Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1999, Page 1
Getnaöar-
varnir
fyrir
karlmenn
Bls. 19
íslendingar
óhræddir
við 2000-
vandann
Bls. 18
Heimasíður
stjórnmála-
flokkanna
Bls. 20-21
tölvui tækni og vísinda
PlayStation
Á hinni gríðar-
stóru Comdex-
tölvusýningu,
sem haldin var í
Chicago í síð-
ustu viku, hélt
Bill Gates, for-
stjóri Microsoft, ræðu þar sem hann
kynnti helstu nýjungar fyrirtækis-
ins. Meðal þess sem hann sýndi
áheyrendum var þetta gríðarstóra
líkan af nýrri mús sem væntanleg
er á markaðinn í haust.
Þetta er nýjasta útgáfan af In-
tellimouse frá Microsoft og helsta
nýjung hennar er að hún notast
ekki við gúmmíkúlu til að stjóma
því hvert bendillinn fer. Hún notast
við nýja tækni til að skynja hreyf-
ingar músarinnar og senda upplýs-
ingar um þær til tölvunnar. Þannig
segir Gates að búið sé að leysa
vandamál það sem myndast þegar
óhreinindi setjast á gúmmíkúluna
og músin fer að láta illa að stjórn.
Jafnframt. hefur músin fleiri
hnappa en hina venjulegu tvo eða
þrjá sem nú er að fmna á flestum
músum og sagði Gates að hún
væri sérhönnuð með það fyrir aug-
um að einfalda almenningi vinnu
á Netinu.
Ofurplöntur í geimnum
Visindamenn hafa
kómist að því að
tilraunir með
genabreytingar á
plöntum
úti í geimnum eru marg-
falt líklegri til að heppn-
ast en þær sem geröar era
á jörðu niðri. Líkurnar á
að það takist að koma
geni með ákjósanlegum
eiginleikum í plöntur eru venju-
lega um einn á móti þúsund á
jörðu niðri en miðað við tilraunir,
sem gerðar hafa verið með nýrri
tækni um borð í geimskutlunni
Discovery, eru líkurnar á árangri
rúmlega tífalt meiri ef
plönturnar era í þyngdar-
leysi. Með tilraunum af
þessu tagi reyna vísinda-
menn að bæta eiginleika
plantna til að gera þær sig-
urstranglegri í lífsbarátt-
unni og auka notagildi þeirra fyr-
ir mannkyniö.
^Jlujíih
Í73'A í
Efast um tilvist
samkynhneigðargens
Visindamenn við
Western Ontario
háskóla í Kanada
segjast hafa komist
að þeirri niðurstöðu
að hið svokallaða „samkynhneigð-
argen“, sem talið var að hefði fund-
ist fyrir nokkrum áram, hafi ekkert
með samkynhneigð að gera.
í fyrri rannsókninni töldu vís-
indamenn sig vera búna að finna
ákveðið genaeinkenni sem var al-
gengara hjá samkynhneigðum
karlmönnum en gagnkynhneigð-
um. Kanadísku vísindamennirnir
segja hins vegar að svo virðist
sem samkynhneigðir hafi ekki
þessi genaeinkenni í meiri mæli
en aðrir karlmenn.
Þeir segja að þar sem úrtak
þeirra sé stærra en það sem skoðað
var í upprunalegu rannsókninni sé
líklegra að fyrri rannsóknin hafi
gefið rangar niðurstöður. Vísinda-
mennirnir vilja þó taka fram að þar
sem þeirra rannsókn hafi aðeins
beinst að einum hluta x-litningsins
sé ekki hægt að útiloka að gen sem
ákveður kynhneigð sé að finna ann-
ars staðar í genum manna.
ÍÍIÍAA
SÍlbL)]
Langar þig að Iæra tölvu-
og kerflsfræði ?
Námskynning í Perlunni
Ertu á leið í nám eða á námskeið íhaust?
Opið frá kl. 12 - 1»