Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1999, Blaðsíða 3
f
m e ö m æ 1 i
„Þaö hefur alla vega aldrei neinn hótaö aö berja mig. Annars er ég alltaf aö
bíöa eftir því aö fá aö slást í þessu starfi. Þaö lenda margir í alveg ótrúlegum
hlutum."
Já, islenska þjóðin verður að fara að ákveöa
hvernig leigubíla á að hafa í Reykjavík. Þetta
er eitthvað sem kemur okkur öllum við. New
York hefur gulu taxana, London svörtu og
Reykvíkingar bara allan fjandann. Það getur
hvaða drusla sem er orðið að leigubíl. En við
ættum að fara að festa þetta. Velja bara ein-
hverja tegund. Kannski að Ladan geti orðið
þessi bill? Það væri alla vega karakter í því.
| Stígvél hafa veriö á und-
anhaldi undanfarin ár en
nú finnst manni kominn
á að við séum i
bomsum. Þetta er ömur-
rigningarsumar og
það er hálfömurlegt að
vera alltaf blautur í fæt-
urna. Förum í stígvél.
Láttu hafa fyrir þér á barnum.
Bloody Mary eða Margarita er
eitthvað sem bæði barþjónum og
drykkjufólki þykir flott að drekka. Sér-
staklega uppunum. Það er því snið-
ugt að panta sér svona drykk á
stöðum eins og Astró,
Skuggabarnum og Rex.
Ekki fá þér fjallahjól. Þau eru svo mikil klisja
og í raun bara fyrir fólk sem ætlar að hjóla á
hálendinu. Borgarbúar ættu að fá sér gamalt
sterkt hjól með
þægilegu sæti.
Þetta eru líka miklu
flottari hjól með ein-
hver sérein-
kenni. Ekki
vera eins og
hinir.
Svona risasjónvarp kostar
mörg hundruö þúsund með
heimamagnara og alvöru há-
tölurum. Það ætti að borga
sig upþ á nokkrum árum ef
þú selur vinum þínum að-
gang. Það væri líka sniðugt
fyrir félaga og jafnvel heilu
fjölskyldurnar að samein-
ast um vídeóspóluna. Ef
til dæmis tíu manns leigðu
spólu saman á dýrustu vídeóleigu bæjarins
myndi spólan bara kosta fimmtíu kall á haus.
Sama fólk væri að borga um sex þúsund krón-
ur samtals í bíó. Þetta kallar maður hagsýni.
Vondir
J ón s i
trommarann
„Já, við erum mjög hissa á söl-
unni,“ segir Jónsi í Sigur Rós þeg-
ar Fókus imprar á vinsældum
bandsins við hann. „Ekki það að
það væri ekki vitað að þetta er
mjög gott efni.“
Þið framleidduó fimmtán hund-
ruö eintök og þau hafa verió rifin
út. Var ekki vitað hvert stefndi?
„Nei, það lá ekki fyrir það þetta
yrði rifið út miðað við hvernig
fyrri platan okkar seldist. Okkur
datt satt að segja ekki í hug að slíkt
gæti gerst. En við erum auðvitað
mjög glaðir yflr þessari velgengni."
Djamma lögin til
Hvernig virkar nýi meólimurinn?
„Hann „synkar" mjög vel. Þetta er
allt að ganga mjög vel upp og hann
fellur vel að stemningunni. En við
höfum nú ekkert verið neitt voða
skemmtiiegir við hann, nennum ekk-
ert að æfa gömlu lögin og svona. En
hann er búinn að vera mjög dugleg-
ur, hlustar á plötuna og er búinn að
aðlagast hratt."
Sér gamli trommarinn, Ágúst,
ekkert eftir því að hafa hætt svona á
þröskuldi velgengninnar?
„Þú verður að spyrja hann að því.
Hann sneri sér að öðrum hlutum, er
kominn í nám í MHÍ í graflskri
hönnun. Við höldum finu sambandi
við hann og ég hef nú ekki heyrt
neina eftirsjá.“
Af hverju nenniöi ekki aó spila
sama lagió oft?
„Sum lög endast verr en önnur. Þó
að efnisskráin sé ný og fersk fyr-
ir áhorfendum erum við búnir að
vera að hjakka í þessu hundlengi.
Það er ekki rétt að við nennum
ekki að spila lögin en okkur finnst
gott að djamma þau aðeins til og fá
fram nýjan blæ.“
Metnaðarfullur
slæpingsháttur
Landstúrinn er ekki mjög þétt
bókaöur. Nenniöi ekki aö spila?
„Hvað meinarðu? Ertu búinn að
\Si
V
slegið í
Platan er uppseld og
hún var í fyrsta sæti
metsölulistans í síðustu
viku (Skítamórall í 6. sæti)
og nú eru þeir að hefja
túr um landið.
sjá bókanimar. Við erum úti um
allt land...“
Tja, þetta eru hva, 8 gigg á heilu
sumri, getur nú varla talist mjög
þéttbókaö.
„Nei, það er enginn sveitaballa-
bragur á þessu. Við miðuðum við
að vera að þessu um helgarnar.“
Ó, eruö þiö að vinna launavinnu
með þessu?
„Nei. Við erum bara að slæpast."
Slœpast, já? Þessi slœpingsháttur
viröist nú vera aö skila ansi miklu.
„Já, það má kalla þetta metnaðar-
fullan slæpingshátt. Þó orðið virki
neikvætt þá er slæpingsháttur oft-
ast mikil uppspretta sköpunar."
Landsbyggðin forvitnileg
Hvernig líst ykkur á húsin sem þið
muniö spila í?
„Við höfum varla spilað neitt úti á
landi, eiginlega bara spilað í Fjöl-
brautaskólanum á ísafirði þannig að
þetta er forvitnilegt.“
Húsin eru öll frekar stór en þiö
náttúrlega troöfylliö þau, ekki satt?
„Ég vona að einhverjir sjái sér
fært að mæta.“
Úúú, þetta var hógvœrt, helduröur
aö landsbyggöin sé svona mikiö á eftir?
„Við vitum náttúrlega ekkert
hvort fregnin hefur borist um landið.
En, jú, ég á nú von á því að fólk
komi. Það verður fyndið að sjá hvað
gerist." -Bb
Túr Sigur Rósar:
16. júlí: Bíóhöllin, Akranesi
17. júlí: Ísafjaröarbíó
22. júlí: Hlööufell, Húsavík
23. júlí: Sjallinn, Akureyri
24. júlí: Mælifell, Sauðárkróki
13. ágúst: Hótel Valaskjálf,
Egilsstöðum
14. ágúst: Hótel Selfoss
Staður og stund í Reykjavík
kemur í ljós síðar.
Stöðumælaverðir eru misjafnlega víga-
legir en þurfa allir að berjast við smá-
borgaralega glæpamenn sem nenna ekki
að greiða í stöðumæla. Einn sá illilegasti
í þessum bransa er Gummi trommari:
Er alltaf að bíða
efUr slagsmáliinm
„Eg er búinn að vera stöðumæla-
vörður síðan í janúar," segir
Gummi, stöðumælavörður númer 23
og einn sá vígalegasti í bransanum.
Framtiðarstarf?
„Nei. Ég hef nú ekki hugsað um
það sem slíkt.“
Hvað ætlarðu þá að verða?
„Poppstjama," segir Gummi og
hlær en hann er einmitt trommari í
hljómsveitinni Sólstafir. „Sem er
ekki eitthvað píkupopp eins og nafn-
ið gefur til kynna.“
Þú ert í leðurbuxum, Snigill?
„Nei. Ég á ekki einu sinni mótor-
hjól, þvi miður. En ef ég ætti hjól
væri ég ekki í Sniglunum."
En áttu ekki að vera í búning í
vinnunni?
„Það er víst nóg að vera með hatt-
inn. Enda er líka alltof fokking heitt
þessa dagana til að vera í einhverri
eskimóaúlpu," segir Gummi og er
ekkert að skafa utan af því.
Hvað sektarðu marga á dag?
„Svona frá 100 til 160. Eftir því
hvað maður er duglegur."
Hvað með böggið, það þorir eng-
inn að lemja þig er þáð?
„Það hefur alla vega aldrei néinn
hótað að berja mig. Annars er ég
alltaf að bíða eftir því að fá að slást
í þessu starfi. Það lenda margir í al-
veg ótrúlegum hlutum."
Mikið af geðsjúklingum á götun-
um?
„Það er alltaf eitthvað. Móður-
sjúkar kellingar og alls konar fólk.
En það er líka það skemmtilega við
þetta starf. Maður fær að kynnast
þessufólki sem flestir fá bara að lesa
um,“ segir Gummi og rennir sér upp
að Mazda-bifreið sem lagt er við
stöðumæli. -MT
e f n i
Jagúar:
Annað og
meira en
gæsahúð
Fyrirmyndir
kvenna:
Móðir,
kona,
meyja
Davíð
Stefánsson:
Skáldið úr
Hólabrekku
skóla
10-11
Poppið:
Subbu-
fönk og lint kex
Haukur M. Hrafnsson:
Vann 3 íslandsmeist-
aratitla blindfullur
Bíó:
Tvöfaldur kostnaður
á einni helgi
Páll Óskar:
Þorir ekki að
segja
kærastanum
upp
Lífid eftir
íri
vinnu
/
is í Irafári
Titanic-sýning
láhaidsm
ga Björr
Mverjir voni
17-23
-V- i
.. fókus
S fylgir DV á
föstudögum
Forsíöumyndina tók Teitur af Hauki M.
Hrafnssyni kvikmyndagerðarmanni.
16. júlí 1999 f Ó k U S