Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1999, Side 13
Það er ekki sama hvar menn stinga niður fæti í sundlaugum höfuðborgarinnar.
Þær eru hver með sínu sniði og eiga margar hverjar fátt annað sameiginlegt en
vatnið sem synt er í. En í Reykjavík er sundstaður meira en laug með vatni.
Sundstaður er samkomustaður þar sem menn ráða ráðum sínum, slaka á, bindast
vináttuböndum og gera upp sakir - en koma alltaf upp úr betri menn en fóru ofan
Menn velja sér laug og eru henni jafn trúir og eiginkonunni eða stjórnmálaflokknum
sínum. Að skipta um laug er eins og að halda fram hjá - þess vegna er gott
að hafa siglingakortið við höndina þegar farið er í skýluna...
akorl
+
Sundlaugarnar I Laugardal
....eru hin eina sanna almenningslaug í höfuðborginni. Þar ægir saman alls kyns fólki og erfitt að henda reiður á hver
er hvað. Eitt er'þó víst: Ef leigubílstjóri fer í sund þá fer hann f Laugardalslaugina.
Viðmót starfsfólks er stofnanalegt enda umferðin of mikil til að hægt sé að mynda persónulegt samband gesta og
starfsmanna. Sturtur eru margar og sæmilegar en fáir hafa lifað þar unaðsstundir. Aðstaða til raksturs karimanna er
slæm þvf speglar og vaskar eru staösettir á miðju salerni þar sem gólf er blautt. Teygjuband vantar f skápalykla en
þess í stað eru ofin tauarmbönd sem erfitt er að festa á
handleggi. Þá eru bekkir við skápa hannaðir þannig að
erfitt er að klæða sig f sokka þar sitjandi.
Kostir Laugardalslaugarinnar felast í stærðinni. Laugin er
breið og fimmtíu metra löng. Þverhníþtir bakkar mynda
öldugang sem gerir það að verkum að taka verður á við
sund. Þá státar Laugardalslaugin af stærstu rennibraut í
höfuðborginni sem veitir öllum aldurshópum ánægju. Góð
vigt er á staðnum og sýnir rétta þyngd. Hárbiásari á vegg er
hins vegar sniðinn fyrir dvergvaxna. Laugardalslaugin er fyrst
og sfðast sundstaður - ekki samkomustaður.
BBSHDQHI
0E30
Grafarvogslaug
Jpfjg
Grafarvogslaug....er nýjasta sundlaug höf-
uðborgarinnar og geislar af nýjabrumi. Efni
og stfll laugarinnar á margt sameiginlegt
með Árbæjarlauginni þó allt sé minna f
sniðum. I lofti sturtuklefa er steint gler
sem hleypir inn dagsbirtu en sturturnar
sjálfar eru veigaiitlar. Auk 25 metra laugar
er skeifulega nuddpottur auk tveggja ann-
arra f klassfskum stfl. Þá er vaðlaug fyrir
börnin. Innilaug er notuð til sundkennslu
og veitingar í Árbæjarstíl f anddyri. Fyrst
sundlauga hefur Grafarvogslaug komið
upp pissuskál í drengjahæð við hlið hinna
I fullorðinsstærð Hefur sjálfsagöur draum-
ur margra þar með ræst eftir langa bið.
Snyrtiaöstaða er til fyrirmyndar f karlasal
og geta menn ráðið hvort þeir snyrta sig
standandi við langborð og spegil eða sitj-
andi við borö meö tvær gerðir hárþurrka
til sitt hvorrar handar. Sæti við skápa eru aftur á móti
laus og fara auðveldlega á hreyfingu. Gæti það skapað
slysahættu. Gestir laugarinnar eru að stærstum hluta
ungt barnafólk sem er að koma undir sig fótunum. Gæt-
ir þess mjög I samræðum I pottum.
Með tíö og tima gæti Grafarvogslaug orðið eins og vin f
eyðimörk, séstaklega þegar litlu hríslurnar sem gróður-
settar hafa verið umhverfis laugina hafa náð þokkalegri
hæð og afmarkað svæðið sem í sjálfu sér er allt of lítið.
mannsins
Selljarnameslaugin
Sundhöllin vi
Vesturbæjarlaug
....má muna sinn fífil fegri. Eitt sinn á topþnum en hefur ekki fylgt timanum og fastagestir
sem gáfu lauginni virðingarstimpil eru nú annað hvort hættir að synda eða gleymdir. For-
stöðumenn laugarinnar hafa sofnað á verðinum.
Aöstaöa í búnings- og sturtuklefum er aftur á móti með ágætum og þar líður fólki vel. Þó
jaðrar við að baöveröir séu of sérvitrir og heimarfkir. Tveir útipottar eru löngu landsfrægir og
þá sérstaklega sá heitari sem ekki er ætlaður konum. Ekkert gufubaö er úti við
og er það helsti ókostur
laugarinnar sem auövelt
ætti að vera að ráða
bót á. Gufubað inni við
er frátekið fyrir samkyn-
hneigða og ágætt sem
slfkt. Stór, grasivaxin lóð
er ekki nýtt sem skyldi
en býöur upp á margs
konar möguleika til
stækkunar og veitinga-
sölu. Vigt mjög fyrirferðar-
mikil og rangt stillt. Vest-
urbæjarlaugin er staður
þeirra sem hafa misst af
lestinni en vita það ekki.
7
..er notalegur staður með tölu-
verða sérstöðu. Fyrir það fyrsta er
saltvatn f lauginni sem gerir það
að verkum að auðveldara er að
synda lengri vegalengdir og gestirn-
ir eru undantekningarlftið með há-
skólapróf. Fyrir bragöið veröa um-
ræður í heitu pottunum oft einok-
aðar af þeim sem mestrar virðing-
ar njóta og hafa þörf fyrir að láta
Ijós sitt skfna. í lauginni geta
menn veriö nokkuö vissir um aö
hitta að minnsta kosti einn bisk-
up, rithöfund, tónskáld eða vell-
auðugan athafnamann sem vill
vera f félagsskap þeirra.
Viðmót starfsfólks er mjög gott
og leggur það mikið upp úr þrifnaði. Einhver innbyggður galii er þó í sturtum sem veldur
þvf að erfitt er að stilla rétt hitastig. Skrúfa þarf frá minnst þremur sturtum til aö fá almennilega
heitt vatn úr sturtuhausunum sem auk þess eru óþarflega litlir. Útigufubað er notalegt á góðum
degi en í slæmu veðri myndast trekkur undir hurð sem kælir allt baðið. Plastsæti I gufubaöi eru of
veikburða og þola vart sundlaugargesti f þyngri kantinum.
Laugin er barnavæn því vatnið I henni er hlýrra en f öörum laugum auk þess sem aðgangseyrir fyrir
börn er aöeins 30 krónur. Vigt er aldrei rétt stillt og sýnir of mikla þyngd. Að öllu samanlögðu er
Seltjarnarneslaugin toppstaður sem dregur aö fólk langt út fýrir bæjarmörk Seltjarnarness.
SSSSBBilSHEB
gjBBÉMHEÐ
....er ein fallegasta bygging Reykjavfkur og byggingafræðilegt und-
ur þrátt fyrir háan aldur. Að kvöldi dags getur vart að ifta fallegri
sjón en uppljómaða glugga Sundhallarinnar og gufustróka sem
stfga til himins. Útlendingar í skemmtanaleit hafa oft reynt að
ráðast til inngöngu í Sundhöllina eftir lokun þvf yfirbragðið minnir
á risaskemmtistað í hjarta stórborgar.
Margt starfsfólk Sundhallarinnar hefur unnið þar of lengi og ekki
verið sent á gæðastjórnunarnámskeið. Aöspurt hvenær lokaö
sé svarar það þvf til að rekið sé upp úr klukkan hitt og þetta;
arfur frá gamalli tfð þegar fólk var rekið upp úr lauginni þegar
það var komið með rúsfnufingur.
Helstu kostir laugarinnar eru tvö mishá stökkbretti sem þvf
miður eru ekki alltaf nýtt sem skyldi vegna umferðar sundfólks
á námskeiðum og svo þægilegir pottar á verönd þar sem hitta
má margan furöufuglinn. Á morgnana er hægt að sitja f þottunum
meö ráöherrum og eldri fegurðardrottningum en sfðdegis eru menn heppnir ef þeir hitta á Jún Múla f stuði.
Þá er Islandssagan sögð f stuttu máli; útgáfa sem aldrei hefur heyrst áöur. Og hún er breytileg eftir þvf hvernig liggur á Jóni Múla. Aðrir
almennari gestir eru þó úr undir- eða lægri millistétt og f pottunum tala þeir stöðugt út i loftið eða þeg'a alveg. Þetta er galli.
Sturtuhausar I Sundhöllinni eru af gömlu gerðinni, stórir og miklir og gefa góða bunu. Sturtuferö f Sundhöllina er alveg peninganna virði
þó ekki væri annaö. Hins vegar er leiðinlegt aö synda f sjálfri lauginni því klórbragð og lykt af vatni er ekki frískandi.
Búningsaðstaða er ævintýraleg þvi f Sundhöllinni hefur arkitektinn, Guðjón Samúelsson, búið til völdundarhús sem börn eiga auðvelt
með að villast I. Ráölegra er að panta sér fataskáp f fremri almenningi sem upphaflega var ætlaður börnum. Tvær vigtir eru á staðnum,
tölvuvigt og lóðavigt og báöar f lagi. Sundhöllin er undraheimur f ýmsum skilningi en þarfnast endurbóta og lagfæringa hið bráðasta.
ussannn
áéMk
mt Wm
■
a BBBDOB @®@@nn
SnSBEB^i
/
□00
Breiðholtslaug
...ber nafn með rentu og er I
raun spegilmynd nánasta um-
hverfis. Þarna er ekki íburöi
fýrir að fara og stefnan að
þjóna sem flestum á sem ör-
uggastan hátt. Fataskápar
eru engir og klæða menn sig
f og úr I snyrtilegum almenn-
ingi. Stæðilegur vörður sér
sfðan um að gæta fatnaðar á
meðan gestir synda. Sturtu-
klefar, salerni og þurrk-
aðstaða er löðrandi f bleytu
á gólfi og raksturaðstaða
nær engin. Sundlaugin sjálf
er ágæt og pottar mjög góð-
ir, sérstaklega nuddpottur sem hefurverið
endurskapaður í nýrri Grafarvogslaug. Eimbað er f aflöngum klefa og
bersýni-lega troðið f hólf sem ætlaö var til annars.
Gestir eru undantekningarlftið skemmtilegt og Iffsglatt fólk sem deilir skoðunum á þjóðmálum og er sam-
mála um það sem betur má fara. Þarna er töluö kjarnyrt íslenska og fílefldir karlmenn myndu ekki hika við
að kaffæra fjármálaráðherra léti hann sjá sig í lauginni. Hemmi Gunn yrði hins vegar tolleraður.
Breiðholtslaugin er hrá tilbreyting f sundlaugaflórunni og skemmtileg tilbreyting fýrir þá sem sjaldan fara
austur fýrir læk.
Árbæjariaugin
....er paradfs fjölskyldunnar og afdrep húsbyggienda f úthverfum borgarinnar. Þar hlægja börn og hrópa og
umræöuefnið f pottunum er oftar en ekki verð á fasteignum og kostir þess að skipta úr raðhúsi yfir í einbýlis-
hús. Laugin nýtur þess enn að vera ný af nálinni og snyrtimennska er þar með þvf besta sem þekkist f laug-
um borgarinnar. Framkoma starfsfólks er Ifk þeirri sem kennd er á námskeiöum Stjórnunarfélagsins og þarna
gengur enginn hvorki inn né út án þess að kastað sé á hann kveðju.
Árbæjarlaugin lumar á ýmsum tæknib/ellum sem gefa henni yfirbragð skemmtigarðs: Leyndum gosbrunnum i
vaðlaug, vatnsspúandi málmstútum og haganlega fyrirkominni rennibraut. Eimbað er gott og trébekkir
þar inni gefa baðinu grófa og frumstæöa áferð. Hægt er að
synda úr útilaug inn í innilaug þar sem ágætisveitingaaö-
|j ,, v . , . , . j - staða er á bakka. Þá eru útiklefar sambyggðir inniklefum
, og ágætt að þurrka sér úti viö þó fötin séu inni. Snyrtiaö-
staöa er góö en mikil hætta á aö skóm sé stolið. Vigtin er
rétt stillt. Árbæjarlaugin á meira skylt við vatnsskemmti-
garð en sundstað. Afgreiðslutími er rúmur og seint á kvöld-
in á sér þar stað áberandi paramyndun.
SHBHHE2E2E3E3E3
@ v »»□HHHHH
★
ifcék’- . .. '
Lykill:
Gottað
synda.
Aðstaða. Pottasögur.
r
Hommar og Plck-up
lesbíur. staður.
Barnavæn
sundlaug.
—
.. ... - i. Helmaríkir
Veltlngar. Hlytt vlðmot. baöveföir
________— WB
f Ó k U S 9. apríl 1999
+