Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2000, Blaðsíða 6
6
MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 2000
Viðskipti
DV
Þetta helst: Viðskipti á VÞÍ 714 m.kr.,.. Mest með hlutabréf, 224 m.kr,... Mest með bréf Landsbankans,
44 m.kr,... íslenski hugbúnaðarsjóðurinn hækkaði um 14,4% í 37 m. kr. viðskiptum... Plastprent lækkaði um
6,6%...Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,13% og er nú 1.608 stig...Vísitalan hefur lækkað um 0,74% frá áramótum...
Seðlabankinn hækkar
vexti um 0,8 prósent
Bankastjóm Seðlabanka íslands
hefur ákveðið að hækka vexti bank-
ans I viðskiptum hans við lánastofn-
anir um 0,8 prósentustig, meö gildis-
töku 12. janúar 2000. Ávöxtun í til-
boðum bankans á Verðbréfaþingi ís-
lands hækkar einnig samsvarandi.
Ávöxtun í endurhverfum viðskiptum
bankans hækkar um 0,8 prósentustig
á næsta uppboði og vextir á við-
skiptareikningum og á bindireikn-
ingum lánastofnana 21. janúar nk.
Frá því að Seðlabankinn hækkaði
vexti í september sl. hefur dregið úr
Síminn GSM
semur við
Globalstar
gervihnattasam-
steypuna
Síminn GSM gekk nýverið frá
reikisamningi við Globalstar gervi-
hnattasamsteypuna. Samningurinn
opnar handhöfúm GSM-korta Sím-
ans aðgang að fjarskiptaneti sem
veitir þjónustu i yflr 120 löndum.
Notendur munu þó þurfa að flytja
símakort sín yfir í sérstaka síma
sem gerðir eru sérstaklega fyrir
þessa þjónustu. Samningurinn verð-
ur virkur eftir nokkrar vikur.
Globalstar GSM-símamir virka
þannig að þegar notandinn er innan
þjónustusvæðis Símans GSM teng-
ist síminn yfir landstöðvar en utan
þjónustusvæðis, t.d. úti á sjó eða
uppi á jöklum, tekur gervilmatta-
kerfið sjálfvirkt við. Það sama á við
ef notandi er staddur í landi þar
sem engin
GSM-þjónusta er, þá er skipt yfir
á gervihnettina. Tengingar um
gervihnettina og þjónusta mun fara
fram um jarðstöð í Frakklandi sem
er í eigu fjarskiptarisans TE.SA.M.
Það er samsteypa France Telecom,
ijórða stærsta ijarskiptafyrirtækis
heims, og Alcatel, stærsta framleið-
anda fjarskiptabúnaðar. TE.SA.M
rekur Globalstar þjónustu í 31 landi
í Suður-Ameríku, Evrópu, Mið-
Austurlöndum og Asíu.
Eigandi og rekstraraðili Globalst-
ar á íslandi er Martel ehf. með að-
setur á Húsavík. Globalstar Atlantic
er einnig rekstraraðili fyrir þjónust-
una á Grænlandi, í Færeyjum og á
Norður-Atlantshafmu öllu. Globalst-
ar byggist á nýjustu tækni i fjar-
skiptum, svoköúuðum CDMA-staðli.
Þessi tækni hefúr verið nefnd
tækni nýrrar aldar þar sem næsta
kynslóð farsímakerfa mun byggjast
á sama grunni. í Globalstar fara
samskiptin fram um 48 lágfleyga
gervihnetti og net jarðstöðva víða
um heim.
því aðhaldi sem fólgið er í stýrivöxt-
um bankans. Meginástæða þess er
að verðbólga og verðbólguvænting-
ar hafa vaxið. Þá hafa vextir hækk-
að í mikilvægum viðskiptalöndum
undanfarna mánuöi, auk þess sem
nýjar reglur bankans um laust fé
lánastofnana hafa leitt til nokkurr-
ar lækkunar á vöxtum á millibanka-
markaöi það sem af er þessu ári.
Gengiö hækkaö
Gengi krónunnar hækkaði eftir
vaxtahækkun bankans í september,
hélst óbreytt um stund i nóvember
en hækkaði síðan áfram í desember.
Það sem af er janúar hefur það hins
vegar lækkað nokkuð. Seðlabank-
inn telur að í desember hafi gætt
tímabundinna áhrifa til styrkingar
gengi krónunnar, m.a. vegna litilla
kaupa á erlendum verðbréfum og
viðbúnaðar fjármálastofnana vegna
áramótanna. I riti sínu, Peninga-
málum, sem út kom í nóvember sl.,
lýsti Seðlabankinn því yfir aö hann
teldi nauðsynlegt að skammtíma-
vextir yrðu nógu háir til
þess að stuðla að hækk-
un á gengi krónunnar
frá þvi sem það var þeg-
ar bankinn gaf út verð-
bólguspá sína 25. októ-
ber sl. Ástæðan var sú
að verðbólguspáin fól í
sér meiri verðbólgu á
því ári sem nú er hafið
en hægt er að una við,
þ.e. 4,1% á milli áranna
1999 og 2000. í dag er
gengi krónunnar
nokkum veginn hið
sama og það var 25.
október.
Vaxtahækkun Seðla-
bankans nú staðfestir
þann ásetning bankans að fylgja
áfram peningastefnu sem stuðlar að
hærra gengi krónunnar og þar að
með minni verðbólgu en ella.
Þormóður rammi - Sæberg hf. og Árnes hf:
Sameining samþykkt
Á hluthafafundi í Ámesi hf. sem
haldinn var 7. janúar 2000 var sam-
þykkt að sameina Ámes hf. Þormóði
ramma - Sæbergi hf. undir nafni Þor-
móðs ramma - Sæbergs hf. Samein-
ingin miðast við 1.7. 1999. Mættir
voru á hluthafafundinn fulltrúar eig-
enda að 97,35% hlutafjár í félaginu.
Samþykkir sameiningu voru eigend-
ur að 94,18% hlutafjár en fulltrúar
Farkosts ehf., Reykjaprents ehf.,
Karls Þráinssonar og Harðar Einars-
sonar, þeir Óttar Yngvason og Hörð-
ur Einarsson sem fóra fyrir 3,17%
hlutafiár létu bóka mótmæli við sam-
einingunni.
Á stjómarfundi í stjóm Þormóðs
ramma - Sæbergs hf. sem haldinn
var i Þorlákshöfn þann 7. janúar 2000
var sameining við Ámes hf. einnig
staðfest.
Sem gagngjald fyrir hlutabréf i Ár-
nesi hf. að nafnverði kr. 24.036.385 fá
hluthafar hlutafé í Þormóði ramma -
Sæbergi hf. að nafnverði kr. 7.082.150
en hlutafé Þormóðs ramma - Sæbergs
hf. verður óbreytt, kr. 1.300.000.000.
Þenslan ryður iðnaði úr landi
- segja Samtök iönaöarins
Samkeppnishæfi íslensks iðnaðar er
erfið um þessar mundir m.a. vegna
mikilla innlendra kostnaðarhækkana.
Samtök iðnaðarins héldu blaðamanna-
fúnd í gær þar sem farið var yfir stöðu
iðnaðarins og þar kom fram að kostn-
aðarhækkanir, verðbólga og launa-
hækkanir væm að minnka markaðs-
hlutdeild innlendra fyrirtækja og fram-
leiðslan væri að færast í hendur er-
lendra aðila. Samtök iðnaðarins telja
helstu orsökina vera þá að stjómvöld
hafi ekki staðið sig í hagstjóminni.
Þetta birtist meðal annars í stóraukn-
um fiölda opinberra starfsmanna og
launahækkunum til handa þeim sem
em langt umfram launahækkanir á al-
mennum vinnumarkaði. Samtökin
telja að stjómvöld þurfi að beita ýtrasta
aðhaldi um þessar mundir og segja að
nýsköpun og varanlegur hagvöxtur sé í
húfi.
Miklar kostnaöarhækkanir
Á tímabilinu 1995 til 1999 hækkaði
kostnaður við framleiðslu hér á landi
Sveinn Hannesson
framkvæmdastjóri.
ríflega tvöfalt
hraðar en ytra.
Mest munar þar
um ríflegar inn-
lendar launahækk-
anir og vaxandi
verðbólgu. Á áður-
nefiidum tíma
hækkuðu laun í
ffamleiöslu hér
um tæp 29% en um
12% í iðnríkjun-
Haraldur Sumar-
li&ason forma&ur.
um. Ber þetta vott um þenslu á inn-
lendum markaði.
Til að veija markaðsstöðu sína hafa
fyrirtækin tekið á sig hækkanir og hag-
rætt eftir megni. Könnun Samtaka iðn-
aðarins á afkomuþróun fýrirtækja í
greininni sýnir að afkoman er að
versna bæði í krónum talið og sem
hlutfall af tekjum. Hagræðing og af-
komuskerðing hefúr hins vegar ekki
dugað til. íslenskar vörur hafa undan-
farið hækkað meira en erlendar.
í óformlegri símakönnun Samtaka
iðnaðarins í nóvember síðastliðnum
Engin skynsemi í verði bankanna?
Miðað við lokagengi bréfa bank-
anna á föstudag er Búnaðarbankinn
verðmætari en íslandsbanki en
markaðsvirði Búnaðarbankans var
21,9 milljarðar en íslandsbanka 21,4
milljarðar. „Séu fiárfestar tilbúnir
að borga þetta verð fyrir Búnaðar-
bankann þá má ætla að kauptæki-
færi sé í íslandsbanka því hann ætti
skv. allri skynsemi að vera verð-
mætari en Búnaðarbankinn," segir
Viðskiptastofa SPRON í dag. Reynd-
ar lækkaði verð í Búnaðarbankan-
um nokkuð í gær.
í Fjármálafréttum Viðskiptastofu
SPRON í gær kemur fram að þó
ekki væri tekinn annar mælikvarði
en stærð efnahagsreiknings ætti ís-
landsbanki að vera verðmætari.
„Einnig má benda á að íslandsbanki
hefur náð lengra í hagræðingu held-
ur en Búnaðarbankinn og hefur t.d.
mun hagkvæmara útibúanet," segir
Viðskiptastofa SPRON.
Fram kemur að samrunasögur
spili eflaust stóran hlut í verði
bankanna um þessar mundir. „Ekk-
ert er enn í hendi þar en ljóst að
óðum styttist í stóra sameiningu.
Margir hafa talað um samruna ís-
landsbanka og Landsbanka og verði
sú raunin þá er vandséð að Búnað-
arbankinn geti náð fram viðlíka
hagkvæmni út úr samruna við ann-
an aðila á markaðinum.“
Með þessum orðum segist Við-
skiptastofa SPRON ekki vera að
mæla sérstaklega með því að fólk
selji bréf sín í Búnaðarbankanum
en vill hins vegar benda á að verð-
mæti bankanna er afar furðulegt.
„Og t.d. spyr maður hvaða rök séu
fyrir því aö FBA sé metinn á 25,16
milljarða," segir í Fjármálafréttum
Viðskiptastofu SPRON.
voru stjómendur
þrjátíu fram-
leiðslufyrirtækja
spurðir: „Telur þú
að launáhækkanir
á þessu og síðasta
ári hafi vegið að
samkeppnisstöðu
fyrirtækisins gagn-
vart erlendum
keppinautum?“
97% svömðu ját-
andi. Einnig vora
stjómendumir
spurðir hvort þeir
teldu að þetta hefði
skert afkomu
þeirra og markaðs-
hlutdeild. Mikill
meirihluti svaraði
því einnig játandi.
Óvenjuslæm
staöa
Að mati OECD hefúr samkeppnis-
staða íslenskrar framleiðslu ekki verið
verri gagnvart erlendri í yfir tvo ára-
tugi. Em þá undanskilin árin 1987 og
1988 en efnahagsmistök þeirra ára
leiddu til mikillar efnahagslægðar
fyrstu ár tíunda áratugarins. Versn-
andi samkeppnisstaða lýsir sér í ugg-
vænlegum og viðvarandi viðskipta-
halla.
Til að bregðast við þessari alvarlegu
stöðu telja Samtök iðnaðarins brýnt að
ríki og sveitarfélög auki aðhald í út-
gjöldum. Einnig er nauðsynlegt að
beita öllum tiltækum ráðum til að
auka framleiðni fyrirtækja hér á landi.
Síðast en ekki síst telja þau að gera
þurfi hóflega kjarasamninga. Gangi
þetta ekki eftir er stefnt í hættu þeirri
kaupmáttaraukningu sem náðst hefúr
hér á landi á síðustu árum.
Ingólfur Bender,
hagfræöingur.
Avis og Geysir sameinast
Bílaleigumar Avis og Geysir hafa
sameinað krafta sina í upphafi nýs
árs og er úr orðin næststærsta bíla-
leiga landsins sem ráða mun yfir um
25% hlutdeild í markaðnum. Ekki
verður fundið nýtt nafh á hið nýja
fyrirtæki heldur munu bæði nöfnin
verða notuð áfram. Viðskiptavefur-
inn á Vísi.is greindi frá.
Markaösviröi 231 milljaröur
f Morgunpunktum Kaupþings í
gær kom fram að nú um áramótin
tók gildi ný samsetning Úrvalsvisi-
tölunnar. Hin nýja samsetning gildir
frá 1. janúar 2000 til 1. júlí 2000. Fé-
lögin Baugur og Olíufélagið koma ný
inn í vísitöluna en HB og Opin kerfi
heltust úr lestinni. Hér verður þó að
hafa í huga að vísitalan er samsett af
þeim félögum sem hafa hvað
virkasta verðmyndun á þinginu en
val ber að öðru leyti ekki að túlka
sem gæðastimpil á viðkomandi
hlutabréf. Miðað við gengi bréfa fé-
laganna þann 11. janúar sl. er heild-
armarkaðsverðmæti félaga í Úrvals-
vísitölunni nú rúmur 231 milljarður
króna.
Stærsta félagið í vísitölunni ef lit-
iö er til markaðsverðmætis er Eim-
skipafélagið sem nú er um 39 millj-
arða króna virði.
Gjaldeyrisforðinn jókst í des-
ember
Gjald-
eyrisforði
Seðlabank-
ans jókst
um 3,4
milljarða
króna í desember og nam 34,8 millj-
örðum króna í lok mánaðarins.
Hækkun forðans í desember skýrist
af tímabundinni hækkun á innstæð-
um á innlendum gjaldeyrisreikning-
um í Seðlabankanum.
Rafskaut brotna
Ofnar í jámblendiverksmiðjunni
á Grundartanga hafa stöðvast fimm
sinnum á
fimm vikum. Ástæðan er brotin
rafskaut. Þetta er talið óvenjulegt
þar sem rafskaut brotna yfirleitt
ekki nema þrisvar til fimm sinn-
um á ári. í síðustu viku brotnaði raf-
skaut í nýjasta ofninum. Til að hægt
sé að gera við rafskaut þarf að loka
viðkomandi ofni og síðan tekur það
nokkum tíma að keyra ofninn upp
að nýju. Þetta mun hafa einhvem
kostnað för með sér.
Samvinnusjóöurinn kaupir
eigin bréf
Samvinnusjóður íslands hefur
keypt eigin bréf að nafnvirði um 17,8
mÚljónir króna. Miðað við gengi
bréfa félagsins um 3,0 er markaðs-
verðmæti hlutarins rúmar 53 millj-
ónir króna.
GM eignast Saab að fullu
General Motors, stærsti bílafram-
leiðandi heims, hyggst nýta sér
kauprétt á 50% bíutafiár í Saab
Automobile sem nú er í eigu sænska
eignarhaldsfélagsins Investor. GM á
kauprétt á bréfúnum sem rennur út
í janúarlok. Fyrir á GM 50% hlut í
Saab og mun því eiga félagið að fúllu
eftir kaupin.
Afkoma Alcoa umfram vænt-
ingar
Hlutabréf í bandaríska álframleið-
andanum Alcoa hækkuðu skarpt í
fyrradag eftir að félagið birti rekstr-
amppgjör fyrir fiórða ársfiórðung.
Afkoma félagsins batnaði verulega,
fór úr 59 sentum á hvem hlut í 89
sent á hlut sem er um 50% hækkun.
Afkomubatinn er þakkaður viðtæk-
um aðgerðum til lækkunar kostnað-
ar og hækkandi álverðs.