Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1999, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1999, Blaðsíða 13
 Á íslandi er varla til svo aumt krummaskuð að þar sé ekki rúntur. Um hverja helgi hópast krakkar á rúntinn um land allt og keyra í hringi í eilífri leit að stuði og hugsanlegum drætti. Nýlokið er tökum á leiknu heimildarmyndinni Rúnturinn, þar sem tékkað er á rúnt-stuðinu á tíu stöðum á landinu. Fókus fékk að njóta sérþekkingar rúntmanna. runtunn V*v N ‘ , • * v - Þegar Friðrik Þór hitti Steingrím Dúa sagði hann að Rúnturinn væri „Let’s make a movie“-dæmi: ____ tvímæla laust með landsbyggoi * „Mér datt þetta í hug þegar ég var 19 og vann í Víðidalnum. Blönduós var menningarstaðurinn sem maður fór á ball á. Einhvem tímann sá ég rúntinn og mér fannst þetta fyndið og skemmtilegt fyrir- bæri og það sat í mér. Síðasta vetur fór hugmyndin að myndinni að krauma í mér og ég impraði á henni við nokkra aðUa. Þegar ég kynnti hana fyrir Friðriki Þór stökk hann á hugmyndina. Hann ljómaði allur og sagði að þetta væri „Let’s make a movie“-dæmi.“ Fólk á fylliríi Hér talar Steingrímur Dúi Más- son, leikstjóri Rúntsins. Hann fór á stað með myndina þegar Frikki gaf grænt ljós og nú er tökum lokið. Dúi er orðinn uppflettibók um íslenska rúntinn: „Það sem kom í ljós er að hver rúntur hefur sinn karakter,“ segir hann. „Þeir eru allir ólíkir en lið- ið í bílunum er allt á sama róli: fólk á fylliríi og strákar í stelpu- leit og öfugt. Þetta er aðallega það. En það sem kom okkur mest á óvart var að þaö er rúntur alls staðar, jafnvel á stað eins og Hólmavík." Dúi heldur áfram: „Allir staðirn- ir eiga það sameiginlegt, fyrir utan Reykjavík, að þegar þar er ball þá er ekki rúntur. Á öllum stöðunum Dúií er líka rúntað á sunnudögum en sá rúntur er öðruvísi, svona edrú ís- rúntur, eftir-bíó rúntur." Skandinavískur miðbær Bíllinn sem er notaður í mynd- inni er útjaskaður Ford Econoline og Dúi segir hann ekki hafa vakið mikla aðdáun eða athygli á rúntin- um. Reyndar vöktu hvorki bíllinn né Viddi og Óli mikla athygli á stór- um stöðum en krummaskuðin tóku þeim opnari örmum. Myndin geng- ur út á það að fylgst er með Vidda og Óla sem skoöa rúntinn og stuðið í hverju plássi. „Þeir voru hvergi lamdir svo það er því miður lítið ofbeldi í mynd- inni,“ segir Dúi. „Og við sneiddum hjá mjög ungu liði. Fólkið sem við töluðum við var fólk á aldrin- um 17 til 20 ára.“ Dúi segist vona að það náist að klára myndina á skömmum tíma: „Vonandi verður hún frumsýnd um miðjan vetur, helst fyrir jól,“ segir hann. „En það er stíf eftir- vinnsla fram und- an því teknir voru upp eitthvað aksjón. um 150 tímar.“ Dúi hefur kom- ist aö einu: „Eftir að hafa gert þessa mynd mæli ég tvímælalaust meö landsbyggðinni," segir hann. „Reykjavík verður aldrei annað en pínulítið of strekktur skandinavísk- ur miðbær.“ Isafjörður: Lamaður rúntur Dúl: Við lentum á miklu sukkkvöldi og rúnturinn var lamaður. Þaö var aggressjón I loftinu en við geröum gott úr því. Viddl og Óll: Viö lentum á kvöldi þar sem rándýrir skemmti- kraftar að sunnan voru komnir til að skemmta og því var rún- turinn í eitt allsherjar fyllirí. Allir sem viö hittum á rúntinum voru að koma af ballinu eða á leiöinni þangað. Það var frek- ar leiðinlegt svo við fórum niörá bryggju og fengum gefins fisk hjá trillukörlum. Við grilluöum og bjuggum til hundasúrusósu. isfirski rúnturinn er samt nokkuð skemmtilegur, hann er í lag- inu eins og 8 og maður hefur góða yfirsýn yfir hann allan. Á þessum ferðum okkar sagði fólk oft: „Þið hefðuð átt að koma síðustu helgi þeg- ar var ball", en það var einmitt ekki þaö sem við leituöum að. Kjöraðstæður voru þegar fólk var hæfilega edrú því þegar allir eru of fullir getur eng- inn keyrt. Akranes: Dress-kódi á rúntinum Dúi: Akranes er mikill rúntbær og þekktur fýrir öflugan rúnt. Vlddl og Óll: Rúnturinn er ein gata fram ogtil baka. Hér mætast bílarn- ir og þeir eru alltaf að stoppa og fólk að tala saman. Akurnesingar taka rúntinn al- varlega og hann er trúar- brögð. Fólk var frekar opinskátt en samt alvarlegt. Það var mikið lagt upp úr bílum og græjurnar voru öflugar í bílunum. Við hittum 18 ára stráka sem höfðu fengið rauðan van sendan frá ísafirði. Þetta var landsfrægur rúntbíll en var nú orðinn ógangfær. Þeir ætluðu aö gera hann upp sem hóru- hús á hjólum. Það átti að vera gæra alls staðar og speglar út um allt, bar og diskókúla í loftinu. Akranes er finn bær fyrir rúntara. Það er dress-kódi á rúntinum á Akranesi, fólk hélt t.d. að við værum frá Færeyjum af því við vorum í lopa- peysum. Helst á aö vera á flottum bíl en ef ekki þá er hægt að vera i hallærislegum fðturn því þá heldur fólk að maöur sé útlendingur og er næs við mann. Hólmavík: Mergjaður staður Dúl: Mergjaður staður. Hóimavík hljómaði I mínum eyrum sem mesta krummaskuð landsins en þegar til kom var rúnturinn skemmtilegur og mjög flott kaffi- og veitingahús - Cafe Riis - í bæn- um. Það var fullt af liði á rúntinum, allavega fimm bílar, og allt mjög traust lið. Vlddl og ÓlbAlveg frábær staður. Þarna var Helgi og hann var með kótilettu undir stýri, hlaöborð. Hann var til í allt og undir morgun var hann orðinn kylfusveinninn okkar. Rúnturinn er ein gata, bensínstöö á öðrum enda og Cafe Riis á hinum. Krakkarnir eru ótrúlega vinalegir, enginn rígur ekkert ofbeldi. Þeir voru bara i stuði. Það versta viö Hólmavík og mörg önnur krummaskuö er ákveðinn „White Power"-fílingur sem er i gangi. Fólk er ekki hrætt viö aðkomumenn heldur við hiö ókunna, í þessu tilfelli svertingja. Þetta er svona svipaö og ef fólk sem hefði aldrei komið til Eyja héldi að lundar væru tveggja metra há illfygli óg væri því meö ein- hvern „Fokk ðe lundi"-móral. Þrátt fyrir þetta eru minnstu staðirnir alltaf bestir upp á rúntinn að gera. Þar eru allir ánægðir með að fá ein- hvern í heimsókn. Blönduós: Rúntleikur með eggjabakka Dúl: Rúnturinn á Blönduósi er eldfimur. Mjög góður í rúntur, með þeim betri á landinu. Vlddi og Óll: Þegar við kom- um til Blönduóss var allt dautt og við sáum engan. Það heföi getað verið gat í landakortinu. Þarna er fullt af stórum steypukössum, löggustöðin er t.d. á þrem hæðum og næstum þvi jafn- stór og löggustöðin við Hlemm. Löggan á Blönduósi er líka mjög dugleg við að sekta fyrir hraðakstur því þjóðvegurinn liggur i gegnum bæinn. í byrjun minnti bær- inn mann á Smiðjuhverfið í Kóþavogi. En svo sáum við smálíf, tvo bíla á rúntinum. I sjoppunni hittum við svo rúntara sem voru meö sögustund og sögöu okkur frá frægum rúnt-kagga sem hafði verið keyrður 150.000 km á rúntinum á Blönduósi. Þetta kvöld var einmitt kveöjuathöfn fyrir þenn- an kagga. Á Blönduósi hafa þróast ákveönir rúntleikir, t.d. keyra menn hver á móti öðrum með eggjabakka og drita hverjir á aðra, ekki ólíkt ridd- urum. Rúntararnir leika sér líka að því að vera hraðahindrun á þjóðvegin- um, t.d. um verslunarmannahelgi. Þá keyra þeir hægt og gera utanbæj- arfólkiö sem er að flýta sér í gegn brjálaö. Einn af þeim sem voru á rúntinum var nýbúinn að kaupa sér bíl. Þegar viö vöknuðum daginn eftir var hann enn að rúnta. Kannski hélt hann að hann væri strætó. Ætli löggan hafi ekki sprautað hann niöur fyrir rest. Akureyri: Kynkaldur rúntur Dúl: Rúnturinn er virkur á Akureyri en Akureyringar eru feimnir viö utanbæjarfólk. Fólk er ekki mjög út á við. Þaö er fullt af bílum á rúntinum en staðurinn er ekki heitur heldur ferkantaður og inn í sig. Viddl og Óll: Þegar fólk heyrði að viö værum að fara til Akureyrar reyndu allir aö telja okkur af þvi. Landsbyggðin hefur mjög mikið á móti Akureyri, staðurinn er dálitið eins og lA, það hata allir ÍA. Ak- ureyri er líka einfaldlega leiöinlegur bær og fólkið ruddalegt. Allir með kjaft og fokk-jú-merki á lofti. Rúnturinn er skaddaöur og löggan sektar fólk um 10 þúsund kall ef það stoppar á bílunum til að tala saman. Helmingur af rúntinum er bílastæði og þar þarf aö snúa. Rúnturinn var miklu flottari fýrir 2-3 árum en verkfræöingurinn á staðnum er í striði við krakkana. Þetta er svipuð staða og í Reykjavfk, þar sem meðvitaö er reynt að eyða rúntinum. Rúntur- inn er í flækju fram hjá göngugötum og lokuðum hringtorgum og akureyrskir rúntarar eru orðnir kyn- kaldir á þessu. Það besta sem gerðist á Akur- eyri var að við hættum á rúntin- um og fundum Itali sem við dorguðum með niðri á höfn. vÁflt i „ <P> ts' ¥ Reykjavík: Kæfður rúntur Dúi: Rúnturinn er orðinn ofvaxinn í Reykjavík og hann er hul- inn í öllu hinu sem er aö gerast. Það eru komnir strippbarir, uppabarir og listabarir og þar eru svo margir hópar á sveimi og mismunandi fólk. Vlddi og Óli: Ef Reykjavík þykist ætla að veröa einhver menn- ingarborg verður að bæta rúntinn. Þetta var bara viðbjóöslegt fýllirí og slagsmál. Ekki var hægt aö sjá hverjir voru á rúntin- um og hverjir ekki því það var allt fullt af leigubílum, fólki að skutla fullu fólki og fullt fólk aö vafra um og þetta kæfði allt rúntinn. Svo er búiö að skemma rúntinn með því aö setja upp hindranir. Við mælum ekki með Reykjavik fyrir fólk sem vill rúnta. Egilsstaðir: Framúrstefnufólk Dúl: Alveg frábær staður. Frábær rúntur. Á Egils- stöðum var ball svo við vorum ekki mikið á rúntin- um. Við vorum með fólki á balli og úti á götu. Það var mjög góð stemning. Egilsstaöir voru menning- arlegasti staðurinn sem við fórum til." Vlddl og Óll: Við fórum á megafylliri. Rúnturinn er L-laga á Egilsstöðum, liggur frá Orminum að bíla- stæði. Viö sáum einhverja vera að rúnta en ákváð- um að fara á ball, kynnast fólki þar og fara með því á rúntinn seinna. Það voru tvö böll í gangi: ekta gamaldags ball f stíl við Ingimar Eydal og annað þar sem var lókal band. Egilsstaðir eru kjörstærð af bæ. Þar eiga menn sin eigin bönd sem eru ekki að spila eitthvert Korn-þungarokk. Það eru allir með rautt hár þarna og búið var að byggja vind- myllur fýrir utan Orminn til að mótmæla virkjunar- framkvæmdum. Á Egilsstöðum býr eiginlega hálf- gert framúrstefnufólk." Keflavík: Mekka rúntsins Dúi: Keflavík er mekka rúntsins, höfuðborg ís- lenska rúntsins. Rúntur- inn þar á mjög sterkar rætur enda hefur amerisk menning átt greiöa leið f bæinn. Það sést á rúntin- um, og svo voru bflarnir Keflavík áberandi flottir. Viddi og Óll: Það er mjög þróuð sjoppumenning í Keflavfk og rúnturinn er ein gata. Það er bíla- snobb eins og á Akranesi og það má segja að rúnturinn sé mjög svip- aður f þessum tveim bæjum. Við vorum varaðir við að vera á of flott- um bíl þvf þá myndi löggan alltaf vera að stoppa okkur. Við komumst að þvi að lögreglan í Keflavik er mjög áhugasöm um bfla og stoppar flotta bfla frekar en Ijóta. Samt vorum við teknir af þvf við vorum á stórum van. Við vorum með kassagitarpartf með kvenlegum strák- um sem viö pikkuðum upp afturí en löggan leysti það upp. Viö fund- um ekki fyrir því aö Keflavík væri rokkbær. Á rúntinum spilar fólk aö- allega danstónlist með miklum botni til að dýru græjurnar njóti sfn. Viö vorum dálítið fullir og pissuðum í flösku. Höfn: Röff rúntur Dúl: Sterkur rúntur með sterkar rætur. Þetta er röff rúntur, enda er þetta sjóarastaður. Mjög kraftmiklar stelpur, skemmtilega frekar og fínar. Viddi keyrði á svart lamþ á leiðinni og fór á algjört öriagafýlliri. Vlddi og Óll: Viö keyrðum á rollu og það tók á taugarnar. Á rúntinum voru allir blindfullir og einhver satanísk stemning f loftinu. Það var bara einn bfll á rúntinum og gaurinn sem keyrði var eini edrú maöurinn á svæðinu. Hann var rifbeinsbrotinn af því vin- ur hans hafði sparkað f hann helg- ina áður. Þarna voru gelgjustelpur að reyna við okkur. Þetta var stelpnamafía sem var með mottó sem var einhvern veginn svona: „Sjúgum hann, sleikjum hann og bleytum hann", eins og ostaaug- lýsingin. Þarna var Ifka gaur sem gekk undir viðurnefninu Satan. Vestmannaeyjar: Pysjurúntur Dúl: Þaö er örugglega mjög góður rúntur I Vestmannaeyjum en þegar við kom- um var pysjurúntur: ekkert nema krakkar og foreldrar i bílum aö safr.a pysjum. Við hittum reyndar hressa stráka, svona bílastráka. Vlddl og Óll: Staðurinn var fullur af náttúrufólki. Allir voru úti til kl. 2-3 aö tína pysjur og hinn hefðbundni rúntur leið fýrir þetta. Rúnturinn sner- ist um að ná í fugla. Þannig rúntuöu börn og gamalmenni saman en það voru samt einhverjir krakkar sem viö hittum f sjoþpunni. Ekki þætti svo feröin með Herjólfi málið. Það vantar alla spilakassa og þari f Herjólf. Að sigla með skipinu er eins og að vera á elliheimili að hlusta á Rás 1. Leikararnir Viddi og Óli drukku sig fulla fimm helgar í röð til að kynnast lífinu á rúntinum: Hina hressu rúntara leika Við- ar H. Gíslason og Ólafur Jóns- son - Viddi og Óli. Fimm helgar í röð fóru þeir á rúntinn. „Við erum bara hálfvitar úr Reykjavík sem voru fengnir til að fara á rúntinn úti á landi,“ segir Viddi. „Þegar við lögðum af stað höfðum við í sjálfu sér aldrei farið á rúntinn. Ekki þannig. Það að keyra einn hring og fara svo heim er ekki að fara á rúntinn eins og maður hafði gert, kannski eftir bíó.“ Tók á að liggja í sukki fimm helgar í röö? „Já, það var erfitt. Líka samlok- urnar í sjoppunum og Elitesse- súkkulaðið, þetta var frekar ógeðslegt líf. Keith Richards hefði ekki látið bjóða sér þetta.“ „Það var auðveldast að vera fullur,“ segir Óli. „En svo vaknaði maður upp og fór beint í aðra töku í þynnkunni." Bara lúðar Heimildarmynd um íslenskt fyllirí og rúntinn ætti að verða þyrnir í augum bindindisfrömuða, eða hvað? „Fyrirsætan þarna, Þorgrímur Þráinsson, verður kannski brjál- aður. En samt er myndin mjög góð for- vörn. Áhorf- endur sjá hvernig fólk er fullt og verða að spyrja: Vil ég vera svona líka? Þú sérð mann æla í í krampa í Viddi. öskutunnu og þynnku. Þig langar þá ekki til að herma eftir því og þess vegna sleppur myndin. Þar fyrir utan erum við ekki góð fyrirmynd, það er ekki eftirsóknarvert að vera eins og við. Við erum bara lúðar og fólk mun hugsa: „Svona gera lúðarnir." Eruöi þá aö meina að allir sem eru á rúntinum séu lúöar? „Nei, alls ekki. Þetta er alls kon- ar fólk. Þú býrð bara í litlum bæ og allir vinir þínir eru á rúntin- um. Rúnturinn er bara félagsmið- stöðin, aðalgatan verður heimili og löggan mamma og pabbi. Strákar og stelpur Hvernig týpur eru á rúntinum? „Það er metnaðarfulli rúntarinn á Volkswagen Golf, kannski með bassabox í skottinu. Oft er þessi týpa með græjur fyrir hundrað þúsund kall eða meira i bílnum og á Akureyri hittum við m.a.s. stelpu sem var með dýrari græjur en bíllinn. Síð- an er það krakkinn á heimilisbíln- um sem dreymir um að eignast eigin bíl. Svo eru það gaur- ar eins og Helgi á Hólmavík. Það eru gaurar sem eru á vaktinni og ættu að fá styrk því þeir eru faktískt hús- verðir á rúntinum. Þeir taka púls- inn á öllu sem er að gerast. Þegar þú hittir svona mann veistu um allt sem er að gerast í bænum. Svona gaurar ættu eiginlega að vera með „information“-merki á húddinu. Síðan eru það stelpurn- ar, þær eru undantekningarlaust ótrúlega vitlausar." Hingað til hafa strákarnir verið sammála en nú mótmælir Viddi þessu með stelpurnar: „Nei, stelp- ur sem voru með kærasta voru oft skemmtilegar." „Nei, þær sögðu bara (með stelpurödd); „Nei, ekki taka mynd- ir af mér“.“ Strákarnir skeggræða aðeins betur um stelpurnar á rúntinum en fá svo sameiginlega niður- stöðu: „Það var ótrúlega mikið af stelpum sem voru mállausar og sátu bara eins og steyptar í hliðar- sætin á bílunum. Þegar stelpuhóp- ur er á rúntinum má engin þeirra vera of áberandi því þá verða hin- ar pirraðar út í hana því hún á meiri séns. Þaö má engin vera of sæt í hópnum. Þær verða allar að vera jafnsætar eða jafnljótar." gardagar Opið: mán.- fim. 10.00 - 18.30 fös. 10.00-19.00 f Ó k U S 20. ágúst 1999 20. ágúst 1999 f Ó k U S l I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.