Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1999, Blaðsíða 4
38
LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 1999
3
LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 1999
4^S|íin QuickAIR
uttiii umiiii i»t
GRILLGRINDUR UPPHÆKKUNARGORMAR LEÐURINNRÉTTINGAR LOFTDÆLUR ÚTIVISTARFATNAÐUR
MALARHÖFÐI 2-110 REYKJAVÍK ■ SÍMI 577 4x4
IEPPAVÖRUR OG BREYTINGAR
Hagstætt verð
Drif á öllum er betra en á tveimur - Legacy hafði Benzann léttilega á hálkubrautinni
- og samt hált bíllinn sínu striki
Spólað, togað, spyrnt og
hemlað
Otrúlega góð markaðs-
hlutdeild Isuzu á íslandi
Takeshi Inoh, aðalforstjóri Isuzu í Japan, og Júlfus Vífill Ingvarsson, fram-
kvæmdastjóri Bflheima, slógu á létta strengi á óvæntum fundi á bílasýning-
unni í Tokyo á dögunum.
forstjórar stórfyrirtækja í Japan
ekki mikið að því að hitta almenna
ferðalanga sem okkur.
„Við erum að framleiða góða vöru
og það er greinilegt að þið á íslandi
kunnið að meta það sem við höfum
fram að færa,“ sagði Takeshi Inoh
og beindi orðum sínum til íslensku
umboðsmannanna „sem eru komnir
um langan veg til að skoða það besta
sem japanskur bílaiðnaður hefur
upp á að bjóða. Það er því einlæg
von min að þið haldið merki okkar
á lofti með sama krafti áfram“ . -JR
„Við skulum svo halda okkur við
það að fara ekki mikið hraðar en á
150 kílómetra hraða á brautinni.
Hver er annars hámarkshraðinn
heima hjá ykkur?" Við erum stödd í
Tochigi, um tvegga stunda akstur
fyrir utan Tokyo á tilraunabraut
Subaru, tuttugu og fimm manna
hópur ofan af íslandi í boði Subaru,
starfsmenn Ingvars Helgasonar hf.,
umboðsaðila Subaru á íslandi,
ásamt umboðsmönnum og tveimur
blaðamönnum. Það var yfirmaður
tilraunastöðvar Subaru sem var að
leggja okkur lífsreglumar í væntan-
legum hraðakstri á brautinni.
„Níutíu" var svarið, sem hann
fékk úr salnum, og þá brosti hann
vandræðalega „við skulum halda
okkur við 150“. Það var greinilegt
að hann treysti hópnum ekki til
stórræða á brautinni.
Tilraunabrautin í Tochigi er tíu
ára gömul og þar hefur Fuji Heavy
Industries, framleiðandi Subaru,
framkvæmt ýmsar tilraunir á bílun-
um, reynt þá í hraðakstri og
þolakstri, auk þess sem þar eru sér-
brautir til að mæla áhrif af
steinkasti og akstri í vatni. í sér-
stökum skálum, sem hýsa tilrauna-
stofur, er fylgst með því hvernig bíl-
arnir standa sig í miklum raka eða
hita.
Fimm milljónir Subaru-
bíla
Farið var stuttlega yfir sögu
Subaru og starfsemin á staðnum
kynnt. Fyrsti fjórhjóladrifni
Subaru-bíllinn kom á markað í Jap-
an á árinu 1972 og á Bandaríkja-
markað 1975.
Síðan þá hefur mikið vatn runnið
til sjávar, en í júní síðastliðnum
náðu verksmiðjurnar þeim áfanga
að smíða 5 milljónasta Subaru-bíl-
inn í Japan og á svipuðum tíma var
lokið við að smíða 600.000 Subaru
Outback-bílinn í verksmiðjum
þeirra í Indiana í Bandaríkjunum.
Þegar Outback-gerðir Legacy og
Forester komu fram á sjónarsviðið
var einmitt bætt torfærubraut við
tilraunabrautirnar í Tochigi.
Að loknum fyrirlestrunum var
lagt upp með hópinn og haldið út á
hringlaga brautina, sem er 4.286
metra löng, en auk þess er þar að
finna sérstök svæði til prófunar á
Hér er yfirmaður tilraunastöðvar Subaru í Tochigi að útskýra fyrir okkur
gang mála á staðnum
Torfærubrautin er ekki ýkja löng,
en þannig útbúin að þar er hægt að
reyna margvíslegar torfærur og
brekkur.
Byrjað var á því að aka yfir röra-
braut, sem reyndi verulega á fjöðr-
unarkerfi bílanna, því næst stór-
grýttan vegarslóða og þá var ekki
laust við að allir fyndu til með bil-
unum, þegar grjótið nuddaðist við
botninn.
Þaðan lá leiðin um malarveg, sem
var eins og dæmigerður íslenskur
þjóðvegur án bundins slitlags, og
loks upp og niður brattar brekkur,
sumar með meira en 20 gráðu halla.
Það var aðdáunarvert hversu vel
Legacy og Forester-bílarnir stóðu
sig í þessum látum og höfðu menn
það á orði að svona nokkuð myndu
menn ekki gera heima á íslandi.
Akreinaskipting og hemlað á 90 kílómetra hraða án vandræða með ABS.
„Kappakstur" á blautri brautinni var ójafn því Legacy stakk hinn af.
Renault FIFTIE:
Til minningar um liðna tíma
Halda upp á
50 ára afmæli 4CV
Verið velkomin í versiun okkar þar sem
við bjóðum upp á mikið úrval aukahluta
fyrir jeppa. Alltaf heitt á könnunni!
- segir Takeshi Ino, aðalforstjóri Isuzu
hemlunarhæfni og rásfestu.
Byrjað var á því að sýna okkur
hvernig hægt er að skipta snöggt
um akrein og hemla á 90 kílómetra
hraða og fengu allir eina ferð með
einum af tilrauna ökumönnum
verksmiðjanna, bæði í fullbúnum
Subaru Legacy með læsivörn hemla
og spyrnustýringu, og einnig í aftur-
hjóladrifnum Mercedes Benz til
samanburðar.
Var ekki laust við að sumum í
hópnum, sem ekki höfðu reynt
svona lagað áður, fyndist nóg um,
einkum ef setið var í Benzanum
sem vildi snúast eilítið meira til í
þessum sviptingum.
Næst fengu menn að reyna hve
miklu munar um fjórhjóladrifiö í
bleytu. Miklu vatni var úðað yfir
flísalagða braut, og því næst var
tveimur bílum stillt upp í einu,
Legacy og framhjóladrifnum Honda
Accord annars vegar og Legacy og
afturhjóladrifnum Benzanum hins
vegar. Allir sem vUdu fengu að
prófa og það var ávaUt sama niður-
staða, Subaru-inn stakk hina af.
Svipað var uppi á teningunum
þegar spotti var settur á milli Benz-
bílsins og Legacy og þeir látnir tog-
ast á. Sá japanski gerði sér lítið fyr-
ir og togaði þann stóra evrópska
léttUega á eftir sér, þótt hjólin á
honum snerust vel í hina áttina
Síðasti liðurinn í reynsluakstri á
þessari hálkubraut var að reyna
muninn á því að hemla með og án
ABS-hemlalæsivamar. Við voram
látin aka á 50 kUómetra hraða inn á
brautina með sitt hvorn helming
bílsins á mismunandi undirlagi og
hemla snögglega. Bíllinn rann
vissulega aðeins áfram á hálu og
blautu undirlaginu, en án þess að
snúast.
í næstu ferð var leikurinn endur-
tekinn en þá var búið að slökka á
læsivörninni og þá var ekki að sök-
um að spyrja, bíllinn snerist í hring
Enn var predikað yflr okkur að
halda okkur á hógværum hraða,
vera ekki að spretta um of úr spori.
En strax á fyrstu hringjunum var
ljóst að það kitlaði um of að komast
á svona braut, því hver á fætur öðr-
um gaf inn eins og bíllinn komst,
þessa tvo hringi sem mönnum var
skammtað í hverri ferð. Þeir hóg-
værari í hópnum sögðust hafa farið
upp undir 200 kílómetra hraða á
klukkustund, en þeir frakkari náðu
því að pressa bUinn upp í 240 kUó-
metra hraða á beina kaflanum. AU-
ir fengu að prófa og það var greini-
legt að eiginkonur umboðsmann-
anna vora engir eftirbátar þeirra
þegar kom að hraðakstrinum og
setningar eins og „vaáá, þetta var
æðislegt" heyrðust þegar fólkið kom
tU baka.
Stýrinu sleppt á 200
Þetta var ekki í fyrsta sinn sem við
blaðamennimir reyndum hraðakstur
á svona braut og hafði fyrri reynsla
sýnt okkur að það er hægt að láta
hraðann stjóma bílnum. Við aukinn
hraða leitar bUlinn sífeUt ofar í
haUandi hringlaga brautina en um leið
og dregið er úr honum aftur þá leitast
hann við að færa sig sjálfkrafa neðar.
Með því einu að gefa inn er hægt að
láta bílinn skipta um akrein og ef jöfn-
um hraða er haldið þá helst hann kyrr
á sinni akrein.
Subaru Impreza-bílarnir voru
eins og límdir við yflrborð brautar-
innar, og það var skrýtin tilfinning
að sleppa stýrinu á 200 kílómetra
hraða í beygju og finna hvernig bíll-
inn hélt sínu striki án þess að hnika
sér ofar eða neðar þótt enginn héldi
um stýrið.
Það skal þó játað hér, að ekki var
stýrinu sleppt lengi á þessum hraða,
öruggara þótti að hafa hönd í bagga
með stjórnina.
Með því að slaka eUítið á bensín-
gjöfinni þá færðist bUlinn sjálfkrafa
niður á næstu akrein og aftur upp
þegar gefið var inn aftur.
Eftir nokkra hringi hljóp kapp í
menn og áminningarorð yfirmanns
brautarinnar um 150 kílómetra há-
markshraða voru orðin býsna fjar-
læg þegar hér var komið sögu. Með
því að halda góðri siglingu i gegn
um beygjurnar, 180 eða 190 kUó-
metra hraða, var hægt að spyma
Imprezunni í 240 kílómetra hraða á
beina kaflanum áður en hægja
þurfti á ferðinni aftur. Var ekki
laust við að menn spyrðu sjálfa sig
að því hvemig japönsku tUraunabíl-
stjórarnir héldu það út að aka hring
eftir hring á 240 kílómetra hraða
þegar þeir era að reyna bUana í
þolakstri en dæmi eru til þess að
það geri þeir i nokkra klukkutíma
samfleytt þegar verið er að reyna
einhverjar nýjungar eða endurbæt-
ur í bílunum. -JR
Renault sýndi nokkra bUa á bUa-
sýningunni í Tokyó, þar á meðal
hugmyndabílinn Avantime sem
slegið hefur í gegn á öðrum bUasýn-
ingum að undanförnu, aldrifsútgáfu
af Scenic RX4, blæjugerð Mégane
auk Twingo BVR, sem var heims-
frumsýndur í Tokyó með nýjum vél-
rænum gírkassa, sem býður bæði
upp á sjálfskiptingu og handskipt-
ingu.
Mesta athygli vakti hinsvegar
FIFTIE, hugmyndabíU sem er þó
ekki hugmynd neins sem koma skal
frá Renault, heldur miklu frekar
iminningarbUl um liðna tima, eink-
um Renault 4CV, sem átti miklum
vinsældum að fagna þegar hann
kom á markað fyrir 50 áram.
Sésrstök ástæða þótti tU að sýna
þennan bU nú í Japan því 4CV var
einnig framleiddur í Japan af Hino
á sínum tíma og fluttur út tU Banda-
ríkjanna.
-JR
FIFTIE - minningarbfll um liðna tíma.
„Markaðssetning Isuzu á íslandi
hefur tekist ótrúlega vel og sú stað-
reynd að við erum þar með svip-
aða heildarhlutdeild og margir
fólksbUar, þrátt fyrir að við séum
aðeins að selja jeppa og paUbUa, er
nokkuð sem við eram ákaflega
stoltir af,“ sagði Takeshi Inoh, að-
alforstjóri Isuzu í Japan, þegar
hann tók á móti hópi starfsmanna
og umboðsmanna Ingvars Helga-
sonar hf. og Bílheima á sýningar-
bás Isuzu á alþjóðlegu bUasýning-
unni í Tokyo á dögunum.
Hópurinn hafði komið fyrr um
daginn tU Makuhafi-sýningarhaU-
arinnar fyrir utan Tokyo til að
skoða sýninguna og áður en menn
dreifðust þar um sýningarsali bað
Júlíus VífiU Ingvarsson, fram-
kvæmdastjóri Bílheima, hópinn að
hittast á Isuzu-básnum klukkan
tvö því menn þar vildu gjaman
Allir fengu að reyna Impreza turbo á
brautinni í Japan og hér eru þau
Helgi Ingvarsson, framkvæmda-
stjóri Ingvars Helgasonar hf., og
Sigríður Gylfadóttir, kona hans, að
gera sig klár í hraðaksturinn.
Fram undan er akreinaskipting og hemlun a 90 kílometra hraða. Rasfestan
var aðdáunarverð við þau átök.
Alvöru hraðakstur
Eftir hossinginn og lætin á tor-
færubrautinni var loks röðin komin
að því hjá okkur að reyna Impreza
Turbo í hraðakstri á hringbraut-
inni.
Brautin er með þremur akrein-
um, sú neðsta er ætluð upp að 90 til
100 kílómetra hraða, sú næsta
150-170 kílómetra hraða en sú síð-
asta og efsta er ætluð fyrir raun-
verulegan hraðakstur, allt að 240
kílómetra hraða
hitta hann.
Það kom hins vegar honum jafnt
og okkur í opna skjöldu að aðalfor-
stjóri Isuzu skyldi gefa sér tíma til
að hitta hópinn en það var
greinilegt að þessi góða mark-
aðsstaða fyrirtækisins var hon-
um að skapi en allajafna gera
Starfsmenn og umboðsmenn Ingvars Helgasonar hf. og Bflheima ásamt Takes-
hi Inoh í sýningardeild Isuzu á bflsýningunni f Tokyo.
Hér kemur einn Impreza-bílllnn á góðri siglingu eftir tilraunabraut Subaru f Tochigi. Þegar hraðinn varð meiri færðu
menn sig ofar f hallandi brautina. Myndir DV-bflar JR
án þess að nokkurt okkar gæti
breytt þar nokkru um.
Hossast á torfærubraut
Nú var hópnum skipt upp, annar
helmingurinn fékk að reyna sig á
torfærubrautinni sem þeir Subaru-
menn höfðu útbúið til að reyna Out-
back-bílana, en hinir fóru í
hraðakstur á Impreza á hringbraut-
inni.