Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1999, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1999, Blaðsíða 6
GSM □ □□ □ □□ □ □□ nan v i ö t a 1 iö Qunnlaugur Jónsson rétt óútskrifaður verkfræðingur sem vinnur hjá FBA. Gunnlaugur: „Gulli.“ Fókus: „Hæ, þetta er Fókus.“ G: „Já, sæl og blessuð." Smábið. Gulli talar við ein- hvem.... F: „Er ég nokkuð að trufla þig?“ G: „Nei, nei.“ F: „Gott. Hvar ertu annars?“ G: „Ég er héma í FBA.“ F: „Jaaaá, alveg rétt. Þú ert ný- byrjaður að vinna þar?“ G: „Eeee, já. Ég byrjaði í síðustu viku.“ F: „Og hvemig líkar þér?“ G: „Bara mjög vel.“ F: „Er það ekki?“ G: „Afskaplega vel.“ F: „Hvað ertu að gera þarna?" G: „Ég er i gjaldeyrisviðskiptum.“ F: „Jaá. Gefandi starf?“ G: „Mjög.“ F: „Er þetta skemmtilegt fólk sem þú ert að vinna með?“ G: „Ha?“ F: „Er þetta skemmtilegt fólk sem þú ert að vinna með?“ G: „Já, mjög svo.“ F: „Já.“ G: „Sérstaklega Einar.“ F: „Sérstaklega Einar? Hver er Einar?“ G: „Einar? Hann er... hann er svona náungi." F: „Hann er svona náungi?" G: „Jáh.“ F: „Jaá. Er hann sætur?“ G: „Já, mjög svo. Mjög.“ F: „Hi, hi. Er hann á lausu?“ G: „Já. Viltu að ég spyrji hann hvort hann vilji byrja með þér?“ F: „Já, neinei. Nei, nei, hættu þessari vitleysu. Þú ert að fara að horfa á Júróvisjón um helgina?" G: „Uuu. Já, ætli maður horfi ekki á Júróvisjón svona til tilbreyting- ar.“ F: „Er partí?“ G: „Ha?“ F: „Eitthvert partí?" G: „Já, ég kem til þín í partí" F: „Þú ætlar að koma til mín?“ G: „Já.“ F: „Og ætlarðu að taka Einar með?“ G: „Ha?“ F: „Ætlarðu að taka þennan Einar með?“ G: „Já.“ Fliss og hlátur. F: „Ókei. Ég ætlaði bara að tékka aðeins á því hvemig þú hefðir það. Gott að þér líkar vel í nýju vinnunni.“ G: „Gaman að heyra í þér.“ F: „Sömuleiðis. Við sjáumst þá.“ G: „Ókei.“ F: „Bæbæ.“ G: „Bæ.“ Tíminn frá því að fólk fer á fætur og þangað til það fer í vínnuna er svoiítið sérstakur. Sumír hafa aðeíns 10 mínútum úr að moða en aðrir geta dólað sér í nokkra klukkutíma. Sarrrt vírðast alltaf allír vera að ffýta sér á þessum tíma. Reyna að nýta mínúturnar sem best og koma sem flestu í verk áður en faríð er að heiman. Fókus fylgdíst með fímm manneskjum fara á fætur í víkunní og varð vrtní að fyrstu morgunverkunum. Góðan daginn Vekjarakiukkan hringir 8.15 Leikarar era með lífsklukkuna öðravísi stillta en gerist og gengur. Enda vinna þeir ekki frá níu til fimm og fara svo heim. Leiklistin er að miklu leyti iðkuð á kvöldin og þar af leiðandi geta morgnamir verið bæði langir og rólegir hjá leikuram. Eins og kvöldin eru hjá níu til fimm fólkinu. Stefán Karl Stefánsson er nýútskrifaður úr Leiklistarskólanum. Hann er að æfa fyrir tvö leikrit núna og mætir á æfingar klukkan tíu á morgnana. „Þessa dagana hringir vekjara- klukkan mín rúmlega átta. Eins og gefur að skilja fer ég þá fram úr rúminu og skelli mér á salemið til að verða mér út um eina bunu eða svo. Að því loknu liggur leið mín yfirleitt í eldhúsið þar sem ég reyni að finna eitthvað ætilegt," segir Stefán Karl sem býr í foreldrahús- um í Hafnarfirði. Venjulega era mamma hans og pabbi farin til vinnu þegar hann fer á fætur. Hann er því einn í kotinu og verð- ur að redda sér sjádfur. „Oftast finn ég brauð og bý til úr því samloku með skinku eða öðru áleggi sem á boðstólum er. Eins er alltaf gaman að rekast á jógúrt í ís- skápnum. Samt verð ég að hafa það í huga að það er ekki gott að belgja sig út rétt fyrir æfingu. Þegar ég er tímanlega á fótum kem ég gjaman við á hinu ágæta kaffihúsi Súfist- anum á Strandgötu í Hafnarfirði og fæ mér einn Cappuchino. Bolli af svoleiðis kaffi er finn morgunmat- ur. A Súfistanum kveiki ég líka oft í fyrstu sígarettu dagsins,“ segir Stefán en reykingarnar eru nokkuð sem hann stefnir á að gefa upp á bátinn fljótlega. „Röddin er atvinnutæki í mínu tilfelli. Samt vinn ég skipulega að því að eyðileggja hana og það geng- ur ekki. Þessum ósið verð ég að hætta,“ segir hann og bætir við að rödd sína verði hann að vekja á hverjum morgni. „Þá humma ég og ræski mig og syng kannski aðeins líka. Þetta geri ég venjulega í bílnum á leið- inni á æfingu. Ég á rauðan Nissan Sunny ‘91 fjórhjóladrifinn með spojler og gerviálfelgum. Það er fínt að humma í honum. Þaðan hringi ég líka stundum í bankann eða endurskoðandann til að nota tímann." Stefán segir að engir tveir morgnar séu eins. Stundum vaknar hann of seint en hann hefur þróað með sér aðferð til að halda ró sinni þegar það gerist. „Það þýðir ekkert að stressa sig upp þegar maður er hvort eð er orðinn of seinn. Aldrei skyldi seinn maður flýta sér, þá fer bara allt í klessu. Enda skiptir miklu máli hvemig maður vaknar, dagurinn mótast af því,“ segir Stefán Karl. Allt snýst um Þórey Vilhjálmsdóttir er tuttugu og sex ára. Hún er annar eiganda fyrirsætuskrifstofunnar Eskimo models og tiltölulega nýbökuð móð- ir. Sonur hennar er sjö mánaða og hans vegna er vekjaraklukka óþörf á heimilinu. „Hann vaknar klukkan hálfsjö og alltaf geri ég klukkutíma langa tilraun til að svæfa hann aftur. Sú tilraun mistekst undantekningar- laust. Á endanum förum við fram úr klukkan hálfátta og þá vind ég mér undir eins í að útbúa morgun- mat, stappa banana og svoleiðis. Sjálf fæ ég mér yfirleitt komflex og mjólk, ýmist heilsukornflex eða óhollt með sykri. Það fer eftir skap- inu,“ segir Þórey. Eins og hjá öllum mæðrum snú- ast morgnamir nær eingöngu um barnið. Þegar hún er búin að gefa syninum morgunmat, klæðir hún hann í föt, leikur við hann og fer með hann í göngutúr. „Ég reyni líka að nýta morgnana í að sinna heimilinu. Sá stutti fær sér hálftíma blund fyrir hádegið og þá tek ég til og er ægilega myndar- leg. Enda er það eini tíminn sem ég hef til að halda heimilinu í þokka- legu standi.“ Þórey mætir í vinnuna um há- degisbU og þá tekur mamma henn- ar við baminu. Maðurinn hennar Þóreyjar sefur til átta og fer þá í vinnuna. Brátt mun hann þó þurfa að taka meiri þátt i morgunverkun- um þar sem Þórey stefnir á að byrja að vinna frá níu tU fjögur eft- ir nokkra daga. „Það kemur ekki nógu vel út að reyna að vera aUt í einu, húsmóðir, móðir og bisnesskona. Þess vegna ætla ég að byrja að vinna eins og venjuleg manneskja og láta það gott heita þótt það bitni á húshald- inu. Bamið er númer eitt, svo vinnan og íbúðin í þriðja sæti. Eins þarf ég að virkja manninn minn betur á morgnana svo þetta gangi upp,“ segir Þórey. Hreiðar Már Sigurðsson, aðstoðarforstjóri Kaupþings, vaknar aUtaf og ævinlega á sama tíma. Morgnarnir hjá honum eru i föstum skorðum og hann gengur hreint tU verks um leið og hann vaknar. „Það fyrsta sem ég geri er að bursta í mér tennurnar. Svo fer ég í sturtu og hef hana heita. Mér líkar Ula við kaldar sturtur á morgnana og eins er betra að húð- in sé heit þegar ég raka mig eftir sturtuna. Inni á baðherberginu tek ég líka aUtaf eina magnamín- piUu,“ segir Hreiðar Már. Hann er ekki einn á morgnana. Með honum vaknar sjö ára sonur hans og þeir feðgar borða saman seríós og lesa blöðin á meðan mæðgurnar á heimUinu sofa. „Það er mjög mikUvægt fyrir mig að lesa blöðin á morgnana. Ég þarf að fylgjast með nýjustu fréttum, og þá sérstaklega úr viðskiptalífinu en klukkan hálf- níu fer ég aUtaf á fund með vinnu- félögunum þar sem farið er yfir þróun og horfur á fjármálamark- aðnum. Þegar við feðgamir erum búnir að nærast, lesa blöðin og ræða málin, held ég af stað í vinn- una. Það siðasta sem ég geri áður en ég fer út úr húsinu er að binda bindishnútinn. Ég man ekki eftir að hafa farið í vinnuna án þess að hafa bindishnútinn hnýttan. Hann er jafnframt það fyrsta sem ég losa mig við þegar ég kem heim á kvöldin,“ segir Hreiðar og leggur af stað í vinnuna fjörutíu minútuum eftir að hann vaknar. 6 f Ó k U S 28. maí 1999

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.