Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1999, Síða 5
MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1999
ÚtÍ¥*S&»£k.^P-
Vertu meö frá byrjun - Intersport
Þín frístund - okkar fag
VINTERSPORT
Bíldshöfða 20 • 112 Reykjavík • sfmi 510 8020 • www.intersport.is
Tilvera: Tilvera okkar er undarlegt feröalag. Viö erum gestir, og hótel okkar
er jöröin. - Tómas Guömundsson (Hótel Jörö).
Þú kemst lengra vel útbúin(n).
Rétt val á útivistarfatnaði skiptir
höfuðmáli þegar leggja skal land
undir fót Við hjá Intersport
bjóðum upp á heimsþekkt
vörumerki á borð við McKinley,
Haglöfs, North Face o.fl. o.fl.
Líttu til okkar efþú stefnir hærra.
Eg er forfallinn byssu-^i maður
— segir Egill Ásgrímsson bólstrari sem
lokar verkstæðinu ef mikið liggur við
Utivera og skyttirí er hluti af
tilveru margra íslendinga.
Hjá sumum er það ekki bara
eitthvert sport heldur jafnnauðsyn-
legt og aö draga andann. í þeim
hópi er Egill Ásgrímsson, bólstrari
í Reykjavík.
„Jú, ég er alveg forfallinn byssu-
maður,“ segir Egill, sem hikaði
ekki við að loka bólstraraverk-
stæðinu á Bergstaðastrætinu á
fostudegi til að geta verið mættur í
rjúpuna um leið og opnað var fyr-
ir veiðina. Hann fer gjarnan með
sömu mönnunum ár eftir ár í
Borgarfjörð, þangað sem hann hef-
ur farið á hverju hausti í 30 ár.
„Við erum búnir að vera svo til
sami hópur í Munaðamesinu á
hverju ári. Menn eru þó famir að
eldast og sumir heltast úr lestinni
vegna veikinda. Það var töluvert af
fugli, en nokkuð hátt til fjalla.
Menn fengu því ekkert mikið. Það
var mikill spenningur hér áður og
fyrr að veiða fuglinn. Þegar maður
eldist er það útiveran og bara hefð-
in að fara ár hvert á þessum tíma.
Sumir fara saman í gufubað reglu-
lega en við förum á skyttirí. Þetta
er einfaldlega partur af tilverunni.
Þegar árin færast yfir þá hættir
það að vera aðaltilgangurinn að
veiða mikið. Ég tek því ekki mikið
af skotum með mér og drep ekki
meira en ég þarf.
Ég er með tvíhleypu á rjúpuna
en með einhleypa Remington
magasínbyssu á gæsina.
Það eru ýmsir með mér í þessum
ferðum, upphaflega var þetta 8
manna hópur, en það er farið að
saxast á hann. Við erum elstir í
hópnum ég og Pétur Kjartansson,
en R. Sigmundsson hefur líka
gjarnan verið með okkur, en hann
komst ekki núna. Annars erum við
tveir sem höfum alltaf farið, ég og
Sigmundur Einarsson. Einn úr
upphaflega hópnum er dáinn og
annar fékk fyrir hjartað í haust.
Menn eru komnir um og yflr sex-
tugt og sumir því farnir aðeins að
bila eins og gengur."
- Fylgir ekki slíkum veiðiskap
mikill búnaður?
„Nei, ekki rjúpnaveiðinni. Þá
er maður bara í góðum útigalla,
vönduðum gönguskóm og
með byssuna. Þetta er svona
rétt eins og að fara í góðan
göngutúr. Á gæsinni er
þetta aðeins öðruvísi, þá
er gjaman notaður felu-
búningur."
- Tekur fjölskyldan
þátt í þessu?
„Á tímabili komu kon-
umar með okkur en þá
snerist þetta meira um að
hafa það huggulegt og borða ^
góðan mat. Þá vora krakkarnir,
bæði dóttir mín og sonur stundum
með mér og nú skjóta þau bæði.
Dóttirin Þórunn er nú orðin ágæt
skytta og skýtur talsvert,“ segir
Egill sem skýtur líka leirdúfur
með félögunum í Skotveiðifé-
laginu þegar tækifæri gefst
og hefur einnig prófað fasana-
skyttirí í Bretlandi.
-HKr.
i
Egill Asgrímsson,
bólstrari og forfallinn
4 byssumaöur.