Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1999, Qupperneq 10
V V = Nothæft gean leiðindum
Gargandi snilld! ★ = Notist í neyð
Ekki missa af þessu. Tímasóun
Góð afþreying. ^SC= Skaðlegt
Okkar róancD
Yfirumsjón með skoöanakönnun: Halldóra Hauksdóttir - Framkvæmd könnunar: Markaösdeild DV - Tölvuvinnsla: Dódó
Handrit, heimildaröflun og yfirumsjón meö framleiöslu: ívar Guðmundsson - Tæknistjórn og framleiðsla: Þorsteinn Ásgeirsson og Þráinn
Steinsson Útsendingastjóm: Ásgeir Kolbeinsson, Jóhann Jóhannsson og Ragnar Páll Ólafsson • Kynnir 1 útvarpi: Ivar Guðmundsson
Georg Holm (bassi), Kjartan
Sveinsson (hljómborð) og Jón Þór
Birgisson (gítar/söngur) eru Sig-
urrós. Trommarinn Ágúst Ævar
Gunnarsson er hættur þó hann
spili með á útgáfutónleikunum 12.
júní í Óperunni. Hljómsveitin er
mætt í kafíi og Fókus-viðtal.
„Það er bara þetta klassíska,"
segir Jónsi aðspurður um fyrstu
skref Sigurrósar. „Hljómsveitin var
stofnuð í Stúdíó Fellahelli ‘94. Við
sömdum lagið „Fljúgðu", sem fór á
Smekkleysu-safnplötu. Það var
bara skyndiákvörðun, þannig séð.“
Höföuöi þá þekkst áöur?
„Já, en ekki í langan tíma,“ seg-
ir Georg. „Ég og Gústi höfðum
þekkst síðan við vorum sex ára, en
við allir enduðum bara upp í stúd-
íói og það var ákveðið um kvöldið
að stofna band.“
„Við ákváðum að stofna band
sem myndi ráða yfir heiminum
næstu tíu árin og selja milljón ein-
tök af plötum og slá Bítlunum út.“
Hér talar Kjartan, einnig þekktur
sem Gríntan.
Heimsyfirráð
Lagið kom út og heimsyfírráða-
hjólin fóru að snúast. Mjög hægt.
Næst heyrðist í bandinu 1997 þegar
platan Von kom út.
Jónsi: „Við tókum hana upp og
svo fór Goggi út í kvikmyndanám.
Við höfðum ekki samband við hvor
annan í eitt ár. Svo hittumst við og
gerðum eitthvað og svo aftur í
pásu. Það tók þrjú ár að gera plöt-
una með miklum pásum.“
í fyrra kom svo rímix-platan
Vonbrigði og Sigurrós komst á
vinsældalistana.
„Við gerðum partísmell. Við ætl-
uðum að skáka Bubba og gera þijár
plötur á einu ári. Nýja platan átti
að koma út fyrir síðustu jól, en hún
var bara ekki tilbúin."
Hvenœr er plata tilbúin?
„Þegar allir eru sáttir, þegar tón-
listamönnunum finnst hún virka
og allt smellur saman," samþykkja
strákamir.
Og nýja platan virkar?
Georg: „Hún er allavega eins góð
og tími og peningar leyfa. Hún
hefði náttúrlega getað orðið enn
betri. Já, já, hún er fín.“
Hasshausar
Nýja platan heitir Ágætis byrj-
un. Hvernig plata er þetta?
„Rokkplata bara og öll lögin eru
likleg til vinsælda."
„Já, árið 2010 eða eitthvað," tek-
ur Jónsi við af Kjartani, „þegar út-
varpsfólk er orðið aðeins
þroskaðra. Lögin eru of löng fyrir
hinn vanalega útvarpsmann. Stysta
lagið er fimm mínútur."
Georg leggur orð í belg: „Við
hugsum um fólk sem situr heima
hjá sér og nýtur tónlistarinnar,
ekki útvarpshlustendur beint.“
Nú er tónlistin gasalega róleg.
segir Kjarri. „Ég var mjög sár.
Maður hefur prófað þetta en maður
er enginn dagreykingamaður."
* „Sjitt, þetta kemur ekki vel út,“
segir Jónsi.
Hrokagikkir
Hvað með stöðu ykkar í íslenska
popplandslaginu? Hvar standið
þið?
Jónsi: „Bara á hæsta punkti. Við
skimum yfir þetta, en ætli við
séum ekki á eyðieyju með gott út-
sýni í allar áttir.“
Hvað er mesta hóliö sem þiö hafið
fengiö?
Georg: „Það besta sem ég man
eftir var eftir eina tónleikana. Það
var manneskja sem fannst við svo
æðislegir að hún þurfti að fara að
æla. Hún fór inn á klósett og ældi
þar allt út.“
Kjartan: „Það er gaman að geta
haft áhrif á fólk. En við höfum
fengið svo mikið af jákvæðri gagn-
rýni að við förum örugglega bráð-
um að verða algjörir hrokagikkir
og snobbarar. Þess vegna segi ég að
almennileg gagnrýni sé besta hólið.
Að fólk segi hvað megi betur fara.“
Þaö hefur veriö sagt aö þiö séuð
besta bandiö síöan Trúbrot var og
hét. Eruöi aö kikna undan álagi og
vœntingum?
Georg: „Nei, af því að við gerum
í rauninni engar væntingar til
sjálfra okkar og því er ekkert álag.
Við höldum bara okkar striki."
Wu-Chronicles
Allt á einu bretti
Seint fyllist sálin prestanna var
sagt í eina tíð og svipað má segja um
Wu-tang clan en þeir heiðurspiltar fá
aldrei nóg af því að græða peninga
eins og sönnum svörtum mönnum
sæmir. Þess vegna senda þeir frá sér
hvert meistaraverkið á fætur öðru
handa okkur, aðdáendum sínum. Það
fer liklega að verða stórmál fyrir fé-
lagana bara að skipuleggja útgáfu-
tíma allra sólóskífanna því þær eru
svo margar að maður hefur varla við.
En nóg af kjaftæði í bili. Wu-ta!ng
sendi frá sér þessa skífu fyrir nokkru
og hefur henni bara verið tekið nokk-
uð vel. Það var einungis tímaspurs-
mál hvenær svona safnplata myndi
koma út. Það sem er svona eilitið sér-
stakt samt við þennan disk er að flest
lögin eru samin/flutt af Wu-tang-
meðlimum og svo einhveijum öðrum
súperrappstjömum sem of langt mál
er að telja upp hér. Einnig ber að
nefna að góður slatti af lögunum hef-
ur ekki komið út á diskum með Wu-
tang klan heldur með hinum gæjun-
um sem rappa með þeim.
Á diskinum eru aðeins tvö ný lög,
annað með Cappadonna og hitt með
Wu-syndicates, þannig að það er nú
Þetta eru nú einu sinni
Wu-tang og það er ekki
hægt að neita því að
þeir eru skaddagóðir.
svolítið verið að plokka pen... eða
þannig.
En það eru hins vegar margir sem
eiga ekki þessi lög og þá er tilvalið að
fá þau öll á einu bretti. Þetta eru nú
einu sinni Wu-tang og það er ekki
hægt að neita þvi að þeir em skadda-
góðir. Þannig að þeir örfáu á lifi sem
eiga ekki alveg allt með Wu tang
kaupa þetta shiznit. Vietnam!!
Guðmundur H. Guðmundsson
Ágætis byrjun heitir
þriðja plata Sigur-
rósar, svars Tví-
höfða-kynslóðarinnar
við Þursaflokknum.
Þetta er engin venju-
leg hljómsveit því
eftir tónleika þurfa
áhorfendur að ælá.
Sjáifir vonast þeir
eftir jákvæðri gagn-
rýni og segjast ekki
eiga von á að verða
vinsælir fyrr en árið
2010, í fyrsta lagi.
Eruöi á róandi? Reykiði hass upp á
hvern dag?
Nú fýkur í Sigurrós og þeir tala
hver upp í annan: „Nei, það eru
kjaftasögur. Það hefur skapast ein-
hver voða umræða að við séum
hasshausar af því við spilum svo
rólega og góða tónlist. Við erum
bara svo kúl á því.“
„Okkar róandi lyf er tónlistin,"
segir Georg, kúl á því.
Jónsi: „Þetta hasskjaftæði kemur
frá óþekktum samkeppnisaðila í
poppbransanum sem hefur eitt-
hvað á móti okkur.“
„Þetta er helvítis skítamórall,"
NR. 325
vikuna 27.5-3.6. 1999 Selma er síður en svo laniaus þó hún
syngi um lánleysi. Verður lagið hennar í
fyrsta sæti í næstu viku líka?
SætiVikur LAG FLYTJANDI 20/5 13/5
1 6 ALLOUTOFLUCK ..................SELMA (EUROVISION)
2 6 CANNED HEAT ........................JAMIROQUAI
3 10 PROMISES........................THE CRANBERRIES
4 2 SECRETLY.........................SKUNK ANANSIE
5 16 LADYSHAVE.............................GUS GUS
6 6 IT’S NOT RIGHT BUT IT’S OK .....WHITNEY HOUSTON
7 3 THINKING OF YOU ...................LENNY KRAVITZ
8 11 WHY DON’T YOU GET A JOB...............OFFSPRING
9 6 NEW....................................NO DOUBT
10 4 RIGHT HERE RIGHT NOW .FATBOY SLIMLIVIN’LA VIDA LOCA
11 4 RICKY MARTIN
12 8 EINN MEÐ ÞÉR........................SKlTAMÓRALL
13 7 EVERY YOU, EVERY ME.....................PLACEBO
14 3 GENG í HRINGI...........................SÓLDÖGG
15 10 STRONG..........................ROBBIE WILLIAMS
16 10 MY NAME IS...............................EMINEM
17 14 TENDER.....................................BLUR
18 9 IN OUR LIFETIME ..........................TEXAS
19 6 NEÐANJARÐAR .....................200.000 NAGLBÍTAR 19
20 3 9PM (TILL COME).............................ATB
21 4 LOOKATME ........................GERIHALLIWELL
22 6 ELECTRICITY...............................SUEDE
23 4 I WANTIT THAT WAY...............BACKSTREET BOYS
24 3 CLOUD NUMBER NINE...................BRYAN ADAMS
25 4 FLAT BEAT...................................MR OIZO
26 3 TABOO ...................GLAMMA KIDD & SHOLA AMA
27 5 HVERJUM KEMUR ÞAÐ VIÐ ..................STUÐMENN
28 1 KISS ME.................SIXPENCE NONE THE RICHER
29 8 REALLIFE ..............................BON JOVI
30 2 ONEANDONE ........................EDYTA GORNIAK
31 13 YOU STOLE THE SUN FROM ME .MANIC STREET PREACHERS
32 2 REDALERT ........................BASEMENT JAXX
33 2 BOOM BOOM BOOM BOOM...................VENGABOYS
34 1 PERFECT LIFE...............................ALDA
35 3 BLUE MONDAY................................ORGY
36 2 SOMETIMES........................BRITNEY SPEARS
37 1 TREAT HER LIKE A LADY ...............CELINE DION
38 7 IFYOUBELIVE ..............................SASHA
39 7 THANK ABBA FOR THE MUSIC..........VARIOUS ARTISTS
40 1 YOUNEEDEDME ............................BOYZONE
Alda í skugga Selmu í
númer 34. Syngur þó
hefí lag um hið
fullkomna líf.
The Cranberries lofa
öll fögru í númer
þrjú.
1 1
2 3
4 5
7 -
5 2
3 4
9 11
10 10
8 8
6 7
14 30
11 8
16 19
25 28
13 15
15 13
12 12
20 24
19 14
31 35
29 33
17 16
18 18
27 38
23 25
35 40
21 21
| N Ý T T |
24 26
40 -
22 9
34 -
38 -
ItMllll
28 23
37 -
IMlllll
26 20
30 22
Taktu þátt í vali
listans í síma 550 0044
••••••••••
Islenski listinn er samvinnuverkefni Bylgjunnar og DV.
Hringt er í 300 til 400 manns á aldrinum 14 til 35 ára, af
öllu landinu. Einnig getur fólk hringt í síma 550 0044 og
tekiö þátt í vali listans. íslenski listinn er frumfluttur á
fimmtudagskvöldum á Bylgjunni kl. 20.00 og birtur á
hverjum föstudegi í DV. Listinn er jafnframt endurfiuttur
á Bylgjunni á hverjum laugardegi kl. 16.00. Listinn er
birtur, að hluta, í textavarpi MTV sjónvarpsstöövarinnar.
Islenski listinn tekur þátt í vali „World Chart“ sem
framleiddur er af Radio Express í Los Angeles. Einnig
hefur hann áhrif á Evrópulistann sem birtur er í
tónlistai blaðinu Music & Media sem er rekið af bandaríska
tónlistarblaðinu Billboard.
10
f Ó k U S 28. maí 1999