Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1998, Blaðsíða 27
Minning; Alan J. Pakula 1928-1998
Merkisberi
kvíða og
óöryggis
Bandariski kvikmyndaleik-
stjórinn Alan J. Pakula lést þann
19. nóvember siðastliðinn í um-
ferðarslysi, sjötugur að aldri.
Hann var fremstur meðal jafn-
ingja á því tímabili sem kallað
hefur verið „siðasta gullöld
Hollywood", frá lokum sjöunda
áratugarins fram á miðjan átt-
unda. Hér er visað í flokk mynda
sem áttu það sameiginlegt að
snúa ameríska draumnum á haus
og vera farvegur
kviða og óöryggis
bandarísks þjóð-
félags á tímum
Víetnamstríðs-
ins, morða á þjóð-
arleiðtogum og
pólitískrar spill-
ingar. Likt og
flestir leikstjórar
sem komust til
metorða á þessum tíma (Coppola,
Frankenheimer, Rafelson,
Friedkin, Polanski), gerði hann
sín bestu verk þá, en náði ekki að
halda í við breytta tíma þegar á
leið. Hans verður minnst fyrir
uppfinningu sérstaks bálks
(genre) kvikmynda sem kenndar
eru við tortryggni (the cinema of
paranoia) og meðal helstu verka
hans af þessum toga eru Klute
(1971), karakterstúdía um einka-
spæjara sem leitar að týndum
manni með Donald Sutherland
og Jane Fonda (hlaut óskar fyrir)
í aðalhlutverkum; The Parailax
View (1974), um blaðamann sem
reynir að grafast fyrir um morð á
þingmanni, með Warren Beatty
og All the President's Men (1976),
hin fræga saga af blaðamönnun-
um Woodward og Bernstein sem
uppgötvuðu maðka í mysu Hvíta
hússins á tímum Nixons, með
Dustin Hoffman og Robert Red-
ford. Pakula átti og ágætan sprett
í upphafi níunda áratugarins þeg-
ar hann gerði harmsöguna
Sophie’s Choice (1982), hvar
Meryl Streep átti stórleik í hlut-
verki fyrrverandi vistmanns í út-
rýmingarbúðum
nasista sem varð
að lifa með þeirri
ákvörðun að hafa
gert upp á milli
lífs og dauða
tveggja barna
sinna. Verk hans
síðan standast
ekki samanburð
við hin fyrri en
Presumed Innocent (1990), um lög-
fræðing (Harrison Ford) sem
þarf að hreinsa sig af morðákæru
var þokkaleg, sem og síðasta
mynd hans, The Devil's Own
(1997), um lögreglumann af írsk-
um ættum sem hýsir norður-irsk-
an hryðjuverkamann með hörmu-
legum afleiðingum, með Ford og
Brad Pitt.
Pakula var hófstilltur og fágað-
ur leikstjóri, með kaldhamraðan
stíl og gerði myndir innan
Hollywoodkerfisins sem, þegar
best lét, áttu brýnt erindi við
samtíma sinn. Hægt væri að gera
margt vitlausara en endurnýja
kynnin við þessar myndir.
Ásgrímur Sverrisson
b í ó
nsýningar
Svínið komið
tii borgarínnar
Þrjár kvikmyndir verða frum-
sýndar í Bandaríkjunum um helg-
ina, Babe: Pig in the City, Home
SFries og Very Bad Things.
Einhver óvæntasti smellur síð-
ustu ára í kvikmyndaheiminum
var Babe, þar sem aðalpersónan
var svín með metnaö. Það þótti
þvi sjálfsagt að búa til framhald
Iog nú er það að líta dagsins ljós. í
fyrri myndinni langaði svínið að
verða fjárhundur. Nú er Babe í
björgunarleiðangri með húsbónda
sínum í stórborginni þar sem gera
á tilraun til að bjarga búinu frá
gjaldþroti. Vinsældir fyrri mynd-
arinnar má að hluta rekja til þess
að Babe gat talað og ekki talar
hann minna í framhaldinu. Nú er
; aftur á móti nýjabrumið farið af
: svíninu og er ólíklegt að myndin
skáki vinsælustu kvikmyndunum
vestanhafs um þessar mundir,
Rugrats: The Movie og Enemy of
the State, en þó er aldrei að vita
hvað verður og má geta þess að
enginn hafði spáð Rugrats: The
Movie þeim miklu vinsældum
sem hún nýtur. Hinn hávaxni
James Cromwell leikur aftur
bóndann geðþekka og meöal
annarra leikara er sá gamal-
reyndi Mickey Rooney. Leik-
stjóri er Ástralinn George Mill-
er.
Svarta kómedían Very Bad
Things skartar Cameron Diaz í
aðalhlutverki. Leikur hún tilvon-
andi brúði sem bíður heima hjá
sér eftir væntanlegum eiginmanni
sem er í piparsveinapartíi. Allt fer
úrskeiðis í partíinu þegar vændis-
kona sem leigð var til skemmtun-
ar gestunum deyr. Vandræða-
gangurinn byrjar þegar einn gest-
anna ákveður að koma líkinu í
burtu í stað þess að kalla til lög-
regluna. Aðrir leikarar eru
Christian Slater, Jon Favreau
og Jeremy Piven.
Drew Barrymore leikur aðal-
hlutverkið í Home Fries, ófríska
veitingakonu sem verður skot-
mark morðingja sem telja að þeir
eigi harma að hefna í hennar
garð. Aðrir leikarar eru Luke
Wilson, Catherine O'Hara og
Jake Busey.
Laugarásbíó
Blade ★★★ Blade
eru vampýrurnar há-
tæknivæddar og
sjálfur er hann eins
hip nokkur vampýru-
bani getur veriö.
Sérstaklega er byij-
unin og fyrri hlutinn
vel heppnaður, en _______________
svo fer þetta einhvernveginn alit aö þynnast, en
þaö má vel skemmta sér hér, og meö fínum
splattersenum og góöum húmor, þá er hún
næstum þv! þriggja stjarna virði. -úd
The Truman Show ★★★ The Truman Show er
enn ein rós í hnappagat Peters Weirs. Hún er
ekki besta kvikmynd hans en á meöal þeirra
bestu, virkilega góö og áleitin kvikmynd sem
byggö er á snjallri hugmynd. Jim Carrey hefur
hingaö til tekist best upp í försum en sýnir hér
agaðan leik í erfiðu hlutverki þótt ekki veröi úr
nein snilld. -HK
Slldlng Doors ★★★
Regnboginn
There's Somethlng about Mary ★★★ Fjórir
lúðar eru ástfangnir af sömu Mary. Cameron
Diaz er í toppformi, Matt Dillon alveg ótrúlega
skemmtilegur sem slímugur einkaspæjari og
Ben Stiller er fæddur lúði. En nú er tími lúö-
anna og þrátt fyrir að
pólitlsk rétthugsun sé
þeim bræðrum eitur í
beinum er greinilegt að
ekki þykir nógu PC leng-
ur að láta lúöana tapa,
líkt og þeir gerðu I Dumb
and Dumber. Og á því
tapa þeir. -úd
Halloween: H20 ★★★ H20 er smart og
skemmtileg án þess aö vera þessi há-
paródíska hrollvekja sem Scream-myndirnar
eru. Hryllingurinn er allur meö nýju yfirbragði,
meiri áhersla lögö á kjark og þor í ómögulegum
aöstæöum og þrátt fyrir að blóðgusur og út-
limamissir séu enn til staðar þá nálgast myndá-
vélin slíkt á annan hátt en áður. Þetta eru hroll-
vekjur um og fyrir nútímaunglinga, fólk sem hef-
ur séö öll gömlu trikkin og heimtar ný -úd
Dr. Doolittle ★★★
Stjörnubíó
Dance wlth Me ★★ Titillinn segir okkur allt
sem segja þarf, hann segir okkur aö dansað
sé ! henni og að dansinum fýlgir rómantík.
Utan um þessi hugtök getur bæöi veriö auö-
velt og erfitt aö sníöa sögu, það fer bara eftir
þv! hvort ætlast er til aö áhorfandinn hugsi
eöa ekki. í Dance with Me er einfaldasta leiö-
in farin og best er að reyna aö loka fyrir heila-
sellurnar og láta ófrumlega og einfalda sö|li
fljóta út! tómiö og reyna aö njóta þess sem
gott er, það er aö segja dans og tónlist. -HK
meira átl
www.visir.is
27. nóvember 1998 f Ó k U S