Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1999, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1999, Blaðsíða 7
28 MÁNUDAGUR 26. APRÍL 1999 MÁNUDAGUR 26. APRÍL 1999 29 Sport Sport Hetjan Bergsveinn Bergsveinsson: Vörnin var grunnurinn „Mér gekk vel á punktinum á móti þeim en i heild sinni spiluðum við vamarleikinn mjög vel og það hjálp- aði okkur mikið í þessari úr- slitarimmu. Ég gat gengið á staðina þeirra enda veit ég hvar þeir hafa alist upp við að skjóta," sagði Berg- sveinn Bergsveinsson sem var sínum gömlu félögum erfiður. „Það er ótrúlegt að svona ungt félag skuli vera búið að landa öllum titlun- mn í vetur. Það er haldið svakalega vel utan um liðið, 600 manna bæjar- félag troðfyllir annan helminginn í kvöld og það segir allt sem segja þarf. Varnarleikurinn, fyrst og fremst, lagði grunnin að þessum íslands- meistaratitil sem og öðru því sem við höfum verið að vinna í vetur,“ sagði hetja Mosfellinga Bergsveinn Berg- sveinsson sem varði 11 víti gegn FH og alls 21 í úrslitakeppninni. „Ég er enn með sár á rassinum síðan eftir töpin með Selfossi 1992 og Aft- uredingu 1997. Veturinn hefur verið frábær. Þetta lið er samansafn af mönnum sem eru tilbúnir að leggja sig milljón prósent fram og horfið bara á árangurinn, þrír titlar af þremur mögulegum," sagði Einar Gunnar Sigurðsson. -ÓÓJ „Munaöi litlu" „Það munaði ekki ekki miklu, vítaköstin voru að hrjá okkur einna mest og við höf- um enga skýringu á því. Við misstum þá frá okkur á einum kafla þar sem við nýttum ekki færin sem við fengum. Við gáfumst þó aldrei upp þannig að það var ekki mikil munur á liðunum þrátt fyrir aflt. Ég er mjög ánægður með veturinn, við byrjuðum illa en siðan er þetta búinn að vera frábær vetur. Við erum búnir að vinna vel saman og maður er ánægður með að skila ungum strákum upp. „Ég er hvergi bang- inn fyrir framtíð FH, sagði Kristján Arason þjálfari FH sem þarna stjórnaði sínum síð- asta leik í bili. Gunnar Beinteins- son er annar sem var að kveðja FH í þessum leik. „Beggi var að verja frá okkur á ör- lagaríkum tímum. Við gáfum eftir því við vorum með þennan leik. Þeir eru mjög gott lið og eru kannski bara betri en við. Við erum svekktir með þennan leik en í heildina þó ánægðir með veturinn." -ÓÓJ FH (12) 23 Aftureld. (12)25 2-0, 2-2, 4-2, 4-4, 4-6, 6-6, 9-8, 10-10, (12-12), 12-13,16-15, 18-20,19-24, 22-24, 23-25. Mörk FH: Knútur Sigurðsson 8, Guð- jón Ámason 7, Gunnar Beinteinsson 3, Hálfdán Þórðarson 2, Guðmundur Ped- ersen 1. Varin skot: Magnús Ámason 10. Mörk Aftureldingar: Bjarki Sigurðs- son 9/4, Jón Andri Finnsson 4, Magn- ús M. Þórðarson 4, Einar Gunnar Sig- urðsson 3, Siguröur Sveinsson 3, Gint- as 1, Gintaras 1. Varin skot: Bergsveinn Bergsveins- son 21/2. Brottvlsanir: FH 10 mín, Afturelding 12 mín, Gintas þrjár brottvísanir um miðjan seinni hálfleik. Dómarar: Guðjón L. Sigurðsson og Ólafur Haraldsson. Dæmdu vel í fyrri hálfleik en drógu taum Mosfellinga nokkuö í seinni hálfleik. Áhorfendur: Um 2300. Maður leiksins: Bergveinn Berg- sveinsson, Aftureldingu. Þetta var ifyrsta sinn síðan 1993 sem meistamir fagna sigri á útivelli en þá urðu Valsmenn meistarar í Krikan- um. Vörn og markvarsla „Þetta er búið að vera ótrúlegt og búið að ganga vonum framar. Við misstum 9 leikmenn frá því í fyrra og við vissum varla hvort við hefðum í lið. Þetta er því búin að vera mikil vinna en hún er búin að ganga upp. Þetta er sigur liðsheildarinnar. Þetta er frábær hópur, með frá- bærum einstaklingum og það er það sem er að skapa þennan sig- ur. Ef það er eitthvert lið sem spil- aði með hjartanu í vetur þá er það Afturelding. Vörnin skilaði því að Beggi varði frábærlega og eins og öll hin árin sem úrslita- keppnin hefur verið er það vöm og markvarsla sem er að klára þetta. Það er verðugt verkefni að halda Aftureldingu á toppnum næsta vetur,“ sagði Skúli Gunn- steinsson þjálfari Aftureldingar. -ÓÓJ Marta Ernstdóttir, hlaupakona úr ÍR, setti íslandsmet í maraþonhlaupi í Hamborg i gær. Marta hljóp vegalengdina á 2:35,6 kist. og lenti í sjöunda sæti í hlaupinu. Hún bætti eigið íslandsmet um tæpar þrjár sekúndur. Þýska stúlkan Katrin Dörre sigraði í hlaupinu á 2:24,35 klst. sem er þýskt met.. Þorvaldur Blöndal, Ármanni, sigraði í opnum flokki á íslandsmótinu í júdó sem haldið var á Akureyri um helgina. Þorvaldur lagði Gisla Magnússon í úrslitarimmu. í þriðja sæti uröu þeir Bjarni Skúlason, Selfossi, og Vernharö Þorleifsson, KA. Fjórmenningarnir sigruðu síðan hver i sínum þyngdarflokki. í kvennailokki sigruðu Antje Muller og Margrét Bjarnadóttir í sinum þyngdarflokkum en í opnum llokki sigraði Antje Muller. DV-myndir Hilmar Þór DV, Hafnarfirði: Afturelding úr Mosfellsbæ er besta handknattleiklið landsins í karlaflokki. Þetta getur enginn efast um eftir að Mosfellingar hömp- uðu íslandsbikamum í fyrsta sinn eftir sigur á FH, 23-25, í fjórða úrslitaleik liðanna í Kaplakrika í gærkvöldi. Þar með settu leikmenn Aftureld- ingar punkt fyrir aftan glæsi- legt tímabil en þeir unnu alla þrjá titlana sem í boði vom og færðu þar með félaginu sínu þá bestu afmælisgjöf sem hægt var að hugsa sér. Fagnað fram eftir nóttu Leikmenn og áhangendur hafa eflaust fagnað sigrinum langt fram eftir nóttu en halda átti upp á glæsilegan áfanga í Mosfellsbænum í nótt. Bergsveinn var hetja Hetja Mosfellinga var gamli FH-ingurinn Bergsveinn Berg- sveinsson. Hann var sínum gömlum samherjum heldur betur erfiður, ekki bara í gær heldur i öllum fjórum leikjun- um. Á örlagastundu í stöð- unni 22-24 varði hann víta- skot Vals Arnarsonar og þetta reyndist vendipunktur leiksins. Draumur Bergsveins um að hampa titlinum á sín- um gamla heimavelli rættist og hann átti stóran þátt í að það varð að veruleika. Berg- sveinn varði 21 skot og bæði vítaköst FH-inga í leiknum og alls varði hann 11 vítaköst í þessum úrslitaeinvígi gegn FH og 21 vítakast í úrslita- keppninni. Hvort tveggja er þetta met í sögu úrslitakeppn- innar. Besti leikurinn til þessa Leikurinn í gær var án efa besti leikurinn af þeim fjórum sem liðin léku. Lengi framan af mátti ekki sjá á milli liðanna og skiptust þau um að hafa forystuna. Það leit þó allt út fyrir að FH- ingar væru marki yfir þegar fyrri hálfleikur var að verða úti en Einar Gunnar Sigurðs- son jafnaði metin beint úr aukakasti þegar leiktíminn var liðinn og þar var vamar- veggur FH-inga illa sofandi. Afturelding náði svo frum- kvæðinu í síðari hálfleik og virtist á góðri leið með að inn- byrða öruggan sigur þegar lið-. ið náði 5 marka forskoti. FH-ingar til baka En af harðfylgi komu FH- ingar til baka og minnkuðu muninn í 2 mörk og fengu gullið færi til að hleypa enn meiri spennu í leikinn en Bergsveinn sá til þess að svo varð ekki. í leikslok braust svo út gríðarlegur fógnuður hjá leikmönnum og stuðnings- mönnum Aftureldingar sem fjölmenntu í Krikann. Sá fögn- uður stóð langt fram á nótt og næstu daga og sennilega vik- ur verður þjóðhátíð í Mosó. Vel að titlinum komnir Afturelding er vel að titlin- um komið og Skúli Gunn- steinsson á hrós skilið fyrir frábæra frammistöðu sem þjálfari. Flestir spáðu Mosfell- ingum sigri á mótinu enda leikmannahópurinn vel mannaður og vel haldið á mál- um hjá félaginu. Áður er lýst frammistöðu Bergsveins en auk hans lék Bjarki Sigurðs- son stórt hlutverk með liöinu í gær eins og í allan vetur. Jón Andri Finnsson lék vel og það sama gerði Sigurður Sveinsson og Magnús Már Þórðarson. Gott tímabil FH-inga FH-ingar geta borið höföið mjög hátt eftir þetta tímabil og þeir eru líka hetjur eins og Mosfellingar. Kristján og Guðjón kvöddu Þeir voru ekki margir sem spáðu því að FH kæmist í úr- slitakeppninna og hvað þá alla leið í úrslitaeinvígið. En með seiglu, karakter og metn- aði náðu leikmenn FH næst- um því á tindinn. Guðjón Árnason og Krist- ján Arason skilja vel við FH- liðið en þessir miklu jaxlar voru að leika sinn síðasta leik í gær. Guðjón endaði ferillinn með stórleik og var bestur FH-inga ásamt Knúti Sigurðs- syni og Gunnar Beinteinsson lék einnig mjög vel. -GH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.