Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.1999, Qupperneq 16
hvar eru þær núf
* Þær komu frá Egilsstöðum og spiluðu stíft um miðjan
síðasta áratug. Þær urðu vinsælar með nýbylgjupopplögum
og kvenlægum textum um Þamelu og svarthvítar hetjur.
Dúkkulísurnar frá Egilsstöðum
komu í kjölfar Grýlanna og tóku við
merki þeirra sem helsta kvennaband-
ið á klakanum. Sjáifar vildu Dúkkulís-
umar ekki viðurkenna áhrif frá Grýl-
unum enda var hljómsveitarstússið
búið að vera draumur hjá austfirsku
stúlkunum síðan í barnaskóla, löngu
áður en Grýlurnar urðu til. í nokkur
ár var barið á nammidollur og bad-
mintonspaða en síðla árs 1982 keyptu
stelpurnar sér alvöruhljóðfæri og
tóku að bardúsa í poppinu fyrir al-
vöru. Þeim innan handar var Karl
Erlingsson, einhvers konar guðfaðir
og rótari sem leyfði þeim að æfa í
kjallaranum hjá sér.
Samningur og plata
Dúkkulísumar tóku þátt í hljóm-
sveitakeppninni í Atlavik 1983 og
urðu í öðm sæti, en hljómsveitin
Aþena sigraði það árið. Betur gekk
stelpunum í Músíktilraunum Tóna-
bæjar um haustið og sigruðu þar
með glæsibrag. Á úrslitakvöldinu,
rétt eftir að verðlaunin voru í höfn,
mætti Jón Ólafsson og bauð þeim
samning við Skífuna: Framtíðin
virtist björt.
Dúkkulísumar voru fimm. Erla
Ragnarsdóttir söng, Gréta Jóna
Sigurjónsdóttir lék á gítar, Hild-
ur Viggósdóttir spilaði á hljóm-
borð, Erla Ingvadóttir sá um bass-
ann og Guðbjörg Pálsdóttir um
trommurnar. Með stórsamninginn
við Skífuna upp á vasann gerðu
þær sex laga plötuna Dúkkulisur
sem kom á markaðinn sumarið
1984. Þama var að finna fyrsta
smellinn, lagið Pamela um sam-
nefnda kvenhetju úr Dallas-sjón-
varpsþáttunum sem tröllriðu ís-
lensku samfélagi á þessu tímabili.
Dúkkulísurnar 1984. Talið frá vinstri: Guðbjörg Pálsdóttir, Hildur Viggósdóttir,
Erla Ragnarsdóttir, Erla Ingadóttir og Gréta Jóna Sigurjónsdóttir.
Smellur og „kombökk“
Sex-laga platan gekk ágætlega og
Dúkkulísurnar léku á böllum og tón-
leikum, m.a. með Stuðmönnum á
Ringo-ballinu fræga í Atlavík. Tveim
árum síðar, um vorið 1986, kom önn-
ur platan út, albúmið í léttum leik
sem stelpurnar þoldu aldrei nafnið á.
Þegar hér var komið sögu hafði
Harpa Þórðardóttir leyst Hildi af
við hljómborðið. Þegar platan kom út
voru þrjár af Dúkkulísunum í út-
skriftarferð á Rimini. Þær voru hálf-
partinn búnar að ákveða að ljúka
samstarfinu og einbeita sér að fram-
haldsnámi en þegar þær komu heim
var lagið Svarthvíta hetjan min orð-
ið bullandi vinsælt. Lagið hefur síð-
an haldiö nafni Dúkkulísanna á lofti.
Svarthvíti smellurinn framlengdi
lif Dúkkulísanna, en ekki lengi því
sveitin lognaðist út af snemma árs
1987, enda voru sumar stelpurnar
fluttar frá Egilsstöðum í sollinn í
bænum og komnar í framhaldsnám,
enda líklega búnar að átta sig á því
að þó rokk sé betra en „fúltæm
djobb“ er kaupið betra í flestu öðru.
Dúkkulísurnar hafa átt tvö
„kombökk" síðan eiginlegri starf-
semi lauk; á fimmtíu ára afmæli Eg-
ilsstaða 1997 og í tilefni af safnplöt-
unni Stelpurokk sem Vera gaf út síð-
ar sama ár.
Kennsla og kjötiðn
Kennsla hefur orðið hlutskipti
flestra Dúkkulísanna. Erla söng-
kona fór í sagnfræðinám í Háskól-
anum eftir Dúkkulísurnar og lauk
kandídatsprófi í sögu og stjórn-
málafræði frá háskólanum í Árós-
um. í dag kennir hún sögu og tón-
listarsögu í Fjölbrautaskóla Suður-
nesja.
Hin Erlan er leiðbeinandi í
barnaskólanum á Egilsstöðum en
Guðbjörg trommari, sem hefur
kennt þar lika, er á leiðinni í bæ-
inn til að kenna í Garðabæ. Hildur
býr í Kaupmannahöfn og er kenn-
ari en afleysingahljómborðsleikar-
inn Harpa er húsmóðir i Grinda-
vík.
Gréta gítarleikari hefur ein
Dúkkulísa haldið sig við tónlistina.
Hún hefur komið fram sem trú-
bador og leikið í árshátíðarbandi.
Þá hefur hún lagt stund á gitar- og
söngnám. Gréta er einnig menntað-
ur kjötiðnaðarmaður og vinnur hjá
Nóatúni.
Dúkkulísurnar halda enn góðu
sambandi sín á milli enda hafa
flestar stelpurnar þekkst síðan í
bamaskóla. Þær hafa hist fyrir
austan á sumrin og stungið í sam-
band inni í skúr, enda rokkbakter-
ían illdrepandi krankleiki. Það má
því allt eins búast við fleiri
„kombökkum“.
OPIÐ OLL KVOLD
Dagskrá
BREIK SHOW
fyrir framan M&M í Mjódd
föstudaginn 6. ágúst kl. 16:00-17:00
Breikarar sýna kúnstir sinar og öllum
er velkomiðaðspinna á mottunni.
Jaguar
fönkar feitt á þaki M&M
i Austurstræti laugardaginn 7. ágúst kl. 14:00
20%
afsláttur
af TOPP 20 alla helgina
f Ó k U S 6. ágúst 1999