Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1999, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1999, Blaðsíða 3
MÁNUDAGUR 26. APRÍL 1999 25 I>V Sport ÞIN FRISTUND -OKKAR FAG V INTER Bíldshöfða 20 • 112 Reykjavík • 510 8020 • www.intersport.is Aðalsteinn Jónsson messar yfir sínum stúlkum í leikhléi gegn FH. Á litlu myndunum fagna Anna Blöndal og Guðný Gunnsteinsdóttir, Magnús Teitsson, þjálfari FH, er hins vegar niðurlútur að leikslokum. Herdís Sigurbergsdóttir þorði ekki að horfa á síðustu 10 sekúndur leiksins og hélt um andlit sér. Stjörnusigur eftir ótrúlegar sveiflur í tvíframlengdum leik: - Stjarnan stendur vel aö vígi og getur tryggt sér titilinn í kvöld Deildarmeisturum Stjörnunnar tókst á ótrúlegan hátt að krækja sér í annan sigur gegn FH í úrslitakeppni kvenna í Kaplakrika á laugardag, 31-32, eftir tvíframlengdan leik. FH-ingar sýndu stórleik fyrstu 30 mínúturnar og tóku Stjörnuna í kennslustund. Liðið fór hreinlega á kostum, lék 5-1 vörn Stjömunnar grátt, átti ekki í neinum vandræðum með að stöðva afspyrnuslakan sðknar- leik Garðbæinga og hafði 12 marka for- ystu í háifleik, 18-6. Mögnuð barátta Stjörnunnar Aðalsteinn Jónsson, þjáifari Stjörn- unnar, hlýtur að hafa haldið þrumu- ræðu yflr leikmönnum sínum í leik- hléinu, slík voru umskiptin á liði Stjörmmnar í seinni hálfleik. Sóknir liðsins inðu markvissari og aftari lína varnarinnar varð þéttari. Með magn- aðri baráttu og sigurvilja tókst þeim að snúa leiknum sér í vil og vinna upp forskot FH sem var mest 13 mörk í seinni hálfleiknum. FH-ingar geta nagað sig i handar- bökin fyrir að hafa kastað sigrinum frá sér, þær skoruðu aðeins fimm mörk í seinni hálfleiknum og glopruðu boltan- um frá sér á örlagastundu þegar aðeins flmm sekúndur voru til loka venjulegs leiktíma. Það nýtti Ragnheiður Steph- ensen sér, jafnaði leikinn í fyrsta sinn, 23-23, og knúði fram framlengingu. Áhorfendum var haldið í magnaðri spennu í tveimur framlengingum þar sem bæði lið gáfu allt sem þau áttu í leikinn. En Stjarnan, sem hefur áður lent í þessari aðstöðu, lék skynsamlega og Hrund Grétarsdóttir skoraði sigur- mark þeirra þegar 30 sekúndur voru til leiksloka. Þurftum tíma til að hitna „Við erum orðnar svo gamlar að við þurfum smátíma til að hitna. Það virt- ist sem við hefðum enga trú á þessu og ætluðum ekki að klára þetta, en það var þrumuræða í hálfleik og þá kom þetta,“ sagði Nína K. Bjömsdóttir, leik- maður Stjömunnar. Þórdís Brynjólfsdóttir, Drífa Skúla- dóttir og Jolanta Slapikiene léku best í liði FH, sem allt á hrós skilið fyrir frá- bæran fyrri hálfleik og gríðarlega bar- áttu í framlengingunum. Leikmenn liðsins búa ekki yfir mikilli reynslu af leikjum sem þessum en í þessum leik var lagt vel inn í reynslubankann og það á eftir að nýtast þeim vel. Stjaman lék alveg skelfilega i fyrri hálfleik venjulegs leiktíma og það voru ekki margir sem trúðu þvi að það væri unnt að snúa 13 marka mun sér í vil á 30 mínútum, en því trúðu Stjörnustúlkur allar sem ein, og sú trú færði þeim sigurinn öðru fremur. Nina K. Björnsdóttir og Lijana Sadzon léku best i jöfnu og sterku Stjörnuliöi. -ih NBA-DEilDIH Úrslit aðfaranótt laugardags: Washington-Atlanta.......78-89 Richmond 19, Wallace 12, Cheaney 10 - Smith 20, Blaylock 17, Long 15. New York-Charlotte .... 110-105 Houston 30, Ewing 26, Camby 18 - Campbell 17, Phills 16, Coleman 16. Orlando-Toronto ..........88-95 Armstrong 16, Doleac 16, Outlaw 16 - Carter 24, Brown 18, Magardy 17. Chicago-Boston ..........71-100 David 20, Bryant 15, Wennington 8 - Pierce 18, Battie 15, Jones 14. Millwaukee-Cleveland .... 79-75 Robinson 26, Allen 16, Johnson 11 - Henderson 19, Person 19, Declercq 12. Denver-Golden State ......96-84 Mccdyess 25, Billups 20, Fortson 15 - Dampier 22, Jamison 14, Mills 12. LA Clippers-Houston . . . 106-101 Taylor 29, Piatkowski 28, Nesby 13 - Barkley 24, Pippen 23, Olajuwon 18. Sacramento-Minnesota . .. 105-97 Williams 27, Barry 20, Webber 18 - Garmett 29, Smith 15, Garrnet 13, Brandon 13. Utah Jazz-Portland ......96-85 Malone 25, Russell 17, Stockton 16 - Jackson 13, Rider 11, Grant 10. Vancouver-Seattle .......84-97 Rahim 22, Massenburg 15, Bibby 10 - Maclean 25, Payton 25, Schrempf 12. Aðfaranótt sunnudags: Charlotte-New Jersey .... 97-82 Wesley 19, Coleman 16, Campbell 16 - Van Hom 22, Marbury 30, Gill 8. Indiana-Chicago..........87-69 Miher 20, Best 12, Mullin ll - Bryant 14, Harper 10, David 8. San Antonio-LA Lakers . . 108-81 Duncan 21, Robinson 16, Elliott 14- O’Neal 26, Reid 12, Bryant 11. Sacramento-Dallas......105-102 Divac 28, Webber 17, Maxwell 16 - Trent 32, Finley 26, Nowitzki 12. Golden State-Denver.....93-74 Marshall 18, Dampier 17, Jamison 14 - Fortson 16, Taylor 16, McDyess 15 LA Clippers-Vancouver . . 105-96 Taylor 25, Rogers 19, Piatkowski 17 - Rahim 27, Massenburg 22, Lopez 14. -JKS w — g? Hrund Grétarsdóttir: „Við erum bestar“ „Það var kominn tími á þetta. Ég var ekki búin að skora í þrem- ur leikjum og var ákveðin að láta það ekki gerast í dag,“ sagði Hrund Grétarsdóttir, fyrirliði Stjörnunnar, í samtali við DV, en hún gerði sér lítið fyrir og skoraði sigurmark Stjörnunnar gegn FH í leik liðanna í Kaplakrika á laugardaginn var. „Maður hefur reynsluna og kemst í einhvern ham í leikjum sem þessum. Það var enginn ótti í mér þegar ég fór inn í síðasta markinu, ég ætlaði mér ekki að klikka á þessu. Við vorum bara held ég ekki með sjálfum okkur í fyrri hálfleik, en við tókum okkur saman í seinni hálfleik og sýndum karakt- er og sýndum að við erum bestar. Það er bara einn leikur eftir, við erum ekki á því að gefa FH- ingunum fleiri leiki. Ekki fyrst við kláruðum þennan leik í kvöld. Við erum komnar með aðra hönd- ina á bikarinn." -ih Þórdís Brynjólfsdóttir: „Gáfum sigurinn“ „Þær voru ekki að vinna þenn- an leik, við gáfum þeim sigurinn, það er engin spurning um það. Við vissum að þær myndu spila vömina framarlega og þá er allt opið á bak við þær. Við vomm mjög hreyfanlegar í fyrri hálfleik, hreyfðum okkur mikð án bolta og þá gekk þetta vel. En í seinni hálf- leik urðum við gjörsamlega stað- ar, hættum að leysa inn og hver stöð í sinni stöðu og var ekki að gera neitt. Við vorum að klikka á algjörum dauðafærum i framlengingunni og markvörðurinn hjá þeim fer að verja. Ef við ætlum okkur að vinna Stjömuna þá megum við ekki klikka á svona dauðafærum. Það eru þrír leikir eftir í keppn- inni, það áttu flestir von á því að Stjarnan myndi taka þetta 3-0 en við áttum þennan leik hérna í kvöld og gáfum þeim sigurinn. Það kemur ekki fyrir aftur,“ sagði Þórdís Brynjólfsdóttir, leikmaður FH. -ih FH (18) 31 Stjarnan (6)32 2-0, 5-1, 8-3, 12-3, 14-4, 15-5, (18-6), 19-6, 20-7, 20-16, 21-19, 22-20, (23-23), (24-25), 26-25, (27-27), (28-29), í 30-30, 31-32. Mörk FH: Þórdís Brynjólfsdóttir 9/6, Drífa Skúladóttir 5, Guðrún Hóbngeirsdóttir 4, Hildur Erlings- dóttir 4, Björk Ægisdóttir 4, Gunnur Sveinsdóttir 3, Hildur Pálsdóttir 1, Dagný Skúladóttir 1. Varin skot: Jolanta Slapikiene 26/1. Mörk Stjörnunnar: Nina K. Björnsdóttir 9, Ragnheiður Stephen- sen 7/3, Inga Steinunn Björgvinsdótt- ir 4, Inga Fríða Tryggvadóttir 4, Anna Blöndal 3, Hrund Grétarsdóttir 3, Margrét Theódórsdóttir 1, Guðný Gunnsteinsdóttir 1. Varin skot: Lijana Sadzon 18, Sól- ey Halldórsdóttir 3. Brottvísanir: FH 4 mín., Stjarnan 14 mín. Dómarar: Anton Pálsson og Hlyn- ur Leifsson, mjög slakir, vantaöi allt samræmi í dóma þeirra. Áhorfendur: 300. Maður leiksins: Nina K. Bjöms- dóttir, Stjörnunni. Þriðji leikur Stjörnunnar og FH fer fram i Ásgarði i Garðabæ í kvöld og hefst kl. 20.00. Stjarnan komst í 2-0 gegn Haukum i úrslitakeppninni 1996, en þá sneru Haukar leiknum sér í vil og sigruðu i næstu þremur leikjum og tryggðu sér íslandsmeistaratitilinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.