Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1999, Blaðsíða 5
MÁNUDAGUR 26. APRÍL 1999
27
O’Leary samdi til 5 ára
David O’Leary, framkvæmdastjóri Leeds United, skrifaði í gær undir
nýjan fimm ára samning við Leeds.
Þetta er mikill fengur fyrir Leeds en O’Leary hefur sýnt það og sannað
að hann er afar snjall framkvæmdastjóri. Árangur Leeds á leiktíðinni
hefur komið mjög á óvart og á Elland Road morar allt í efnilegum ungum
leikmönnum sem sumir hverjir eru þegar orðnir frábærir leikmenn.
O’Leary var ánægður með leik sinna manna i gær og sagði: „Mínir menn
léku stórkostlega gegn liðinu sem er í úrslitum Evrópukeppninnar. -SK
Eins og hundur og köttur
Brian Kidd, framkvæmdastjóra Blackburn Rovers, og Phil Thomson,
aðstoðarmanni Gerards HouÚiers, framkvæmdastjóra Liverpool, lenti
harkalega saman er liðin léku um helgina í ensku A-deildinni.
Thomson var mjög óánægður með brot á sínum manni og lét Kidd
heyra það óþvegið. Rifust þeir um tíma eins og hundur og köttur en allt
endaði þetta með því að Thomson bað Kidd afsökunar á framferði sínu
þegar leiknum var lokið.
-SK
Mikið skorað í enska boltanum um helgina:
- Arsenal óstöðvandi og vermir nú
toppsætið eftir jafntefli Man. United
Arsenal er gersamlega óstöðvandi í enska bolt-
anum þessa dagana og virðist fátt geta komið í
veg fyrir að Arsenal verji titilinn. Arsenal skor-
aði sex mörk um helgina gegn Middlesborough.
Liðið hefur nú skorað 11 mörk í síðustu tveimur
leikjum sínum og er komið á toppinn.
Arsenal skaust í efsta sæti deildarinnar eftir
sigurinn á Middlesborough og situr þar enn. Lið-
ið hefur leikið einum leik meira en Man. United
og er ekki árennilegt þessa dagana.
„Ég get ekki verið annað en ánægður með mitt
lið. Mínir menn virðast hafa fundið taktinn og
þeir eru að leika vel þessa dagana,” sagði Arsene
Wenger, framkvæmdastjóri Arsenal, eftir að lið
Arnar Gunn-
laugsson var
ekki í byrjunar- /
liði Leicester en
kom inn á sem vara-
maður á 90. mínútu.
Nottingham Forest
er fallið í B-deild. „Ég
veit ekki hvort ég
verð áfram hjá félaginu. Þetta hefur verið erf-
iður tími en ég sé ekki eftir þvi að hafa komið
aftur til Forest,” sagði Ron Atkinson, stjóri
Forest, eftir ósigurinn gegn Aston Villa.
Everton er líklega búið að bjarga sér frá falli
enn einn ganginn. Walter Smith, stjóri félags-
ins, sagði eftir sigurinn stóra gegn Charlton
um helgina að Kevin Campbell væri maður-
inn á bak við gott gengi liðsins undanfarið og
hann ætti stóran þátt í þvi að Everton væri lík-
lega öruggt áfram í A-deildinni.
Ian Marshall bjargaði þremur stigum fyrir
Leicester í annað skipti á nokkrum dögum.
Þessi klunnalegi sóknarmaður er ótrúlega
drjúgur og Martin O’Neill, stjóri Leicester,
sagði í gær að hann hefði leikið stórkostlega i
síðustu tveimur leikjum.
Gordon Strachan, stjóri Coventry, var hund-
fúll eftir tap sinna manna gegn Leicester.
Coventry er varla sloppið úr fallhættu. Strach-
an sagði eftir tapið gegn Leicester um helgina
að ef andstæðingurinn hefði verið sterkari
hefði hans lið tapað 0-7 eða jafnvel 0-9.
Siguróur Jónsson
lék allan leikinn með
Dundee United í
skosku úrvalsdeild-
inni á heimavelli
Dunfermline.
Teddy Sheringham
kom inn á sem
varamaður í liði Man.
Utd gegn Leeds í gær en tókst ekki að skora
sitt 250. mark í ensku deildarkeppninni. í lið
United í leiknum vantaði Ryan Giggs, Jaap
Stam og Ronnie Johnsen svo einhverjir séu
nefndir. Þeir Wes Brown og David May léku
í stöðum miðvarða og skiluðu hlutverki sínu
ágætlega. -SK
hans fór hreinlega á kostum
gegn Middlesborough.
Oftar en ekki hefur
Arsenal átt góðan endasprett
og víst er að leikmenn
Manschester United mega
vara sig. Arsenal skoraði sex
mörk gegn Boro á laugardag
og það þrátt fyrir að Dennis
Bergkamp væri fjan’i góðu
gamni. „Mínir menn vissu að
ekkert nema sigur var nægi-
lega gott fyrir okkur. Ef við
hefðum tapað okkar leik og
United unnið Leeds hefði
þetta einfaldlega veríA
búið spil fyrir
Patrick Vieira og félagar í Arsenal verma
nú efsta sætið í enska boltanum. Á efri
myndinni berjast þeir Jesper
Biomquist og Mathew
Jones um boltann í
leik Man. Utd og
Leeds í gær.
Reuter
okkur.
Þrátt fyrir þessa stöðu tel ég enn að United eigi
mesta möguleikana á að vinna meistaratitil-
inn en það var mjög gott að laga markamun
inn við United verulega," sagði Wenger enn
ffemur.
Örþreyttir leikmenn United misstu
af sigri á heimavelli Leeds
Manchester United náði ekki að krækja
í þrjú stig á heimavelli Leeds. Greinilegt
var á leik United að leikmenn liðsins
voru örþreyttir eftir erfiða leiki undan-.
farna daga. Það er líka greinilegt að erf-
ið barátta á þrennum vígstöðvum,
ensku deildinni, bikamum og Evrópu-
keppninni, verður einn erfiðasti and-
stæðingur liðsins á erfiðum loka-
spretti tímabilsins.
Leeds var betri aðilinn i fyrri hálf-
leiknum í morgunleiknum á Elland
Road í gær og náði þá forystunni.
United jafnaði í síðari hálfleik og und-
ir lok leiksins fengu bæði lið tæki-
færi til að sigra. Dwight Yorke fékk
þó besta tækifærið er hann skaut
yfir úr dauðafæri á markteig
Leeds.
„Enn þá í okkar höndum"
Alex Ferguson, stjóri United,
var sáttur við leik sinna manna
eftir jafnteflið gegn Leeds.
„Við vorum slakir í fyrri hálf-
leik og þá gáfum við Leeds mögu-
leika. í síðari hálfleik vomm við
betri aðilinn en þegar við þurftum
að keyra upp hraðann i síðari hálf-
leik var krafturinn einfaldlega
ekki til staðar,“ sagði Ferguson eft-
ir leikinn.-
Ferguson sagðist alveg geta fyr-
irgefið Dwight Yorke að misnota
dauðafærið i blálokin því hann
hefði staðið sig frábærlega vel
á leiktíðinni með United. „Ég
er stoltur af mínum leik-
mönnum. Þeir hafa náð að
sigra í mjög stórum og
mikilvægum leikjum síð-
ustu vikurnar og eiga ekk-
ert nema heiður skilinn.
Um
mögu-
leika United
á lokasprett-
inum sagði
Ferguson:
„Titillinn
er enn þá í
okkar höndum
og engra ann-
arra. Það er
hins vegar mik-
ið eftir og loka-
spretturinn á
eftir að verða
skrautlegur. Það
f eiga margir
óvæntir hlutir eftir
að gerast og sveifl-
urnar eiga eftir að
verða miklar. Mögu-
leikar okkar em ágætir
og það er undir okkur
sjálfum komið hvort við
vinnum titUinn eða ekki,“
sagði Alex Ferguson.
-SK
Hart barist í leik Chelsea og
Sheffield Wednesday í gær. Reuter
Sport
INGIAND
Úrslit í A-deild:
Aston Villa-Nottlngh. Forest . 2-0
1-0 Draper (45.), 2-0 Barry (57.)
Blackburn-Liverpool.........1-3
0-1 McManaman (23.), 0-2 Redknapp
(32.), 0-3 Leonhardsen (32.)
Derby-Southampton...........0-0
Everton-Charlton............4-1
1-0 Huchhison (24.), 2-0 CampbeU
(31.), 3-0 CampbeU (60.), 4-0 Jeffers
(75.), 4-1 Stuart (81. víti)
Leicester-Coventry .........1-0
1-0 MarshaU (45.)
Middlesborough-Arsenal .... 1-6
0-1 Overmars (4. víti), 0-2 Anelka
(38.), 0-3 Kanu (45.), 0-4 Vieira (58.),
0-5 Kanu (60.), 0-6 Anelka (78.), 1-6
Armstrong (87.)
Tottenham-West Ham ........1-2
0-1 Wright (5.), 0-2 KeUer (66.), 1-2
Ginola (73.)
Wimbledon-Newcastle........1-1
0-1 Shearer (18.), 1-1 Hartson (24.)
Leeds-Man. Utd.............1-1
1-0 Hasselbaink (32.), 1-1 Cole (55.)
Sheffield Wednesday-Chelsea . 0-0
Staðan í A-deild:
Arsenal 34 19 12 3 54-15 69
Manch. Utd 33 19 11 3 73-33 68
Chelsea 34 17 14 3 49-26 65
Leeds 34 16 12 6 54-30 60
Aston ViUa 35 15 10 10 47-39 55
West Ham 35 15 9 11 41-42 54
Middlesbro 35 12 14 9 47—48 50
Derby 34 12 12 10 37-41 48
Liverpool 34 13 8 13 60-44 47
Tottenham 34 11 13 10 41-40 46
Leicester 34 11 13 10 36-41 46
Newcastle 35 11 11 13 46-50 44
Wimbledon 35 10 12 13 39-56 42
Sheff. Wed. 35 11 7 17 39-40 40
Everton 35 10 10 15 35-42 40
Coventry 35 10 7 18 35-48 37
Charlton 35 7 11 17 37-52 32
Blackburn 34 7 11 16 36-19 32
Southampt. 35 8 8 19 31-63 32
Nott. For. 35 4 9 22 30-68 21
Markahæstir í A-deild:
Michael Owen, Liverpool........17
Dwight Yorke, Man. Utd ........16
Andy Cole, Man. Utd............16
Jimmy F. Hasselbaink, Leeds ... 16
Úrslit í B-deild:
Bristol City-Birmingham.......1-2
Huddersfield-Bamsley.........0-1
Ipswich-Crewe.................1-2
Oxford-Norwich................2-4
Portsmouth-Stockport..........3-1
QPR-Bradford .................1-3
Sunderland-Sheffield United ... 0-0
Swindon-Grimsby...............2-0
Tranmere-Port Vale............1-1
Watford-Crystal Palace ......2-1
Bury-Bolton..................2-1
Wolves-WBA...................1-1
Staðan í B-deild:
Sunderland 44 29 12 3 88-27 99
Bradford 44 25 8 11 79—45 83
Ipswich 44 25 8 11 65-30 83
Birmingh. 44 22 12 10 64-35 78
Bolton 44 19 15 10 75-58 72
Wolves 43 19 14 10 61-39 71
Watford 43 19 13 11 60-53 70
Sheff. Utd 44 17 13 14 67-61 64
Norwich 44 14 17 13 60-59 59
Huddersf. 44 15 14 15 60-69 59
Cr. Palace 44 14 15 15 56-63 57
Grimsby 43 16 9 18 39-51 57
WBA 44 15 11 18 67-73 56
Barnsley 44 13 16 15 54-53 55
Tranmere 44 11 20 13 60-59 53
Stockport 44 12 17 15 49-54 53
Swindon 44 13 11 20 57-76 50
Portsmouth 44 11 14 19 56-68 47
QPR 44 11 11 22 46-59 44
Port Vale 43 12 8 23 42-72 44
Bury 44 9 17 18 34-59 44
Crewe 43 10 11 22 50-77 41
Oxford 44 9 13 22 43-71 40
Bristol C. 43 8 15 20 55-76 39
mmjsm
L2W; .Ar—----
Dundee-KUmarnock.............2-1
Dunfermline-Dundee Utd.......2-2
MotherweU-Hearts.............0-4
St. Johnstone-Celtic.........1-0
Staða efstu Uða:
Rangers 31 20 6 5 66-28 66
Celtic 32 18 8 6 77-28 62