Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1999, Blaðsíða 3
MÁNUDAGUR 10. MAÍ 1999
25
Ólafur Stefánsson sést hér í landsleik. Um helgina lék hann vel á Norðurlandamótinu og skoraði 10 mörk í leikjunum tveimur.
Góð útkoma
- ísland lenti í öðru sæti á Norðurlandamótinuí Noregi
íslenska landsliðið í handknatt-
leik hafnaði í öðru sæti á opna
Norðurlandamótinu sem lauk í
Moss í Noregi í gær. íslenska liðið
mætti Svíum í úrslitaleik mótsins
og beið lægri hlut með 25 mörkum
gegn 23. I hálfleik var staðan 13-10
fyrir Svía.
íslenska liðið hóf leikinn illa og
komst raunar aldrei í gang. Svíar
voru beittari og ákveðnari á öllum
sviðum. Svíar komust í 16-10 strax í
upphafi síðari hálfleik. Þá vaknaði
íslenska liðið til lífsins og náði að
jafna, 20-20. Munaði þar mest um
sterkan vamarleik. Svíar voru svo
sterkari á lokasprettinum og
tryggðu sér tveggja marka sigur.
Mörk íslands: Ólafur Stefánsson
5, Dagur Sigurðsson 4, Valdimar
Grímsson 4, Róbert Sighvatsson 3,
Júlíus Jónasson 3, Gústaf Bjarnason
1, Konráð Olavsson 1, Magnús Már
Þórðarson 1. Birkir Guðmundsson
varði vel í síðari háifleik og þá m.a.
tvö vítaköst.
íslenska liðið skellti Norðmönn-
um í fjörugum leik á laugardag,
22-23. í háifleik var staðan 8-12 fyr-
ir ísland. íslendingar áttu lengst af
frumkvæðið í leiknum en Magnús
Már Þórðarson gulltryggði sigurinn
með 23. markinu af línunni fimmt-
án sekúndum fyrir leikslok. Norð-
menn minnkuðu síðan muninn und-
ir lok leiksins.
Um miðjan síðari hálfleik var fs-
land með þriggja marka forystu,
14-17, en Norðmenn náðu að jafna
af miklu harðfylgi, 17-17. Upp frá
því var leikurinn í járnum en fs-
lendingar náðu tveggja marka for-
ystu með marki Magnúsar Más.
Ólafur Stefánsson, Valdimar
Grímsson og Bjarki Sigurðsson áttu
allir ágætan leik og Sebastian Alex-
andersson varði vel þegar hann
kom í markið.
Norðmenn voru að vonum mjög
óhressir með tapið því þeir voru
búnir að setja mótið þannig að þeir
myndu leika úrslitaleikinn. Af leik
Norðmanna að dæma verða þeir að
laga ýmislegt fyrir heimsmeistara-
mótið í Egyptalandi.
„Ég var mjög ánægður með vöm-
ina en það er gott að fá ekki á sig
nema 22 mörk. Sóknin var lengst af
ágæt og á heildina litið var ég
ánægður með leik liðsins. Magnús
Már kon inn á í síðari hálfleik og
stóð fyrir sínu,“ sagði Þorbjöm
Jensson, landsliðsþjálfari, í samtali
við DV eftir leikinn við Norðmenn.
Mörk íslands: Ólafur Stefánsson
5, Valdimar Grímsson 5/2, Bjarki
Sigurðsson, Júlíus Jónason 3, Aron
Kristjánsson 2, Dagur Sigurðsson 1,
Rúnar Sigtryggsson 1, Magnús Már
Þórðarson 1, Konráð Olavsson 1.
„Ég get ekki annað en verið
þokkalega sáttur með þessa niður-
stöðu. Þetta var verðugt verkefni og
þarna lékum við gegn tveimur þjóð-
um sem leika sama vamarleik og
Svisslendingar. Þetta var því mjög
góður undirbúningur fyrir leikina
við þá. í mótinu var ég ánægðastur
með vamarleikinn gegn Norðmönn-
um og í síðari háfleiknum gegn Sví-
um var vörnin og sóknin ágæt ef
undanskildar em upphafsmínútum-
ar,“ sagði Þorbjöm Jensson, lands-
liðsþjálfari, í samtali viö DV eftir
mótið í gær.
-JKS
Rós Magnúsdóttir - fyrsti íslandsmeistari kvenna í snóker.
íslandsmót kvenna í snóker:
Rós meistari
í fyrsta sinn
Rós Magnúsdóttir
varð um helgina
fyrsti íslandsmeist-
ari sögunnar í
snóker í kvenna-
flokki.
íslandsmótið fór
fram á Ingólfsbilli-
ard en keppendur
voru ekki mjög
margir.
Rós viðist vera í
fremstu röð hér á
landi um þessar
mundir því hún
vann alla leiki sína
örugglega.
Eins og áður
sagði var þetta
fyrsta íslandsmót
kvenna. Heimildar-
maður DV sagði í
gær að nokkur fjöldi
kvenna hefði ætlað
að taka þátt í mót-
inu um helgina en
guggnað á síðustu
stundu. Er ljóst að
næst þegar keppt
verður um meist-
aratitilinn í kvenna-
flokki mun fríður
hópur snóker-
kvenna mæta til
leiks og sýna listir
sínar.
Sport
Bland í nolca
íslands-
meistarar
ÍBV í knatt-
spyrnu sigr-
uðu lið
Fram ör-
ugglega í
minningar-
leik um
Lárus Jakobsson í Vestmanna-
eyjum um helgina. Lokatölur
urðu 3-0. Mörkin skoruðu þeir
Hlynur Stefánsson, Bjarni
Geir Viöarsson og Gunnar H.
Þorvaldsson.
Svíar hlutu tœpar eina milljón
króna fyrir sigurinn á opna
Norðurlandamótinu í handknatt-
leik.
Magnus Wislander og Staffan
Olson léku ekki með Svíum á
mótinu í Noregi. Þeir voru að
leika með liði sínu, Kiel, í Þýska-
landi.
Danir þóttu ekki sannfærandi á
mótinu eins og reyndar Norð-
menn einnig. Báðar þessar þjóð-
ir leika á HM í Egyptalandi.
Norðmenn gengu út frá því sem
vísu að þeir myndu leika til úr-
slita á mótinu. Samið hafði verið
við norska sjónvarpið um að
sjónvarpa leiknum beint. íslend-
ingar gerðu þær áætlanir að
engu þegar þeir sigruðu Norð-
menn í fýrsta leiknum.
íslendingar mœta Kýpurbúum
um næstu helgi en leikirnir eru
liður í forkeppni Evrópumótsins.
Leikið verður á laugardag og
sunnudag.
16-liða úrslitakeppnin í NBA
hófst um helgina með fjórum
leikjum. Miami tapaði á heima-
velli fyrir New
York, 75-95.
Allen Houston
skoraði 22 stig
fyrir New
York en
Alonzo Mo-
urning skor-
aði 27 stig fyrir
Miami. Atl-
anta sigraði Detroit, 90-70. Steve
Smith skoraði 19 stig fyrir Atl-
anta og Grant Hill gerði 26 sti
fyrir Detroit. Isaiah Rider
skoraði 25 stig fyrir Portland
sem sigraði Phoenix, 95-85.
Jason Kidd skoraði 17 stig fyrir
Phoenix. Karl Malone gerði 21
stig fyrir Utah sem lagði Sacra-
mento, 117-87. Chris Webber
skoraði 14 stig fyrir Sacramento.
Það verða KR og Stjarnan sem
leika til úrslita í deildarbikarn-
um í kvennaflokki. í undanúr-
slitunum sigraði KR lið Vals,
4-1. Ásthildur Helgadóttir
skoraði 2 mörk og þær Olga
Fœrseth og Guðlaug Jónsdótt-
ir eitt hver. Bergþóra Laxdal
skoraði fyrir Val. Þá sigraði
Stjarnan lið Breiðabliks, 1-0.
Heiða Sigurbergsdóttir skor-
aði mark Stjörnunnar.
Hertha Berlin krækti í einn
efnilegasta knattspyrnumann
Þýskcdands um helgina þegar
Sebastian Deisler frá Borussia
Múnchengladbach skrifaöi undir
þriggja ára samning við Berlín-
arliðið. Bayem Múnchen og
Bayer Leverkusen vom einnig á
höttunum eftir honum.
-JKS/SK
ÞÍN FRÍSTUND
-OKKAR FAG
INTER
SPORT
Bíldshöfða 20 • 112 Reykjavík • 510 8020
• www.intersport.is