Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1999, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1999, Blaðsíða 11
j ö rspren9,n9 Ministry of Sound er nánast McDonalds dans- og klúbbaheims- ins. Ministry of Sound-klúbburinn í London er sá stærsti og besti þar í borg og batteríið rekur útgáfu- fyrirtæki sem hefur gefið út marg- an smellinn, t.d. lagið „9PM (Tiil I Come)“ með ATB, sem hefur ver- ið tvær vikur í efsta sæti breska smáskífulistans. Fyrirtækið er með öflugan útflutning á stuðinu og Andy Sellar er útsendari þess á íslandi. Á næstu mánuðum hyggst hann bjarga íslenskri skemmtanamenningu í nafni MoS og rífa hana upp á rassinum. „Ministry of Sound er stærsti skipuleggjari dansklúbba i heim- inum og er stöðugt að dreifa sér yflr heimsbyggðina," segir Andy. „ísland er eitt þeirra landa sem við ætlum að herja á og það er tími til kominn, því íslenskt skemmtanalíf er orðið víðfrægt um allan hinn vestræna heim og nú er bara að gera það enn betra. Við viljum breyta klúbbamenn- ingunni hérna á íslandi." í hverju felst yfirtakan? „Það sem gerist er að tónlistin og Ministry of Sound-varningur- inn verður bráðlega settur í sölu héma hjá Sam-tónlist í Kringl- unni og verður þetta í fyrsta skipti sem þessi varningur er fá- anlegur í búð. Seinni partinn í ágúst verður svo fyrsti klúbbavið- burðurinn og hefur Astró verið valinn undir hann. Flogið verður með fræga Ministry of Sound- plötusnúða hingað yfir og staður- inn verður allur skreyttur í okkar stíl og MTV kemur líklega til með að gera viðburðinum skil.“ Heildarupplifun Ministry of sound er með fræga snúða á sínum snærum, t.d. Erick Morillo, Grooverider og sjálfan Boy George. Útvarpsþættir fyrir- tækisins eru þekkt og vinsælt fyr- irbæri og MoS-klúbbakvöld hafa verið haldin um allan heim, jafn- vel í Kína og Moskvu. Á hverju sumri tekur batteríið svo yfir plötudómur Nas I am ★ ★ Ministry of Sound ætlar að taka yfir íslenskt skemmt- anatíf, eða að minnsta kosti gera sitt besta til þess að það verði enn c betra. Andy Sell- ar er trúboði stuðsins. stemninguna á Ibiza og ræður þar ferðinni og stuðinu. Andy er íslandsvinur og hefur komið hérna áður. Hann er orðinn sæmi- legur í islensku og hefur verið að leita uppi íslenska plötusnúða sem gætu gengið í MoS-mafíuna. „Hér eru miklir hæflleikar en plötusnúðarnir fá ekki mörg tæki- færi innanlands. Við viljum flytja þessa hæfileika úr landi og gefa þeim bestu tækifæri til að sanna sig á diskótekum í Evrópu.“ Er Ministry of Sound lífsstíll? „Já, MoS er sérstök dansmenn- ing, heildarupplifun í skemmtana- lífinu. Þú getur farið á einhvem klúbb og það er eitthvert skraut á veggjunum og snúður út í horni. MoS gengur hins vegar út á að setja upp heildarmynd. Þegar fólk Andy Sellar frá Ministry of Sound: „íslendingar geta skemmt sér helmingi bet- ur en útlendingar." kemur á MoS-kvöld finnur það muninn. Snúðarnir hjá MoS eru t.d. miklu líflegri en venjulegir snúðar, besta danstónlistin er hjá okkur og hún er spiluð án hlés eins lengi og opið er. Ástæðan fyr- ir vinsældum okkar er einfaldlega að við mætum kröfum „klúbb- ara“.“ Eitthvað nýtt og ferskt Eru nógu góöir staðir á íslandi til að standast kröf- ur MoS? „Já já, Astró er t.d. frábær staður og verður enn betri þegar MoS hefur tekið þar til hendinni og þar sem Kaffi Frank var verður bráðlega opnaður staður sem lofar góðu. íslenskir skemmtistaðir virð- ast annars ekki lifa lengur en svona 8-9 mánuði af því að kynn- ingarstjórarnir eru alltaf með sömu hugmyndirnar, að gefa áfengi og skipta út plötusnúðum. Fólk er sólgið í eitthvað nýtt og eitthvað ferskt og þar kemur MoS inn í myndina." Hjálpin kemur þá að utan - mun MoS redda stuöinu? „Ja, ég vil alls ekki segja að þið getið þetta ekki, ég er bara að segja að við komum með eitthvað nýtt og ferskt. íslendingar geta skemmt sér helmingi betur en útlendingar og þegar meðfætt stuðið í ykkur kemur saman við okkar klúbba- menningu trúi ég ekki öðru en að útkoman verði alger spreng- ing.“ Síminn hjá MoS á íslandi er 895 5590 og Andy hvetur fólk til að hafa samband ef það hefur spurningar. Plötu- snúðar meó stóra drauma eru sérstaklega velkomnir. -glh íTHE CLflSHjTRiBUTE plötudómur Burning London — The Clash Tribute ★★ Æii, þetta var ekki það sem ég vildi heyra. Það er nú ekki hægt að kalla Nas síðasta vígi rappsins en hann er samt einn af þeim sem maður vill hafa alvöru - enda maðurinn sem gerði HLmatic. Þá hált enginn vatni yfir drengnum. Hins vegcu: sýndi hann það og sannaði á síðustu plötu sinni að hann er eins og allt of margir limr- arar, ræður ekki við glansinn. Þannig er hann líka á þessari plötu. Það laumast að vísu inn ein- staka þrælgóð lög. Skemmtileg til- viljun að tvö þeirra skuli vera hljóðblönduð af DJ Premier. Auð- vitað sýnir Nas það og sannar nokkrum sinnum að þegar kemur að því að vera með vatns-, hljóð- og eldheldar rímur er hann einn af þeim bestu. En það er bara of sjaldan. Hins vegar ræður hann engan veginn við glansinn og ger- Hann Nas er að verða búinn með alla sína sénsa, eins og allt of margir góðir rímugerðarmenn. ir varla annað en velta sér upp úr honum. Eitt af síðustu lögum plöt- unnar er Money is my bitch. Þar þykist Nas vera með bakþanka yfir því að hafa farið út í snobbið og reynir að bera það fyrir sig að peningarnir séu með hann „pus- sywhipped". Það er bara ekki nóg. Það lá við að ég bryti plötuna þeg- ar ég sá myndbandið við Hate Me Now. Ekki nóg með að lagið sé ógeðsleg Puffy vella heldur er myndbandið verra. Nas í ein- hverju rauðu spandexdressi með rennt frá svartri bumbunni og Puffy sköll að dilla rassinum í bakgrunni. Viðbjóður. Hvað varð um strætaskáldið í thugfötunum sem rölti um hverfið og hleypti manni inn í heimspekilegan vangaveltuheila sinn. Hann Nas er að verða búinn með alla sína sénsa, eins og allt of margir góðir rimugerðarmenn. Halldór V. Sveinsson amr Bretarnir í The Clash spiluðu hreinræktað pönkrokk á fyrstu tveim plötunum sínum en þróuð- ust svo út í allar áttir, tóku döbb- tónlist, raggea og jafnvel diskó inn í pönkið. I það heila var bandið þó aðallega gott poppband með eftir- minnileg og grípandi lög í hrönn- um. Meðlimir Clash voru aldrei feimnir við að blanda saman mús- íkstefnum og aðstandendur þessar- ar plötu eru að sama skapi ekki smeykir við að mixa saman ólík- um flytjendum. Hér kemur í ljós að aðdáendur Clash eru úr öllum geirum poppsins en allt of margir hér tjá aðdáun sína með því að herma nánast nákvæmlega eftir gömlu goðunum. Þannig er t.d. lít- ið fútt í eftirprentun ameríska Fdrvitnir krakkar ættu því frekar að tékka á gömlu Clash-plötunum heldur en láta mata sig á hæpinni framleiðslu eins og þessari. Rancid-hópsins, og því skemmti- legra að heyra eitthvað þokkalega ferskt gert við lögin, eins og þegar Cracker breytir pönkkeyrslunni í „White Riot“ í lufsulegt kántrý eða þegar Ice Cube og Mack 10 beita gamalgrónum hipp-hopp-töktum á „Should I stay or shouM I go“. Annars er alltaf eitthvað til- gangslaust við „tribjút“ plötur og maður spyr bara: Til hvers? Þó til- gangurinn á bak við plötu eins og þessa sé eflaust góður (að kynna nýja kynslóð fyrir gamalli snilld) er alltaf heillavænlegra fyrir fram- sýna hlustendur að fara beint að rótinni. Forvitnir krakkar ættu þvi frekar að tékka á gömlu Clash- plötunum heldur en láta mata sig á hæpinni framleiðslu eins og þess- ari. Gunnar Hjálmarsson Á síðustu Brit-verðlaunaaf- hendingu fékk Eurythmics heiðursverðlaun. Þetta virðist hafa hrært upp í Annie Lennox og Dave Stewart því nú hafa þau boðað tónleikaför og nýja plötu í haust. Þetta tilkynntu þau með því að spila á ánni Thames í London þar sem þau sigldu um í vikunni á Green- peace-dallinum Rainbow Warrior og spiluðu fimm lög fyrir fjölmarga aðdáendur sem stóðu á bakkanum. Þetta voru gömul lög eins og Sweet Dreams Are Made of This og There Must Be an Angel, en eitt nýtt, Peace, sem er einmitt titillag nýju plötimnar. Platan, sem er fyrsta stúdíóskifa bandsins í tíu ár, og túrinn (“The Peace-Tour“) verða bæði voðalega meðvituð og ágóðan- um verður skipt á milli bands- ins, Greenpeace og Amnesty International. Þeir sem vilja kynna sér betur hvað þetta góða fólk er að gera geta tékk- að á heimasíðunni www.peacetour.net. Söngvari Morphine látinn Söngvarinn og bassaleikar- inn Mark Sandman lést á laug- ardaginn. Mark var aðalmað- urinn í gítarlausa spæjaratríó- inu Morphine, sem hafði aflað sér mikillar virðingar í popp- inu og nokkurra vinsælda. Mark fékk hjartaslag í miðju lagi (ekki er vitað hvaða lag það var - kannski Cure for Pain?) á tónleikxun á festivali í Róm og féll í gólfið örendur fyrir framan mörg þúsimd áhorfendur. Mark var 46 ára. Önnur South Hver man ekki Chocolate Balls sem Kokksi söng svo eft- irminnilega á fyrstu South Park-plötunni? Nú á að kreista eins mikið út úr South Park- æðinu og mögulegt er og bráð- lega kemur bíómyndin: South Park; Bigger, Longer, Uncut. Þessu fylgir auðvitað samnefnd plata og þar koma fram risatransan RuPaul, meðlimir úr Rush og KidRock. Þá tekur Big Gay A1 lagið I’m Super og Saddam Hussein og myrkra- höfðinginn taka dúett. 9. júlí 1999 f ó k u s

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.