Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1999, Qupperneq 8
Verið
Það hafa eflaust margir rekið
upp stór augu þegar fjallkonan
okkar hún Björk Guðmundsdótt-
ir var allt í einu farin að syngja
gamla smellinn sinn „It’s Oh So
Quiet“ í auglýsingu fyrir japansk-
an fólksbíl. Björk hefur aldrei tek-
ið þátt í að auglýsa nokkum skap-
aðan hlut svo það var eðlilegt að
fólk hefði velt fyrir sér hvað olli
þessari hugarfarsbreytingu. Sann-
leikurinn í málinu er sá að ís-
lenska auglýsingastofan fékk ekki
tilskilin leyfi og útgáfan með Björk
fór í loftið fyrir mistök. Hún var
ekki sýnd oft og mistökin voru
settluð. Auglýsingastofan dó þó
ekki ráðalaus og fékk söngkonuna
Regínu Ósk Óskarsdóttur, sem
þessa dagana má sjá í Litlu hryll-
ingsbúðinni, til að syngja lagið í
stað Bjarkar. Það gerir hún svo vel
að varla er hægt að heyra muninn.
Björk dansar í
Kaupmannahöfn
Talandi um Björk. Hún hefur síð-
ustu þrjá mánuði dvalið í Kaup-
mannahöfn og leikið í söng- og
dansamyndinni „Dancer in the
Björk
Dark“ eftir Lars Von Trier. Tökum
lýkur í ágúst en stefnt er á að frum-
sýna myndina í apríl á næsta ári.
Björk hefur tekið upp átta lög fyrir
myndina og á bara eftir að hljóð-
blanda þau. Þá er hún byrjuð að spá
í næstu plötu og er komin nokkuð
áleiðis. Vinnan fer fram í hljóðveri
sem var hent upp í leigu-
húsnæði í Amager og
hefur Valgeir Sig-
urðsson (úr
Birthmark og
Unun) verið
h e n n a r
hægri hönd.
Þó það hafi
ekki verið
endanlega
ákveðið má
fastlega búast við
að næsta sólóplata »
Bjarkar komi út '
seint á næsta ári en •
á undan verða lögin /
úr kvikmyndinni i
væntanlega gefin
út. Sem sagt: nóg!
fyrir Bjarkar-aðdá-
endur árið 2000.
Ljóðið er ekki alveg dautt. Það eru alla vega enn þá gefnar
út Ijóðabækur og Fókus rakst á eina slíka og tók höfundinn
tali. Hann virðist í fyrstu vera úr hinni alræmdu
Hólabrekkuskólaklíku sem er að taka yfir ísland en um
leið er hann nýbökuð miðbæjarrotta.
„Eg bý í fyrsta húsinu í 105 og neyðist því til að fara út fyr-
ir 101,“ segir Davíö Stefánsson Ijóöskáld.
avíð Stefánsson
ra Hólabrekkuskóla
„Þessi bók varð til síðasta vet-
ur,“ segir Davíð Stefánsson Ijóð-
skáld um bókina Kveddu mig sem
hann er að gefa út sjálfur. „Ég
skrifaði hana mjög markvisst og
hún er alveg tímalaus og staðlaus.
Þessi bók er svona „back to
basics". Hún fjallar um ástina og
lífið."
Þetta er þá enginn ádeila?
„Nei. Þama er ekkert sem heitir
samtímaskráning né aulahúmor.
Þetta er bara bók um mig og ástina
í gegnum annað fólk.“
Þetta er sem sagt eitthvað torf?
„Nei. Þetta er samt bók sem á að
lesa hægt og allir ættu að geta skil-
ið hana ef þeir lesa hana nógu hægt
og vandlega."
Miðbæjarrotta úr
Breiðholti
Davíð er í ensku í Háskólanum
en áður en hann fór þangað var
hann í hinum landsfræga Hóla-
brekkuskóla.
„Það var fín stemning á milli
krakkanna í Hólabrekkuskóla,"
segir Davíð, en úr sama skóla kem-
ur lítil klíka sem virðist ætla að
hertaka ísland. „Gísli Marteinn
Baldursson er einu ári eldri en ég
en Sigurður Kári, verðandi for-
maður SUS, og leikarinn og evró-
visjonfarinn Rúnar Freyr Gísla-
son vora í sama árgangi."
Davíð er þó búinn að breytast í
miðbæjarrottu og hættur að vera
úthverfaplebbi. Það gerðist fyrir
þremur árum og nú segist kauði
varla fara út fyrir póstnúmer 105.
Þú ferð samt út fyrir 101?
„Já. Ég bý í fyrsta húsinu í 105
og neyðist því til að fara út fyrir
101,“ svarar Davíð sem þjónar á
Kaffibrennslunni í sumar og þar til
hann fer aftur í Háskólann í haust.
Mjög stórt nafn
„Það er einn stór ljóðabálkur
fremst í bókinni sem samanstend-
ur af mörgum litlum ljóðum og svo
byggist bókin líka á prósum," út-
skýrir Davíð, en segir auk þess að
lítið sé um stuðla og höfuðstafi í
þessari ljóðabók, sem er önnur
ljóðabók Davíðs. Sú fyrri kom út
árið 1996 og hét Orð sem sigra
heiminn. Það á nú örugglega allt
eftir að koma í ljós.
Hvað með nafnið, Davíð Stefáns-
son, er það ekkert of stórt?
„Jú, jú. Sjálfsagt, en það er alltof
fallegt til að breyta því. Annar hver
maður á það þó til aö gera ein-
hverja athugasemd við nafnið. Það
verður bara að koma í ljós hvort
það er of stórt."
-MT
b æ k u r
mm
Hvað á ég að geri
Á því herrans ári 1988 kom út handbók fyrir ungt fólk á
hraðri leið inn í hversdagsleikann. Eva María úr Stutt í
spuna var á forsíðu ásamt einhverjum hárfroðutöffara.
Jón Karl Helgason skrifaði bókina og hugmyndina fékk
hann þegar vinur hans flutti einn til Danmerkur með
minnispunkta varðandi matseld og þvotta frá mömmu.
Bókin skiptist í fimm skemmti-
lega og útspekúleraða kafla. Það er
ekki hægt að hanka höfundinn á
því að vera ekki nógu ítarlegur.
Hann fer alla leið og leiðbeining-
amar eru nánast tæmandi. Það
eina leiðinlega við þetta er að bók-
in fæst ekki í bókabúðum lengur
en hægt er að nálgast þær á fom-
bókasölu eða þegar sérstakar útsöl-
ur eru á bókalagerum. Bókin er
sem sagt til en hefur þurft að víkja
úr hillum búðanna fyrir öllum jóla-
bókunum en vonandi breytist það á
næstunni því bókin er skyldueign
fyrir alla sem eru að hefja búskap.
Landneminn
Allt frá húsaleigusamningum
yfir í flókin fasteignaviðskipti. Það
fylgja meira aö segja leiðbeiningar
um hvemig á að bera kassana inn
i íbúðina, upp stigann og auðvitað
hvemig á að merkja hvern kassa
svo skipulag verði á flutningunum.
Þessi kafli er tæmandi eins og öll
bókin. Einn listinn segir til dæmis
frá því hvað eigi aö vera í vel búnu
baðherbergi: „Sápa, salemispappír,
handklæði, ruslafata, salernis-
bursti, spegill og þau áhöld sem þú
notar við eigin þrif (ef ekkert sal-
emispappírshengi er ’ __
herberginu má útbi
úr keðju, vír (
snæri).“
Völundurinn
Hér emm við komin yfir í verk-
legu hliðina. Hvernig á að draga
nagla úr vegg eða negla stóra, litla,
granna og deiga nagla í vegg. Svo
vitnað sé beint í bókina um hvern-
ig á að negla án hamarsfara í vegg:
„Oft koma hamarsfór í veggi þar
sem neglt er. Ráð er að klippa fer-
kantaðan bút úr pappa eða ein-
hverju svipuðu efni og skera síðan
V-laga skarð í eina hliðina. Naglan-
um er komið fyrir i skarðinu
þannig að hamarinn lendir á bútn-
um og skilur síður eftir sig for.“
^N^WLRGOMMf
Græðarinn
Þó flutt sé út af Hótel mömmu
þarf enn að hafa áhyggjur af heils-
unni. Þá þarf auðvitað að þekkja
einkenni flensu og kunna góð ráð
við timburmönnum. „Óbrigðult rað
til að koma í veg fyrir timburmenn
er að bragða ekki áfengi." Annars
er það bara B-vítamín áður en þú
ferð að sofa. „Kynsjúkdómar og
eyðni þurfa ekki að hafa nein sjá-
anleg einkenni í fyrstu," segir í
bókinni og svo er bent á að besta
vömin sé að forðast fjöllyndi og les-
endur beðnir að hafa setninguna
„greindur notar gúrnrní!" á bak við
eyrað.
Kokkurinn
Uppskriftir að os
köku, kartöflun
hrísgrjómun, píts-
um, poppkorni ol
Nauösynleg handbók á hverju
almennilegu heimili.
bara öllu því helsta sem hægt er
að éta hér á landi. Skemmtilegasti
kaflinn er samt sá sem fjallar um
drykki. Þar em útlistun á því
hvaða vín eiga að vera með hin-
um ýmsu hráefnum og fullyrt að
vatnsglas sé gott við þorsta. Kaffi
er líka útskýrt í þaula: „Kaffi má
drekka eintómt eða með mjólk,
rjóma og/eða s
í.“
Þrifillinn
Hvernig þrí
maður útbía
klósett? Það
fæðist enginn
með vitneskju
um svarið
Þetta er eitt
því sem verðm
læra ásamt 1
öllum þrifum. Svo þarf líka að
kunna á þvottavél og hafa grund-
vallarskilning á því hvað „suða“
er eða hvemig á að losna við
bletti úr fllk eða teppi. Öllu þessu
og meiru til svarar handbókin
Mamma! Hvað á ég að gera?
f Ó k U S 16. júlí 1999
8