Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1999, Qupperneq 12
MÁNUDAGUR 8. NÓVEMBER 1999
Kristinn Albertsson.
Metjöfnun hjá Kristni
Kristinn Albertsson jafnaði í gær
met Jón Otta Ólafssonar fyrir flesta
dæmda úrvalsdeildarleiki í körfubolta.
Kristinn dæmdi leik Hamars og Þórs
í Hveragerði í gær, sinn 382. leik, en
hann hefur dæmt í deildinni frá 1982.
Fyrsta leikinn dæmdi Kristinn 25.
febrúar 1982 milli ÍS og Njarðvíkur.
Jón Otti dæmdi sína 382 leiki á árun-
um 1978 til 1994 en eins og kunnugt er
hófst úrvalsdeildin haustið 1978. Jón
Otti hóf dómgæslu aftur á móti árið
1963 og er enn að þó ekki dæmi hann í
úrvalsdeildinni lengur.
Þessir hafa dæmt flesta leiki í sögu
úrvalsdeildar:
Kristinn Albertsson 382, Jón Otti
Ólafsson 382, Bergur Steingrímsson
320, Leifur Garðarsson 290, Kristinn
Óskarsson 266. -ÓÓJ
það nyjasta i DV-Sport á morgun!
Aöfaranótt laugardags:
Boston-Charlotte...........103-100
Anderson 24, Battie 18 - Wesley 17,
Phillips 15.
NJ Nets-Totonto ............92-112
Marbury 25, Haris 19 - Carter 26, Willis
20.
Orlando-Cleveland ..........99-104
Cartling 21, Armstrong 20 Wahd 20 -
Knight 18, Ferry 16.
Detroit-NY Knicks...........91-103
Stackhouse 30, Hill 23 - Houston 29,
Gamby 19.
Houston-SA Spurs.............85-95
Williams 19 Barkley 18 - Porter 18, Elie
15.
Chicago-Miami ..............87-105
Kukoc 25, Hoiberg 11 - Lenard 22, Mash-
bum 21.
Portland-Denver..............95-83
Smith 22, Pippen 18 - Lafrentz 17, Van
Exel 16.
LA Clippers-76ers............91-81
Anderson 21, Odon 18 - Iverson 21,
Lynch 15.
Sacramento-Minnesota.......100-95
Anderson 17, Webber 15, Williams 15 -
Garmett 34, Brandon 18.
Aöfaranótt sunnudags:
Indiana-Boston ............115-108
Miller 29, Jackson 15 - Walker 21, And-
erson 19.
Washington-Orlando.........104-107
Howard 22, Strickland 18 - Armstrong
20, Harping 16.
Atlanta-Cicago............. 113-97
Rider 18, Mutombo 16 - Brand 21, Kokoc
21.
Cleveland-NY Knicks ........102-93
Kemp 25, Knight 18 - Sprewell 22, Hous-
ton 22.
Milwaukee-Detroit .........121-111
Cassell 28, Allen 26 - Stackhouse 20, Hill
18, Laettner 18.
Portland-LA Lakers...........97-82
Pippen 19, Sabonis 17, Stoudamire 17 -
O’Neal 21, Rice 14.
Seattle-Utah Jazz ...........99-94
Payton 22, Patterson 21 - Malone 31,
Russell 20.
Vancouver-Denver ...........109-94
Rahim 27, Reeves 22 - Mercer 31,
Laírentz 19.
Golden State-Dallas.........97-120
MiUs 21, Jamison 21 - Finley 23, Ceball-
os 22.
Minnesota-Sacramento .... 114-101
Garmett 31, Peeler 19 - Webber 22,
Divac 19.
Ástralar heimsmeist-
Portland hefur fullt hús stiga eftir
fjóra leiki í bandaríska körfu-
knattleiknum. LA Lakers komu
þangað í heimsókn og áttu i raun
aldrei möguleika. Portland-liðið, með
Scottie Pippen í broddi fylkingar og
aðra snjalla leikmenn, er til alls
líklegt í vetur.
Lið Boston Celtics hefur byrjað
tímabilið í NBA-deildinni í körfu-
knattleik af miklum krafti. Eftir þrjá
sigra í röð beið liðið sinn fyrsta
ósigur á útivelli gegn Indiana þar sem
tekin var i notkun ný og glæsileg
íþróttahöll. Karl Malone varð fjórði
leikmaðurinn í sögu NBA til að fara
yfir 29.000 múrinn í stigaskorun.
Malone gerði 31 stig í leiknum gegn
Seattle, tók 13 fráköst og var með sjö
stoðsendingar. Frábær körfubolta-
maður þarna á ferð.
Annað frægt félag, Houston
Rockets, hefur tapað þremur fyrstu
leikjum sínum og það er versta byrjun
Houston í sautján ár.
Dallas átti ekki i neinum
erflðleikum með Golden State sem
ekki hefur unnið leik til þessa í
deildinni.
Cleveland lagði New
York í jöfnum leik. Larry Johnsons
var sárt saknað hjá New York en
hann kvartaði undan verkjum í baki
fyrir leikinn.
Byrjunin hjá Milwaukee hefur ekki
verið betri í mörg ár og ætti liðið að
hafa burði til að standa sig vel í vetur.
Sacramento og Minnesota léku tvo
leiki i Tokyo um helgina og sigraði
hvort liðið sinn leik.
Mike Bibby hjá Vancouver var með
16 stoðsendingar gegn Denver sem er
met hjá Vancouver. -JKS/SK
arar í annaö skipti
Ástralía varð heimsmeistari um helgina í rugby eftir sigur á liði
Frakka í úrslitaleik, 35-12.
Ástralar höfðu mikla yfirburöi í úrslitaleiknum eins og tölumar
gefa til kynna. Með sigrinum varð Ástralía fyrst allra landa til að
hampa heimsmeistaratitlinum tvivegis. Árangur Frakka á mótinu
kom mjög á óvart en þeir sigruðu fyrrverandi heimsmeistara í liði
Nýja-Sjálands í undanúrslitum.
Elísabet Englandsdrottning afhendir Áströlum
verölaun sín eftir sigurinn gegn Frökkum.
- er ósigrað í NBA-deildinni og Indiana
stöðvaði sigurgöngu Boston Celtic
Jóhannes Karl Guð-
jónsson lék með varaliði
RC
Genk á
móti
Lokeren
og tap-
aði RC
Genk
6-0. Jó-
hannes
átti ekki góðan dag þama
en hann er nú á forum til
hollenska liðsins MW og
verður þar tvær vikur til
reynslu.
Enrique Martin, þjálf-
ari spænska 2. deildarliðs-
ins Leganes í knatt-
spyrnu, hefur verið
dæmdur í 10 leikja bann.
Martin „tæklaði" einn
andstæðing sinna manna
á dögunum er hann var að
komast einn inn fyrir
vöm Leganes við hliðar-
línuna. Leganes vann leik-
inn 1-0 og úrslitin standa.
Úrslitaleikurinn í
Meistaradeild Evrópu í
knattspymu mun fara
fram á Stade de France-
leikvanginum í París
þann 24. mai á næsta ári.
Úrslit UEFA-bikarsins
fara fram i Kaupmanna-
höfn 17. maí.
Magnus Svensson, fé-
lagi Ríkharðs Daðason-
ar hjá norska liðinu Vik-
ing, hefur verið seldur frá
félaginu til danska liðsins
Bröndby. Kaupverðið var
um 110 milljónir íslenskra
króna. Svensson, sem er
31 árs, skrifaði undir eins
árs samning við danska
liðið.
Rúnar Alexandersson,
fimleikamaður úr Gerplu,
varð í
sjöunda
sæti í
æfing-
um á
boga-
hesti á
alþjóð-
legu
stigamóti í Glasgow um
helgina. Rúnar fékk 9,55 í
einkunn fyrir æfingamar
en það var Rúmeni sem
sigraði og fékk hann 9,90 í
einkunn.
Albert Ferrer, bak-
vörð-ur Chelsea, hefur á
ný verið valinn í spænska
landsliðshópinn í knatt-
spymu. Spánveijar leika
vináttuleiki gegn Brasilíu
og Argentínu um miðjan
þennan mánuð. Femer á
35 landsleiki að baki en
hann hefur ekki verið i
náðinni hjá landsliðsþjálf-
aranum síðan hann fór til
Chelsea.
Enska sjónvarpsstöðin
BskyB hefur keypt 9,9%
hlut í enska knattspymu-
félaginu Man. City. Kaup-
verðið var um 620 milljón-
ir íslenskra króna. City er
efst í B-deildinni. Áður
hafði BskyB keypt sama
hlut í Leeds og Man Utd.
-SK
3g*
Slagurinn er hafinn f NBA. Hér berjast þeir Bryce Drew í Houston, til hægi, og Jacque Vaughn, bakvörður Utah Jazz, um
boltann.
Reuter
Portland