Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1999, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1999, Blaðsíða 2
2 MÁNUDAGUR 16. ÁGÚST 1999 Fréttir Nýtt fiskvinnslufyrirtæki stofnaö á Þingeyri: Fær byggðakvótann næstu fimm ár - Sigurður G. Guöjónsson og samstarfsmenn hans íhuga framhaldið í dag Búið er að stofha nýtt fiskvinnslu- fyrirtæki á Þingeyri. Var fyrirtækið stoftiað í gær. Vísir og Burðarás eru stærstu hluthafamir ásarat Byggða- stofnun. Nokkrir litlir hluthafar eru einnig í félaginu, m.a. flestir af sveitar- stjórnarmönnum ísafjaröarbæjar. Fleiri hluthafar eiga eftir að bætast við, t.d. Tryggingamiðstöðin, en hún mun kaupa hlutabréf af Vísi fyrft- um 20 milljónir. Fyrirtækið heitir Fisk- vinnslan Fjölnir og mun skapa um 25 störf. Fær þetta fyrirtæki byggðar- kvóta Ísaíjarðarbæjar næstu fimm árin en ætlunin er að kaupa kvóta til viðbótar. Það verða skip frá Vísi sem munu veiða kvótann, tveir línubátar. Líklegt er að þar séu um 30 störf en óvíst er hvort Þingeyringar fá þau störf. Auk þessa kostar hið nýja fyrir- tæki samning um að Tölvu- skólinn Framtíðarböm og Grunnskólinn á Þingeyri starfi saman næstu þrjú árin. Er ætl- unin að auðvelda grunnskóla- nemum að læra á tölvur og um upplýsingabyltinguna. Mjög margir em óánægðir með hið nýja fyrirtæki og finnst að það skapi ekki nægilega mörg störf. Hefur verið bent á að í raun séu það eingöngu níu ný störf sem verða tii því nýlega misstu íjórtán manns vinnuna vegna hráefnisskorts hjá saltfiskvinnslunni Unni. Mjög margir Pólveijar misstu sín störf vegna gjaldþrots Rauða hersins og hafa þeir ekki fengið vinnu á Þingeyri. Hafa margir bent á að fyrirtæki sem Siguröur G. Guðjónsson stýrir vildi opna fiskvinnslu sem átti að skapa um 70 störf. Forsvarsmenn Básafells hafa líka látið það frá sér í fjölmiðlum að þeir séu ekki ánægðir með hvemig að úthlutinni var staðið. „Sigurður G. og félagar höfðu ekki formlegt samhand við okkur. Eftir að hafa talað við fjölmarga aðila, bæði á Vestfjörðum og annars staðar á land- inu, var ákveðið að fara í samstarf við Vísi, sérstaklega með hliðsjón af því að aðrir fjárfestar kæmu þá að félaginu," segir Haraldur Líndal Haraldsson en hann sá um þessi mál fyrir hönd ísa- fjarðarbæjar. „Við ræddum við bæjarráð og bæj- arstjóm um þessi mál og Haraldur Líndal sat þá fundi. Menn vissu okkar hugmyndir en það ræddi enginn við okkur um þessi mál. Við munum hitt- ast á morgun og ræða okkar mál og hvað við gemm í framhaldinu," segir Sigurður G. Guðjónsson en hann hefur verið í forsvari fyrir fyrirtæki sem heitir Hraðfrystistöð Þingeyrar. Var ætlun fyrirtækisins að vinna Rússa- fisk í bland við íslenskan en reynt var að fá byggðarkvóta ísafjarðarbæjar. Falast hefur verið eftir því að kaupa frystihús Rauðsíðu á Þingeyri til að stofna fiskvinnslu. -EIS Fyrirhuguð Fljótsdalsvirkjun: Hörð og einbeitt andstaða - fólk mun una því illa að viðhorf nátttrölla nái fram að ganga, segir Steingrimur J. Sigfússon „Ég fmn það meðal almennings, um- hverfisvemdarhópa og ferðaþjónustu- aðila að andstaða gegn þessum virkj- unaráformum er mjög hörð og einbeitt og fólk mun una því mjög illa ef ekkert á að gera með þau breyttu viðhorf sem orðin em í þessum efnum og nátttröll frá hverfandi öld, eins og Framsóknar- flokkurinn birtist í þessu máli, vilja halda til streitu," segir Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrisamtak- anna - græns framboðs, um fyrirhug- aða Fljótsdalsvirkjun. „Fari fram- kvæmdir af stað þá mun verða mjög mikfi og hörð andstaða gegn þeim,“ sagði Steingrímur enn fremur. Þingflokkur Vinstrisamtakanna - græns framboðs, sem hélt þingflokks- fund á Egilsstöðum á fóstudag, gekkst fyrir um 70 manna hópferð á slóðir fyrirhugaðrar stór- virkjunar á Austurlandi. Hópurinn gekk um Eyja- bakka og að Hafra- hvammagljúfrum á laugar- dag og i gær og lauk ferðinni síðdegis í gær. „Þetta var mikil upplifun og ég botna satt að segja ekkert í því fólki sem getur farið um þetta svæði og komið ósnortið til baka, allra síst fólki sem gefur sig eitt- hvað að umhverfismálum," sagði Steingrímur J. Sigfússon í samtali við DV í gærkvöld og vitnaði þar til orða umhverfisráðherra eftir skoðunarferð að Eyjabökkum í síðustu viku.. Steingrímur sagðist ekki trúa öðru en hvem þann sem skoðaði þetta svæði, sem fer undir vatn verði virkjunin byggð, ræki í rogastans þegar hann sæi hversu miklu á að fóma með þessum virkjunum. „Það era ekki bara Eyjabakkamir heldur líka gulifallegir fossar í Jökulsá, hin stórkostlegu gljúfur, Hafrahvammagljúfur og jafhvel Arnardalur. Þetta em það brjálæðislegar hug- myndir að engu tali tekur,“ sagði Steingrímur. Steingrímur sagði ljóst að ríkisstjómin væri komin í gífurleg- an og vaxandi mótvind með þetta mál sem yrði henni afar dýrkeypt og erfitt héldi hún því til streitu. „Ég held að hún megi reikna með því aö andstaðan gegn þessu verði hörð og hér er ekki um að ræða mál þar sem fólk lætur sér nægja að mótmæla og yppir svo öxlum þegar ekki er hlustað á það.“ í ályktun þingflokksfundar flokks- ins er lýst andstöðu við fyrirhugaða stórvirkjun í Fljótsdal og minnt á að allar ráðgerðar stórframkvæmdir skuli fara í umhverfismat. í ályktun- inni segir enn fremur að þjóðin hafi lítið við mnhverfisráðherra að gera sem skorti bæði metnað og áræði til að standa vörð um náttúru landsins. Loks tekur þingflokkurinn undir hugmynd Náttúmverndarsamtaka Austurlands um að stofna Snæfellsþjóðgarð en bæði Eyjabakkar og Hafrahvammagljúfur yrðu innan hans. Steingrímur J. Sigfússon. Laugardalurinn í Reykjavík: Kristnihátíð hafin Útiguðsþjónusta og fjölskylduhá- tíð, sem hófst kl 13.30 í gær á Laug- ardalsvelli í Reykjavík, markar upp- haf kristnitökuhátíðar sem nær há- marki á Þingvöllum næsta sumar á þúsund ára afmæli kristni á íslandi. Biskup íslands, herra Karl Sigur- björnsson, predikaði, þúsund manna kór söng og á sjötta þúsund manns hlýddu á. Að guðsþjónustu lokinni var fjölskylduhátíð í Laug- ardalnum og var dagskrá á svæðinu á vegum flestallra kristinna safnaða og trúfélaga. Hljómleikar hófust í Laugardals- höllinni kl. 16 en á þeim var flutt rokkuð trúarleg hljómlist, svonefnd gospel-tónlist. I gærkvöld var grillað framan við skautahöllina í Laugar- dalnum en kl. 21 hófust síðan ung- lingatónleikar í skautahöllinni. Há- tíðarhöldum í Laugardal lauk kl. 22 í gærkvöld. -SÁ Einar Vilhjálmsson segist slökkva elda í Waves-málinu: Sárt að vera kallaður brennuvargur „Það þykir alltaf fint að hengja bakara fyrir smið. Það hefur alltaf fylgt því áhætta að fara fram á svið- iö til að bjarga fólki. Það er alveg ljóst að helmingurinn af liðinu er svekkur og hvekktur og gefur sér þessa niðurstöðu á hlutunum. Sann- leikurinn fölnar hins vegar aldrei en þaö er sárt að fara út á akurinn með björgunaraðgerðir og reyna að slökkva logandi eldana sem um- lykja fólkið og vera kallaður brennuvargur fyrir,“ sagði Einar yilhjálmsson í samtali við DV. Margir þeirra sem keyptu Waves- söluvörur fyrir um ári til að selja í beinni sölu í fyrirhuguðu fjölþrepa sölukerfi fengu aldrei vörurnar. Þeir gagn- rýna Einar fyrir að sitja beggja vegna borðs. Hann hafi verið einn frumkvöðla þess að stofna til Waves- sölukerfis á íslandi og for- maöur hagsmunafélags Wa- ves-þátttakenda en hafi nú stofnað hlutafélagið ísöldur ehf. og ætli að selja þessu sama fólki vörumar í annað sinn. Einar Vilhjálmsson sagði í viðtali við helgarblað DV að á næstunni væri von á Waves-vörunum til landsins, vörunum sem væntanlegir sölumenn greiddu fyrir ári en hafa enn fæstir fengið. Einar sagði að ísöldur flyttu vör- urnar inn samkvæmt sam- komulagi sem gert hefði verið milli hagsmunafélags- ins og Bandarikjamann- anna, þeirra Lawrence Barrett og fleiri sem áttu bandaríska móðurfyrirtæk- ið Waves, og hins nýja hlutafélags, Isöldur. Ölium þeim sem keyptu vörur á sínum tíma og gengu í hags- munafélagið sé frjálst að gerast hluthafar í ísöldum og muni þá fá Waves-vörurnar án nýs endur- gjalds. Þeir verði hins vegar að kaupa af ísöldum viðbótarvörur, eða stoðvörur. Með þessu móti sé veriö að freista þess að bjarga hlutunum eftir klúð- ur hinna bandarísku eigenda móð- urfélagsins, Waves International, sem síðar fékk nafnið World Wide Waves. Einar segir að Lawrence hafi endaö feril sinn í Waves-mál- inu með því að vera rekinn frá móð- urfélaginu og að hann dveldi nú í Kanada. -SÁ Einar Vilhjálmsson. Stuttar fréttir i>v Dregið saman íslenskar sjávarafurðir ætla að selja höfuðstöðvar sínar í Laugardal og fækka starfsfólki til að rétta við afkomu sína. Fyr- irtækið hefur haft aðsetur í Laugai'dal í 4 ár en nú þykir rétt að minnka yfirbyggingu og eru höfuðstöðvarnar það fyrsta sem fær að fjúka. Stöð 2 greindi frá. Hundrað ný störf íslensk miðl- un hefur tekið að sér svarþjón- ustu fyrir ís- landssíma sem hefla mun starf- semi sina í haust ef heldur fram sem horfir. Ein af starfsstöðvum svarþjónust- unnar var opnuð í gær á Stöðvar- firði. Talið er að um 100 ný störf geti skapast á landsbyggðinni. Tíu jþúsund undirskriftir Meira en tíu þúsund undirskrift- ir hafa safnast hjá samtökunum Vemdum Laugardalinn. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri hef- ur látið þau ummæli falia að tíu þúsund manns séu merki um þaö að almenn andstaða kunni að vera gegn* framkvæmdum og ef svo sé muni borgaryfirvöld taka tiilit til þess. 102 óðalsjarðir Samkvæmt tölum sem nefnd, er falið hefur verið að endurskoða jarðaiögin, hefur aflað eru nú að minnsta kosti 102 óðalsjarðir á ís- landi. Um þær gilda sérstök ákvæði í jarðalögum. Mbl. greindi frá. Erindum fjölgar Munnlegum erindum hjá embætti um- boðsmanns barna flölgaði um 40% á síð- asta ári, voru um 1040. í skýrslu Þór- hildar Líndal, umboðsmanns bama, til Davíðs Oddssonar forsæt- isráðherra segir að afar algengt sé að ganga þurfi eftir svörum við fyr- irspumum frá embættinu sem sé mjög fáliðað. Hún segir að bömum og unglingum sé iðulega sýnt virð- ingarleysi í samskiptum við full- orðna. Bylgjan greindi frá Bensínleki Nokkur viðbúnaður var á Reykjavíkurflugvelli í gærkvöld er lítil eins hreyfils flugvél varð að snúa við eftir flugtak þar sem vart var við bensínleka. Vélin lenti heilu og höldnu og gert var við lek- ann. Stöðvaöurá 177 km Nokkuð erilsamt var hjá lögregl- unni í Hafnarfirði í fyrrinótt og stöðvaði hún m.a. bifhjól á Reykja- nesbrautinni sem ekið var á 177 kílómetra hraða. Mbl.is greindi frá. Endurskoða Margrét Frí- mannsdóttir, taismaðm- Sam- fylkingarinnar, segir að endur- skoða verði áform um einkavæðingu ríkisfyrirtækja ef ekki sé hægt að tryggja dreifða eignaraðild við sölu þeirra. Dagur greindi frá. Hittu forseta Nítján ungmenni af íslenskum uppmna frá Kanada og Bandaríkj- unum hafa dvaiið hér á landi í sex vikur. Hópurinn hitti Ólaf Ragnar Grímsson, forseta íslands, á Bessa- stöðum á laugardag og hélt heim í gær. Mbl.is greindi frá. Eignaraðild könnuð Viðskiptaráðuneytið mun kanna hvort unnt sé að tryggja með lögum og reglum dreifða eignaraðiid að fiármáiastofnunum. Finnur Ingólfs- son viðskiptaráðherra segist þó ekki vilja fóma ftjáisræði og sam- keppni með eftirliti og skrif- finnsku. RÚV greindi frá. -hdm ný storf

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.