Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.1999, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.1999, Blaðsíða 15
« Þaö verður enginn svikinn af hringspörkum Van Dammes í Stjörnubíói. „Universal Soldier er ein af stærstu hittunum mínum og ég held að framhaldið komi á mjög góðum tíma á ferli mínum,“ segir Jean Claude Van Damme sjádfur um myndina Universal Soldier: The Return. En fyrri myndin hal- aði inn dágóða upphæð og var að spennufíkla sögn fantagóð mynd þó hún hafi kannski farið heldur illa í bíógagnrýnendur. Tölvur hugsa sjálfstætt Framhaldsmyndin, The Retum, er skrifuð af John Fasano, kon- ungi í framhaldsmyndagerð. Hann skrifaði alla vega Alien: Resurrect- ion, Die Hard Vengeance og Another 48Hrs. Leikstjórinn, Mic Rodgers, er að vísu ekki mjög sjó- aður en hann hefur samt verið að- stoðarleikstjóri á myndum eins og Volcano, Fled og Braveheart: En þess á milli hefur kauði verið stuntmaður í öllum Lethal Wea- pon-myndunum, Payback og Ma- Stjörnubíó frum- sýnir Universal Soldier: The Return í kvöld. Þetta er mynd fyrir nagla að hætti Van Dammes. Framhaldsmynd af Universal Soldier og án efa mynd sem enginn unnandi góðra bardaga- mynda ætti að láta fram hjá sér fara. verick. Hann hefur því komið ná- lægt bíói þó hann sé ekki sjóaður leikstjóri. The Return fjallar um Van Damme sem hinn óstöðvandi Luc Deveraux. Hann er hermaður og starfar við að þjálfa upp nýja teg- und af tölvustríðsmönnum sem eiga að vera betur siðaðir, gáfaðri og sterkari en nokkru sinni fyrr. Hann er líka einstæður faðir, kall- inn, og býst ekki við neinu nema góðu af heiminum þar til S.E.T.H. (einn af tölvuhermönnunum) fer að hugsa sjálfstætt og gerir uppreisn. Það endar náttúrlega bara á einn veg: Endalaust af frábærum bar- dagaatriðum að hætti Van Damme og viss fyrirheit um ástersenu með Heidi Schanz úr The Truman Show, Kiss the Girls og Seven. Vel vaxinn hörkunagli Annars þekkið þið auðvitað öll belgíska vöðvabúntiö Van Damme og flest ykkar hafa einhverja skoð- un á honum. Hann þykir róman- tískur, samkvæmt slúðurblöðun- um, og kvenfólki þykir hann ef- laust mjög vel vaxinn og strákar líta upp til hans af því að hann er hörkunagli sem getur tekið hringspörk og kýlt í gegnum mann og annan. Það fer minni sögum af stórkostlegum leik og listrænum metnaði. En hver er svo sem að biðja um það í myndunum hans Van Damme. Þar vilja menn fá slagsmál, eina ástarsenu, blóðugar bardagasenur og svo meiri slags- mál. Og Van Damme kann sitt fag. Hann hefur leikið i myndunum Timecop, Double Impact, Hard Target, Nowhere to Run, Maximum Risk, Double Team, Knock Off, Leg- ionnaire, Infemo og auðvitað Uni- versal Soldier. Flestir hafa nú séð alla vega eina af þessum myndum. Ef ekki þá ættu þeir að skefla sér á næstu leigu eða í Stjörnubíó í kvöld. Ifiro feiksiýri Leikari allra leikara, Robert De Niro, er sagður ætla að leik- stýra CIA-myndinni The Good Sheppard. Ólíklegustu leik- stjórar hafa þegar hafnað myndinni; Wayne Wang, Philip Kaufman og John Franken- heimer (leikstýrði De Niro einmitt í Ronin). En handrits- höfundur myndarinnar er Eric Roth, höfundur Forest Gump og The Postman. Misjafn höf- undur þar og vonandi að De Niro sé að fá almennilegt hand- rit. Bíza&etii feckmuái á Indlánci Kvikmyndin Elizabeth, sem var að koma út á vídeói hér heima, var á dögxmum bönnuð á Indlandi af því að leikstjór- inn, Shekhar Kapur, neitaði að klippa myndina. Kvikmynda- eftirlitið úti heimtaði að nokkrar senur yrðu klipptar út en hvaða senur, veit enginn. Það eru því bara stálin stinn sem mætast og það var að vissu leyti bömmer fyrir Kapur og félaga því hann var mættur ásamt Cate Blanchett og Jos- eph Fiennes til Nýju Dehli til að vera viðstaddur frumsýning- una þegar myndin var endan- lega bönnuð í landinu. 'Cí The Blair Witch Project hefur vægast sagt slegið í gegn í Bandaríkjunum, öllum að óvörum. Það bjóst enginn við þessari mynd, enginn vissi hvers konar mynd þetta var eða hvaða fólk það væri sem gerði myndina. Allt hefur þetta komið í Ijós á síðustu vikum og óhætt að benda bíóeigendum á að redda okkur þessari mynd hið fyrsta. Krakkarnir hurfu The Runaway Bride með Ric- hard Gere og Juliu Roberts er í efsta sæti aðsóknarlistans I Bandaríkjunum. Sú mynd er for- múla sem ætti að ganga upp og ekki furða að myndin sé í efsta sæti en það er annað sætið sem er mjög forvitnilegt því þar er hræódýr mynd að berj- Michael Williams í stuði. - oiair Witch og < ast við stórmyndina. Hún heitir The Blair Witch Project og er leik- stýrt og skrifuð af félögunum Daniel Myrick og Eduardo Sánches. Þeir eru ekki þekktir fyrir neitt nema að Daniel klippti myndina All Shook up sem litlar sögur fara af. Heimildarmynd Myndin fjallar um þau Heather Donahue, Michael Williams og Joshua Leonard sem öll leika sjálf sig í myndinni. Þessir krakk- MISSING Hoatíicf Cwchue ÍDthið Uoiurd Mlchðo! iffilliamð ** t»v* 4**- 16' wMgKriJí*- 24 «« rfl" i««*w • ♦**< C)«* ttw ifí*; omHM *** »»»«« 4H» HIM* r*n«*t *•»». *<*• *.«vi!«. PLJEASC CALL FREOERICK COUSTV 6HERIFF’S OFFICE WITH AHV INFORM.VIOU YOU MAY H.WE ar eru í kvikmyndaskóla og í myndinni ákveða þau að gera heimildarmynd um úthverfagoð- sögnina The Blair Witch. í raun- inni endar sagan næstum því þar hvað þessa krakka varðar því þeir hverfa sporlaust. Leit er hafin og hún ber engan árangur. Ári seinna finnast spólurnar og tæki krakk- anna fyrir tilviljun og það er okkar leið inn í þessa mögnuðu sögu sem hefur slegið öll aðsóknarmet ytra. Sannleikurinn blífur Það sem er heillandi við filmuna er raunveruleikinn. Þetta virðist hljóma eins og bandarísk nálgun við dogma-form Dananna. Þar er það sagan sem ræður öflu og gefinn er skítur í tæknina. Hér er það sannleikurinn sem blífur og gefinn er skítur í allt annað en raunveru- leikann. Úr verður mögnuð hryll- ingsmynd sem hefur það mikla dulúð yfir sér að kvikmyndagerð- armennirnir óþekktu tjá sig sama og ekkert um myndina. Sömu sögu er að segja af leikurunum. Það eina sem var hægt að finna raunveru- legt um þá á Netinu var að einhver brjálæðingur frá Georgíu taldi sig eiga nektarmyndir af Heather Donahue. Myndin ber sem sagt með sér mikinn sannleiksblæ en er samt uppspuni þeirra Daniels Myr- ick og Eduardos Sánches. ( 6. ágúst 1999 f Ó k U S

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.