Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1999, Qupperneq 3
e f n i
'^UAhjkiu
lllugi og Vera
Sóley með Gretti
og Pésa B.
Kisls. B-ið stend-
ur fyrir Blöndal
en lllugi er ekk-
ert að flagga
því um of.
Annar kötturinn
r
Það er fátt hollara fyrir heilbrigt
fólk en að skreppa til útlanda
a.m.k. þrisvar á ári. Alveg sama
hvert, því lets feis it: fsland er frek-
ar takmarkað til lengdar. Útlönd
eru svo sem alveg eins og ísland, i
grunninn séð, en það er einhver
áferðarmunur sem gott er að velta
sér upp úr í nokkrar vikur. Svo
þegar komið er heim má andvarpa
að hér sé nú alltaf best og svo er
líka alltaf eitthvað smávegis búið
að breytast, kannski komið nýtt
skilti í Austurstræti eða ný eftir-
litsmyndavél.
Svokallaöir „flæerar" eða dreifl-
bleðlar eru langtum betri aðferð til
að auglýsa uppákomur en þessi
leiðinlegu piaköt sem hanga í
henglum út um allt og ekki nokkur
maður les á. í dreifingu flæers
verður að vera hresst fólk sem
kemur flæernum upp á réttan
markhóp. Fáir eru betri í starfinu
en hr. Örlygur og vinir hans. Þetta
er persónulegasta auglýsingaher-
ferð sem hugsast getur og bara von-
andi að bílaumboð og lífeyrissjóðir
fari ekki að nota þessa leið.
Allir vita að best er að vakna
snemma og vera einn með máfun-
um þegar borgin fer á stjá. Morgun-
hanar hafa ekki í
mörg hús að
venda, en án
efa er Grái
kötturinn
þeirra gæfu-
legasta skjól.
Þar er greið-
vikni gengilbeina
til fyrirmyndar og
snarl og kaffl í heimsklassa. Jafn-
vel þegar kafflvélin fer í viðgerð er
boðið upp á betra almúgakaffl en
annars staöar.
Alveg í hina áttina er Kafflvagn-
inn við Granda með kaffi fyrir al-
vöru fólk og engar latar spirur.
Gott ráð fyrir veruleikafirrta er að
sitjast niður með hörkutólunum
þar, fá sér kaffi og með þvf; oftast
brauð með einhverju í majónesi. Sá
firrti á svo að hlusta á stjórnmála-
umræður jaxlanna þangað til hann
finnur réttast út bakinu og hárin
spretta úr eyrunum.
„Við eigum tvo ketti núna,“ segir
Illugi Jökulsson kattaeigandi, að-
spurður einmitt hve marga ketti
hann eigi. „Þetta eru tveir strákar
og annar þeirra heitir Grettir en sá
yngri Pési B. Kisis og það verður að
taka það skýrt fram að hann er í
einkaeigu dóttur minnar."
Fyrir hvað stendur béið?
„Það stendur fyrir Blöndal en
maður heldur því ekki hátt á lofti,“
segir Illugi og það vottar fyrir háði í
röddinni.
Hefurðu alltaf átt ketti?
„Já. Eða frá því ég var átta ára, þá
flutti ég í vesturbæinn og við feng-
um okkur kött. Þetta var væn og góð
læða sem hét Trilla og ég hef átt
ketti alla tíð síðan. Þeir eru núna
orðnir það margir að ég hef enga
tölu á þeim.“
Það er greinilegt að hér er um ein-
hvers konar lífstíl eða fikn að ræða.
Þeir sem eiga ketti hætta yfirleitt
aldrei að eiga ketti. Það er frekar að
hundaeigendur fái nóg og gefist upp
á hundaeigninni. Það fylgjir því líka
viss mistík að eiga kött. Hann er svo
frjáls og villtur og út frá því mynd-
ast goðsagnir og kötturinn verður
allt í einu að eina sjálfstæða einstak-
lingnum í landinu. Ekki samt frjáls
fangi eins og Bjartur í Sumarhúsum
heldur meira svona eins og víking-
arnir Leifur Eirlksson og félagar.
Kötturinn er landkönnuður og lifir í
algerum anarkisma.
Þú býrð í miöbœnum, eiga ekki all-
ir kisur í miðbœnum?
„í þessum gömlu hverfum er
svoldið mikið af köttum. Hér í hús-
unum í kring er mjög fjörlegt sam-
kvæmislíf, ekki síður en á börunum.
Þetta er afskaplega skemmtileg borg,
þessi neðanjarðarkattaborg."
Þaö grasserar þá kannski einhver
skyldleikarœktun þarna?
„Grettir er móðurbróðir Pésa. Móö-
ir hans hvarf fyrir ekki ýkja löngu og
síðan höfum við bara verið með þess
tvo heiðursketti," segir Illugi.
Hata kattavinir hundaeigendur?
„Ég átti nú reyndar hund þegar ég
var pínulítill,“ segir Illugi og flissar.
„En ég hef svosem engan áhuga á
þeim dýrum. Ég átti að vísu einu
sinni, þegar ég bjó úti á Nesi, tvo
ketti sem hétu Hundur og Loðhund-
ur en mér hélst ekki vel á þeim.“
Ætlaróu að skrá kisurnar þínar ef
yfirvöldin segja þér að gera það?
„Já. Þá náttúrlega geri ég það. Ég
hef svosem ekkert á móti þvi að skrá
þær og bólusetja, svo lengi sem það
bannar þeim enginn að ganga laus-
um,“ segir Illugi og við kveðjum.
Erum kannski einhverju nær um
hvað það er að vera kattaeigandi. Og
þó, kannski er þetta of mikil mistík
og eitthvað sem enginn mun skilja
nema hann hafi átt ketti í tugi ára.
-MT
Platters eru að koma í bæinn en...
Quð má vita hvaða fólk það er
Um helgina munu The Platters
syngja Only You, The Great Pret-
ender og öll gömlu, góðu lögin sem
söngsveitin sló í gegn með fyrir 44
árum sléttum. Gallinn er hins vegar
sá að þótt ljóst sé að það eru The
Platters sem syngja þá veit í raun
enginn hvaða fólk þetta er. Af fimm
upprunalegum félögum eru þrír
dánir og hinir löngu hættir. Og á
þessum áratugum hafa fjölmargar
söngsveitir kallað sig The Platters
og ógrynni af söngvurum sungið
Only You, The Great Pretender og
öll gömlu, góðu lögin. Ástæðan fyr-
ir þessari undarlegu stöðu er sú að
eftir að fór að kvarnast úr flokknum
og einstakir meðlimir að stofna sína
The Platters eins og þau voru upp á
sitt besta.
The Platters en dálítið öðruvísi fólk.
sérstöku Platters-hópa reyndu þeir
sem eftir sátu að fá einhvers konar
einkarétt á nafninu. En það tókst
ekki. Þess vegna er allur þessi her-
skari söngvara á ferð um heiminn
og allir undir nafni Platters.
En hvað er að því? Svo sem ekk-
ert. Um hverja helgi er hægt að
bregða sér á Broadway og hlusta á
íslenskar söngkonur þykjast vera
Aretha Franklin eða Frida og
Annetta í Abba. Og á fimmtudag-
inn næsta ætla Stebbi Hilmars og
Eyjólfur Kristjáns báðir að vera
Paul Simon á Borginni. Og á
hverju kvöldi er einhver sem vill
vera Elvis í karokeinu í Ölveri. „Ég
er ekki ég, ég er annar“, botnaði
Megas annað skáld á sínum tíma og
það er einkunnarorð dagsins. Ef þér
hefur ekki gengið vel að vera þú
vertu þá annar sem hefur staðið sig
betur.
Og þetta á ekki bara við um popp-
ið. Ungir sjálfstæðismenn hafa til
dæmis löngum þóst vera eins konar
framhaldssnúra af John Stuart
Mill og fleiri góðum mönnum á síð-
ustu öld, þrátt fyrir að þeir eigi
ákaflega fátt sameiginlegt með
þeim. Hálfskrýtnir menn í Reykja-
vík gáfu út tímarit undir nafni
Fjölnis fyrir fáum árum og virtust
ekki skammast sin fyrir leggjast í
ból Jónasar. Davíð Oddsson þreyt-
ist ekki á því að líkja sér við Ólaf
Thors og íslenskir rithöfundar
The Platters enn og enn nýtt fólk.
Hljómsveitin The Platters er orðln
nánast óþekkjanleg.
biðja þess á hverju kvöldi aö á
morgun verði þeir kallaðir hinn nýi
Laxness.
Og hverjum er ekki sama? Úr því
að Laxness er dáinn, eigum við þá
ekki bara að fá okkur nýjan? Væri
ekki huggulegt ef ríkisstjóm Ólafs
Thors væri enn að störfum þótt
akkúrat þeir einstaklingar sem
voru upphaflega í henni væru fam-
ir? Og er ekki ágætt að Stebbi og
Eyfi þykist vera Paul Simon eitt
kvöld? Hann mun líklega aldrei
koma hingað - eigum við þá ekki að
láta bara eins og hann sé kominn,
búi í Smárahverfmu í Kópavogin-
um og syngi reglulega á Borginni.
Lárus Ingi
Magnússon:
Burstaði
Pál Ósk-
ar og
Móu í
söngvara
keppni
39 atriði sem gera
Island að smáþjóð:
Forsætisráðherrann
opnaði fyrsta
McDonald’s-staðinn á
, landinu
ym 5
*
Ættartré leikara:
Ingvar E., afi
Benna Erlings
Guðrún
Jóhanna
Ólafsdóttir:
Leikur og
syngur18
ára pilt í
Leðurblök-
unni 7
Hverjar eru þær?
Þrír karlar lesa í fimm konur
8-9
Siglingakort
12-13 sund-
mannsins:
Hvar er best að
vera, sætustu
stelpurnar og
frægasta fólkið?
John Travolta:
Berst fyrir réttlæti í
gjörspilltu dómskerfi
Lífid eftir vinnu
m m m m æt m m
liiCSS
i Borginni
Paul Slmori
stúta gítarnum
Thomsen
skít i Stefgjöldir|7_22
Fókus
fylgir DV á
föstudögum
Forsíðumyndina tók Hilmar Þór
af Guðrúnu Jóhönnu Ólafsdóttur.
9. april 1999 f Ókus
3