Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1999, Side 8
Nú er svo komið í okkar ágæta þjóðfélagi að allir þjóna öllum. Hvert og eitt okkar er með þjón á hverjum fingri,
meira að segja þjónarnir sjálflr. Þetta er löngu hætt að vera eins og i fyrndinni þegar allur almúginn sá um að
þjóna hinum smáa hópi aðalsmanna og hefðarfrúa. í þessum málum hefur allt blandast saman og snúist við og það
þykir alls ekki óeðlilegt að borga nokkrum tugum fólks fyrir ýmiss konar þjónustu á ári hverju. Andrea Brabin,
sem rekur umboðs- og fyrirsætuskrifstofuna Casting, er tekin hér sem dæmi. Líkt og flest okkar er hún alla daga
umkringd fólki sem hjálpar henni að gera lífið bærilegra og betra.
fingn
Barnapían:
Þóra Einarsdóttir, 13 ára
Hárgreiðslukonan:
Dóra Hrund á Salon WEH í Kringlunni
„Hún er frábær, á heimsmælikvarba. Ég er búin að vera hjá henni frá 1996 og treysti henni algjörlega. Áður
en ég lenti á henni hafði ég verið I margra ára vandræðum með að fmna hina fullkomnu hárgreiðslumanneskju.
Mér er mjög annt um hárið og þó ég sé yfirleitt ekki pjöttuð gildir það ekki um hárið á mér. Ég nostra einstak-
lega mikið við það og kaupi dýr sjampó og aðrar hárvörur. Þess vegna er mér alls ekki sama um hver klippir
mér og greiðir. Dóra er eina manneskjan sem gerir það þannig að ég sé fullkomlega ánægö."
f Ó k U S 20. ágúst 1999
Þjónustufulltrúinn:
Sigurður Karlsson í gjaldeyris-
deild aðalútibús Búnaðarbankans
„Sigurður fær ekki frið fyrir mér. Ég hef alla tíð verið með
viöskipti í Búnaðarbankanum og Siggi sér um mín mál
þar. Hann er alltaf I góðu skapi og gefur mér góð ráð,
ekki bara með erlend viðskipti heldur allt sem fjármál
min snertir. Ég er í persónulegum kontakt við hann og
það er frábært að vita af honum þarna, sérstaklega þeg-
ar ég hef búið erlendis og þarf að græja einhver mál
hérna heima. Siggi getur svarað öllum spurningum."
„Þóra er ótrúleg. Hún ertiltölulega nýbyrj-
uð að passa fyrir mig og ég skil ekkert í
því hvernig ég gat verið svona heppin að
finna slíka stelpu. Það munar miklu að
geta farið í vinnuna á morgnana án þess
aö skilja barnið eftir grátandi. Þóra veit
hvað hún er að gera. Henni er barna-
gæsla I blóð borin."
Saumakonan:
Sigríður Ólafsdóttir
á Freyjugötunni
„Sigrfður festir allar tölur fyrir mig,
lagar peysur, styttir, faldar og margt
fleira. Þegar ég er aö því komin að
henda einhverju fer ég með það til
hennar og eftir nokkra dag er flíkin
orðin eins og ný. Hún virðist hafa
yndi af því að hjálpa fólki. Býr í lítilli
og sætri ömmuíbúð og það er voða
heimilislegt að koma til hennar.
Maður sest inn í eldhús og hún skrif-
ar í litla bók hvað hún á að gera. Sig-
riður er yndisleg, gömul kona."
Snyrtifræðingurinn:
Ingibjörg Dalberg og stelpurnar
á snyrtistofunni Maju
„Ingibjörg er með besta bikinívax í bænum og er þar
að auki snillingur í að plokka augabrúnir. Mér finnst
voða gott að fara til hennar og slaka á. Fara í andlits-
hreinsun og svona dekur. Snyrtistofan hennar er lítil
og notaleg og þar er gott að vera. Þvf miður fer ég allt
of sjaldan til hennar sökum tímaskorts."
Lögfræðingurinn:
Gísli Hall og faðir
hans, Ragnar,
í Mörkinni
„Gísli og faðir hans sjá um
alla samninga og annað slíkt
fyrir mig. Þeir eru mér nauð-
synlegir svo ég geti verið með
allt á hreinu og hafa hjálpað
mér mikið, alveg frá þvf að fyr-
irtækið mitt var sett á fót."
„Hann hjálpar mér með vöðvabólguna og
hnykkir mig til og frá. Hann hugsar ekki bara
um líkamlegu hliðina heldur þá andlegu Ifka og
er þess vegna aðeins öðruvfsi sjúkraþjálfari.
Ég er búin að þekkja hann lengi og hann á eft-
ir að veröa algjörlega ómissandi þegar ég fer
að æfa reglulega hjá honum en það er einmitt
á prjónunum hjá mér. Það er bara eitthvað svo
erfitt að koma sér að verki. Gústi er æðisleg-
ur og þaö vantar ekki viljann til að fara til hans
heldur aðeins meiri tíma."
Húshjálpin:
Eva Halldórsdóttir
„Ótrúlega fyndin kona. Ofsalega hress og kattþrifin. Það er
aldrei eins gott að koma heim og þegar hún er búin að fara
eins og stormsveipur yfir fbúðina. Maður tiplar inn á sokkunum
og allt er glansandi fínt. Hún kemur tvisvar f mánuði en helst
vildi ég hafa hana heima á hverjum degi. Hún er alltaf í góðu
skapi og andinn f íbúðinni er góöur eftir að hún hefur verið þar."