Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1999, Qupperneq 4
24
MÁNUDAGUR 22. FEBRÚAR 1999
MÁNUDAGUR 22. FEBRÚAR 1999
25
íþróttir
Bland í poka
Gunnar Guðmundsson, sem lék með
Stjömunni í 1. deildinni í knatt-
spymu í fyrra, hefur verið ráðinn
þjálfari 3. deildarliðs Leiknis á Fá-
skrúðsfirði og leikur jafnframt með
liöinu. Gunnar hefur leikið með Val
og Víkingi í efstu deild og einnig
með HK og ÍK og liðum í Þýska-
landi.
Danska sjónvarpsstöðin TV3 hefur tryggt að
Norðurlandamót félagsliða kvenna í handknattleik fari
fram en karlakeppninni, sem fram átti að fara í
Danmörku um liðna helgi, var aflýst þar sem enginn
styrktaraðili fékkst. Kvennakeppnin verður i Larvik i
Noregi 26.-30. mars og þátttökuliðin verða Larvik,
Bækkelaget og Byásen frá Noregi, Ikast, Viborg og
Fredrikshavn frá Danmörku og Sávehof og Sávsjö
frá Sviþjóð.
Öllum leikjum sem fram áttu að fara í 2. deild
karla í handknattleik um helgina var frestað
vegna ófærðar. Völsungar frá Húsavík komust
ekki suður til að leika við Fylki og Fjölni og
Þórsarar komust ekki frá Akureyri til ísafjarðar
þar sem þeir áttu aö mæta Herði tvívegis.
Eyjamenn í knattspyrnunni halda áfram að vinna bikara. Á
KSÍ þinginu um helgina fengu þeir afhenta tvo slíka. Sem prúð-
asta liö úrvalsdeildarinnar siðastliðið sumar fékk ÍBV afhenta
Drago styttuna svokölluðu og þá fengu Eyjamenn bikar fyrir öflugt
kvennastarf í knattspymudeildinni á síðasta tímabili.
Aron Kristjánsson og félagar hans í Skjem steinlágu fyrir Vadrnn,
34-19, í dönsku A-deildinni í handknattleik í gær. Á sama tima töp-
uðu meistaramir í GOG fyrir Virum, 29-24. GOG er í efsta sætinu
með 27 stig, Skjem er með 24, FIF 23 og Virum 23.
Alþjóöa knattspyrnusambandið, FIFA, er að rannsaka enn frekar
bikarleik Arsenal og Shefileld United, sem eins og frægt er lauk með
2-1 sigri Arsenal. Eftir leikinn ákvað enska knattspymusambandið
að endurtaka leikinn, enda sigurmarkið skorað á mjög vafasaman
hátt. Búið var að setja leikinn á að nýju annað kvöld, en FIFA hefur
ekki gefið grænt ljós á það og þvi er ekki víst að leikurinn verði
spilaður á morgun.
Bandarikin unnu Chile, 2-1, i vináttulandsleik i knattspymu sem
fram fór í Fort Lauderdale á Flórída i gærkvöldi. Ben Olsen og
Eddie Lewis skomðu mörk Bandaríkjanna en Roberto Cartes gerði
mark Chile.
Porto er áfram efst i A-deildinni i Portúgal eftir 3-1 sigur á Alverca
i gærkvöldi. Porto er með 52 stig, Boavista 51 og Benfica 49.
Susan O’Neill frá Ástralíu náði í gærkvöldi þriðja besta tíma í 200
metra flugsundi frá upphafi þegar hún sigraði á heimsbikarmótinu
i Paris. O’Neill synti á 2:05,70 minútum en hún setti sjálf heimsmet
í greininni á miðvikudag, 2:05,37 mínútur, á móti i Malmö i Sviþjóð.
-GH/VS
B
Rúnar Alexandersson og Elva Rut Jónsdóttir leika listir sínar á bikarmótinu á laugardaginn.
Þau urðu stigahæstu einstaklingarnir á mótinu eins og við var að búast. DV-myndir ÞÖK
Bikarmót í fimleikum:
Björk og Gerpla sigurvegarar
Björk úr Hafnarflrði sigraði í
kvennaflokki á bikarmóti Fim-
leikasambands íslands í frjálsum
íþróttum í Laugardalshöllinni á
laugardag, og Gerpla úr Kópa-
vogi í karlaflokki. Þetta var
áttundi sigur Bjarkanna í
röð á þessu móti og þarf
vart að taka fram að það
er einsdæmi í íslenskri
fimleikasögu. Gerpla
sigraði i karla-
flokki í fimmta
skipti á síðustu
sex árum.
Mótið var það
fyrsta á ár-
inu í frjáls-
um æfing-
um og
virtist
undan vetri. Kannski eins gott,
því nú fer fimleikavertíðin af
stað fyrir alvöru.
Stúlkurnar í Björk fengu 95,222
stig en þrjár efstu einkunnir á
hverju áhaldi töldu til stiga.
Gróttustúlkur vermdu annað sætið
með 90,037 stig og Ármannsstúlkur
hlutu þriðja sætið með 85,498 stig.
Lið Bjarkar skipuðu Elva Rut Jóns-
dóttir, Tinna Þórðardóttir, Tanja B.
Jónsdóttir og Eva Þrastardóttir.
Elva Rut Jónsdóttir fékk flest stig,
34,550. Tinna Þórðardóttir kom næst
með 31,224 og þriðja varð Jóhanna Sig-
mundsdóttir úr Gróttu með 30,698 stig.
Sannfærandi hjá
Gerplustrákum
Gerplustrákarnir hlutu samtals
186,725 stig og unnu mjög sannfærandi
sigur á Ármenningum sem hlutu
177,025 stig. Fjórar hæstu einkunnir á
hverju áhaldi töldu til stiga í karla-
flokki.
Lið Gerplu skipuðu Rúnar Alexand-
ersson, Dýri Krist-
jánsson, Vikt-
or Krist-
mannsson,
Axel Ólaf-
ur Þór-
hannes-
ÞYSKALAND
Dutenhofen-Niederwtirzb. . 31-25
Radoncic 10/3, Baur 6, Scháfer 4 -
Lövgren 5, Schaaf 5, Dittert 4.
Nettelstedt-Gunnnersbach . 23-24
Mikulic 11, Lakenmacher 4 - Yoon 10,
Brajkovic 5, Beers 5.
Flensburg-Lemgo...........22-20
Christiansen 5/2, Bjærre 4, Lavrov 4
- Stephan 9/4, Zerbe 4.
Schutterwald-Kiel ........22-29
Kalarash 6/1, Szszucki 4, Bohn 4 -
Wislander 8, Perunicic 7, Jacobsen
5/1.
Magdeburg-Frankfurt .... 30-21
Ólafúr Stefánsson 12/7, Máuer 5/1,
Kervadec 4 - Immel 6, Torgovanov 4,
Steinke 4/1.
Wuppertal-Minden..........31-19
Rasch 6, Filippov 5/1, Valdimar
Grímsson 4/1 - Dujshebaev 6/1,
Kusilev 5.
Grosswallstadt-Essen......29-20
Jensen 9, Banfro 9, Richardson 4 -
Kállmann 8, Jovanovic 4/1.
Flensburg 20 15 3 2 562-457 33
Lemgo 20 15 0 5 502-435 30
Kiel 20 13 2 5 545-452 28
Grosswallst.21 11 2 8 553-519 24
Essen 22 10 3 9 523-518 23
Nettelstedt 22 10 3 9 530-558 23
Minden 21 10 2 9 507-511 22
Magdeburg 20 9 3 8 501-462 21
Niederw. 21 9 3 9 532-532 21
Gummersb. 22 9 2 11 545-596 20
Wuppertal 22 9 1 12 523-560 19
Eisenach 21 9 1 11 479-519 19
Frankfurt 22 7 4 11 520-545 18
Dutenhofen 22 7 1 14 504-526 15
B.Schwartau22 7 0 15 507-534 14
Schutterw. 22 5 0 17 481-590 10
mörk Olafs
Ólafur Stefánsson Vcir í aðalhlutverki hjá
Magdeburg í gær þegar liðið vann mjög örugg-
an sigur á Frankfurt, 30-21, í þýsku A-deildinni
í handknattleik. Ólafur skoraði 12 mörk í
ieiknum, þar af 7 úr vítaköstum.
Frammi fyrir 5.000 áhorfendum komst Mag-
deburg strax í 4-0 og var með yfirburðastöðu
allan tímann eftir það.
Wuppertal reif sig heldur betur upp og
gjörsigraði Minden, 31-19, i gær. Valdimar
Grímsson skoraði 4 marka Wuppertal, Dagur
Sigurðsson 3 og Geir Sveinsson 2. Þetta var
fyrsti sigurinn eftir að Stefan Schöne tók við
þjálfun Wuppertal af Viggó Sigurðssyni. Hjá
Minden eru Martin Frándesjö og Alexander
Tutschkin frá vegna meiðsla og án þeirra var
liðiö hvorki fugl né fiskur.
Sigurgöngu Essen lauk í gær þegar liðið
steinlá fyrir Grosswallstadt, 29-20. Páll Þórólfs-
son skoraði eitt mark fyrir Essen.
Flensburg vann toppslaginn
Flensburg vann Lemgo í uppgjöri topplið-
anna á laugardag, 22-20, og þykir nú líklegt til
að hampa þýska meistaratitlinum í fyrsta
skipti. Áhuginn í Flensburg, við dönsku landa-
mærin, er gífurlegur - enda eru Danir uppi-
staðan í liðinu. Uppselt var á leikinn, 3.500
manns voru í höllinni, og þegar er uppselt á þá
leiki sem liðið á eftir að spila á heimavelli.
„Þessi sigur er afar mikilvægur fyrir sjálfs-
sm
fim-
leika-
fólkið
. koma
k vel
son og
Jón
■rj ... ‘ j
DV. Kroatiu
Trausti Sæmundsson.
Rúnar Alexandersson fékk
52,900 stig, Dýri Kristjáns-
son 46,600 og Þórir Am-
ar Garðarsson, Ár-
■i manni, varð þriðji
með 45,500 stig.
m -AIÞ/VS
DV, Kroatiu:
. - *
Króatía-Island í undankeppni HM kvenna:
Annar
skellur
- góður lokakafli forðaði enn verra tapi
Islenska kvenna-
landsliðið í hand-
knattleik varð aftur
að sætta sig við stór-
tap gegn Króötum í
undankeppni HM, en
leikurinn fór fram í
borginni Slavonski
Brod í gær.
Seinni leikurinn virt-
ist ekki ætla að verða
betri en sá fyrri, en
Króatar unnu hann
31-18, eins og ffarn kom
í DV á laugardag. Sóknar-
leikur íslenska liðsins var
ekki nógu góður og Króatar
höfðu 10 marka forskot í
hálfleik, 17-7. í seinni hálfleik
juku þær króatísku forskotið
jafnt og þétt og náðu mest 16
marka forystu, 26-10. En þegar um
15 mínútur voru til leiksloka vökn-
uðu íslensku stelpurnar til lífsins og
kláruðu leikinn með sæmd, 30-20.
Leikurinn hófst með látum. íslenska
liðið skoraði fyrsta mark leiksins, en
KróatcU’ jöfhuðu jafnóðum og með dyggri
aðstoð ótrúlega slakra dómcira breyttu
þær stöðunni úr 2-2 í 9-2. Á þessum kafla
gerðust ótalmörg vafasöm atvik sem öll
lentu Króötum í
hag. Hið full-
komna órettlæti
átti sér síðan stað
þegar Króatar
„skoruðu" fimmta
mark sitt úr
hraðaupphlaupi -
en þá fór boltinn í
innanverða stöng-
ina og út aftur, en
dómaramir
dæmdu að boltinn
hefði farið inn fyr-
ir línuna. Undir- Inga Fríða Tryggvadóttir og
rituð var nær því Slavonski Brod í gær.
við marklínuna en
dómarinn sem
dæmdi markið gilt var enn úti á miðjum velli!
Ótrúleg dómgæsla, sem hvergi á að sjást, allra
síst í heimsmeistarakeppni. Við þetta riðlaðist
leikur íslensku stelpnanna og þær náðu ekki
að koma jafnvægi á leik sinn.
í leikhléi var staðan 17-7, og er til síðari
hálfleiks kom jókst forskotið, allt upp i 16
mörk, 26-10. En þá gerði Theodór Guðfmnsson
þá breytingu að setja Ágústu Bjömsdóttur inn
í stöðu leikstjómanda, Hrafnhildur Skúladótt-
ir hrökk í gang og vömin undir tryggri stjórn
Ingu Fríðu Tryggvadóttur tók sig saman í and-
litinu. Og það munadi heldur betur um það. Á
um 15 mínútna kafla minnkuðu Islensku stelp-
umar muninn um 6 mörk, skoraðu 7 mörk
gegn 1, og luku
leiknum eins og
fyrr var sagt
með sæmd.
En hvað sem
öllu líður átti
íslenska liðið
einfaldlega við
ofurefli að etja.
Króatísku leik-
mennirnir eru
þeim fremri á
flestum sviðum,
nema ef vera
Fanney Rúnarsdóttir léku vel í skyldi í mark-
vörslunni, þar
sem Fanney
Rúnarsdóttir
lagði þær að velli í báðum leikjunum.
Það sást þó í þessum leik að þegar íslenska
liðið nær að spila eins og það getur best þá
stenst það bestu liðum heims snúning. En sá
tími kom bara ekki í þessari ferð að íslenska
liðið næði að halda einbeitingu og aga í fullar
60 mínútur. Þegar það gerist verður kátt í
höllinni.
Inga Fríða Tryggvadóttir lék best í íslenska
liðinu. Hún var hreint frábær í vörninni, sér-
staklega í seinni hálfleik, og vann alveg gríð-
arlega vel í sóknarleiknum. Hrafnhildur
Skúladóttir átti mjög góðan leik í lok seinni
hálfleiks, auk þess sem Fanney Rúnarsdóttir
varði á köflum mjög vel. -ih
Liður vel
núna
traustið. Með
svona meðvindi
eigum við að geta
klárað dæmið,“
sagði Erik Veje
Rasmussen, þjálf-
ari Flensburg, eft-
ir leikinn.
Yoon, Suður-
Kóreumaðurinn
hávaxni, skoraði 8
mörk í seinni hálf-
leik, þai’ af sigur-
markið á lokaminút-
unni, þegar Gum-
mersbach vann góðan
útisigur á Nettelstedt,
23-24. Yoon gerði alls 10
mörk í leiknum.
Skellur hjá Willstátt
Gústaf Bjamason og félagar í
Willstatt fengu óvæntan skell á heima-
velli gegn HG Erlangen, 20-26, í B-deildinni.
Gústcif skoraði 3 mörk í leiknum.
Willstatt heldur þó forystunni því Dormagen
missti unninn leik gegn Friesenheim niður í
jafntefli í gærkvöld, 19-19. Dormagen var 15-19
yfir þegar 5 mínútur voru eftir. Róbert Sig-
hvatsson gerði eitt mark fyrir Dormagen.
Willstatt er á toppnum með 44 stig, Dor-
magen
er með 43,
Leutershausen
39 og Friesenheim 37.
Rúnar Sigti-yggsson og fé-
lagar í Göppingen töpuðu fyrir Leutershausen,
30-24, og era áfram í 6. sæti og Haraldur Þor-
varðarson og félagar í Dússeldorf töpuðu fyrir
Saarbrúcken, 18-23, og era áfram í 13. sæti.
-VS
„Við erum núna í efsta sæti í riðlin-
um og eigum aðeins eftir tvo leiki
gegn Rússum í mars, sem við ætlum
okkur að sjálfsögðu að vinna. Mér
líður vel núna, við höfúm náð mark-
I miði okkar að sigra í tveimur fyrstu
leikjum okkar. Undirbúningur okkar
fyrir þessa tvo leiki hefur verið mjög
góður og árangurinn hefur skilað sér.
Ég tel okkur eiga mjög góða möguleika
á því að vinna Rússana i leikjunum
tveimur sem eftir eru og að við munum
spila í úrslitum heimsmeistarakeppninn-
ar,“ sagði Zovko Zdravko, þjálfari króat-
íska landsliðsins, við DV eftir leikinn í
gær. -ih
Eivor meiddist
á æfingu
DV, Króatíu:
Eivor Pála Blöndal
meiddist á æfingu í
Króatíu á laugardag og
var flutt á sjúkrahús til
röntgenmyndatöku, þar
sem Kristján Ragnars-
son sjúkraþjálfari óttað-
ist að hún væri jafnvel
fótbrotin. Það fór þó bet-
ur en á horfðist, því að-
eins reyndist um slæmt
mar að ræða. Það var þó nóg til þess að hún tók
ekki þátt í seinni leiknum í gær.
Eivor lék sinn fyrsta landsleik í Osijek á
fostudagskvöldið. Samkvæmt venju fékk hún
væna „sturtuflengingu" hjá stöllum sínum í
landsliðinu eftir leikinn. -ih
Sagt eftir leikinn í Króatíu í gær:
„Gjörsamlega sleg-
in út af laginu“
DV, Króattu:
„Við ætluðum okkur að bæta fyr-
ir ófarirnar í fyrri leiknum og mér
fannst, eins og búið er að vera alla
ferðina, mjög góð stemning í hópn-
um og vilji fyrir því að gera góða
hluti," sagði Theodór Guðfinnsson
landsliðsþjálfari við DV, eftir tapið
gegn Króötum í Slavonski Brod í
gær.
„Það var góð stemning þegar við
mættum inn á völlinn. Við byrjum
líka leikinn ágætlega og eftir 5 mín-
útna leik er staðan jöfn 2-2. En síð-
an erum við gjörsamlega slegin út
af laginu af hræðilega slökum dóm-
urum leiksins, sem gerði það að
verkum að við áttum okkur ekki
viðreisnar von. Það var alveg sama
hvað við vorum að reyna að gera,
það vora raðningsdómar þvers og
krass allan fyrri hálfleikinn fyrir
ekki neitt.
Þetta hafði verulega slæm áhrif á
liðið, við urðum alltof „passív" í
sókninni og leikmenn þorðu ekki að
taka af skarið án þess að fá leyfi hjá
dómuranum. Að auki erum við að
klikka á auðveldum færum sem við
eram að skapa okkur.
Vamarleikur liðsins í fyrri hálf-
leik var heldur ekki nægilega
grimmur. Við náðum ágætlega að
stoppa gegnumbrotin, en á móti
fengum við skyttur þeirra í loftið
vel fyrir innan punktalínu, þar sem
þær ýmist settu boltann í netið eða
fengu vitaköst. Tíu marka munur i
hálfleik var alltof stór biti til að
kyngja.
Við byrjuðum ágætlega í síðari
hálfleik en svo færa dómaramir
þeim 3 mörk að gjöf og við vissum
hreinlega ekki hvaðan á okkur stóð
veðrið. Sóknarleikur okkar á þess-
um tíma var of „passívur" og ótíma-
bær skot langt utan að velli skiluðu
ekki tilætluðum árangri. Lykilleik-
menn, eins og Svava, Hrafnhildur,
Brynja og Ragnheiður, höfðu ekki
náð sér á strik. Svava og Hrafnhild-
ur komu aftur inn eftir góða hvíld á
bekknum og Ágústa kom inn fyrir
Brynju.
Við þessar breytingar var eins og
nýtt blóð kæmi í leikinn. Góð bar-
átta í vöminni og markviss sóknar-
leikur skilaði tilætluðum árangri og
liðið náði besta leikkafla sínum í
þessun tveimur leikjum," sagði
Theodór Guðfmnsson.
Niðurdrepandi
„Dómararnir byrjuðu strax á því
að dæma ruðning á okkur á fullu,
dæmdu síðan mark þar sem boltinn
var ekki einu sinni inni. Þetta var
hrikalega niðurdrepandi og gerði
það líka að verkum að sóknarmenn
urðu ekki eins ógnandi. Dómaram-
ir höfðu þannig mikil áhrif á gang
leiksins," sagði Hrafnhildur Skúla-
dóttir, markahæsti leikmaður is-
lenska liðsins, eftir leikinn.
Fúlt að vakna ekki fyrr
„í lokin skoraðum við sjö mörk
gegn einu hjá þeim. Með sömu bar-
áttu og síðustu 15 mínutumar hefð-
um við náð að stoppa þessar kerl-
ingar, bara með því að berjast. Það
er fúlt að hafa ekki náð að vakna
fyrr.
í fyrri halfleik vorum við að fá á
okkur dóma sem við erum ekki van-
ar. Við erum að komast í færi þar
sem ekkert er dæmt heima, en hér
var dæmdur ruðningur. Það var
ekki fyrr en við fórum að berja al-
mennilega á þeim að við fóram í
gang.
Þær börðu á manni inná línunni
allan tímann, í bakið og andlitið og
lömdu mann bara í gólfið. En þegar
við voram 16 mörkum undir og bún-
ar að spila mjög lélegan leik þá var
það alveg ljóst að við ætluðum ekki
að fara heim með buxurnar á hæl-
unum,“ sagði Inga Fríða Tryggva-
dóttir, besti leikmaður íslenska liðs-
ins í leiknum. -ih
íþróttir
1. riðill:
Krðatía-Ísland ...............31-18
Króatía-Ísland ...............30-20
Rússland 2 2 0 0 Króatía 2 2 0 0 ísland 4 0 0 4 58-37 4 61-38 4 75-119 0
2. riðill:
Portúgal-Slóvenía Slóvenía-Portúgal .... 25-23 .... 33-24
Portúgal 4 2 0 2 100-114 4 Makedónía 2 10 1 58-51 2 Slóvenía 2 1 0 1 56-49 2
3. riðill:
Svíþjóð-Litháen Litháen-Svíþjóð .... 31-20 .... 19-22
Svíþjóð 4 2 0 2 Holland 2 2 0 0 Litháen 2 0 0 2 96-85 4 46-43 4 39-53 0
4. riðill:
Slóvakia-Tékkland .... 28-21
Slóvakía 3 2 0 1 Júgóslavía 2 10 1 Tékkland 10 0 1 77-68 4 47—49 2 21-28 0
5. riðill:
Belgía-Hvíta-Rússland . . Belgia-Hvíta-Rússland . . .. . . 20-36 . . . . 16-40
Spánn 2 2 0 0 H-Rússland 2 2 0 0 Belgía 4 0 0 4 64- 29 4 76-36 4 65- 140 0
6. riðill:
Tyrkland-Frakkland .... . . . . 24-30
Úkraína 2 2 0 0 Frakkland 110 0 Tyrkland 3 0 0 3 65-54 4 30-24 2 78-95 0
7. riðill:
Grikkland-Búlgaría .... Búlgaría-Grikkland .... . . . . 30—41 . . . . 35-19
Rúmenía 2 2 0 0 Búlgaría 2 2 0 0 Grikkland 4 0 0 4 70-43 4 76-49 4 92-146 0
Lokakeppni HM fer fram í Noregi í desember. Sigurvegarar í riölunum sjö komast þangað. Þjóðir sem þegar
hafa tryggt sér sæti í lokakeppninni
eru: Noregur, Danmörk, Austurriki,
Ungverjaland, Þýskaland, Pólland,
Angóla, Kongó, Fílabeinsströndin,
Ástralia, Kína, Japan, Suður-Kórea
og Norður-Kórea. Síðan bætast við
þrjú lið frá Ameríku.
Holland stendur mjög vel að vigi i 3.
riöli og þarf aðeins eitt stig i tveimur
leikjum við Litháen til að komaast á
HM. í öllum hinum Evrópuriðlunum
er um tvisýna keppni að ræða.
Króatía (16) 30
Ísíand (7) 20
0-1, 2-2, 9-2, 14-3, 15-4, (16-7), 18-8,
22-8, 24-9, 26-10, 28-12, 29-13, 29-17,
30-20.
Mörk Króatlu: Bubalo 8, Raguz
6/6, Horacek 4, Damjanic 3, Petika 3,
Namaskalo 3, Boibanovic 1, Koljanin
1, Celina 1.
Varin skot: Galinka 7/2, Maljko 6.
Mörk íslands: Hrafnhildur Skúla-
dóttir 7/2, Ágústa Björnsdóttir 4, Inga
Fríða Tryggvadóttir 2, Ragnheiður
Stephensen 2, Svava Sigurðardóttir 2,
Guðmunda Kristjánsdóttir 1, Harpa
Melsted 1, Gerður Beta Jóhannsdóttir
1.
Varin skot: Fanney Rúnarsdóttir
13, Hugrún Þorsteinsdóttir 1.
Brottvísanir: Króatía 4 mín., ís-
land 10 min.
Dómarar: Vladimir Jovic og Ali-
ja Hasic, ekki boðlegir og enn verri
en í fyrri leiknum.
Áhorfendur: Um 600.
Maður leiksins: Inga Frlða
Tryggvadottir.
Króatar unnu leikina tvo gegn ís-
landi með samanlagt 23 mörkum og
skákuðu því Rússum sem unnu ís-
land með samanlagt 21 marki. Þetta
ræður úrslitum ef markatala liðanna
verður jöfn eftir innbyrðis leiki
þeirra.
Systurnar Dagný og Hrafnhildur
Skúladœtur léku saman með lands-
liðinu í gær. Dagný hvíldi i fyrri
leiknum á fóstudaginn.