Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1999, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1999, Blaðsíða 14
Geimkúrekar Eastwoods j, Sjálfsagt hefur engin núlif- andi stórstjarna í Hollywood haldiö vestranum jafnmikið á lofti og Clint Eastwood. Hann hefur í áranna rás komið með einn og einn gæðavestra til að halda hefðinni við. Þessa dag- ana vinnur Eastwood að undir- búningi á nýjum vestra, sem á þó lítið sameiginlegt með hans fyrri myndum, nefnist hún Space Cowboys og er um vís- indaskáldskap að ræða, nokk- urs konar geimvestra. Eastwood mun sjálfur leika að- alhlutverkið ásamt Tommy Lee Jones og leikstýra myndinni. Aðrir leikarar eru James Garn- . er, James CromweU, Donald Sutherland og WiUem Devane, aUt harðir og gamUr jaxlar í leikarastéttinni eins og Eastwood og Jones. Marcia Gay Harden leikur svo eina kvenhlutverkið. í Space Cow- boys leika Eastwood, Jones og Garner fyrrum herUugmenn með marga sigra á bakinu sem fengnir eru til að fara í björg- unarleiðangur út í geiminn. Istla Það er frekar stirt á milli Michaels Costanza (lék George) og íslandsvinarins Jerrys Sein- felds. Mislukkaði skallinn Michael fór í mál við fyrrum vinnuveitanda sinn og vildi fá 100 miUjónir doUara í skaða- bætur af því Jerry á að hafa skapað persónuna, George, eftir fyrirmynd Michaels. En það var í raunninni ekki það sem stakk Michael mest. Hann var aðal- lega sár og svekktur af þvi að George er svo ömurleg mann- eskja. Hrikalega falskur, óör- uggur og á alla kanta misheppn- aður. Þetta var, að sögn dóm- ara, raunverulega ástæðan fyr- ir því að hann fór í mál. Þetta gekk iUa hjá Michael og Jerry Seinfeld vann málið. Star Wars er á undanhaldi Ekki er Star Wars aUs staðar jafn vinsæl og eftirsóknarverð. Og hún slær heldur ekki öU '• metin. I Quebec í Kanada sló Elvis Gratton II öll metin sem Star Wars hafði slegið frá Titanic. Þau bíó sem ekki fá Star Wars til sýningar ættu að taka upp símann og redda þessari frönsku. Kannski fer hún vel í okkur á klakanum. bíódómur Múmía fer hamförum Leikstjórn og handrit: Stephen Sommers. Aðaihlutverk: Brendan Fraser, Rachel Weisz, John Hannah, Arnold Vosloo. Sú tilfinning læðist að manni að aðstandendur The Mummy hafi bara haft svolítið gaman af því sem þeir voru að gera og það er kærkomin tilbreyting frá hinni straumlínulöguðu og sálarlausu færibandaframleiðslu sem Hollywood sendir svo alltof oft frá sér yfir sumartímann. Ekki svo að hér skorti neitt upp á straum- línur og færibönd en einhver sannur græskulaus gamantónn fylgir með í pakkanum, líklega kominn frá einhveijmn sem man eftir fjörinu í þrjúbíói í gamla daga. Sagan er mjög svo í Indiana Jo- nes stílnum (en þær myndir voru ekkert annað en endurvinnsla á þijúbíómyndum fjórða áratugar- ins). Bardagamaðurinn Rick (Fra- ser) fylgir hinni bókelsku og klaufalegu Evelyn (Weisz) og iðjuleysingjanum Jonathan (Hannah) bróður hennar að hinni hálftýndu borg Hamunaptra þar sem þjóðsögnin segir að forn-Eg- yptar hafi komið fyrir ýmsum stórmennum, athyglisverðum bókmenntum og miklum fjársjóð- um. Fyrir flumbrugang tekst þeim að vekja upp múmíuna Im- hotep (Vosloo) sem forðum daga var grafinn þar lifandi og á lögð sú bölvun að tækist einhveijum að vekja hann upp myndi hann heija á mannkynið með hinum verstu plágum. Imhotep þessi var eitt sinn æðstiprestur en gerðist um of ágengur við hjákonu fara- ósins. Endurvakinn þúsundum áira síðcir, er hann skiljanlega hinn argasti og lætur öllum illum látum, svo mjög að öll góð ráð eru ekki bara vel þegin heldur einnig alveg rándýr. Þetta er allt höndlað frekar skemmtilega og af tilhlýðilegu al- vöruleysi. Fraser er galgopalegur og snar í snúningum, Weisz skemmtilega viðutan og ófor- skömmuð og Hannah fær allar bestu línumar enda í hlutverki trúðsins sem gerir lítið annað en að þvælast fyrir. Svo eru brell- urnar afbragð en það sem mestu máli skiptir er að leikstjóranum hefur tekist að búa til sannfær- andi andrúmsloft og heldur þétt utan um einfeldningslega flétt- una. Hún stenst að vísu ekki sam- anburð við Indiana Jones seríuna en fer samt langt með að ná þeim Sagan er mjög svo í Indiana Jones stílnum (en þær myndir voru ekkert annað en endurvinnsla á þrjúbíómyndum fjórða áratugarins). tilgangi sínum að vera ágætis- meðlæti með poppinu og kókinu. Ásgrímur Sverrisson Sam-bíóin og fleiri - The Mummy ★ ★★ Brendan Fraser leikur eitt aðalhlutverkanna í stórmyndinni Mummy. Hann þykir standa sig nokkuð vel þessi kanadíski ferðalangur sem er vel lærður í listasögu. Stóð upp ur í ómerki legum kvikmyndum Brendan Fraser er ekki leikari sem hefur orðið frægur á einni kvikmynd, en segja má að fræðgð- arsól hans hafi byrjað að skína í George of the Jungle, farið stig- hækkandi í Blast from the Past og The Mummy. Leið hans til frægðar hefur þó ekki verið bein braut. Þeg- ar Brendan Fraser kom fyrst til Hollywood átti hann sér þann draum að slá í gegn í dramat- ískum hlutverkum. Reyndin hefur orðið önnur, hans beið í fyrstu ekkert annað en hlutverk í misgóðum gaman- myndum og nú hefur hann fest sig f sessi í ævintýramyndum. Brendan Fraser er kanadiskur og var mikið á ferðalagi með fjölskyldu sinni en faðir hans Brendan Fraser ásamt Rachel Weisz í The Mummy. vann í ferðabransanum. Hann á þijá eldri bræður. Flakkið á fjöl- skyldunni gerði það að verkum að Fraser skipti oft um skóla, var með- al annars í frönskum skóla í Ottawa og hollenskum skóla í Haag. Þegar kom að framhaldnámi settist hann á skólabekk í listaháskóla í Seattle, þar sem hann nam listasögu og myndlist auk þess sem hann stundaði nám í leiklist. Eftir að hafa leikið í eitt ár í leikhúsum Seattle og Washington- ríkis fluttist hamn til Suður-Kaliforníu þar sem útlit hans fleytti honum áfram í sjónvarp- ið og þaðan í kvikmyndimar. F y r s t a kvikmyndin Leonardo DiCaprio er ekki bara heitur og eftirsóttur. Hann er fantagóður leikari og frábær hjá Woody Allen og hann gæti átt eftir að koma út úr skápnum á næstu árum. Leonardo sem Howard Hughes? Michael Mann (The Heat, The Last of the Mohicans) er lengi bú- inn að vera með kvikmynd í und- irbúningi um milljónamæringinn og ævintýramanninn Howard Hughes og það er tæpt ár síðan hann færði þaðí tal við Leonardo DiCaprio að leika Hughes. Leo tók víst vel í það og hefur að sögn fengið aukinn áhuga á hlutverk- inu eftir að hætt var við að nota ævisögu Hughes, Howard Hug- hes: The Untold Story, sem fengið hefur góða dóma og vafasamari ævisaga tekin fram yfir, Howard Hughes: The Secret Life, eftir Charles Higham, en í þeirri bók er farið náið í einkalíf Hughes, sem þótt víst skrautlegt á yngri sem hann fékk stórt hlutverk í var Enchino Man, frekar ómerkileg kvikmynd sem þó vakti athygli á honum. í kjölfarið fékk hann hlut- verk í gamanmyndum auk þess sem hann sýndi ótvíræða leikhæfi- leika i With Honors. Segja má að þótt myndir hans á þessum árum hafi ekki verið merkilegar þá hafi hann staðið upp úr og fengið at- hygli fjölmiðla langt umfram aðra leikara. Hingað til hefur Brendan Fraser aðeins leikið í einni kvik- mynd, sem fellur inn í það um- hverfi sem hann hafði gert sér von- ir um í upphafi, það er Gods and Monster, sem byggð var á ævi leik- stjórans James Whale. Þótti hann standa sig vel en féll í skuggann af stórleik Ians McKellans. -HK árum hans. Vitað var að Hughes átti í ástar- sambandi við margar frægar leikkonur, allt frá Katharine Hep- burn til Marilyn Monroe, en Hig- ham fullyrðir að hann hafi átt í ást- arsambandi við Cary Grant og Er- rol Flynn. Higham segir einnig að hann hafi fundið sönnun þess að ungur maður hafi kært Hughes fyr- ir kynferðislegt ofbeldi og Hughes eytt milljón dollurum til að þagga málið niður og afmá það af lög- regluskýrslum. Higham líst ágæt- lega á að DiCaprio muni leika Hug- hes: „Hann var að mörgu leyti bamalegur og spilltur og hugsaði aðeins um eigin þarflr og ég tel að icnr Brendans Dogfight-(1991), Encino Man (1992), School Ties (1992), Twenty Bucks (1993), Son in Law (1993), Younger and Younger (1993), With Honors (1994), The Scout (1994), Airheads (1994), In the Amy Now (1994), Now and Then (1995), Balto. (1995), The Passion of Ðarkly Noon (1995), Mrs. Winterbourne (1996), Brain Candy (1996), Glory Daze (1996), Twilight of the Golds (1997), Ge- orge of the Jungle (1997), Gods and Monsters (1998), Still Breathing (1998), The Father of Frankenstein (1998), Ringside (1998), Blast from the Past (1999), The Mummy (1999). það sé margt í fari DiCaprio sem muni nýtast honum ef hann ætlar sér að túlka tilfmningar Hughes sannfærandi. Þótt Higham sé sáttur við DiCaprio í hlutverk Hughes þá er ekki víst að kvenaðdáendur sem flestir eru á táningsaldri láti sér það líka að draumaprinsinn þeirra fari í rúmið með karlmanni. 14

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.