Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1999, Síða 15
John Iravc
uiasta hlutv
kmyndasög
n sem bersl
Nokkrar fjölskyldur taka sig sam-
an og nálgast Jan Schlichtmann,
vaskan lögfræðing, með mál í hönd-
unum. Þegar Schlichtmann hefur
hafist handa við að rannska þetta
mál, sem hann telur í fyrstu bara
vera ólaunað og leiðinlegt verkefni,
kemst hann að þvi að það leynist
ýmislegt í því sem hann hafði ekki
órað fyrir. Fyrirtæki sem sérhæfir
sig í framleiðslu á leðri virðist eiga
sök á nokkrum alvarlegum tiifellum
af hvítblæði sem hafa dregið sjúk-
lingana til dauða. En jafnframt er
fyrirtækið aðalvinnustaðurinn á
svæðinu. Ásamt þremur starfs-
bræðrum sínum sem eru einnig
reiðubúnir að vinna ólaunað tekur
hann sig til og byrjar að sauma áð
fyrirtækinu í von um að það láti
loks í minni pokann og hefjist handa
við að hreinsa menguðu svæðin eft-
ir sig og greiða háar skaðabætur
vegna þeirra skemmda sem það hef-
ur valdið. En þá er komið að fyrir-
tækinu að spila fram sínu trompi:
lögfræðingunum sínum sem eru
harðir í hom að taka. Fyrr en varir
eru þeir félagamir famir að heyja
harða lífsbaráttu.
John Travolta þarf engra kynn-
inga við, hann er eitt frægasta and-
lit i Hollywood nú á dögum. Hann
hefur leikið í kvikmyndum á borð
við Saturday Night Fever, Grease,
Carrie, Blow Out, Look Who’s
Talking, Pulp Fiction, Get Shorty,
Primary Colors og fleiri og fleiri
myndum. Svo er hann alltaf eitthvað
að bedríva þessa dagana, kallinn,
hver veit hvenær hann fer næst á
vapp. Robert Duvall er sjóaður í
þessum hransa, hefur leikið í yfir 60
myndum. t.d. má nefna To Kill a
Mockingbird, Tme Grit, M*A*S*H,
Godfather II, Network, Days of
Thunder, Colors, Rambling Rose,
Wrestling Emest Hemingway, The
Paper, Slingblade, The Apostle (sem
hann skrifaði einnig handritið að og
leikstýrði) og svo á móti John Tra-
volta í Phenomenon. Stephen Fry
lék þjóninn Jeeves í grinþáttunum
góðu, Jeeves and Wooster, og einnig
aðalhlutverkið í Peter’s Friends Svo
lék hann náttúrlega Oscar Wilde í
myndinni Wilde og í I.Q. með Walt-
er Matthau. Leikstjórinn Steven
ZaiUan fékk óskarsverðlaunin fyrir
besta handrit byggt á sögu en það
var handritið að Schindler’s List.
Hann skrifaði handritið að þessari
mynd eftir sannsögulegri bók Jon-
athan Harr. Hann sýndi sín fyrstu
tilþrif sem leikstjóri með myndinni
Searching for Bobby Fischer.
Jack F
er ekL-
logregluþjon
Það telst nú ekki til stórtíðinda
þegar snjókarl lifíiar við i kvikmynd
nú á dögum. Það jaðrar eiginlega
við að vera orðið minni. Kvikmynd-
in Jack Frost fjallar einmitt um
einn slíkan snjókarl. Jack Frost
(Michael Keaton) heitir maður
nokkur sem er svo ofsalega upptek-
inn af frama sínum að hann ver litl-
um sem engum tíma með syni sín-
um Charlie (Joseph Cross). Þetta
fyrirkomulag gengur alveg upp en
lerbur fyrlr því ólánl
ini Jack Frost - og
tur sem snjókarl
SPG
stráksi er ekki á eitt sáttur við fjar-
vistir föðursins og notar því hvert
einasta tækifæri sem gefst til að
vera með honum. Einnig er spúsa
Jacks (Kelly Preston) til trafala
hvað þetta varðar. Kvöld eitt þegar
Jack gamli er heima ákveða þeir
feðgar að búa til snjókarl saman.
Charlie reynir að gera eins gott úr
þessari samverustund þeirra feðga
og hægt er og fyrr en varir eru þeir
búnir að gera hinn myndarlegasta
snjókarl. Seinna um kvöldið gefur
Jack Charlie gömlu harmonikuna
sína og segir að í henni blundi töfra-
máttm-. En óheppnin eltir aumingja
Charlie og faðir hans ferst í bílslysi.
Afar tragískt það. Einu ári seinna
rís hann upp frá dauðum og snýr
aftur í mynd snjókarls. Frost fær
sumsé tækifæri til að græja mál fjöl-
skyldunnar. Það skyldi þó ekki vera
þannig að því hetri faðir sem maður
hefur verið því betra fomii fái mað-
ur að snúa aftur í ? Alla vega fær
hann bara að koma aftur i þannig
formi að hann getur ekki lifað nema
undir frostmarki, ekki borðað heit-
an mat, ekki stundað kynlíf og svo
framvegis. Kannski er þetta snjó-
kallsdæmi allt saman bara refsing
fyrir að hafa verið svona ofsalega
vondur pabbi. En hvað um það, að-
stæður sem þessar bjóða upp á ýmsa
skemmtilega konflikta og er það
sennilega pælingin með þessari
mynd.
Michael Keaton er flestum kunn-
ugur sem milljónerinn Bruce Way-
ne eða Batman eins og auðkýfmgur-
inn vildi víst láta kalla sig. Fyrir
utan fyrstu Batman-myndina og
fyrsta framhald hennar hefúr hann
leikið í myndum eins og Beetlejuice,
Night Shift, Dream Team, The
Paper, svo fátt eitt sé nefnt, og var
nýlega á ferðinni í seinustu mynd
Quentins Tarantinos, Jackie
Brown. Margklofinn leikari. Og
talandi um að vera margklofinn,
hann lék einnig mann sem eignast
þrjú aukaeintök af sjálfúm sér í
kvikmyndinni Multiplicity. Kelly
Preston hefur leikið í einhverjum
myndum sem flestir hafa heyrt um,
Twins, Nothing to Lose, Addicted To
Love, Citizen Ruth, Only You og síð-
ast en ekki síst Jerry Maguire þar
sem hún lék á móti Tom Cruise.
Troy Miller er viðurkenndur sjón-
varpsleikstjóri með tvenn Emmy-
verðlaun í farteskinu. Ég ætla bara
rétt að vona að væmnin bræði ekki
snjókallinn.
NO NAME
-COSMETICS-
Velkomin í OPIÐ HÚS,
laugardaginn 10. apríl nk.
Nýja bæklingnum um tísku-, Ijósmynda- og
leikhúsförðun sem kennd er á sumar-, haust-
og vetrarnámskeiðum, verður dreift.
NO NAME förðunarskólinn
Hverfisgötu 76 • Sími 561 6525
noname@islandia.is
9. april 1999 f Ókus
15