Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1999, Síða 7
að ég geti nýtt þetta tækifæri al-
mennilega," segir Guðrún.
Misheppnaða tilraun sína til að
komast inn í Leiklistarskólann segir
Guðrún hafa verið lukkuspor fyrir sig.
„Þá ákvað ég endanlega, eftir mikl-
ar vangaveltur, að taka sönginn fram
yfir leiklistina. Ég sé ekki eftir því.
Óperan er djúp, flókin og krefjandi,
karaktersköpunin stórfengleg og
Dugleg o<
skemmtile
stúlka
sömuleiðis túlkun á tilfinningum.
Allt er svo spennandi í óperunni og
leiklist og söngur sameinast þar,“
segir Guðrún.
Vinnur með þeim fremstu
Aðrir leikarar og söngvarar i Leð-
urblökunni eru ekki af verri endan-
um enda um mikla og merkilega upp-
færslu að ræða. Þar verða meðal ann-
ars Sigrún Hjálmtýsdóttir, Bergþór
Pálsson, Loftur Erlingsson, Hrafn-
hildur Björnsdóttir og Edda Björg-
vinsdóttir sem fer með frægt gaman-
hlutverk fangavarðar í verkinu.
Þegar Guðrún er spurð hvemig sé
að vinna með þessum fremstu söngv-
urum landsins, segir hún:
„Það er frábært. Þetta eru hetjum-
ar í landinu."
færslur. Sögusvið Leðurblökunnar
hefur verið heimfært upp á samtím-
ann og spannar einn sólarhring í lífi
nokkurra íbúa Reykjavíkur sem lifa
bæði hratt og hátt. Guðrún leikur
átján ára pilt sem heitir Orlovskí en
það hlutverk hefur nær alltaf verið í
höndum kvenmanns síðan verkið var
fyrst frumsýnt, árið 1874.
Guðrún er búin með sex stig í söng-
námi hjá Rut Magnússon í Tónlist-
arskólanum í Reykjavík. Hún ætlar
að taka tvö stig í viðbót og fara svo til
útlanda í meira nám. Það þykir nokk-
uð óvenjulegt að bjóðast hlutverk svo
snemma, flestir hafa lokið námi þeg-
ar þeir fá fyrsta hlutverkið sitt. Vinir
Guðrúnar segja að hún hafi fengið
hlutverkið af því að hún sé framúr-
skarandi söngkona og upprennandi
stjama, langbest og frábæmst. Kenn-
arinn hennar var spurður hvort þetta
væri rétt.
„Guðrún hefur gifurlega margt til
að bera, flna rödd, mikinn áhuga og
svo er hún músíkölsk, dugleg og
skemmtileg stúlka. Það er hins vegar
aldrei hægt að segja hver verður
stjama og hver ekki, það verður bara
að koma í ljós. Tækifærið sem Guð-
rún fékk núna er gott en það er að-
eins eitt skref á langri leið,“ segir Rut
Magnússon.
Lukkusporið
Sjálf er Guðrún hógvær og segist
bara hafa verið rétt manneskja á rétt-
um tíma.
„í þessu hlutverki er oftast kona,
messósópran. Mér var boðið að koma
í prufu og í kjölfarið fékk ég hlutverk-
ið. Ég er ung og með rétt raddsvið í
þetta. Það er allt og sumt.“
Aö fá þetta hlutverk hlýtur aö vera
ómetanlegt tœkifœri fyrir þig og öf-
undsvert?
„Já, en það er líka mikil áhætta
fyrir mig að syngja strax á sviði. Ég
er enn að læra og röddin á eftir að
þroskast meira. En ég vona nú samt
Þegar Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir var fimmtán
ára fór hún í söngtíma á Akureyri og komst
að því að hún hafði rödd eins og óperu-
söngkonur eru með. Hún hætti hið
snarasta enda skildi hún hvorki upp
né niður í óperum og fannst þær
tilgerðarlegar. Þá vissi hún ekki,
og hefði líklega svarið fyrir,
að sex árum síðar myndi
hún standa á sviði
íslensku óperunnar
og syngja í Leður-
blökunni, óperettu
eftir Jóhann
Strauss yngri.
Guðrúnu langaði alltaf til að verða
leikkona og taka þátt í söngleikjum.
Hún er leikhúsbam, mamma hennar
var einu sinni leikhússtjóri Leikfé-
lags Akureyrar og leikhúsritari Þjóð-
leikhússins og systir hennar er leik-
stjóri þannig að leikhúsin hafa alltaf
verið henni sjálfsagður hlutur. Sjálf
lék hún í nokkrum leikritum sem
bam, til dæmis í Óvitunum, Haust-
brúði og Línu langsokk og var auk
þess formaður Leikfélags Mennta-
skólans við Hamrahlíð i tvö ár. Hún
tók líka þátt í að stofna Leikskólann,
sem er eins konar áhugamannaleikfé-
lag, og Ljóshærðu kennslukonuna
sem setti upp Sköllóttu söngkonuna
en úr þeim hópi era þrír famir i leik-
listarskóla. Guðrún reyndi líka að
komast inn í Leiklistarskólann en
það gekk ekki.
Hvaö varö til þess aö þér hœtti að
finnast óperur tilgeröarlegar?
„Ég sá óperar alltaf með augum
leikhúsmanneskjunnar en það breytt-
ist þegar ég fór að hlusta betiu- á þær
og upplifa þær frekar sem tónlist
heldur en leiklist. Einu sinni hlustaði
ég til dæmis á geisladiskinn Mozart
Portraits með Ceciliu Bartoli og þá
gerðist eitthvað. Ég gjörsamlega heill-
aðist. Stuttu síðar, árið 1996, var ég
svo stödd á Listahátíð þar sem ég
hlustaði á óperatónleika með fjórum
stórsöngvurum. Ég horfði á þetta með
tárin í augunum og var í einhvers
konar transi. Síðan hef ég verið sann-
færð um að óperan sé það listform
sem mér flnnst mest spennandi," seg-
ir Guðrún.
Leikur piit
Leðurblakan er vinsælasta óperetta
í heimi. Fyrir þá sem ekki þekkja
muninn á óperettu og ópera má geta
þess að í óperettum er líka talað mál
og gjarnan léttara yflrbragð. Leikstjóri
Leðurblökunnar er David Freeman,
heimskunnur leikhús- og óperumaður
sem þekktur er fyrir opinskáar upp-
bíður þín!
Þú þarft hvorki að vera Ríkur og undarlegur (1932)
að eiga erindi í Bóksölu stúdenta. Hvort sem þú ert Ungur
og saklaus (1937), lllræmdur (1946) eða Brjálæðingur (1960)
þá tökum við vel á móti þér. Maðurinn sem vissi of mikið
(1956) og Rangi maðurinn (1956) hafa aldrei sést hér innan dyra.
Þó 39 þrep (1935) liggi upp á efri hæðina hjá okkur, hefur Lofthræðsla
(1958) ekki hrjáð viðskiptavini okkar og Sviðsskrekkur (1950) er óþekktur.
Ég játa (1953) að einstaka Dama hverfur (1938) ofan í bækurnar eins
og í álögum (1945) sé, og hef Grunsemdir (1941) um að það sé Ráðabrugg
fjölskyldunnar (1976) að leggjast í viðskipti við okkur. Því við eigum Án
nokkurs vafa (1943) bækur fyrir alla hópa, hvort sem þú vilt lesa um
Fuglana (1963) eða fræðast um Topaz (1969) eða aðra eðalsteina.
Hringdu í M fyrir morð (1954) en í síma 5700 777 ef þú vilt ná sambandi
við sérpöntunarþjónustu okkar, sem er Björgunarbáturinn (1944) sem
aldrei bregst. Þú getur líka pantað bækur beint af heimasíðunni
www.boksala.is.
Við erum til húsa í Stúdentaheimilinu við Hringbraut, Norð-norð vestur
(1959) af Norræna húsinu.
bók/fcl*. /túdervtð.
-hörkuspennandi verslun!
9. apríl 1999 f ÓkUS
7