Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2000, Qupperneq 7

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2000, Qupperneq 7
MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 2000 7 Fréttir Bobby Fischer 1 pattstöðu: Davíð vildi hjálpa Fischer Davíð Oddsson forsætisráðherra vildi gjaman ræða við Clinton Bandaríkjaforseta um að Bobby Fischer yrði leyft að koma og dvelja á íslandi fyrir tveimur og hálfu ári án þess að eiga á hættu handtöku og framsal til Banda- ríkjanna. Ætlun- in var að bjóða honum til 25 ára afmælismóts heimsmeistara- einvígisins í Laugardalshöll. Davíð og Clint- on hittust á þess- um tíma að máli á fundi í París og áttu saman við- ræður. Ekki þótti rétt, segja heim- ildir DV, að leggja vandamál fyrrum heimsmeistarans fyrir forsetann á þeim tima. Madeleine Albright var að taka við embætti utanríkisráð- herra og var á höttunum eftir stríðs- glæpamönnum frá fyrrum Júgóslavíu. Öll eftirgjöf var talin útilokuð. Bobby Fischer tók þátt í einvígi gegn Spasskí í Belgrad og óhlýðnaðist bandarískum yfirvöld- um. Hann á enn yfir höfði sér dóm heima fyrir enda þótt vitað sé að geðheilsa hans sé afar tæp og hann búi við mikla einsemd í Búdapest í Ungverjalandi. „Viðtöl við Bobby, sem hafa verið á Netinu, benda ekki til að hann sé í andlegu jafnvægi," sagði Guð- mundur G. Þórarinsson sem stýrði heimsmeistaraeinvíginu forðum daga. Hann og nokkrir félagar í skákhreyfingunni fóru í lok síðustu viku á fund sendiherra Bandaríkj- anna og báðu hann að beita sér fyr- ir að Fischer fengi að fara til síns heima án þess að eiga sakfellingu yfir höfði sér. Þeirri vinnu verður haldið áfram. -JBP Davíð Oddsson. Bobby Fischer. Móðurást í snjóhúsi * 4: ■ * . t- ..W' é ir Móðurástin er heit - líka í snjóhúsi. Pessi tveggja ára Hveragerðishnáta eignaöist snjóhús á dögunum enda nægur snjórinn á háhitasvæöinu. Hún flutti inn með sína tuskudúkku. Síödegisblundurinn var undirbúinn, dúkkan vel dúöuð í hlýja sæng, síðan leggst „mamman" hjá dúkkunni sinni - og loks er sú litla gleymd utan sængur en skælbrosir samt meöan telpunni síg- ur svefn á brá. DV-mynd Eva Hreinsdóttir Héraðsdómur Norðurlands eystra: Geysileg fjölgun opinberra mála DV, Akureyri: Geysileg fjölgun varð á flutningi opinberra mála hjá Héraðsdómi Norðurlands eystra á Akureyri á síðasta ári. Alls urðu málin 382 tals- ins en voru 204 árið áður þannig aö aukningin er hátt í 100%. Einkamálum sem. komu til kasta dómstólsins fjölgaði einnig mjög mikið milli ára, þau voru 384 árið 1998 en á síðsta ári voru þau 523. Aðrir umfangsmiklir málaflokkar voru sektarboðsmál sem voru 116 á móti 27 árið áður, 73 gjaldþrota- skiptamál á móti 56 árið áður en í þeim voru úrskurðir 30 talsins. -gk Norður- og Austurland: „Kjötrisinn“ út af borðinu DV, Akureyri: Viðræðum sem staðið hafa yfir um sameiningu fimm stórra aðila i slátrun og kjötvinnslu hefur ver- ið hætt. Þessir aðilar eru Kaupfé- lag Héraðsbúa, Egilsstöðum, Kjöt- iðjan á Húsavík, Kaupfélag Ey- firðinga, Norðvesturbandalagið á Hvammstanga og Kjötumboðið í Reykjavík. Fyrirhugað hafði verið að um áramótin yrði til nýtt hlutafélag á þessu sviði, hið stærsta sinnar tegimdar hér á landi, með það markmið að ná fram verulegri hagræðingu og bættri afkomu. Viðræður aðfia leiddu i ljós veru- legan mun á viðhorfum viðræðu- aðila um framtíðaruppbyggingu afurðastöðvanna og var því ákveðið að hverfa frá fyrirhug- aðri sameiningu, um sinn a.m.k. -gk fReykj avtkurborg Borgarverkfrœðingur Grafarholt - 2. áfangi lóðaúthlutunar Lóðir fyrir einbýlishús Auglýst er eftir umsóknum um byggingarrétt fyrir einbýlihús á eftirtöldum lóðum. Byggingarrétturinn verður seldur einstaklingum og fjölskyldum á föstu verði. Þeir umsækjendur, sem sóttu um byggingarrétt fyrir einbýlishús í 1. áfanga Grafarholts, þurfa að staðfesta eldri umsóknir með áritun á þær eða með bréfi. Dregið verður úr umsóknum sem uppfylla skilyrði fyrir þessar lóðir og fá umsækjendur að velja sér lóðir í þeirri röð, sem umsóknir þeirra verða dregnar út. Áður en val lóða fer fram, skal umsækjandi leggja fram skriflegt mat banka eða annarrar viðurkenndrar fjármálastofnunar, sem staðfestir að hann ráði við 20 millj. króna húsbyggingu. Þeir sem ekki leggja fram fullnægjandi greiðslumat glata valrétti sínum. Um er að ræða eftirtaldar einbýlishúsalóðir: • Ólafsgeisli 77-85: 5 lóðir, tveggja hæða hús. Hámarksstærð húss 185 m2. • Ólafsgeisli 87-97: 6 lóðir, tveggja hæða hús. Hámarksstærð húss 210 m2. • Ólafsgeisli 99-111: 7 lóðir, tveggja hæða hús. Hámarksstærð húss 240 m2. • Kirkjustétt 23 og 24-28: 4 lóðir, tveggja hæða hús. Hámarksstærð húss 250 m2. Athygli er vakin á því, að ráðgert hafði verið að einbýlishúsalóðirnar við Kirkjustétt yrðu í 3. áfanga lóðaútboðs, en þær hafa verið settar í 2. áfanga. Engar einbýlis- húsalóðir verða því í 3. áfanga. Lóðir fyrir tvíbýlishús Leitað er eftir kauptilboðum í byggingarrétt fyrir tvíbýlishús á eftirtöldum lóðum: • Ólafsgeisli 20 - 28: Lóð fyrir fimm tvíbýlishús á 2 - 3 hæðum. • Ólafsgeisli 113 -117: Lóð fyrir þrjú tvíbýlishús á 2 - 3 hæðum. • Ólafsgeisli 119-125: Lóð fyrir fjögur tvíbýiishús á 2 - 3 hæðum. Byggingarrétturinn er boðinn út til einstaklinga, byggingameistara og fyrirtækja og skal bjóða í einstök hús, þótt fleiri standi saman á lóð. Byggingarrétturinn verður seldur ásamt samningi um hönnun húsanna. Hönnuðirnir hafa verið valdir meó hæfnisvali. Hæstbjóðandi í hvert hús skal leggja fram upplýsingar um fjármál sín og áætlun um fjármögnun framkvæmda við viðkomandi húsbyggingu áður en afstaða verður tekin til tilboðs hans. Lóðir fyrir raðhús, keðjuhús, fjölbýlishús og húsaþyrpingar Leitað er eftir kauptilboðum í byggingarrétt á eftirtöldum lóðum. • Maríubaugur 5-11, Maríubaugur 13 -19 og Maríubaugur 21 - 29: Þrjár lóðir fyrir einnar hæðar keðjuhús með ýmist 4 eða 5 íbúðum. • Maríubaugur 31 - 39, Maríubaugur 41 - 51 og Maríubaugur 53-61: Þrjár lóðir fyrir raðhús á 1 - 2 hæðum með ýmist 5 eða 6 íbúðum. • Kristnibraut 25 - 29, Kristnibraut 31 - 35, Kristnibraut 37 - 41, Kristnibraut 43 - 47,Kristnibraut 49 - 53 og Kristnibraut 55 - 59: Sex lóðir fyrir fjölbýlishús á 2 - 3 h. auk kjallara. íbúðafjöldi er misjafn eftir lóðum, er er á bilinu 17-22 íbúðir. • Húsaþyrpingar við Grænlandsleið. í hverri þyrpingu eru á bilinu 3-5 einbýlishús og 3 - 6 par- eða raðhús. Bjóða skal í byggingarrétt fyrir hverja húsaþyrpingu fyrir sig. Byggingarrétturinn er boðinn út til einstaklinga, byggingameistara og fyrirtækja. Tilboð skulu taka til alls byggingarréttar á hverri lóð. Hæstbjóðandi í byggingarrétt á hverri lóð skal leggja fram upplýsingar um fjármál sín og áætlun um fjármögnun framkvæmda við viðkomandi húsbyggingu áður en afstaða verður tekin til tilboðs hans. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu borgarverkfræðings, Skúlatúni 2, 3. hæð, sími 563 2300. Þar fást einnig afhent umsóknareyðublöð, útboðsreglur og skilmálar. Tilboðum og umsóknum í byggingarrétt í 2. áfanga Grafarholts skal skila til skrifstofu borgarverkfræðings í síðasta lagi þriðjudaginn 25. janúar nk. kl. 16:00. Tilboð verða opnuð sama dag kl. 16:10 í Skúlatúni 2, 5. hæð, að viðstöddum þeim bjóðendum, sem þess óska. Umsækjendur eða bjóðendur skulu leggja fram staðfestingu þess efnis, að þeir séu ekki í vanskilum með opinber gjöld eða veita borgarverkfræðingi skriflega heimild til að afla slíkrar staðfestingar. Hafi staðfesting þessa efnis fylgt eldri umsókn eða tilboði nægir að vísa til þess. Borgarverkfræðingurinn í Reykjavík. *L=___________________________________1—............. ..................—/ ~WWa 15% staögreiöslu- og greiðslu- kortaafsláttur og stighœkkandi birtingarafsláttur Smáauglýsingar IHCT S50 5000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.