Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1999, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1999, Blaðsíða 8
GSM Kvikmyndagerðarkona og að eigin sögn: Fjarmiðill. Magga: Halló! Fókus: Hæ. Hver er þetta? Magga: Magga. F: Alveg rétt. Hvað segirðu gott? M: Allt fint. F: Hvar ertu? M: Ég er í vinnunni. F: Hvar er það? M: Hjá Góðu fólki, auglýsingastof- unni. F: Hvernig er það? M: Bara fint. F: Ertu búin að vinna þama lengi? M: Nei, mjög stutt. F: En nógu lengi til að vita að þér lík- ar vel? M: Já. Nógu lengi til að vita það. F: Ertu ekki að fara í mat eða eitt- hvað. Hvenær ferðu í mat? M: Hálftólf eða tólf. F: Er þetta hálftími eða hvað? M: Nei, klukkutími. F: Ætlarðu að fara eitthvað út að borða? M: Ég ætlaði nú að fara í hárgreiðslu. F: í einhverjar róttækax breytingar? M: Nei nei. Bara bæta í hvítu eða gulu. F: Kemur það ekki ágætlega út? M: Jú jú. Ég held það sko. F: Varstu ekki með það alveg aflitað? M: Jú, það var það sko. Nú er ég að fara að láta bæta smá í. Það er ekki al- veg aflitað lengur. Það var eiginlega al- veg hvítt eða silfurlitaö. Nú er það komið meira út í gult. Svona...já. Það er sumar sko. Gull skilurðu, vetur - silfur. F: Já, já. Þannig að þetta verður svona sólargult? M: Já, ég er alltaf með svona konsept í hárinu. F: Já, mér list vel á þetta. M: Er það ekki bara? F: Jú. Heyrðu ég held að þetta sé bara orðið ágætt. M: Já er þetta ekki bara gott samtal? F: Jú. M: OK. Stendur þú fyrir einhverju? Sendu upplýsingar i e-rhaíl fokus@fokus.is / fax 550 5020 Hjólhýsin á bak við tívolíið í Hafnarfirði hafa flutt sig niður á höfnina í Reykjavík., Þar verður tívolíið fram í ágúst. Mikael Torfason fór í heimsókn og kynntist venjulegri fimm manna fjölskyldu sem lifir mjög óvenjulegu lífi og ungum strokupiltum sem ferðast um heiminn með tívolínu. f Ifjólhýsi Það geta allir verið sammála um að þó vorið komi með lóunni þá er ekkert helvítis sumar væntanlegt fyrr en Bretarnir koma með tívolíið. „Er þetta ekki í áttunda skipti sem við komum hingað?" spyr David Taylor konu sína þar sem við sitjum í snyrtilegu en litlu hjólhýsi. „Nei, þetta er í níunda skipti," leið- réttir Linda, sem er líka Taylor, og bætir þvi við aö fyrsta skiptið hafi verið mjög erfitt: „Þá vorum við kannski að vinna í sjoppunni og ís- lendingarnir áttu í ógurlegum erfið- leikum með að skilja okkur og við þá.“ „En núna er þetta allt miklu auð- veldara," bætir David við. „Við þekkjum líka betur hvar á að versla núna og höfum kynnst fullt af fólki,“ útskýrir Linda og bætir því við að sumt af því fólki hafi heimsótt þau út til Bretlands, þar sem þau eru mest- an hluta ársins að ferðast með tívolíið sitt. Áður en þau komu hingað voru þau samt á eynni Mön. er 13 ára og Kane, 8 ára. Fjölskyld- an hefur flakkað um alla Afríku, Evrópu og eru fastagestir á eyjun- um í Karíbahafinu. Þau eru hjart- anlega sammála um að versti stað- urinn sem þau hafa verið á sé Marokkó. Fólkið þar þolir ekki Evrópubúa en annars staðar í ver- öldinni er þeim yfirleitt vel tekið. Enda er þetta ósköp venjulegt fólk sem borgar í lífeyrissjóð, á nafn- spjöld og reynir að halda gott heim- ili hvar sem það er í veröldinni. Eru ungu strákarnir ekkert að djöfl- ast í stelpum? „Nei, þá myndi ég taka þá i gegn - og ég fylgist með þeim.“ Greinilegt að David nennir ekki að fá yfir sig öfund- sjúka íslendinga. Guttar á flakki um heiminn How do you like Iceland, strákar? „Fínt maður. Flott,“ svarar Jason Miller, sem er bara 16 ára og stjómar tívolítæki ásamt félaga sínum, Charlie Bowen, sem líka 16 ára. Fé- lagarnir eru báðir frá smábænum Birkenhead í Englandi. Eigiði ekki að vera í skóla? „Nei. Vá, við fórum,“ svarar Jason og hlær að félaga sínum sem segist aldrei ætla aftur í skóla. „Ég ætla að ferðast um Evrópu," bætir Charlie við og brosir til stelpn- Sonia Dailey var að koma til landsins og snyrtir á sér neglurnar í einu af hjólhýsunum. (14 ára) er dóttir Taylor-hjón- anna. Hún seiur miða í tækin. anna sem skoppa upp í lausa rólu í tækinu. Hvaó meó stelpurnar? „Þær eru meiriháttar!" spangólar Jason og Charlie kinkar gráðugur kolli. En hvernig fer með mat, hver eldar? „Ég,“ segir Charlie og hinn glottir. „Ég þarf að kaupa minn eigin mat og allt.“ „Við emm búnir að borða pítsur og franskar í fimm vikur,“ segir Jason og er nokkuð súr yfir þeirri staðreynd. Hvar veróiöi eftir 50 ár? „Dauðir," segja strákarnir í kór og það er eiginlega ekki hægt að bæta neinu við það. -MT Hjónin hlæja og það heyrist einhver flissa aftar i hjólhýsinu. Það er hún Sonia Dailey sem snyrtir á sér negl- umar fyrir framan lítið sjónvarps- tæki. Hún var að koma til landsins en hennar fjölskylda sér um Big King Circus-tækið. En ferðatívoliið byggist upp þannig að hver fjölskylda sér um sín tæki og á þau. David og Linda eiga öll stærstu tækin og Candyflossið. Þau em því yfirmennimir á staðnum og tóku þá ákvörðun að koma hópnum hingað. Feróast börnin með ykkur allt árió um kring? „Nei,“ svarar Linda. „Þau eru í heimavistarskóla en voru að koma hingað í dag og verða héma með okkur.“ En er þetta ekki skítalíf? „Við þekkjum ekkert annað,“ segir David, en þau eiga líka stærra hjólhýsi á Englandi og þá er ekki eins þröngt um fjölskylduna og nú. Strákar Taylor-hjónanna: Kane (lengst til vinstri), Nathaniel (meö Colgate-brosið) og vinir þeirra, synir Soniu Dailey, eru í heimsókn hjá foreldrum sínum en annars í heimavlst á Englandi. Mega ekki diöflast í stelpum Böm þeirra Dav- ids og Lindu heita Elleray, sem er 14 ára, Nathaniel, sem Börnin á heimavist „Ég er sjötta kynslóð af tívolífólki," segir David og brosir. „Fæddist í hjól- hýsi.“ En er ekkert þröngt um ykkur hérna, fimm manna fjölskyldu? „Þetta er ekkert svo slæmt hér á landi," svarar David. „Það er bjart ali- an sólarhringinn og við segjum krökk- unum bara að þau megi ekki koma heim fyrr en það dimmir." Jason Miller og Charlie Bowen eru 16 ára flökkukindur sem búast við því að vera dauöir eftlr 50 ár. Stærsti Mosfet útgangs- magnari sem völ er á í dag 4x45W. Kostir Mosfet eru linulegri og minni bjögun en áður hefur þekkst. Aðeins vönduðust hljómflutningstæki nota MOSFET. Pioneer hefur einkarétt í 1 ár. Ný tækni i RCA (Pre-out) útgangi sem tryggir minnsta suð sem völ er á. 4 Octaver Hljóðbreytir sem aðskilur bassan. Pioneer er fyrsti biltækja- framleiðandinn sem notar þessa tækni sem notuð er af hljóðfæra- MARCX Nýjasta kynslóð útvarpsmóttöku, mun næmari en áöur hefur þekkst. tramieioenaum. EEQ Tónjafnari sem gefur betri hljóðmöguleika. á einfaldan hátt. 5 forstilltar tónstillingar. cuí iui sem skapa Pioneer afdráttarlausa ______' sérstöðu ^ Þegar hLjómtaekl sklpta wáLL DEH 2000 4x45 W magnari • RDS • Stafrænt útvarp • FM MW LW • 24 stöðva minni • BSM • Laudness • Laus framhlið • Aðskilin bassi/diskant RCA útgangur • Klukka • Þjófavörn !7.ffi 0 1 2 f Ó k U S 9. júlí 1999 8

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.