Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.1999, Qupperneq 5
ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1999 sí baa _ _ 21
Það munu án efa margir bíða spenntir eftir að Warcraft III komi á markað.
Warcraft III kominn í framleiöslu:
Byltingarkenndar
breytingar
- verður meira í ætt við hlutverkaleiki
Meðal þess
forvitnileg-
asta sem
kynnt var á
ECTS var yf-
irlýsing frá
Blizzard
Entertainment um að fyrirtækið
væri byrjað að hanna tölvuleik-
inn Warcraft III. Þetta ætti að
vera ánægjulegt fyrir fjöida tölvu-
leikjaunnenda því Warcraft II er
einn af vinsælustu tölvuleikjum
sögunnar og finnst mörgum
löngu kominn tími á framhaldið,
enda heil fjögur ár síðan
Warcraft II kom út.
Það er hins vegar alveg ljóst af
því sem Blizzard lét uppi um
framhaldsleikinn að hann verður
ekki bara sami gamli leikurinn
með örfáum nýjungum heldur
verður hann hugsaður nær al-
gjörlega upp á nýtt. I stað þess að
vera einfaldur herkænskuleikur
(Real Time Strategy) í anda
Command & Conquer verður boð-
ið upp á ýmsar nýjungar sem
þekktar eru úr hlutverkjaleikjun-
um (Role Playing Games). Hönn-
uðimir kalla þetta „roleplaying
stragedy game“ sem gæti útlagst
á íslensku „hlutverkaleikur með
herkænskuívafi". Heppilegra
væri þó að finna eitthvað þjálla
nafn á þetta nýja hugtak innan
leikjageirans.
Nýtt útlit
Helsta breytingin frá fyrri út-
gáfu er sú að í Warcraft III er
ekki verið að byggja upp þorp og
safna saman stómm her, eins og
gengur og gerist í venjulegum
herkænskuleikjum. Nú mun spil-
Helsta breytingin er
sú að í Warcraft III er
ekki verið að byggja
upp þorp og safna
saman stórum her
eins og gengur og
gerist í venjulegum
herkænskuleikjum.
Nú mun spilarinn
ráða yfir mun
færri mönnum
sem allir styrkjast
eftir þvi sem reynsla
þeirra eykst.
arinn ráða yfir mun færri mönn-
um sem allir styrkjast eftir því
sem reynsla þeirra eykst. Hægt er
að bæta mönnum í hópinn smám
saman því einhver áhersla verð-
ur lögð á að hægt verði að spjalla
við hinar ýmsu skepnur sem
gengið er fram á í landinu Azer-
oth, þar sem Warcraft-leikirnir
gerast.
Warcraft mun jafnframt fá nýtt
útlit í þriðju útgáfunni, leikurinn
verður í þrívídd svipaðri þeirri
sem við höfum kynnst í Myth-
leikjunum tveimur. Leikurinn
lofar vissulega góðu en erfitt er
að spá um hvort aðdáendur
gömlu leikjanna verða ánægðir
með breytinguna. Þeir hafa þó
nægan tíma til að hugsa sig um,
því ekki er áætlaö að Warcraft III
komi á markað fyrr en undir lok
næsta árs.
Keppni atvinnumanna í Quake III:
Kaninn marði sigur
Meðal þess sem
boðið var upp á
meðan á ECTS-
sýningunni stóð
var 16 manna
keppni I Quake
III, þar sem kepptu nokkrir af fær-
ustu Quake-spilurum í heiminum
og þar á meðal nokkrir atvinnu-
menn í greininni. Það var Logitech-
músaframleiðandinn sem bauð til
keppninnar og pungaði út heilum
1.000 dollurum (um 75.000 kr.) í
verðlaun fyrir fyrsta sætið. Kepp-
endur komu frá hinum ýmsu lönd-
um og þar á meðal voru tveir Svíar
úr hinu alræmda 9-klani. Þeir áttu
samt ekki góðan dag og komst hvor-
ugur þeirra í undanúrslit. Það
gerðu hins vegar báðir Bandarikja-
mennirnir, Rix og Batch, og drógust
þeir saman í undanúrslitunum.
Leikur þeirra varð mjög undarlegur
þar sem Batch hafði 14-5 „fragga"
forystu þegar fimm mínútur voru
eftir af 15 mínútna leik. Rix átti
hins vegar rosalegan endasprett
sem dugði þó ekki, þvi Batch vann
naumt 15 - 14. Úr hinum undanúr-
slitunum komst Bretinn Sujoy auð-
veldlega áfram og því varð úrslita-
leikurinn að baráttu milli Evrópu
og Ameríku. Sujoy byrjaði betur, en
um miðjan leikinn vann Batch á,
náði forystunni og hélt henni af ör-
yggi til loka, 14 -11.
Bandaríkjamaðurinn Eric, sem gengur undir nafninu Batch í Quake-heimi,
sigraði í erfiðri keppni Quake lll-spilara á ECTS.
Thief 2 lofar góðu:
Endurbætt grafikvél
Meðal þeirra
leikja sem lof-
uðu góðu á
ECTS var Thief
2, framhaldið af
leiknum Thief,
sem kom leikjaunnendum skemmti-
lega á óvart þegar snillingarnir í
Looking Glass gáfu hann út í
fyrra. Thief 2 mun líta umtals-
vert beto út en fyrri leikur-
inn og er það sérstaklega að
þakka nýju System Shock 2-
grafíkvélinni sem Looking
Glass hannaði upp úr leifum
gömlu Thief-vélarinnar. Nú
verður allur feluleikur í myrk-
um skúmaskotum mun
skemmtilegri þar sem ljós og
skuggar verða mun betur gerð
en í fyrri leiknum.
En leikurinn er ekki bara
endurbættur hvað grafík varð-
ar, því i honum fær söguhetj-
an ný vopn auk þess sem sögu-
þráðurinn hefur verið dýpkaður og
verður mikilvægari í Thief 2.
i nýja leiknum verður mun meiri
áhersla á innbrotsverkefnin sem
finna mátti í fyrri leiknum en
minna verður um yfirnáttúruleg
fyrirbæri, sem þóttu ekki setja
skemmtilegan svip á fyrri leikinn.
Grafíkin er endurbætt í laumupokaleiknum
Thief 2.
Command & Conquer: Renegades:
Fyrstu persónu skotleikur
Einn af þeim
leikjum sem
vöktu mikla
athygli á
ECTS var
Command &
Conquer:
Renegades. Leikurinn er frá
Westwood Studios og gerist hann
í hinum Tíberíum-hlaðna Comm-
and & Conquer-heimi, en er að
nær öllu leyti frábrugðinn hin-
um venjulegu C&C-leikjum sem
flestir þekkja.
Þetta er nefnilega fyrstu per-
sónu skotleikur sem verður aðcd-
lega hannaður með netspilun í
huga í anda Tribes og Team For-
tress. Unnið er hörðum höndum
að því að gera Renegades að sem
bestum netspilunarleik og má í
því sambandi nefna að tæknilega
- allt aö 256 manns geta spilað í einu
séð munu 256 spilarar geta spilað
í einu við bestu aðstæður. Leik-
urinn lítur ótrúlega vel út á
þessu stigi hönnunarinnar og
má í honum sjá flest þau farar-
tæki og mannvirki sem menn
þekkja úr „venjulegu" C&C-leikj-
unum þó að sjónarhomið sé allt
annað.
Það verður hægt að keyra um
á flestum farartækjunum í ieikn-
um ef menn langar til og geta
jafnvel fleiri en einn verið í
sama farartæki í einu. Þar geta
menn svo skipt með sér verkum,
t.d. getur einn séð um að keyra
og annar tekið sér stöðu við það
vopn sem farartækið hefur yfir
að ráða.
Búist er við að Command &
Conquer: Renegades muni koma Þeir sem spilað hafa eldri Command & Conquer-leikina munu þekkja flestar
á markaðinn um mitt næsta ár. byggingar og farartæki í Renegades-útgáfu leiksins.
Unreal Tourna-
ment flottur
Meðal þeirra leikja sem sjá
mátti á ECTS var netleikurinn
Unreal Tournament, fyrstu
persónu skotleikur sem marg-
ir hafa lengi beðið eftir. Bar-
áttan verður hörð milli leikja
af þessu tagi á næstunni, enda
von á mörgum slíkum athygl-
isverðum leikjum. Miðað við
það sem sjá mátti á ECTS
verður Quake III að vera veru-
lega góður til að slá út UT, svo
flottur er hann. Leikurinn lít-
ur ekki bara vel út heldur er
gervigreind andstæðinga og
samherja gríðarlega vel hönn-
uð, auk þess sem vopnin sem
notuð eru í leiknum eru
einnig fyrsta flokks. Því geta
aðdáendur fyrstu persónu
skotleikja farið að hlakka
verulega til vetrarins.
Endurbættur
Grand
Theft Auto
Nú fer að styttast í að fram-
haldið af bílaleiknum Grand
Theft Auto, einum vinsælasta
PC-leik allra tíma, fari að
koma á markaðinn. GTA 2 var
sýndur á ECTS og í ljós kom
að búið er að gera ýmsar
breytingar og uppbætur á
fyrri leiknum þó svo grunnat-
riði, eins og hið gamaldags
sjónarhorn ofan frá, muni
halda sér í nýja leiknum.
Helstu breytingar eru þær
að talsvert hefur veriö hresst
upp á útlit leiksins og fjöl-
breytni aukin verulega hvað
varðar möguleika spilarans á
að gera hvað sem hann langar
til. Hann getur ráðið sig í
vinnu hjá sex mismunandi
bófaflokkum sem hver fyrir
sig úthlutar mismunandi
verkefnum. Sennilega mun
verða vinsælt að ráða sig til
starfa hjá brjálæðingunum í
Crazies-genginu, en þeir eru
nýsloppnir af geðveikrahæli
og útdeila því mjög sérkenni-
legum verkefnum.
Fjóröa
leikjatölvan
væntanleg?
Innan tölvuleikjabransans
hefur um nokkurt skeið veriö
uppi orðrómur um að fjórða
leikjatölvan sé væntanleg á
markaðinn sem muni veita
Sony, Nintendo og Sega harða
samkeppni á næstu árum.
Hún er kölluð „The X-Box“ og
það sem gerir hana athyglis-
verða í alla staði er að það er
sjálfur hugbúnaðarrisinn
Microsoft sem er talinn standa
að baki tölvunni. Enn verjast
þó Microsoft-menn allra frétta
af málinu og segjast ekkert
vita um tölvuna. Því er erfitt
að segja til um hvort þessi
orðrómur er sannur og von-
laust að vita nákvæmlega
hvað þessi tölva gerir ef hún
þá verður nokkum tímann tiL
Menn velta þessu þó auðvitað
fyrir sér og telja margir að X-
Boxið muni koma til með að
geta keyrt venjulega PC-leiki.