Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1999, Qupperneq 2
22
MÁNUDAGUR 31. MAÍ 1999
Sport
Hvað finnst þér?
Hvernig fara komandi
knattspyrnulandsleikir
íslands við Armeníu og
Rússland?
- spurt í Víkinni á leik Víkings
og Leifturs á laugardag.
Sigurður Bjarnarson:
„Viö töpum líklega báðum
leikjunum, 2-3 fyrir Armenum
og 0-2 fyrir Rússum."
Gunnlaugur Þorgeirsson:
„Við vinnum Armena, 2-0,
nokkuð öruggt en töpum, 0-3,
fyrir Rússum enda verður það
mjög erfiður leikur."
Hlynur Halldórsson:
„Við vinnum Armena, 2-0, og
gerum 1-1 jafntefli í Moskvu og
förum langt með að tryggja
okkur farseðilinn í
úrslitakeppnina."
Auður Ólafsdóttir:
„Þetta á eftir að ganga ágæt-
lega, held ég. Viö vinnum Arm-
ena, 1-0, og gerum 1-1 jafnteili í
Moskvu."
Fleiri ítalir
til Chelsea
Enska knattspyrnufélagið Chel-
sea er að bæta tveimur ítölum við
í leikmannahóp sinn því það hefur
samið við Roma um kaup á lands-
liðsmönnunum Luigi Di Biagio og
Marco Delvecchio fyrir samtals
um 2 milljarða króna. Þá mun
Chelsea vera að leita eftir því að fá
Spánverjann Ivan De La Pena að
láni frá Lazio. -VS
Magnús yfir 60
Magnús Aron Hallgrímsson frá Selfossi kastaði yfir 60 metrana í fyrsta
skipti í ár þegar hann þeytti kringlunni 60,08 metra á frjálsíþróttamóti í
Jönköping í Svíþjóð á laugardaginn. Hann sigraði þar með á mótinu og
fylgdi vel eftir sigri sínum á Smáþjóðaleikunum síðasta þriðjudag en þá
kastaði hann 58,28 metra.
Magnús Aron, sem varð Norðurlandameistari 22 ára og yngri í fyrra,
er búsettur í Helsingborg í Sviþjóð og æfir þar af krafti. Hann hefur sett
steftiuna á að komast á heimsmeistaramótið í Sevilla í sumar en til þess
þarf hann að kasta 62 metra.
Ólafur Sveinn Traustason úr FH keppti á sama móti. Hann hljóp 100
metra á 11,18 sekúndum og stökk 6,60 metra í langstökki. -VS
DV
Dauft I Sevilla
Vala Flosadóttir og Þórey
Edda Elísdóttir náðu sér ekki á
strik á Grand Prix II frjálsí-
þróttamóti í Sevilla á föstu-
dagskvöldið. Vala varð fjórða
með 4,05 metra en Þórey Edda
felldi byrjunarhæöina.
Nicole Humbert frá Þýska-
landi var hins vegar í stuði og
setti þýskt met með því að
stökkva 4,40 metra. Hún haföi
misst metið aðeins tveimur
dögum áður. -VS
Besti árangur
blakmanna
DV, Liechtenstein:
Karlalandsliðið í blaki náði sín-
um besta árangri á Smáþjóðaleikum
þegar það sigraði Lúxemborg, 3-2, í
leik um þriðja sætið á laugardag-
inn. ísland var því á verðlaunapalli
í blaki í fyrsta skipti.
Apostolova besti varnar-
maðurinn
Kvennaliðinu gekk ekki eins vel
og það lenti í næstneðsta sætinu.
Miglena Apostolova, leikmaður ís-
lands, var þó kjörin besti vamar-
maður mótsins. -GH
ísland fékk
73 verðlaun
DV, Liechtenstein:
Silja Úlfarsdóttir áritar bol fyrir ung-
an aðdáanda eftir sigur í 200 metra
hlaupinu í Liechtenstein.
DV-mynd GH
ísland hlaut flest verðlaun á
Smáþjóðaleikunum, 73 talsins, átján
verðlaunapeningum fleiri en næsta
þjóð sem var Lúxemborg.
Skipting verðlauna á leikunum
var sem hér segir:
ísland G S B
29 20 24
Lúxemborg 20 16 19
Kýpur 14 13 15
San Marino 6 5 7
Andorra 5 12 11
Mónakó 5 9 6
Malta 4 8 8
Liechtenstein 3 3 2
Nýja hlaupastjarnan, Silja Úlfarsdóttir:
Ottey flottust
DV Liechtenstein:
Silja Úlfarsdóttir var stjama
frjálsíþóttakeppninnar en þessi 17
ára Hafnfirðingur vann allar þijár
greinamar sem hún keppti í, 100,
200 og 400 metra hlaup. Hún bætti
tíma sinn í öllum þremur greinun-
um og það er engu logið með þvi að
segja að ný hlaupastjama sé komin
fram á sjónarsviðið á íslandi.
Silja, sem verður 18 ára gömul í
næsta mánuði, er eitt mesta hlaupa-
efni sem fram hefur komið hér á
landi í kvennaflokki og með sama
áframhaldi á hún góða möguleika á
að slá íslandsmetin i þessum grein-
um og þá sérstaklega í 200 og 400
metra hlaupunum sem hún leggur
mesta áherslu á.
- Óraði þig fyrir að þú ættir eft-
ir að vinna þrenn gullverðlaun á
Smáþj óðaleikunum?
„Nei, mér datt það ekki til hugar
en ég gældi við að ná kannski á pall
í 400 metrunum. Ég fékk hins vegar
mikið sjálfstraust eftir sigurinn í
100 metrunum og það hjálpaði mér í
hinum greinunum. Það var auðvit-
að æðislega gaman að vinna allar
greinarnar sem ég keppti í og enn
betra var að ég náði að bæta mig í
þeim.“
- Hvenær byrjaðir þú svo að
æfa frjálsar?
„Ég held að ég hafi verið 12 ára
þegar ég sigraði í skólaþríþraut og í
kjölfarið keppi ég á Eyjaleikunum.
Eftir þá leika töluðu FH-ingarnir
við mig og spurðu hvort ég vildi
ekki koma að æfa frjálsar. Ég var í
handbolta og fótbolta en þurfti að
hætta í fótboltanum út af meiðslum
í hné en hélt áfram i handboltanum.
Það var svo fyrir þremur árum að
ég fór að æfa frjálsar íþróttir af ein-
hverri alvöru og ég sé ekki eftir því.
Það er mikill áhugi fyrir íþróttum í
fjölskyldu minni og heima eru
íþróttimar aðalumræðuefniö,“ segir
Silja en foreldrar hennar, Hrönn
Bergþórsdóttir og Úlfar Daníelsson,
voru bæði mikið í íþróttum á sínum
yngri árum. Þá var afi hennar,
Bergþór Jónsson, fyrrum formaður
FH, snjall íþróttamaður og var lengi
með þeim spretthörðustu hér á
landi.
- Hvaða markmið hefur þú sett
þér?
„Ég hef svo sem ekkert hugsað út
í það. Ég ætla aö taka eitt skref í
einu og ekki setja mér of háleit
markmið. Auðvitað er draumur hjá
manni að keppa á ólympíuleikum.
Ég held að það sé öruggt að ég keppi
ekki í Sydney á næsta ári en ég er í
svokölluðum Aþenuhóp fyrir leik-
ana 2004 og að öllu óbreyttu keppi
ég þá.“
- En hvað ætlar þú að gera í
framtíöinni?
„Eins og staðan er í dag þá veit ég
hreinlega ekki hvað ég ætla að taka
mér fyrir hendur í framtíðinni. Ég á
tvö ár eftir í menntaskólanum og
þegar ég hef lokið þeim mundi mig
langa mikið til að fara til Alabama í
nám og að æfa við bestu aðstæður."
- Átt þú einhverja fyrirmynd í
íþróttinni?
„Nei, ég get ekki sagt það en mér
hefur alltaf fundist Merlene Ottey
vera flottust þó svo að ég hafi ekki
litið á hana sem einhveija fyrir-
mynd. Ég hef hlýtt ráðum þjálfara
minna og það hefur bara reynst
mjög vel," sagði Silja sem á unnusta
heima á Fróni sem heitir Vignir
Grétarsson. Vignir æfir júdó með
Ármanni og það munaði ekki miklu
að hann keppti fyrir íslands hönd á
Smáþjóðaleikunum.
-GH