Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.1999, Side 4
31< u p J u r
SKUTjurn
Stelpur, nú eiga alvöruskutlur að
bera skuplur. Svona hárskuplur
eins og voru í tísku í gamla daga.
Þetta þykir alveg meiri háttar flott
og tekur algjörlega við af tvöíoldu
wonderbrahárböndunum. Þau voru
í tísku i sumar en skuplur eru mál-
ið núna. Stelpur á öllum aldri geta
látið sjá sig með skuplu á höfðinu
og best er að hafa þær marglitar,
köflóttar, rósóttar og alls konar
munstraðar. Skuplur eru líka
þrælódýrar. í Skarthúsinu kosta
þær til dæmis ekki nema fjögur
hundruð og niutíu. Þá leysir þetta
höfuðfat ýmiss konar hárgreiðslu-
vandamál en er fyrst og fremst æð-
islega flott og gerir allar stelpur
sætar.
GRIM
í Safnarabúðinni á Óðinsgötu getur hvað sem er gerst. Sirrý spáir þar í framtíðina
og hefur gert í tugi ára. Hún hefur nú fengið aðstoð frá fiðurfénaði nokkrum sem
heitir Kobbi og er að læra að tala. Svo er hún líka eina íslenska spákonan á Netinu.
Kobbi og Si
„Ég byrjaöi að flkta við þetta upp
úr 1970,“ segir spákonan Sirrý,
öðru nafni Sigríður Steina Sigfús-
dóttir, en hún hefur starfað við
þetta hátt í 16 ár og nú er svo kom-
ið að hún gerir lítið annað en að
spá fyrir fólki.
Og eftirspurnin eftir spádómum
minnkar ekkert?
„Nei. Það hefur verið töluverð
aukning undanfarin átta ár. Fólk
virðist vera meira leitandi núna en
hér á árum áður,“ svarar Sirrý sem
er eingöngu með hinar klassísku
sigaunaspár. Það eru spil, lófar og
kristalkúlur en hún setur bollaspár
ekkert fyrir sig ef fólk biður mn það.
Kobbi páfagaukur
Sirrý er ekki bara spákonan í
Safnarabúðinni á Óðinsgötu.
Hún er líka á Netinu (www.safn-
arinn.is) og fyrir mánuði fékk
hún páfagaukinn Kobba sér til
aðstoðar.
„Ég er að kenna honum að
tala,“ segir Sirrý. „Hann er ann-
ars í læri hjá mér þessa dagana
en það gengur nú ekkert alltof
vel. Hann er svo þver og skap-
mikill en ég reyni að vera þolin-
móð.“
En þótt Kobbi sé ekki alveg
kominn í spádómsstuð og sé latur
að tala þá er Sirrý alltaf með all-
ar stöðvar virkar og hún spáir
því til dæmis (því miður) að vet-
urinn verði skítkaldur, snjóþung-
ur og allt fullt af hafís í kringum
landið. Auk þess sér hún fyrir
einhverjar náttúruhamfarir, sjó-
slys i febrúar eða mars og jafnvel
flugslys. Vetrinum eigi svo að
ljúka með einhverjum skakkaföll-
um hjá ríkisstjóminni. Veturinn
ætti því að vera forvitnilegur þó
fólki sé ráðlagt að klæða sig vel.
Einmana fólk
En hvernig fannstu út aö þú
heföir spádómshœfileika?
„Ég fann það ekki út. Vinkonur
mínar byrjuðu bara að biðja mig
um þetta þegar þær voru kannski
að fara út að skemmta sér. Ég spáði
þá fyrir þeim og svo komu þær til
mín á mánudegi eða þriðjudegi og
sögðu mér að það hefði allt ræst
sem ég spáði,“ segir Sirrý og bætir
því við að það sé mjög mikilvægt
að vera soldið næm á þessa hluti og
sjá í gegnum hjúpinn (áruna) sem
er í kringum fólk.
En hefuröu séö fyrir eitthvaö
hrikalegt?
„Já, mörgum sinnum. Og það
hefur líka komið fyrir að ég hef
tekið þetta inn á mig og verið al-
veg ónýt í marga mánuði."
Hvaö meö fólkiö sem leitar til
þín, hvaö er þaö svona helst sem
þaö villfá aö vita?
„Það er misjafnt að hverju fólk
er að leita en ástamálin eru alltaf
vinsælust. Sumir eru líka ein-
mana og koma til að spjalla við
mig. Aðrir eru veikir og vilja
skyggnast aðeins inn í framtíð-
ina,“ segir Sirrý að lokum en
Kobbi endurtekur ekki neitt að
sinni. -MT
.. "~l.. .."
HÉR ER 8ARNAHERBERGIÐ... M3ÖG RÚMGOTT...
GETUR ALVEG HLAOIÐ NIÐUR BÖRNUM hérna
SVO ERU HERNA SVALI R... 6ET NÚ BARA LATlÐ
ÞlG FÁ Þ*R í KAUPBA.TL. HVERMIG LÍST ÞÉR Á?
X
3A, ÞAÐ ER KANNSKI BARA SPURNIN6 UM ElTT..
HVERNIG ER ÞAO... MÁ RETK3A HÉRNA ?
f Ó k U S 13. ágúst 1999