Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1999, Page 2
20
MÁMMMKM3UR 4JfiW®0BER 1999
Sport
Hvað finnst þér?
Mun Atli Eðvaldsson
ná jafngóðum eða betri
árangri sem
landsliðsþjálfari f
knattspyrnu ogGuðjón
Þórðarson?
Ottó K. Þorgrímsson:
Hann mun ná sama árangri.
Hjálmar Blöndal:
I það minnsta sama árangri
og líklega betri.
Finnur Jóhannsson:
Já, ég hef fulla trú á því.
Anna Birna Smáradóttir:
Ég hef enga skoðun á því.
Orri Einarsson:
Já, já.
Fallegasti fugl-
inn „sem dó“
Á einu golfmótanna sem íslenskir kylfingar tóku þátt í á írlandi á
dögunum og getið er um hér að neðan voru veitt aukaverðlaun fyrir
fallegasta „bördíið" eða fuglinn.
Ingibjörg Halldórsdóttir, GR, hreppti verðlaunin. Á 5. braut sló hún
fallegt högg sem hafnaði í fuglageri sem átti leið þvert yfir brautina.
Golfkúlan hafnaði því miður í einum fuglinum og er skemmst frá því að
segja að hann flaug ekki meira. Hreint ótrúlegt högg og líklega einsdæmi
að kylfmgur nái sliku höggi.
-SK
Teitur á góðum
launum hjá Brann
Eins og komið hefur fram hefur Teitur Þórðarson verið ráðinn næsti
þjálfari norska knattspymuliðsins Brann frá Bergen og tekur hann við
þjálfun liðsins í janúar á næsta ári.
í samtölum við fjölmiðla hafa forráðamenn Brann sagt að Teitur fái
um 8,8 milijónir íslenskra króna í árslaun. Teitur hefúr áður þjálfað
Brann og einnig norsku liðin Lilleström og Lyn. Lið Brann er í fremstu
röð í Noregi. Mikill áhugi er á knattspymu í Bergen og miklar kröfur
em gerðar til liðsins.
-SK
Hjónin Snorri Hjaltason og Brynhildur Sigursteinsdóttir með verðlaunin glæsilegu sem þau unnu á golfmótinu á írlandi á dögunum. DV-mynd Pjetur
Hjónin Snorri Hjaltason og Brynhildur Sigursteinsdóttir sigursæl í golfi:
Boðið á mót
atvinnumanna
„Þetta v£ir mikið ævintýri og við
hjónin erum auðvitað himinlifandi
með árangurinn. Við áttum alls
ekki von á því að ná þessum árangri
og það er óhætt að segja að þetta
hafi komið skemmtilega á óvart,“
sagði Snorri Hjaltason, kylfingur í
GR, í samtali við DV.
Snorri sló í gegn ásamt eiginkonu
sinni, Brynhildi Sigursteinsdóttur,
GR, á golfmótinu Samvinn Irish
Golf Classic, sem fram fór á Druids
Glen-golfvellinum í Dublin á dögun-
um. 60 kylfmgar kepptu á mótinu.
Snorri lék 18 holumar á 71 höggi
með forgjöf en annar varð Yozuro
Ogino, GR, á 73 höggum. Einar
Magnússon, GS, og Erling Pedersen,
GR, komu í næstu sætum á 75 högg-
um.
„Mér gekk frekar illa á fyrri níu
holunum en síðari níu holumar lék
ég á pari og þá gekk allt upp. Þetta
var skemmtUegt mót og keppnin
var hörð,“ sagði Snorri eftir aö sig-
urinn var í höfn.
Brynhildur varö í öðm sæti í
kvennaflokki. Þar sigraði Lucinda
Grímsdóttir, GK, en hún lék á 91
höggi. Brynhildur var á 93 höggum.
í næstu sætum komu þær Sigríður
Jensdóttir, GR, og Agnes Sigurþórs-
dóttir, GR, á 96 höggum.
Þau Snorri og Brynhildur létu
mikið að sér kveða á þremur öðram
mótum sem fram fóra um svipað
leyti á írlandi. Þau sigraðu á móti
sem fram fór í City West Golf Club.
Þar lék Snorri á 65 höggum nettó og
Brynhildur á 75 höggum nettó.
Hermann Jónasson, GS, sigraði
síðan á móti í punktakeppni sem
fram fór hjá Edmundstown Golf
Club. Hermann hlaut 36 punkta. í
kvennaflokki sigraði Brynhildur og
náði 37 punktum. Á móti hjá City
West Golf Club í punktakeppni sigr-
aði Yozuro Ogino, GR, og náði 39
punktum. Ingibjörg Bjamadóttir,
GS, sigraði í kvennaflokki með 30
punkta.
„Allt í einu fór þetta allt að
smella saman“
Snorri hefur stundað golfið siðan
1992 og Brynhildur siðan 1993 en
síðustu árin og þá sérstaklega í
sumar fóra hlutimir að ganga ótrú-
lega vel fyrir sig.
„Þetta ár hefur verið ævintýri lík-
ast í golfinu hjá mér. Mér hefur tek-
ist að sigra á mörgum mótum hér-
lendis og ég hef náð að lækka mig
nokkuð í forgjöf. Nú er bara að vona
að áframhald verði á þessu næsta
sumar,“ sagði Snorri enn fremur.
íþrótta- og ferðamálaráðherra ír-
lands, James McDaid, afhenti öll
verðlaun á mótinu á Draids Glen-
vellinum en írska ferðamálaráðið
gaf þau.
Boðið á mót atvinnumanna
Fyrir sigurinn á mótinu fékk
Snorri ekki einungis glæsileg verð-
laun í formi kristals. Honum var
boðið að taka þátt í Pro/Am móti
Irish Open atvinnumannamótsins
sem fram fer á Druids Glen-vellin-
um á næsta ári.
„Það verður spennandi að taka
þátt í því móti en vist að það verður
erfítt," sagði Snorri Hjaltason.
-SK
V
i