Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.1999, Qupperneq 14
Svarthöfði kemur í lokin
öllum líkindum fáum viö aö heyra í
James Earl Jones í mynd númer þrjú
sem lýkur 1. hlutanum. Ástæðan er sú
aö Darth Vater var einu sinni Anakin
Skywalker sem Phantom fjallar um. Jo-
nes sagði í viötali aö hann heföi sett
sig í samband viö George Lucas og
spurt hvort það yröu einhver not fyrir
hann: „í mynd númer þrjú,“ var svarið
„þegar Anakin veröur að Darth Vater.“
Jones segir aö vel geti veriö að þaö
veröi aöeins not fyrir hann í síöustu
fimm mínútunum en hann sættir sig al-
veg viö það. James Earl Jones var ekki
sá fyrsti sem George Lucas haföi hugs-
að sér aö yröi rödd Darth Vater, hann
var lengi meö Orson Welles í huga en
fannst þegar á reyndi að rödd hans
væri of þekkt. Jones segir að nánast
vikulega sé haft samband viö hann af
einlægum aödáendum Star Wars serí-
unnar sem kunni hlutverk hans utan-
bókar. Þegar hann var spurður hvort
hann myndi eitthvað af rullunni sjálfur
sagðist hann muna aöeins eina línu: „I
Have You Now“.
Nicolas
Þegar Nicolas Kim Coppola var 15
ára sá hann myndina East of Eden.
Hafði persónan sem James Dean lék
þaö djúpstæð áhrif á hann að hann
ákvað að gerast leikari. Á táningsár-
unum tók hann þátt í starfi ólíkra
leiklistarhópa en hafði lítinn áhuga
á hefðbundnu námi og íþróttum.
Þótt hann nyti aðstoðar hins fræga
frænda sína, Francis Ford Coppola,
við að koma sér á framfæri þótti
honum Coppola-nafnið vera þrándur
í götu sinni. Hann gældi við ólík
listamannsnöfn og má þar nefna
Nick Blue, Nick Faust og Nick
Mascalzone (sem er ítalskt
skammarheiti yfir óþekka drengi).
Hann valdi á endanum eftirnafnið
Birdy 1984, íhe Cottón filub 1984, Racing
with the Moon 1984, The Boy in Blue 1986,
Peggy Sue Got Married 1986, Raising
Arizona 1987, Moonstruck 1987, Vampire’s
Kiss 1989, Wild at Heart 1990, Firebirds
1990, Zandallee 1991, Honeymoon in Veg-
as 1992, It Could Happen to You, 1994,
Trapped in Paradise 1994, Leaving Las Veg-
as 1995, Kiss of Death 1995, The Rock
1996, Face/Off 1997, Con Air 1997, City of
Angels 1998, Snake Eyes 1998, 8MM
1999.
Fæöingardagur og ár: 7. janúar 1964.
Fæöingarstaöur: Long Beach, Kalifornía
Foreldrar: August Coppola, prófessor í bók-
menntum, og Joy Vogelsan, dansari og dans-
höfundur
Stjörnumerki: Sól í steingeit. Tungl í sporö-
dreka.
Elginkona: Patricia Arquette.
Barn: Weston með fyrrum kærustu,
Christine Fulton.
Kvikmyndir: Fast Times at Ridgemont High
1982, Rumble Fish, 1983, Valley Girl 1983,
Cage sem virðingarvott til handa
teiknimyndafígúrunni Luke Cage og
tónskáldinu John Cage.
í Star Wars seríunni, öðrum hluta,
ómar hin mikla bassarödd leikarans
kunna, James Earl Jones, án þess aö
hann sjáist en hann talaði fyrir Svart-
höfða (Darth Vader). Rödd Jones mun
ekki óma í The Phantom Menace, sem
frumsýnd verður í Bandaríkjunum 19.
maí næstkomandi, og ekki heldur í
mynd númer tvö í 1. hlutanum, en að
James Earl Jones fær aö spreyta sig
í lok Star Wars: Episode 1.
09 Nicoias
í dag verður frumsýnd í Stjörnu-
bíói og Bíóhöllinni spennumyndin
8MM sem gerð er eftir handriti
Andrews Kevins Walkers en hann
skrifaði handritið að Seven. í 8MM
leikur Nicolas Cage einkaspæjar-
ann Tom Welles. Tom er fjöl-
skyldumaður og ólíkur þeim hörðu
löggum sem við þekkjum úr kvik-
myndunum. Hann lifir ósköp
venjulegu fjölskyldulífi í Harris-
burg í Pennsylvaníu ásamt eigin-
konu sinni Amy (Catherine
Keener) og dóttur. Tom er enn að
bíða eftir stóra tækifærinu en starf
hans felst aðallega í því að fylgjast
með eiginkonum og eiginmönnum
stunda framhjáhald. Starf hans er
því laust við allar hættur og
spennu. Tom hefur metnað og
þyrstir í safaríkari rannsóknarmál
og einn daginn fær hann óvænt eitt
slíkt mál upp í hendumar.
Þetta mál kemur í kjölfar þess að
f Ó k U S 16. apríl 1999
Hringadrótl-
inssaga - í
þremur hlutum
Þaö er ekki bara George Lucas sem er
meö stórvirki upp á þrjár kvikmyndir í
höndunum. í sömu sporum er nýsjá-
lenski leikstjórinn Peter Jacobsen,
sem lengi hefur veriö aö undirbúa kvik-
myndaútgáfu af Hringadróttinssögu
(Lord of the Rings) eftir J.R.R. Tolkien.
Undirbúningur er langt kominn. Ekki
hefur mikiö kvisast út um þessa miklu
kvikmyndagerö. Þaö sem vitað er er
aö Hringadróttinssaga veröur í þremur
kvikmyndum og engln biö á milli kvik-
mynda. Þær veröa teknar allar á Nýja-
Sjálandi, hver á eftir annarri. Eins og í
Star Wars veröur kvikmyndatæknin
notuö til hins ýtrasta. Kvikmyndaö
veröur eins og um fólk af eðlilegri
stærö sé aö ræöa en tæknin notuð við
aö minnka það. Þessi mikla saga, sem
er talin ein af perlum heimsbókmennt-
anna, var samin fyrir sextíu árum og
fjallar um baráttu hins illa gegn hinu
góða. Ekki er vitað hverjir koma til
meö aö fara meö hlutverk í myndinni.
Lengi var taliö aö Sean Connery myndi
leika Gandalf, eitt stærsta hlutverkið,
en nú er taliö aö Jacobson muni ekki
nota frægar stjörnur í tríólógíu sinni
þar sem þaö mun hækka kostnaðinn
sem þegar er orðinn mjög hár.
Simon
Birch
Lítill drengui
með stórt
hjarta
Simon Birch var minnsta barnið
sem nokkurn tímann hafði fæðst á
Grovestown Memorial Hospital og
læknarnir sögðu að það væri
kraftaverk að hann skyldi hafa lif-
að. Alla tíð síðan hefur Simon
Birch verið fljótur að minna aðra á
að hann sé kraftaverk og hann er
fullviss um að einhvern tímann á
lífsleiðinni muni hann verða hetja
... hann er bara ekki alveg viss um
hvenær. Þangað til það gerist rök-
ræðir hann trúmál við prestinn og
sunnudagaskólakennarann, situr í
hliðarsæti á hjóli besta vinar síns,
Joe, og hefur yndi af því að leika
hafnabolta. Simon er ekki
högglangur með kylfuna og hittir
yfirleitt ekki. Þegar hann loks hitt-
ir alvöruhögg hefur það alvarlegar
afleiðingar fyrir vinina tvo og við
taka heimspekilegar hugleiðingar
um lífið og tilveruna.
Leikstjórinn og handritshöfund-
urinn Mark Steven Johnson hefur
verið með þá hugmynd í maganum
að gera þessa kvikmynd, eða allt
frá því hann las skáldsöguna A
Prayer for Owen Meany eftir John
Irvin fyrir nokkrum árum. Hann
hóf að skrifa handritið í frítíma
sínum. Þegar hann var tilbúinn
með það sýndi hann það framleið-
andanum Roger Birnbaum sem
þótti handritið gott og var snortinn
eftir lestur þess. Það var þó fyrst og
fremst ákafi Marks Stevens John-
sons sem gerði það að verkum að
hann ákvað að taka að sér að fram-
leiða myndina. Þar sem Johnson
notar aðeins skáldsögu Irvins sem
hugmynd og grunn breytti hann
öllum nöfnum. Þrátt fyrir þetta gaf
John Irvin handritinu blessun sína
og kom með tillögur sem Johnson
þáði og notaði.
Þegar allt var orðið klárt, hand-
ritið til og bakhjarlar komnir tók
við það sem Johnson og Birnbaum
héldu að yrði erfiðasta raunin: að
flnna smávaxinn dreng sem gæti
leikið Simon Birch. Það var þeirra
heppni að með þeim fyrstu sem
komu til greina var Ian Michael
Smith: „Hann var stórkostlegur í
viðkynningu og við Mark gátum
ekki trúað því hve heppnir við vor-
um og héldum áfram leitinni í
nokkra mánuði. Við hefðum betur
sparað okkur þá leit því hugurinn
leitaði alltaf til Ians og loks vorum
við nógu vitrir að hætta og snúa
okkur að honum sem var meira en
tilbúinn að taka að sér hlutverkið,"
segir Roger Birnbaum.
Auk Ians Michaels Smiths leika í
myndinni Joe Mazzello, sem marg-
ir muna eftir sem drengurinn í Ju-
rassic Park, Oliver Platt, Asley
Judd og David Straitham,
Mark Steven Johnson, sem er að
leikstýra sinni fyrstu kvikmynd,
hefur fengist við að skrifa kvik-
myndahandrit nokkurn tíma. Með-
al handrita hans má nefna Grumpy
Old Men og framhaldið Grumpier
Old Men. Stutt er sfðan hann ásamt
framleiðandanum Gary Foster
stofnaði framleiðslufyrirtæki sem
hefur gert samning við Walt Disn-
ey um gerð nokkurra kvikmynda.
Johnson býr í Los Angeles ásamt
eiginkonu og tveimur börnum.
-HK
Hlutirnir eiga eftir
að breytast ...
þegar Guð hefur
gert mig að hetju.