrei of oft kveðin, allavega þegar ballgestir og út- varpshlustendur eru væntanlegir móttakendur. Þessi einhæfni í lagasmiðum fer í pirrurnar, enda diskurinn rúmar 40 mínútur og sum lögin beinlínis leiðinleg; miðjumoðsþunnildi og tros. Allflest lögin eru líka á sama miðju-tempóinu og þó Sóldögg tak- ist oft vel upp í hljóðrænni til- raunastarfsemi er sama sándið, sami söngurinn einum of gegnum- gangandi. Sóldögg minnir stundum á Ný dönsk, t.d. í „Konuilmur" og stundum á Sálina, sem er líka gjörn á að fá sáðlát í sínum viðlög- um. Textarnir eru mér með öllu óskijanlegir, ef þeir eiga að segja eitthvað eru þeir svona hyldjúpir en kannski er bara verið að breiða yfir innihaldsleysið með rímstífni og orðabókalestri. Umslagið er' einstaklega óspennandi, minnir á umbúöir utan um eldhúsrúllur. En hvað með það; það verður bara að spóla á milli góðu laganna og svo hella nóg í sig til að vera í stuði til að veifa flösku með af- ganginum. Gunnar Hjálmarsson PlayStation dagur í verslunum Skífunnar! Playstation leikjatölva m/DUAL-SHOCK aðeins 10.500 kr. 10% afsláttur af öllum fylgihlutum Laugardaginn 28. nóvember... S-K-IF-A-N Kringlan 525 5030 • Laugavegur 26 525 5042 27. nóvember 1998 f Ókus 11

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.