Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1999, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1999, Side 3
MÁNUDAGUR 8. NÓVEMBER 1999 21 Tiger Woods vann glæsileg- an sigur á stór- mótinu á Spáni í gær og endaði leiktíð bestu kylfinga heims með sætum sigri. Spánverj- inn Jiminez varð að játa sig sigraðan f bráðabana og Kærkominn sigur hjá Dormagen Lærisveinar Guömundar Guð- mundssonar unnu kærkominn sigur í þýska handboltanum um helgina þegar liðið lagði Essen að velli, 23-20, og var þetta ann- ar sigur liðsins í deildinni til þessa. Héðinn Gilsson og Róhert Sighvatsson skoruðu fjögur mörk hvor fyrir Dormagen en Patrekur Jóhannesson skoraði eitt mark fyrir Essen. Róbert Duranona skoraði sex mörk fyrir Eisenach sem sigraði Bad Schwartau, 28-25. Ólafur Stefánsson gerði fimm mörk fyr- ir Magdeburg sem tapaði fyrir Frankfurt, 22-19. Gústaf Bjama- son skoraði sex mörk fyrir Willstatt sem tapaði, 27-24, fyrir Nettelstedt. Þá vann Flensburg lið Lemgo, 21-27, en Scútterwald tapaði fyr- ir Gummersbach, 19-24. Staða efstu liða: Flensburg 10 Kiel 9 Lemgo 10 Minden 10 Nordhom 9 Magdeburg 10 1 283-235 18 1 253-209 15 2 259-220 15 2 268-242 15 1 241-197 14 2 285-270 14 -JKS Sport ./ 9 / Andre Agassi með verðlaunin í París í gær. Reuter Agassi varð sá fyrsti Bandaríski tennisleikarinn Andre Agassi varð í gær fyrstur tennisleikara í karlaflokki til að vinna bæði opna franska mót- ið og opna Parísarmótiö á sama árinu, en um er að ræða tvö af stærstu mótum atvinnumanna í tennis árlega. Andre Agassi lék til úrslita á Parísarmótinu í gær gegn Rúss- anum Marat Safin og sigraði í hörkuleik, 7-6, 6-2, 4-6 og 6-4. -SK Tiger Woods varð í gær fyrsti kylfingurinn í 46 ár til að vinna fjögur mót í röð á bandarísku mótaröðinni í golfi atvinnumanna. Ben Hogan lék þetta síðast árið 1953. 50 bestu kylfingar heims tóku þátt í lokamótinu á Spáni um helgina með fáum undantekningum. Keppnin var gífurlega spennandi og varð að grípa til bráðabana til að fá fram úrslit. Tiger Woods var á undan Spánverj- anum Miguel Angel Jiminez i hús og þegar Jiminez kom á 18. teiginn hafði hann eins höggs forskot á Woods. Jiminez lék hins vegar síðustu holuna á höggi yfir pari og þar með voru þeir jafnir á 6 höggum yfir pari. Tiger mætti grimmur í bráðabanann og tókst að leika fyrstu holu hans á höggi undir pari og tryggja sér sigur- inn. Undir lokin hafði Tiger Woods nokkuð þægilega stöðu. Hann lék þá 16. holuna á höggi yfir pari og hina ill- ræmdu 17. holu fór hann á 8 höggum, þremur höggum yfir pari. Þar komst Jiminez í forystuna sem hann síðan glataði á lokaholu mótsins. Ótrúlegt ár að baki hjá „Tægernum" Arið hefur verið ótrúlegt hjá Tiger Woods og eftir langa mæðu náði hann loks að sýna sitt rétta andlit og standa undir þeim væntingum sem til hans eru gerðar. Sigur Woods í gær var sá fjórði í röð eins og áður sagði en alls sigraði hann á átta mótum á bandarísku mótaröðinni í ár. „Þetta hefur verið frábært ár og árangur þrotlausrar vinnu síð- ustu tvö árin skilaði sér. Nú er það minn stærsti draumur að ég geti leikið jafn gott golf á næsta ári,“ sagði Tiger Woods eftir sigurinn. Woods fékk 70 milljónir fyrir sigurinn Fyrir fyrsta sætið fékk Woods um 70 milljónir króna. Þess má hins vegar geta að höggið sem Jiminez tapaði á lokaholu mótsins og gerði það að verkum að hann þurfti að mæta Woods í bráðabana kostaði hann 4,3 milljónir króna. Montgomerie bestur í Evr- ópu Skotinn Colin Montgomerie varð aftarlega á mótinu um helg- ina en þar sem hvorki Lee Westwood né Sergio Garcia unnu mótið vann Montgomerie titilinn besti kylfmgur Evrópu sjöunda árið í röð. -SK ÞIN FRISTUND -OKKAR FAG V llNTER SPORT Bíldshöfða 20 • 112 Reykjavík • 510 8020 • www.intersport.is Guðmundur Stephensen Guömundi í Danaveldi Guðmundur Stephensen gerði það gott í borðtennis á danskri grund um helgina. Á laugardaginn keppti hann með félagi sinu. OB, í deildarkeppninni þegar liðið sigraði Hörn- ing, 8-2. Guðmundur vann báða sína leiki í viðureigninni. í gær gerði Guðmundur sér lítið fyrir og sigraði á sterku stigamóti í Árósum. Hann vann sigur, bæði í einliða- og tvíliðaleik. -JKS - Tiger Woods sá fyrsti til að vinna 4 mót í röð í 46 ár ■ •• B ■ ■ > Mjög góð helgi hjá afrek Þjálfari Lokeren vill fá Ríkharð Þjálfari Lokeren, George Leekens, vill gera allt sem hægt er til að fá Ríkharð Daðason til Lokeren. Það eina sem kemur í veg fyrir það er að Viking Stavanger vill fá 100 milljónir fyrir hann. Komið hefur fram að forráðamenn Lokeren hafa rætt við umboðs- mann Ríkharðs og falast eftir leigu með möguleika á kaupum eftir tímabilið í vor. Viking Stavanger hefur hafnað tilboði Lokeren. Búist er við að belgíska liðið geri aftur tilboð í Ríkharð. „Ég hef voðalega lítið fylgst með gangi mála um helg- ina. Ég hef hvílt mig frá þessu en ég á allt eins von á því að hreyfing komist á hlutina núna á fyrstu dögum vikunnar," sagði Ríkharður Daðason i samtali við DV. Man. City er komið inn í myndina vitað er að af fleiri félögum sem hafa verið í sambandi við umboðs- mann Ríkharðs á síðustu dögum. -JKS/KB ' . ■ .

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.