Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.1999, Side 1
íslenskir
stjarn-
fræðingar
Bls. 21
f
íslenskur
hugbúnaður
fær góða
dóma
Bls. 19
Sexí með
sólgleraugu
Bls. 18
PlayStation
Um síðustu helgi
héldu ’ CC-tölvur
Quake-mót sem stóð
yfir samtleytt frá
klukkan átta á
fostudagskvöldið og nánast fram á
mánudagsmorgun. Keppt var í
ýmsum flokkum, liða- og einstak-
lingskeppni, og voru þátttakendur
rúmlega fimmtíu, á aldrinum
þrettán og upp í fertugt. Að sögn
Jóhanns Hauks Gunnarssonar,
'fiMhí
umsjónarmanns mótsins ásamt
Paul G. Garðarssyni, fór keppnin
vel fram og sveif íþróttaandinn
yfir vötnum á milli þess sem ungir
og aldnir murkuðu lífið hver úr
öðrum á tölvuskjánum: „Þetta
gekk frábærlega. Einu raunveru-
legu fórnarlömbin um helgina
voru um það bil tvö þúsund kók-
flöskur og hundrað pitsur sem
féllu í valinn við góðar undirtektir.
Við höfðum smááhyggjur af raf-
magninu en það hékk sem betur
fer uppi. Þetta var glimrandi
helgi.“
Aðspurður hvort einhverri tölu
hafi verið varpað á fjölda stafrænna
mannvíga þessa helgi sagði Jóhann:
„Stórt er spurt. Ég veit það ekki ná-
kvæmlega, en mér tókst að drepa 78
á 20 mínútum, sem þykir nokkuð
gott.“
Jóhann segir Quake-ara, eins og
þeir kalla sig, koma úr öllum stig-
um þjóðfélagsins - leikurinn sé ekki
bundinn við börn: „Einn keppenda
um helgina var netstjóri Olís en svo
var líka hjá okkur fólk frá Skýrr,
Opnum kerfum, Skímu og fleiri fyr-
irtækjum. Haft var á orði að ef allir
þessir aðilar legðu niður vinnu í
einn dag og spiluðu Quake þá
myndi þjóðfélagið lamast. Ég er
ekki frá því að það sé nærri lagi.“
-fln
1200 milljarða
höfuðverkur
Neikvæðni auð-
veldari á Netinu
Nýjar rannsóknir
sýna að fólk gæti
verið heiðarlegra
og hreinskilnara
þegar það færir
slæmar fréttir með tölvupósti en
símleiðis eða munnlega. Aðstand-
endur rannsóknarinnar segja
þetta geta hjálpað við stjórnun og
rekstur fyrirtækja þar sem auð-
veldara sé fyrir yfirmenn að tjá já-
kvæða gagnrýni með tölvunni en
tungunni. Fólk tjái sig frekar á
hreinskilinn hátt óháð viðbrögð-
um viðmælandans og hægt sé að
komast hjá oft óþægilegum túlk-
unum radd- og svipbrigða, sem
segja á tíðum aðra og meiri sögu
en mælt mál. Aðrir spyrja hvað sé
að verða um mannleg samskipti.
i'JhiÍJij
Læknar í Banda-
ríkjunum hvetja nú
fólk til að taka höf-
uðverk alvarlega og
leita sér meðferðar
við honum. Nýleg könnun sýndi
nefhilega fram á að kvillinn hefur
ekki aðeins líkamleg óþægindi í
fór með sér fyrir þolendur hans
heldur einnig tjárhagslegan höfuð-
verk fyrir vinnuveitendur en vís-
indamenn meta tap þeirra vegna
vinnutaps og skertrar starfsorku á
litla 1200 milljarða króna. Eftir
þennan umtals-
verða sting
í budduna
hafa
vinnuveit-
endur skorið
upp herör gegn
höfuðverkjum og keppast nú
við að fá fólk til að viðurkenna
nauðsyn þess að leita læknis til að
vinna bug á vandanum. Orsakir
höfuðverkja geta verið allt frá
gamaldags streitu og álagi til
mígrenis og heilasjúkdóma. Óneit-
anlega vaknar nú sú spurning
hvort elsta afsökun kynkaldra geti
nú verið í hættu og óánægðir mak-
ar sendi lífsforunautinn til læknis
frekar en að snúa sér á hina hlið-
jJ^jJ^il
SHARP
ER-A150
Sjóðvél
►
-. > • /
◄ SHARP AR-280/335 28/33 eintök á mínútu
Stafrœn VilSilMSLA
itH'iri |
i < SHARP AL-1000 10 eintök á mínútu k J
I m Stafrcen ViNNSLA
Skrifstofutæki
Ljósritunarvélar, faxtæki og sjóðvélar
Betri tækí eru vandfundin!
Leitið nánari npplýsinga hjá sölumönnum okkar |
bræðurnirÍ
QRMSSON
Lágmúla 8 • Sími 533 2800