Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1999, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1999, Qupperneq 6
ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ 1999 Sálfræöin á íþróttavellinum: Háværir áhorfendur eru lykilmenn heimaliðsins Guðjón og Þor- björn vita hvað þeir syngja þeg- ar þeir hvetja áhorfendur til að láta sem mest í sér heyra á landsleikjum íslenskra knattspymu- og handboltamanna inni í Laugar- dal. Já, iþróttamenn og þjálfarar hafa lengi vitað það og nú hefur það verið sannað með vísindalegum að- ferðum tölfræðinnnar: Hávaðinn í áhorfendum skiptir öllu máli fyrir heimaliðið í íþróttakappleik, ef það ætlar sér að vera nokkuð öruggt um að sigra. „Ég myndi segja að þetta væri það sem mestu máli skiptir. Áhrif mann- fjöldans á bæði leikmenn og dómara em líklega það sem mestu varðar þegar kostir heimavailarins eru ann- ars vegar,“ segir prófessor Alan Nevill við íþróttafræðistofnunina í Liverpool. Tengslin milli fjölda áhorfenda og betri stöðu vegna leiks á heimavelli hafa lengi verið kunn en Nevill og starfsbræður hans telja sig hafa orð- ið fyrsta til að færa á það vísindaleg- ar sönnur með tilraunum. Tölfræðin hefur sýnt fram á að nokkuð tryggt sé að lið fari með sig- ur af hólmi í meira en helmingi leikja á heimavelli. Nevill og félagar hans hönnuðu rannsókn til að sýna fram á hvemig hávaðinn í áhorfend- um hefur áhrif á þau. Vísindamennimir fengu til liðs við sig ellefu hálfatvinnumenn í knatt- spymu, leikmenn, þjálfara og dóm- ara. Þátttakendurnir í tilrauninni vom fengnir til að leggja dóm á lög- mæti tuttugu og flmm umdeildra at- vika sem tekin voru upp á mynd- band, með lýsingu fransks þular, í Vísindamenn þykjast nú hafa sannað að hávaðasamir áhorfendur geti skipt sköpum fyrir heimaliðið á íþróttakapp- leik. Hér er sá franski David Ginola hjá Tottenham að fagna sigri með stuðningsmönnum sínum. Evrópuleik franska liðsins Lens og hins gríska Panathinaikos. „Helmingur hópsins horfði á atvik- in með hávaðann frá áhorfendum í bakgrunninum en hinn helmingur- inn horfði á upptökuna með engu hljóði. Hópurinn sem horfði á upp- tökuna með hljóði hafði tilhneigingu til að refsa gestaliðinu meira en heimaliðinu," segir Nevill. Eins og nærri má geta var allt annað upp á teningnum hjá þeim horfðu á hljóðlausu upptökuna. Þeir voru gjarnari á að refsa heimaliðinu meira. Ákvörðun dóm- arans var svo mjög í takt við af- stöðu þeirra sem höfðu hljóðið á. Alan Nevill og starfsbræður hans segja frá niðurstöðum sínum í bréfi til læknaritsins Lancet. Hópurínn sem horfði á upptökuna með hljóði hafði tilhneigingu til að refsa gestaliðinu meira en heimaliðinu. Erum við þaö sem viö borðum? Erfðaþættir hafa áhrif á fæðuvalið Við erum það sem við borð- um, segir ein- hvers staðar og með smávægi- legum útúr- snúningi má allt eins segja að við borðum það sem við erum. Dönsk rannsókn hefur sem sé leitt í ljós að félagslegir þættir einir saman ráða ekki úrslitum um hvaða mat við erum hrifnust af. Þar leikur erfðamengið stórt hlutverk. Berit Lilienthal Heitman við amtssjúkrahúsið í Glostrup gerði rannsókn á 548 fullorðnum tvíbur- um á aldrinum 26 til 60 ára. Þar kom í ljós að meiri líkur voru á pví að eineggja tvíburar veldu Sínum augum lítur hver á silfrið þegar matur er annars vegar. Ekki eru allir jafnhrifnir af öllum mat og eiga erfðaþættir þar nokkra sök á. sömu fæðu en tvíeggja tvíburar. „Það bendir til að erfðaþættir ráði því að hluta hvað við veljum okkur að borða. En erfðaþættirnir ráða ekki einir ferðinni. Rann- sóknin sýnir einnig fram á að mat- arval okkar og hvað það er sem okkur finnst best ræðst einnig af því sem okkur var kennt að borða þegar við vorum börn,“ segir Berit Heitman í viðtali við danska blað- ið Politiken. Rannsóknin, sem greint er ffá í virtu bandarísku tímariti um nær- ingarfræði, leiddi í ljós að það er einkum löngun okkar í ákveðnar fæðutegundir sem er háð erfðun- um, það er að segja fæðu sem inni- heldur mikið af kolvetnum, svo sem brauð, kornmeti, graut, ávexti og grænmeti. Berit Heitman segir að þess kon- ar fæða eigi sinn þátt í að fólk er grannt. Rannsóknin bendi því til að erfðaþættirnir ákvarði kannski hver okkar eigi að vera grannur og spengilegur og hver ekki. Eink- um vegna þess að erfðaþættimir geri ákveðið fólk sérlega hrifið af fæðu sem inniheldur mikla sterkju og treQar. Fyrri rannsóknir hafa meðal Rannsóknin sýnir einnig fram á að matarval okkar ræðst einnig afþvi sem okk- ur var kennt að borða þegar við vorum böm. annars sýnt að til er fólk sem er einkar viðkvæmt fyrir fituinni- haldi fæðunnar. Leonardo da Vinci varð ekki fyrstur til að draga upp kort af tunglinu við upp- haf 16. aldarinnar, eins og hingað til hefur verið trú vísindamanna. Nei, það voru menn sem bjuggu á írlandi fyrir fimm þús- und árum. Tunglkortið þeirra er skorið í stein sem fannst í gröf frá ný- steinöld á þeim ffæga fornleifastað Knowth í Meath-sýslu, skammt norður af Dyflinni. Kortið ku vera allná- kvæmt. „Ég var furðu lost- inn þegar ég sá þetta. Það leikur ekki nokk- ur vafi á að þetta er elsta kortið sem nokkurn tíma hefur fimdist af tunglinu," segir kanadiski Það hleður utan á sig þegar það snæðir feitt fæði á meðan fitan hefur engin áhrif á aðra. visindamaðurinn Philip Stooke frá háskólanum í Vestur-Ontario í viðtali við BBC. Stooke segir að bogarnir á kort- inu komi nákvæmlega heim og saman við bogana sem dregnir voru upp á kortum af tunglinu löngu síðar. „Þama er allt. Al- menn einkenni tungls- ins og tilteknir staðir sva sem Mare Humor- un og Mare Crisium," segir Stooke. „Þeir sem drógu upp þetta kort af tunglinu voru fyrstu vísinda- mennimir. Þeir vissu heilmikið rnn efhið og voru langt frá því að vera ffumstæðir." Rannsóknir á nýstein- aldargröfunum á ír- iandi höfðu áður leitt í ljós að arkitektar þessa tíma höfðu áhuga á himinhvolf- inu og bjuggu yfir staðgóðri þekkingu á gangi sólarinnar. Forn-írar fyrstir til að kortleggja tunglið ' "" ■ " ^ 1 ^ )} í)\1\ J1 : Mánasteinn á hringsóli um sólina Stjarnvísinda- uppgötv- uðu nýlega stein á sporbaug um sólina, mjög nálægt sporbaug jarðarinnar. Steinninn er talinn vera milli 30 og 50 metrar í þvermál, að því er fram kemur í tímaritinu New Scientist. Samkvæmt útreikningum tekur hringferð steinsins um sólina 1,09 ár og hann er aðeins 9 milljón kílómetrum flær sólu en jörðin. Næsta víst er að steinninn, sem hefur verið gefið auðkenn- ið 1999 CG9, hafi brotnað af tunglinu einhvem tíma í fymd- inni og svifið á brott vegna lit- ils þyngdarkrafts tunglsins. Eitt egg á dag skaðar engan Eggjabændur fagna því nú að framleiðsla þeirra hefin* fengið uppreisn æru. Umfangsmikil rannsókn á áhrifum eggjaáts þykir sanna að það auki ekki likumar á hjartasjúkdómum að borða eitt egg á dag. Rannsóknin náði til meira en eitt hundrað þúsund manna og var sumum fylgt eftir í fiórtán ár. Hugsanlegt er að næringar- efnin í eggjum vegi einhvern veginn upp á móti öllu kólester- ólinu sem í þeim er. „í eggjum er umtalsvert magn kólesteróls en hófleg neysla virðist ekki hafa nein af- gerandi áhrif á hjartasjúk- dóma,“ segir aðalhöftmdur rannsóknarinnar. Eystrasalts- fiskur dregur úr frjósemi Nýjar rann- sóknir sýna að konur sem borða reglulega feitan fisk úr Eystrasaltinu og reykja í ofanálag geta átt í mesta basli með að verða óléttar. Niðurstöður þessar fengust við samanburðar- ▼ rannsóknir á fiski- mönnum við Eystra- saltsströnd Svíþjóðar og skyldum þeirra annars vegar og fjölskyldum á vesturströnd landsins hins vegar. Feitur fisk- ur úr Eystrasalti, einkum lax og síld, inniheldur þrávirk klórefni eins og PCB. Miklu minna er um slík efni í flski sem vestur- strandarbúamir láta ofan í sig. Rannsókn vísindamanna frá háskólasjúkrahúsinu í Lundi leiddi í ljós að konur sem borða feitan fisk að minnsta kosti einu sinni í viku og reykja líka eiga tvisvar sinnum erfiðara með að verða þungaðar. fjöl-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.