Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1999, Side 16
30
heimili
MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1999
Besta gólfefni sem völ er á?
Korkur hefur margfalt einangrunargildi á við
önnur gólfefni og eru þau þvi ávallf hlý og notaleg.
v . Mýkt korksins fer vel með fæturna
Ótrúlega slitsterkt, hentar vel á öll gólf s.s. stofur,
barnaherbergi, eldhús, skrifstofur o.s.frv.
- Hönnum gólfmynstur á stærri fleti ef óskað er.
Ótrúlega margir lita- og samsetningamöguleikar.
er 100%
náttúruefni
Þ.Þorgrímsson & Co.
Ármúla 29-108 Reykjavfk
5.553 8640 - 568 6100
Börknum er flett af
korkeikartrénu á níu ára
fresti og þvf eru trén nýtt
aftur og aftur án þess að
fella þau. ( allt að 200 ár
gefur tréð af sér kork, og
80 ára gamalt tré getur
gefið af sér u.þ.b. 220 kg.
af korki þegar börknum
er flett af.
Veldu kork á gólfið
og leggðu
nátturunni liðl
Skeifunni 6 sími: 568 7733 www.epal.is
Tripp Trapp
bamastóll frá
Stokke
haimaðuraf
Peter Opsvik.
Verð 10.970 kr.
Gott verð
hagnýt hönnun
og sérviska Eyjólfs
Um árabil hafa verið á mark-
aði erlendis ýmsar gerðir af
plaströrum fyrir heitt og kalt
vatn sem ætlað er að koma í
stað röra úr stáli og öðrum
efnum. Farið er að nota plast-
efni á nokkrum stöðum á land-
inu, m.a. í sambandi við hita-
kerfi, og eins er farið að nota
plaströr í skipum sem hönnuð
hafa verið hér á landi.
Magnús Snædal Svavarsson,
byggingafulltrúi í Reykja-
vík, segir að um langt árbil hafi
plaströr verið leyfð í frálveitulagnir
í húsum en minna hafi verið gert að
því að nota plastlagnir við hitakerfi
húsa.
„Til þessa hefur slíkt ekki verið
leyft i Reykjavík. Ástæðan er fyrst
og fremst sú að menn hafa hingað
til ekki getað sýnt okkur fram á
endingartíma á þessum rörum en
verið er að vinna að lausn þeirra
mála. Erlendir staðlar gera ráð fyr-
ir mun styttri upphitunartíma en
tíðkast hérlendis og kaldara vatni.
Því þurfum við að gæta okkar á að
velja rétt rör sem eru rækilega próf-
uð fyrir það álag sem er hér hjá
okkur. Við erum t.d. að kynda hús
hér allt árið á meðan ýmsar aðrar
þjóðir eru að kynda kannski ein-
göngu i fjóra mánuði á ári. Þá er
heita vatnið í Reykjavík iðulega á
bilinu 75 til 80 gráða heitt sem er
meira en víðast þekkist í hitakerf-
um húsa.
Það sem tengist þessari umræðu
líka er að plaströrin þurfa að vera
með sérstakri súrefniskápu eða
vöm til að koma í veg fyrir að þau
dragi í gegnum sig súrefni sem veld-
ur síðan tæringu í ofnakerfum hús-
anna. Slíkt getur eyðilagt ofnana á
mjög skömmum tíma. Við höfum
því farið mjög gætilega í þessum
efnum hér í Reykjavík þó við viljum
vissulega að hægt sé að nota ný
lagnaefni. Við þurfum líka að vera
sannfærðir um að nýja efnið sé ekki
verra en það sem við höfum áður
verið að nota. Það getur þó auðvitað
gerst að flutt séu inn óvönduð stál-
rör, stál er framleitt eftir mismun-
andi stöðlum og gæði þess getur því
verið mismunandi.
Eingöngu notuð stáirör
í höfuðborginni
í dag eru notuð svört stálrör í
hitalagnir í Reykjavík. Þau hafa
reynst vel en helsta vandamálið er
að þau hafa viljað ryðga og tærast
að utan. Það hefur orsakast af því
að lekavatn hefur komist að rörun-
um í gegnum útveggi, undir svala-
dyrum og á slíkum stöðum. Það var
algengt hér áður fyrr að lagt var t.d.
undir svaladyr en það er alveg hætt
núna.
Þá er farið að nota „þunnveggja“
stálrör sem eru með nýjum sam-
setningum, svokölluðum „Press
Fittings". Þetta er efni sem við
erum mjög spenntir fyrir að nái að
blómstra. Þarna er um mun fmlegri
rör að ræða með skemmtilegri sam-
setningum en áður hefur tíðkast.
í neysluvatnslögnum innanhúss í
heitu og köldu vatni höfum við mest
notað galvanhúðuð stálrör en þyrft-
um að fara að taka upp nýjan efnis-
flokk. Þar kemur plastið sterklega
til greina ásamt ryðfríum rörum.
Hins vegar eru eirrör ekki góð hér í
Reykjavík, þau tærast fljótt vegna
efnafræði vatnsins.
Dæmi um nærri 70 ára
endingu stálröra
Það getur þó verið mjög mismun-
andi á milli landshluta hvaða efni
henta á hverjum stað. Vatnið getur
t.d. verið mjög ólíkt að samsetn-
ingu. Við erum þó að vonast til þess
að lausn sé í sjónmáli varðandi
plaströrin. Þar erum við að bíða eft-
ir nýjum prófunum í sambandi við
hitalagnirnar. Við erum í samstarfí
við framleiðendur um að geröar séu
prófanir sem sýni fram á endingu
plaströranna.
Ending í stálrörum getur verið
mjög mikil. Ég veit um slík lagna-
Ekki er enn farið að leyfa notkun plastlagna í hitakerfum húsa í Reykjavík en
vonast er eftir breytingum á því innan tíðar. DV-mynd Teitur;
Vatnslagnakerfi í húsum:
Miklar breyt-
ingar í sjónmáli
- segir Magnús Snædal Svavarsson
byggingafulltrúi og nefnir að m.a. sé
beðið eftir niðurstöðum rannsókna á
endingu plastlagna
kerfi sem eru
orðin tæplega
70 ára gömul.
Það er því
ótækt að taka
upp efni sem
endist kannski
ekki nema örfá
ár því þegar
lagnakerfi
byrja að leka þá
veldur það yfir-
leitt miklu
tjóni.“
- Er orðið
minna um að
vatnslagnir séu
múraðar inn í
veggi húsa?
„Það hefur
verið mjög hæg
breyting í þá
átt. Það hefur
mest verið
þannig að stofn-
lagnir hafa verið innmúraðar en
styttri lagnir út frá þeim hafðar ut-
análiggjandi. Slíkt hefur þó meira
gilt varðandi íbúðarhúsnæði, en í
atvinnuhúsnæði eru lagnir orðnar
meira sýnilegar. í byggingareglu-
gerð eru líka ákvæði er varða
snertihættu hitalagna. Vatnið er
svo heitt hjá okkur að ef t.d. böm
grípa um stálrör þá geta þau hæg-
lega- brennst illa. Reglugerðin gerir
ráð fyrir því í dag að slík rör séu á
einhvern hátt varin. Þá hefur það
líka gerst að fólk brenni sig á krana-
vatninu sjálfu. Því eru í reglugerð
ákvæði um að reyna að tempra hita
á stöðum eins og
hótelum þar sem
útlendingar koma
gjarnan, í skól-
um, leikskólum
og víðar. Fólk hef-
ur líka reynt að
varast þetta með
sjálfvirkum
blöndunartækj-
um. Ýmsilegt
annað kemur þó
til greina eins og
að setja upp sér-
staka varma-
skipta þar sem
hreint vatn er hit-
að upp til kynd-
.ingar og neyslu.
Þeir eru hins veg-
ar dýrir, hæði
mikill stofn- og
rekstrarkostnað-
ur. Það eru þó til
dæmi um að heilu
hitaveitukerfín séu rekin með slík-
um varmaskiptum, eins og á Sel-
tjamarnesi. Þar er heita vatnið úr
borholum svo salt að það myndi
fljótt eyðileggja allar lagnir í húsum
ef ekki væru notaðir varmaskipt-
ar,“ segir Magnús Snædal Svavars-
son byggingafulltrúi. Hann segir
einnig að lagnir séu sífellt vaxandi
áhersluþáttur í húsum. Þvi beri að
stuðla að því að ending þeirra sé í
samræmi við endingu á öðru inn-
volsi húsanna. Þá telur Magnús að í
sjónmáli séu miklar breytingar í
þessum efnum, m.a. með tilkomu
plastefna. -HKr.
Magnús Sædal Svavarsson, bygg-
ingarfulltrúi í Reykjavík.
DV-mynd Pétur