Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1999, Síða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1999, Síða 7
Eins og frægt er orðið er Magnús Scheving ekki latur maður. Hjá honum er alltaf allt á milljón og furðulegt nokk hvemig hann kemst yflr allt sem hann tekur sér fyrir hendur. Núna vinnur hann að meðal annars að markaðssetningu Latabæjar erlendis, býr til brúður, skrifar leikrit og vinnur að gerð bókar um tvö hundruð bestu kenn- ara í heiminum. „Mér finnst best að vinna á nótt- unni þannig að ég er enginn sér- stakur morgunhani. Fer yfirleitt á fætur einhvem tíma á mifli átta og tíu. Stundum fyrr, jafnvel klukkan sex, það fer eftir því hvað ég var duglegur að vinna nóttina áður. Til að vera skipulagður bý ég mér tfl lista á kvöldin yflr það sem ég þarf að gera daginn eftir og þennan lista skoða ég vel á morgnana, merki við öli atriðin og set þau í forgangs- röð. í dag er ég til dæmis með þrjá- tíu og þrjú atriði á listanum." Magnús notar símann mikið á morgnana. Þannig byrjar hann að afgreiða það sem er á dagskrá yflr daginn. Þótt morgunverkin byrji með látum gleymir Magnús aldrei því mikilvægasta, morgunmatnum. „Á hverjum morgni kreisti ég mér appelsínur í þar til gerðri vél sem mér leiðist reyndar mikið að þrífa en geri það samt alltaf að lok- inni kreistingu. Með ávaxtasafan- um borða ég brauð og oftar en ekki fæ ég mér skyr líka. Ég borða mik- ið af skyri. Stundum er dóttir mín með mér á morgnana og hún heimtar alltaf hafragraut. Þá fæ ég mér graut henni til samlætis. Líkt og appelsínukreistarann þykir mér ákaflega leiðinlegt að þvo hafra- grautspottinn en ég geri það nú samt. Ég er vel upp alinn og hef verið skikkaður til að ganga alltaf frá í eldhúsinu áður en ég yfirgef það,“ segir Magnús sem heldur að heiman um tíuleytið og er aldrei að fara að gera það sama og daginn áður. „Ég hef ekki upplifað tvo eins vinnudaga í sjö eða átta ár. Ég er alltaf að fást við eitthvað nýtt og fjölbreytilegt og þess vegna verð ég að skipuleggja mig vel á morgnana og á kvöldin svo ég komist yfir þetta þannig að vel sé,“ segir Magnús. Ur rúminu til 2 á 19 mínútum „Ég vakna klukkan fjögurfjöru- tíuogflmm og er komin út í leigubíl fjögurfimmtíuogfimm," segir út- varpskonan Margrét Marteinsdótt- ir þegar hún er spurð um hvað hún geri áður en hún mætir í vinnuna. Margrét sér um morgunþátt rásar tvö og mætir í vinnuna klukkan flmm. Þátturinn hefst klukkan sex og þá er hún búin að lesa blöðin, kynna sér hvað um er að vera í þjóðmálunum og setja sig í stelling- ar. „Leigubílastöðin sér um að vekja mig. Þaðan er hringt kortér fyrir fimm og þá dríf ég mig fram úr og færi sofandi dóttur mína, sem er alltaf uppí hjá mér, yflr tfl mömmu og pabba. Svo hendi ég mér í föt og hleyp út í leigubíl. Ef ég er ekki komin þremur tfl flmm mínútum eftir að hann mætir á svæðið hringir leigubílastöðin aft- ur. Þetta er frábær þjónusta og nauðsynleg í mínu tilfelli. Það væri ekki gott ef ég svæfi yfir mig,“ segir Margrét. Stundum „kaupir" Margrét sér fimm mínútur á kvöldin. Þá hring- ir hún í leigubílastöðina og biður konurnar þar um að senda leigubíl- inn til sín fimm mínútum síðar en vanalega. „Þá hef ég tíma tfl að punta mig pínulítið, setja kinnalit og líta að- eins betur út. Þegar ég hef ekki þessar extra flmm mínútur mála ég mig i leigubílnum. Hann er i um það bil níu mínútur á leiðinni með mig i vinnuna og þær mínútur nota ég vel. Fer yflr þau gögn sem ég hef meðferðis og undirbý mig eins mikið og ég get fyrir þáttinn,“ segir Margrét. Stelpur og hálfstelpur í Bellatríx hlaupa nú á eftir meikgulrótinni en Ester „Bíbí“ Ásgeirsdóttir, bassaleikarinn fyrrverandi, er bara heima. Eins og er situr hún úti í garði með syninum Ásgeiri og er með margt í bígerð. Hún gaf sér tíma til.að svara 23 spurningum, enda 23 ára sjálf. var marnings- rotlningin Ertu búin að selja bassagræjurnar? „Nei, og ætla ekki að gera það.“ Uppáhalds skemmtistaðurinn? „Bara gott partl í heimahúsi." Girnilegasti piparsveinninn? „írska sjónvarpsstjarnan Danann. Uppáhalds-tískufatabúðin? „Bónus.“ Draumahúsnæðið? „Eitthvert húsnæði sem ég á sjálf, helst í útlöndum." Leiðinlegasta starfið? „Hjá Islenskum gæðafiski í Keflavík. Ég var marningsdrottningin.“ Hvort vildirðu lenda með Adda í Skíta- mórali eða Sölva í Quarashi á eyðieyju? „Ég vil helst ekkert lenda á eyöieyju en ef ég væri neydd væri líklegast mestur féiagsskapur í þeim báöum. Sölvi gæti safnað ávöxtum og Addi veitt fisk.“ Brjóstahaldarastærðin? „Ég vil ekki flagga því..." Mittismálið? „...því þegar ég verð rik vil ég ekki að þessar upplýsingar liggi á lausu." Hefurðu átt gæludýr? „Ég hef átt miiljón gæludýr, t.d. skjald- bökuna Frank Zappa sem ég varð að skila eftir tvo daga. Hjá foreldrum mínum var alltaf hundur og ég var dugleg að taka aö mér flækingsketti. Þeir stungu af þeg- ar mamma var búin að baða þá og snyrta." Bestu Ijósabekkirnir? „Æi, bara bekkurinn út í garöi." í hvaða sæti lendir Selma í Júróvisjón? „í fyrsta sæti, þetta er svo frábært lag." Uppáhalds-umræðuefnið? „Samsæriskenningar. Og tónlist ef það þrýtur. Síðan samsæriskenningar í tónlist." Hefurðu stolið en vilt ekki viðurkenna það? „Ég vil ekki viðurkenna þaö." Geðvelkasta djammið? „Það var í Helsinki. Ég gekk með fram borginni alla nóttina því ég mundi að hót- elið var einhvers staðar við ströndina. Sólin var komin upp þegar ég komst heim." Besti morgunmaturinn? „Beikon og egg.“ Hvað pantarðu þér á bar? „Gulrótarsafa." Leiðinlegasti skemmtikrafturinn? „Bill Clinton. Bókin á náttborðinu? „The Rise & Fall of Horror Movies," eftir Dr David Soren." Hvað sástu síðast í bíó? „Life is Beautiful." Hún var ótrúlega æö- islég." Hvað kaupirðu þér í bíó? „Millistóran popp og minnstu kók. Alltaf það sama, nema stundum meira popp I hléi.“ Síðasta leikhúsferð? „Síðast fór ég á hina hrikalega ömurlegu leiksýningu West Side Story. Ég hef ekki þorað í leikhús síðan." Hvað er það heimskulegasta sem þú hefur gert við peninga? „Maður er búinn að eyða svo miklum peningum I vitleysu að stundum held ég að ég hafi týnt peningum eða aö einhver hafi stolið þeim. Þetta gerist helst í út- löndum því þar er allt svo ódýrt, innan gæsalappa." 28. maí 1999 f Ókus

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.